Orðlaus - 01.12.2004, Page 40
ri » ’ I
I 6¥l
'V wní1 ’m
cj í í l’jri''iTf'ri
Leðurhanskar, Gusta-design
3.485,-
GS skór
Háhælaðir rússkinnsskór,
Friis company 8.990,-
Quarashi
Guerilla Disco
Sölvi Blöndal og félagar hans í
Quarashi eiga í engum vandræðum
með að senda frá sér hvern hittarann
á fætur öðrum og koma hér með
metnaðarfulla plötu sem poppar upp
hvaða partý sem er. Stíllinn er orðinn
þróaðri og nýi meðlimurinn Tiny gefur
bandinu ferskan hljóm með öðruvísi
rödd og skemmtilegum textum.
Fjölbreytni einkennir lagavalið þar
sem hart rokk blandast við hip-hop
slagara og rólegar melódíur þannig
að mann langar helst að stökkva út
á gólf og dansa við skúringarkústinn
og leggjast síðan á gólfið og slaka á.
Með rólegu lokalaginu, „This Song",
er botninn sleginn i helvíti hressandi
plötu sem hentar öllum þeim sem hafa
áhuga á góðri poppmúsík.
Lög í sérstöku uppáhaldi: Dead Man
Walking, Stars og Pro.
Jagúar
Hello Somebody!
Þriðja plata Jagúar „Hello Somebody!"
inniheldur 10 feikifín fönklög. Þegar
ég fékk hana í hendurnar skellti ég
henni í græjurnar i bílnum og vildi helst
keyra út í buskann til að ná að renna
plötunni allri í gegn í einu. Stórsveitin
fær til liðs við sig fjölda listamanna
sem gefa auka krydd í lögin og söngur
Samma er skemmtileg viðbót við
fyrri plötur þeirra. í heildina er þetta
stansiaus gleðitónlist sem getur kveikt
upp í þér hvenær sem er og hvar sem
er og án efa ein af bestu plötum ársins.
Það er því tvímælalaust hægt að mæla
með henni í jólapakkann.
Lög í sérstöku uppáhaldi: It’s All Over,
What is Going On? og Butterflies.
Maus
Tónlyst 1994-2004
Rokksveitin Maus hefur verið fastur
liður í tónlistarmenningunni hér heima
í 10 ár. Þeir eiga alveg heilan helling af
lögum, bæði fjörugum og rólegum og
því gaman að renna plötunni í gegn
og sjá hvað sveitin hefur þróast mikið
í gegnum árin þar sem fyrsta lagið er
elst og það síðasta yngst. Söngur Bigga
er orðinn mótaðri, bandið þéttara og
nýjasta lagið „Over me, Under me"
lofar góðu fyrir næsta stykki þó að ég
sakni ögn hráa stílsins sem einkenndi
fyrstu plöturnar. „Tónlyst 1994-
2004" er fín viðbót í Maussafnið þar
sem aukadiskur, sem inniheldur fullt
af óútgefnu efni, endurvinnslur og
tónleikaupptökur, fylgir með.
Lög í sérstöku uppáhaldi:
Deepnightwalk, Poppaldinn og
Musick.
Igor
9 líf
Fyrsta plata Igor, „9 líf", kemur
bara nokkuð á óvart skal ég segja
ykkur. Þetta er mjög aðgengilegt og
fjölbreytt hip hop. Lögin eru ólík en
þau fá meðal annars Jónsa til liðs við
sig ásamt óperusöngkonu í einu lagi.
Það er mikið um söng á plötunni og því
verður hún mjög létt hlustunar. Það er
líka gaman að skoða textana sem eru
bæði á íslenku og ensku og þeir fylgja
með. Það er því óhætt að mæla með
þessari plötu i jólagjöf og þá kannski
sérstaklega handa unglingunum.
Lög í sérstöku uppáhaldi: Rhythm &
Blues, Hverju hef ég að tapa?, From
the bed to the flow.