Orðlaus - 01.12.2004, Page 45
Œ(ómtjncfu% éyonoa/ybóyfrœttís* ocj c/íeíjiu'fíu/ateæta/'
/uuriiHc d/)oi acf ástin se má/icf o/j acf fiacf <s'é e/i/u' /uex/t
acf /i/á /uimi/u/ju<sam(uv á/t /res$ acf/i/t/ta <s'é/€ /tta/:a oa
'S'fu/tc/a /uj/t/i/ei/ts cu/ /uj/tf/óta/iaut.
Ástin verður að fíkn þegar þessi tilfinning sem á sér
stað í upphafi sambands verður að markmiði. Þegar
einstaklingurinn verður háður fyrstu dögunum
þegar þú getur setið og horft endalaust inn í augun
á hinum aðilanum án þess að þurfa endilega að
segja neitt. Þegar bara það að heyra röddina á
símsvaranum verður til þess að hjartað taki kipp.
Þegar kossarnir láta þig svífa og þú hugsar ekki um
annað en hann eða hana.
Rannsóknir hafa sýnt fram á það að hormónar og
endorfín leysast út í ríkum mæli á meðan á þessu
ástandi stendur og þessar boðefnabreytingar hjálpa
fólki að "tengjast" hvort öðru fyrstu dagana,
vikurnareðamánuðina.Fólk getur orðið háð þessum
líkamlegu boðefnabreytingum og þær verða m.a til
þess að fíknin snýr lyklinum og fer í gang.
Það er hægt að þekkja ástarfíkla á því að þeir fara
samband úr sambandi og stoppa sjaldan lengi við.
Oft eru þeir marg giftir, þeir halda framhjá og
mest öll einbeiting þeirra fer í að hugsa um næstu
líklegu konuna eða manninn sem á eftir að koma
inn í líf þeirra. Að fljúga inn og út úr samböndum
verður fljótlega þreytandi og ástarfíkillinn situr
eftir með sársaukann og missinn. Sumir ástarfíklar
verða háðir fantasíu elskhugum, eða fantasíu
samböndum. Fantasíu elskhuginn er manneskja
sem er alltaf einhversstaðar langt í burtu og/eða
ófáanleg. Ástarfíki11 af þessu tagi fer kannski ekki á
milli sambanda en hann getur hangið á spjallrásum
dögunum saman eða farið á hverja ástarmyndina
á fætur annari til að drekkja sér í rómantík. Þessi
hegðun hans er ekkert annað en tilraun til að láta
sér líða vel. Hann upplifir tilfinninguna að vera
"ástfanginn" en þaðsem kemuroftastóhjákvæmilega
í kjölfarið er þunglyndi og vanlíðan. Ástarmyndir
og spjallrásir á netinu eru ekki skaðleg fyrirbæri.
Þeim er ætlað að vera skemmtun og upplyfting, en
ástarfíkillinn notar þesssa miðla til að fá útrás fyrir
fíknina. Á meðan sumir ástarfiklar fara samband úr
sambandi, eða hanga í einu óheilbrigðu sambandi,
skapar þessi gerð af ástarfíkli sér ímyndað samband
og gerir svo allt til að láta fantasíuelskhugann passa
inn í myndina. Jafnvel þótt að raunveruleikinn sýni
fram á eitthvað allt annað.
Ástar- og kynlífsfíkn
Ást og kynlíf fara hönd í hönd. Þegar við erum
ástfangin þá stundum við oftar en ekki kynlíf með
viðkomandi og það kynlíf köllum við að "elskast".
Fyrir kynlífs- og ástarfíkilinn verður hinsvegar
kynlíf innan ástarsambands fljótlega þreytandi
og leiðinlegt. Um leið og hormónarnir hætta að
pumpast út í blóðið með sama krafti og í byrjun þá
hættir þetta fljótlega að vera fjör. Vímutilfinningin
dofnar og raunveruleg vinna innan sambandsins þarf
að byrja að eiga sér stað. Þá leitar kynlífsfíkillinn
fljótt inn á sín svið, ástarfíkillinn fer að horfa í aðrar
áttir og fíknarferlið fer aftur í gang (ef það hætti
þá einhverntíma). Vonin sem ástarfíkillinn ól í brjósti
sér um að nýja sambandið yrði það síðasta deyr og
ástarfíkillinn situr uppi með bömmerinn, skömmina,
missinn og sektarkenndina.
