Orðlaus - 01.12.2004, Qupperneq 28
ISTART
Sveppi: Rec ... Góðan daginn og verið hjartanlega
velkomin í viðtal Tiny motherfucker og Sveppa krullu
á PoppTíví. Heyrðu, hvað segir þú gott?
Tiny: Ég segí allt það fína.
Sveppi: Þú varst að koma frá Keflavík...
Tiny: Já, fuckin A maður!
Sveppi: Hvað varstu að gera?
Tiny: Ég var að árita nýja diskinn. Þið fóruð líka
þangað um daginn að árita diskinn ykkar.
Sveppi: Já, við gerðum það. Er ekki komið upplag
núna með Crazy Bastard?
Tiny: Jú, það var auka track á nýja upplaginu.
Sveppi: Var það núna í Keflavík?
Tiny: Já.
Sveppi: Já, er það... það er helvíti gott. Diskurinn
á örugglega eftir að seljast betur fyrir vikið er það
ekki?
Tiny: Jú, nákvæmlega, við erum með fjóra Crazy
Bastards á henni.
UM ÖMURLEGA VINNU OG
AÐ MOKA INN PENINGUM
Tiny: Eg ætlaði að spyrja þig að einhverju... Ertu
ríkur?
Sveppi: Er ég?
Tiny: Já, ég hef heyrt að þú sért moldríkur.
Sveppi: Ha! Nei, í alvörunni, hvar heyrðirðu það?
Tiny: Já, í alvöru. Ég er búinn að heyra það að Pétur
sé partýkóngur og þú sért moldríkur og þið séuð
mafía íslands?
Sveppi: Já, en á sama tíma var ég að byrja með stelpu
sem var að klára sálfræði og fólk vildi meina að ég
væri BA-ritgerðin hennar.
Tiny: Er það, var þetta sæt stelpa?
Sveppi: Já svaka skvísa, barnsmóðir mín í dag.
Tiny: Já, er það?
Sveppi: Já, en það tók mig tvo mánuði að labba og
ég gerði þetta fyrir útvarpsstöðina Monó.... alveg
hrikalegt. Þá voru Simmi og Jói með útvarpsþáttinn
Sjö-Tíu og þá var ég alltaf að hugsa hvað mig langaði
að vinna í útvarpi eða sjónvarpi. En ég vildi gera það
að fullri vinnu en svo gerðist það loksins og þá var
þetta rosalega mikil vinna. Maður var í vinnunni frá
morgni til kvölds alla daga. En þetta er náttúrulega
komið upp í rútínu núna.
Tiny: Ég kom hérna kl. 13:30 í gær og þá varstu
farinn!
Sveppi: Nei, hálfsex.
Tiny: Nei, þú varstfarinn kl. hálftvö.
Sveppi: Já, þá var ég að vinna í öðru verkefni.
Tiny: Já eins og mér var sagt „að moka inn
peningum".
UM QRKUJMA í
IÞROTTAALFINUM
Tiny: Magnús Scheving er bara að meika það feitt.
Sveppi: Já, hann er RlKUR.
Tiny:Já.
Sveppi: Spáðu í það, bara ein lítil hugmynd að
einhverri barnabók.
Tiny: Það var mjög fyndið en um daginn var ég í
ekkert að setja mig inn í hlutina.
Sveppi: Það er örugglega þannig hjá mörgum. Það
kemur einhver og segir: „Það á bara að fara að
setja lög." Þá verður fólk alveg brjálað. „Djöfulsins
andskotans vitleysa er þetta."
Tiny: Já, ég er nákvæmlega þannig. En það er einn
sem ég fíla og það er hann Steingrímur i Vinstri
grænum.
Sveppi: Steingrímur J. Sigfússon?
Tiny: Já, djöfull er hann svalur gaur. Hann er líka að
meika sens.
Sveppi: Hann tók fjölmiðlafrumvarpið og alveg reif
það í tætlur í pontunni.
Tiny: Ég skil ekki með þetta fjölmiðlafrumvarp af
hverju þetta kom okkur allt í einu svona mikið við.
Þetta varð svo stórt mál. Ég fylgdist vel með þessu
máli og spurði fólk af hverju það væri með eða á
móti og fékk svo oft einhver svör eins og „Ég vil geta
horft á stöð 2". Eitthvað álíka heimskulegt.
Sveppi: Hehe já.
Tiny: En þar af leiðandi finnst mér fjölmiðlar vera
fjórða aflið. Mér finnst samt ömurlegt hvernig Davíð
Oddsson hefur farið með þessa viðskiptagaura því
ég hef ekkert á móti þeim.
Sveppi: Já, feðgarnir.
Tiny: Já, hann drullar ekkert smá yfir þá.
Sveppi: Það er eins og Jón Ásgeir hafi sofið hjá
konunni hans.
