Orðlaus - 01.12.2004, Síða 30
Flestir kvíða því að arka um í buðum fyrir jólin í stresskasti, með
magasár yfir því að vera ekki búin að kaupa eina gjöf, að vita
ekki enn hverju á að klæðast og að vera ekki byrjuð að skreyta.
Byrjaðu snemma og skipulegðu þig í rólegheitum, kryddaðu upp
í Miðbænum
um jólin!
á verslunardagana með því að
hlut að gera í hvert skipti sem
upp á margt annað en búðir a
káffihúsi gerir daginn afslappá
ta við einum skemmtilegum
t er af stað. Miðborgin hefur
óða og aðeins einn kaffibolli á
i pg ánægjulegri.
JbH ' t l
h fe,
- M f
m
sf
Við mælum með að fólk
kíki niður í miðbæ fyrir
jólin. Það er engin borg án
miðbæjar og það er okkar
að halda honum lifandi.
Opnunartímar bílahúsanna
Fyrir þau ykkar sem búa í úthverfunum
hefur Reykjavíkurborg ákveðið að mæta
þörfum okkar með auknum opnunartíma
bílahúsanna. Bílahúsin verða opin frá
7.30 - 24.00 alla virka daga, ásamt lengri
opnunartíma um helgar. Endilega kíktu
á vefsíðu Reykjavíkurborgar, www.
reykjavik.is, vegna frekari upplýsinga.
Þar er einnig að finna allt það sem
Reykjavíkurborg hefur upp á að bjóða.
( miðbænum finnurðu endalaust af litlum
sætum búðum þar sem gaman er að
gramsa í gegnum allt dótið og hægt að
finna fullt af fallegum hlutum til að gefa
ættingjunum. Má þar nefna Spútnik,
Fríðu Frænku, Nonnabúð, Búðina, illgresi,
Oni, Rauða Kross búðina, Úr að ofan,
Safnarann, 12 Tóna og margar fleiri.
Fáðu þér rölt niður Laugaveginn, komdu
við á kaffihúsi og skelltu þér á svo sem eina
listasýningu eða tónleika um kvöldið.
Það verða fjölmargir tónleikar á ölhúsum
og tónleikastöðum í miðbænum fram að
áramótum. Þar má meðal annars finna
Trabant, Hjálmar, Forgotten Lores, Jagúar,
Brain Police, Bubba, KK og marga fleiri.
Þú getur lesið allt um það í dagatali
okkar á fyrstu síðu blaðsins.
Einnig hefur Reykjavíkurborg upp á
margt að bjóða, það sem þú ættir ekki
að láta framhjá þér fara er eftirfarandi:
Jólavaka í Kringlusafni
sunnudaginn 19. desember klukkan 14.00
Upplestur félaga í bókmenntaklúbbi
Háaleitishverfis. Félagar
bókmenntaklúbbsins lesa jólaefni undir
stjórn Soffíu Jakobsdóttur leikara.
Strákarnir í borginni
Bókmenntaganga á aðventunni
sunnudaginn 12. desember kl. 17:00
Gengið verður um miðbæinn og fjallað
um nýútkomnar bækur sem eiga sér stað í
miðbænum. Að þessu sinni verða bækurnar
allar eftir karlmenn, en fyrr á árinu bauð
safnið gestum í kvennabókmenntagöngu.
Leiðsögumenn eru Úlfhildur Dagsdóttir
og Ingibjörg Hafliðadóttir og einnig
munu tveir höfundanna lesa úr verkum
sínum á viðeigandi stöðum.
Listasafn Reykjavíkur
- Kjarvalsstaðir
Opið daglega frá klukkan 10 - 17
Textíl list 2004
Alþjóðleg sýning á textíl, sem safnið
vinnur í samstarfi við Textílfélagið á
íslandi. Þátttakendur koma frá ýmsum
þjóðlöndum, meðal annars (slandi.
Listasafn Reykjavíkur
- Hafnarhús
Opið daglega frá klukkan 10 - 17
Errósafnið - Víðáttur
Sýning úr Errósafninu þar sem áhersla
er lögð á svokölluð víðáttuverk Erró.
FÍT
Afmælissýning Félags íslenskra teiknara,
þar sem farið verður yfir sögu félagsins
og sögu grafískra hönnuða sem hafa
með verkum sínum sett svip á umhverfið
og samfélagið sem þeir starfa í.
Listasafn íslands
- Fríkirkjuvegi 7
Opið daglega frá klukkan 11
- 17, lokað á mánudögum
Ný íslensk myndlist
Glæsileg sýning 20 íslenskra nútíma
listamanna þar sem maðurinn, veruleikinn
og ímynd hans er í brennidepli.
Gallerí Kling&Bang
- Skólavörðustíg
Opið fimmtudaga - sunnudaga frá 14 - 18
Sigurður Guðjónsson
"HÝSILL"
1. desember opnaði Orkuveitan
heimasíðu sína www.or.is og þar
er að finna Jóladagatal Orkuveitu
Reykjavíkur með léttum spurningum.
Vinningshafar eru dregnir út á
hverjum degi fram að jólum.