Orðlaus - 01.12.2004, Blaðsíða 10
11UP BESTU KARLKYNS
HLU TUERKIII KMYNDASÖGUNNflR
Þaö hafa vafalaust margir pælt í hvaða hlutverk séu meöal þeirra
bestu, eftirminnilegustu og sérstæöustu sem tilheyra sögunni. Hérna
tók ég saman minn eigin lista (ásamt örfáum athugasemdum) um þau
hlutverk sem hafa náð að varðveitast best í mínu minni, í flokki karla
þ.e.a.s. Vissulega verður ekki neitað að hægt er að telja upp fleiri
en rétt svo 10 sæti, þannig að auðvitað voru nokkrar rullur þarna
sem gátu því miður ekki fylgt með. Samantektin var erfið og krafðist
mikilla hugsana, en eftir standa þau nöfn sem hér eru talin upp.
Texti: Tómas Valgeirsson
’
Indiana Jones
Harrison Ford
Ford var svo sannarlega í toppsætinu á
níunda áratugnum, með tvær ótrúlega
nettar fígúrur: Han Solo og svo Indy.
Persónulega finnst mér Indiana Jones
eiga heiðurinn frekar skilið. Kannski
það hafi eitthvað að gera með það
að hann skuli vera aðal- en ekki
aukapersóna, en það skiptir svosem
engu, hlutverkið er nánast ódauðlegt.
Á tímabili þar sem nöfn á borð við
Schwarzenegger og Stallone reyndu
að gera það gott sem hasarhetjur hélt
Ford kallinn alltaf sínu forskoti. Indiana
Jones dró líka hetjugeirann í allt aðra
átt. Ekki þótti beint hversdagslegt að
sjá fornleifafræðing gangandi um með
svipu berja illmenni í klessu. Indy er
mjög mikill "meðalmaður." Hann er oft
harður á sér, en jafnframt mannlegur og
því eru jafn miklar líkur á því að hann
tapi bardaga og næsti maður. f þremur
stórskemmtilegum myndum er hægt
að horfa á garpinn, og flestir ættu að
vita það núna að þær eru skyldueign í
vídeóhillur hvers og eins.
yler Durden
Brad Pitt
Fight Club
Hver er svo Tyler Durden? Enn einn
brjálæðingurinn? Aldeilis ekki. Tyler
Durden varð fljótlega að einu frægasta
bíómyndanafni kvikmyndasögunnar.
Brad Pitt sannaði sig sem meira en
einungis"sættandlit"ogskiptiyfiríal!t
annan gír. Með Tyler sýndi hann líklega
sína skuggalegustu hlið og jarðaði sína
venjulegu ímynd sem gerði stelpurnar
svo hrifnar af honum (og þó... hann fer
ansi oft úr bolnum I þessari). Durden er
bara einn af þessum karakterum sem
eru bara með orðið "töff" stimplað á
ennið á sér, og frasarnir hans eru margir
hreinir gullmolar (hver þekkir t.d. ekki
regluupptalninguna?). Týpa hans er
bæði truflandi og aðdáunarverð, og
sjálfum finnst mér það henta Brad best
að leika sjúka brjálæðinga, svipað og í
12 Monkeys.
Edward Scissorhands
Johnny Depp
Depp er maður margra andlita, og á
svo mörg fjölbreytt og eftirminnileg
hlutverk að baki (sbr. Ed Wood, Jack
Sparrow, lchabot Crane svo einhverjir
séu nefndir) að það er rosalegt átak
að finna einungis eitt. Ég stend þó
við val mitt á Edward. Ekki beint
hans kröfuharðasta val hlutverka, en
persónan er einstök, bæði sorgleg
og sígild. Minnir á mun ýktari útgáfu
af Gosa og fjallar sagan um mann
sem vill bara vera eins og hinir, væri
það ekki fyrir þá hindrun að hann
hefur skærakrumlur. Tim Burton
tókst að mynda góða sögu í kringum
andrúmsloftið, en Depp skilaði
frammistöðunni ómótstæðilega.
Maður gæti varla talist mannlegur ef
maður færi að segja að sagan - eða
jafnvel persónan - snerti mann ekki
á einhverju stigi. Fígúran er líka svo
brothætt að léttilega hefði einhver
annar leikari getað klúðrað henni.
■ ■ ' ■■■"' •' ■:.;'
|£4|
sh
Bruce Campbell
Evil Dead serían
V
Það er ekki mikið um þennan að
segja. Fígúran Ash er bara urrandi
snilld. Gjörsamlega vonlaus hetja
sem á endanum nær alltaf að standa
sig samt sem áður. Bruce Campbell
gerðist konungur B-hryllingsmynda
með þessari rullu í þríleik sínum, enda
maðurinn bæði nettur og bráðfyndinn
^við hvert tækifæri. Þeir sem ekki hafa
séð Evil Dead myndirnar eru beðnir um
að skjótast út á næstu leigu strax og
kynnast þessum frábæra karakter.
Norman Bates
Anthony Perkins
Psycho
Hver á jarðríki þekkir EKKI til
sturtuatriðisins fræga? En sú sena var
ekki einungis það sem gerði Psycho að
þeirri klassik sem hún er, heldur fer stór
hluti þess heiðurs til Anthony Perkins.
Af útlitinu að dæma og framkomu er
Norman Bates bara feiminn, blíður
ungur maður. Maður fer virkilega að
kunna vel við hann við fyrstu kynni,
en fljótt kemst áhorfandinn að því að
það er ekki útlitið sem skiptir máli,
heldur hugurinn, sem í þessu tilfelli er
ofboðslega skemmdur. Norman Bates
er óhugnanlegur maður einfaldlega
vegna þessað hann ersvo lágstemmdur.