Tiny: Síðan þegar Olíumálið kemur upp og
alþingismenn fara að tala um að kæra þá segir allt í
einu Halldór Ásgrímsson að hann viti ekki betur en
ríkið hefði aldrei skipt sér af svona viðskiptamálum
Sveppi: Þaö er örugglega þannlg
hjá mörgum. Það kemur einhver
og segir: „Það á bara að fara að
setja lög.“ Þá verður fólk alveg
brjálað. „Djöfulsins andskotans
vitleysa er þetta.“
LABBAÐI í KRINGUM
ISLAND FYRIR MONO
UM PÓLITÍK OG ÞÁ SEM
EIGA ALLT
Sveppi: Nei, ég er ekkert sérstaklega ríkur en ég hef
það alveg ágætt. Maður leyfir sér náttúrulega meira
heldur en þegar maður vann á grænmetislagernum.
En ég myndi ekki segja að ég væri ríkur.
Tiny: Varstu að vinna við það?
Sveppi: Já, áður en ég byrjaði að vinna hérna
þá bjó ég í bílskúr hjá mömmu og pabba. Þar var
alltaf ógeðslega kalt. Síðan mætti ég í vinnu á
grænmetislagerinn og þar var líka alltaf ógeðslega
kalt, því það var inni í kæli. Og með þessu var ég
að handlanga og það var líka mjög kalt. Þannig að
heilan vetur var mér alveg rosalega mikið kalt. Það
var hrikalegur tími.
Tiny: Já ég hef verið að massa byggingarvinnu
núna.
Sveppi: Er það ekki leiðinlegt?
Tiny: Jú, en maður verður að gera þetta til að eignast
peninga. Ekki lifir maður af þessari tónlist.
Sveppi: Er það ekki?
Tiny: Nei, þetta er bara fín aukavinna.
Sveppi: En af hverju getur þú ekki lifað á rappinu?
Tiny: Það veltur allt á því hvernig Guerilla Disco á
eftir að ganga úti í Japan en hún er ekki komin út
þar. Þá fáum við að vita hvort að kallinn geti lifað á
rappinu... að minnsta kosti í einhvern tíma.
Sveppi: Hérna erum við að monta okkur af einhverri
gullplötu sem er 5.000 eintök. En það er bara einhver
tittlingaskítur úti, er það ekki?
Tiny: Jú, það er það.
Sveppi: Hvað eruð þið að vonast til að selja mikið?
Tiny: Svona 100.000 eintök... við erum að vonast til
þess.
Sveppi: Þá verður þú ríkur.
Tiny: Já, eða maður fær allavega fína innborgun í
íbúð.
Sveppi: Það er snilld.
Sveppi: Ég man eftir því þegar ég var fenginn til að
labba hringinn í kringum ísland.
Tiny: Ha, varst þú fenginn til að labba hringinn í
kringum ísland?
Sveppi: Já... þú ert svo ungur.
Tiny: Hvað, varstu eitthvað ruglaður?
og verði að vera hlutlaust. Þeir eru bara búnir að
vera of lengi að.
Sveppi: Já, en þetta fjölmiðlafrumvarp var svo
sérstakt því það fjallaði alltaf um eigendur.
Tiny: En þetta kom þjóðinni ekkert við og hvaða
máli skiptir það líka yfir höfuð hver á þetta. Láta
þeir ekki bara eitthvað peð fá fyrirtækið, annan til
að stjórna þessu fyrir sig og setja fyrirtækið á hans
nafn. Láta hann síðan fá milljón á mánuði, þetta er
bara einhver smápeningur fyrir þá miðað við hvað
þessi fyrirtæki velta.
Sveppi: Já, svona eins og með Jón Ásgeir og þá sem
eiga öll þessi fyrirtæki eins og hann á Norðurljós,
Frétt og Bónus og allt þetta drasl.
viðtali á RÚV og hann
gaf mér „The Wink and
the Gun".
Sveppi: Já, er það
hehehe. Hann er svo
mikill töffari.
Tiny: Hann var þarna að
segja bless við alla og
svo horfði hann á mig og
tók „The Wink and the
Gun".
Sveppi: Hehehe... Hann
þekkir þig ekki alveg,
en veit af þér. Hann er
svo mikill töffari, strax
eftir Edduhátíðina var
hann floginn til London
að díla við eitthvað BBC-
lið. Og málið er að hann
leikur aðalhlutverkið,
þarna.... orkuálfinn
og skrifar þáttinn og
leikstýrir ásamt öðrum,
síðan er hann lika með
alla peningahliðina
á bakinu, vílandi og
dílandi við þessa karla
í Bandaríkjunum. Ég
myndi örugglega bugast
undan álagi.
Tiny: Já, ég var búinn að
heyra það að hann væri
mjög tæpur þarna úti og
ég hringdi í hann og spurði hvort ég gæti ekki leikið
einhvern rappálf.
Sveppi: Rappálfur í Latabæ! Það væri fyndið.
Sveppi: Spáir þú í pólitík?
Tiny: Jaá.
Sveppi: Þú lítur nú ekki út fyrir að spá mikið í
pólitík
Tiny: Nei, þetta er meira þannig að ég heyri eitthvað
einhvers staðar og er brjálaður yfir því en ég er