Maður veit einhvern veginn aldrei fyrir
víst hvað heilinn hans er að hugsa, og
svipbrigði hans eru mjög lúmsk. Þessi
mömmudrengur sá til þess að margir á
sjöunda áratugnum þorðu ekki lengur
í sturtu.
lexDeLarge
Malcolm McDowell
A Clockwork Orange
Hvar hefur Malcolm McDowell haldið
sig undanfarna áratugi?? Þessi maður
stendur á bakvið eitt eftirminnilegasta,
kröfuharðasta og magnaðasta hlutverk
síðustu aldar. Alex er I upphafi
myndarínnar einhver hrottalegasti,
ógeðfelldasti og allra skemmdasti
unglingur sem hægt er að kynnast.
En eftir mjög fágaða meðferð tekst
honum að umbreytast í andstæðu sína.
Myndin flytur á mjög svo sterkan hátt
þann boðskap að sumt verður ekki tekið
til baka, a.m.k. ekki gegnum auðveldu
leiðina. Persónan Alex gengur gegnum
afar átakanlegt og hart þroskaskeið,
sem gerir þetta að einu besta hlutverki
kvikmyndasögunnar. McDowell er
auðvitað dásamlegur, og svipbrigði
hans segja meira en þarf.
Don Víto Corleone
Marlon Brando
he Godfather
U
ALDREI hef ég séð einn karakter eins
oft verið tekinn fyrir í stælingum og
sjálfan Corleone, þar sem Marlon
Brando er hátt í fullkominn í rullunni.
Hver þekkir svosem ekki mafíósann
víðfræga sem talar eins og hann hafi
komið úr deyfingu hjá tannlækninum?
En það er ekki bara það hversu vel
Brando flytur línurnar eða leikur
atriðin, heldurútgeislunin, framkoman,
svo ég tali nú ekki um þá staðreynd að
þetta er eitt af því eftirminnilegasta
sem tilheyrir kvikmyndasögunni. Það
er samt reyndar hálf merkilegt miðað
við hversu lítið hann varir á skjánum
út alla myndina, en samt eignar hann
sér þá ramma sem hann sést í. Don Vito
Corleone er bara sérstök rulla, bæði
merkileg og stórbrotin.
Verbal Kínt
Kevin Spacey
The Usual Suspects
Þrátt fyrir að undirrituðum þætti
The Usual Suspects pínu ofmetin
kvikmynd er ekki hægt að neita hinni
stórfenglegu nærveru sem Kevin Spacey
myndar með persónu sinni. í túlkun
sinni nær hann allan tímann að grípa
áhorfandann svo hann hangi á hverju
einasta orði sem sagt er. Karakterinn
er líka aumkunarverður þar til hinn
fjölkunnugi endir kemur í Ijós, enda
kynnumst við honum sem bæklaðri
skræfu í upphafi myndarinnar. í höndum
einhvers annars hefði Verbal Kint getað
horfið auðveldlega úr minningunni, því
oftast þegar hugsað er út í þessa mynd,
sjá flestir fyrir sér þennan karakter, og
jafnvel hinar klassísku línur sem hann
mælir ("The greatest trick the devil
pulled was convincing the world he
didn’t exist."). Ég vil yfirleitt halda að
Óskarinn taki réttustu ákvarðanirnar,
en því miður hefur svo ekki oft farið, en
í tilfelli eins og þegar Spacey gekk heim
með gylltu styttuna fyrir frammistöðu
Isfna hér var það mjög skarplega valið.
Travis Bickle
Robert De Niro
Taxi Driver
Hvað væri topplisti án De Niro? Margir
myndu eflaust skella Jake LaMotta úr
Raging Bull hér inná, sem væri líklega
réttast, en í mínum huga er það Travis
Bickle sem stendur meira upp úr, ekki
endilega hvað varðar frammistöðu,
heldur karakter. Travis er ekki bara
bíómyndafígúra, heldur trúverðugur
einstaklingur. Þetta er einungis maður
sem er orðinn þreyttur á glæpahyskinu
og óþolandi umhverfi gatnanna, og
í því ákveður hann að taka til sinna
ráða. Hegðun hans fer yfir ýmis mörk
geðheilsunnar, og oft á tíðum reynist
hún truflandi, en maður heldur með
honum samt sem áður. "You Talkin’ to
me?"
Hannibal Lecter
Anthony Hopkins
Silence of the Lambs
Án vafa eitt þekktasta nafn allra tíma,
og af mörgum talinn einn ógeðfelldasti
en jafnframt sérstæðasti skúrkur sem
sést hefur. Á árinu 1991, þegar Silence
of the Lambs kom út, vann Anthony
Hopkins sér inn óneitanlegan leiksigur
fyrir hlutverkið. Einnig þótti merkilegt
hversu ógleymanleg persóna hann var
í raun og veru. Myndin snérist ekki
mikið i kringum hann, en engu að siður
stóð hann mest upp úr minni flestra.
Lecter var viðkunnanlegur og kurteis
einstaklingur á yfirborðinu, en maður
getur svo sannarlega skynjað að það
búi meira á bakvið hann. Augnarráðið
í manneskjunni varð einnig ódauðlegt
og ræðurnar oftar en ekki dáleiðandi
(ekki siður hjá áhorfandanum heldur en
Clarice). Þegar ég sá myndina fyrst vissi
ég ekki hvort ég ætti að vera hræddur
við manninn eða dást að gáfum hans.
Tímamótahlutverk. Ekki spurning.