Bati
Ekki örvænta, það er hægt að redda þessu!
Bataferlið frá þessum fíknum er það sama og frá
flestum öðrum fíknum. Tólf spora kerfið sem AA
samtökin fundu í kringum 1935 til að vinna bug á
alkóhólisma hefur dugað til að drekkja allskonar
vandamálum og fíknum og ástar- og kynlífsfíkn
er enginn undantekning. Fyrsta skrefið er að
viðurkenna að það sé vandamál fyrir hendi. Með því
að vera hreinskilinn við sjálfan sig opnast gáttir inn
í sálarlífið og það er útgönguleiðin úr vandanum.
Sannleikurinn mun gera yður frjálsa eins og J.K
sagði. Fíkillinn verður að sjá hvernig þunglyndi hans,
stress, kvíði og aðrar óþægilegar tilfinningar eiga
rætur sínar að rekja til þessarar þráhyggjuhegðunar
og með því getur hann byrjað að sleikja sárin.
Það er hægt að fara á spjallrásir á netinu þar sem fólk
sem hefur fundið sig í þessu hittist og reynir að leysa
vandann í sameiningu. Einnig er hægt að komast í
beint samband við manneskju sem hefur komið sér
úr vítahringnum og hún deilir með þér reynslu sinni
og styrk. Sálfræðingar geta líka gert mikið gagn og
þeir eru jú bara í símaskránni.
Til að vita meira má fara á netið og slá inn
leitarorðunum "sex and love addiction" eða fara
á vefsíðu tólf spora samtaka ástar- og kynlífsfíkla:
www.slaafws.org eða á www.alano.is
Tékklisti
Til þess að glöggva þig betur á því hvort þetta vandamál geti verið eitthvað sem þú ættir að
skoða betur má prófa að svara þessum krossaspurningum.
Það er engin sérstök niðurstaða eða úrskurður, en ef þú ert með marga krossa í já reytinum þá
er ansi líklegt að þú mættir fara að pæla alvarlega í þessum málum.
1. Hefurðu reynt að stjórna því hversu oft þú hittir ákveðna manneskju eða hversu mikið kynlíf þú stundar? 15. Fyndist þér lífið tilgangslaust ef þú gætir hvorki lifað kynlífi né verið í ástarsambandi? Já □ Nei □
Já □ Nei □ 16. Daðrar þú eða kemur af stað kynferðislegri spennu við fólk, jafnvel þótt þú ætlir þér það ekki? Já □ Nei □
2. Hefur þér þótt erfitt að slíta sambandi, jafnvel þó að sambandið sé eyðileggjandi fyrir þig og láti þér líða illa? Já □ Nei □
17. Hefur kynhegðun þín eða sambandshegðun haft áhrif á orðspor þitt? Já □ Nei □
3. Reynirðu að halda ástar og kynlífsmálum þínum leyndum fyrir öðrum?
Já □ Nei □ 18. Kemurðu þér í "sambönd" eða stundarðu kynlíf til að forðast vandamál í lífinu? Já □ Nei □
4. Reynirðu að setja þér reglur eða gefurðu sjálfum/sjálfri þér loforð í sambandi við ástar- eða kynlíf þitt sem þú getur ekki farið eftir?
Já □ Nei □ 19. Finnst þér eins og þú þarfnist aukinnar tilbreytingar í kynlífi eða samböndum til að losa um líkamlega eða tilfinningalega spennu?
5. Hefur þú stundað kynlíf með manneskju sem þig langaði ekki til að stunda kynlíf með?
Já □ Nei □ Já □ Nei □
6. Trúir þú því að einhver geti „lagað" þig? Já □ Nei □ 20. Þarft þú að stunda kynlíf eða "verða ástfangin" til að þér líði eins og "alvöru" manni eða konu?
7. Reynirðu, eða hefur þú reynt, að halda tölu yfir rekkjunauta þína með því að skrifa hjá þér lista eða annað? Já □ Nei □ Já □ Nei □
21. Áttu í erfiðleikum með að einbeita þér að öðrum sviðum lífsins vegna þess að kynlífs- eða ástarsambönd þín (hugsanir og tilfinningar) taka frá þér orku? Já □ Nei □
8. Finnur þú fyrir örvæntingu eða óróleika þegar þú ert aðskilin/n frá rekkjunauti þínum eða elskhuga? Já □ Nei □
22. Stendurðu þig að því að vera í þráhyggju gagnvart ákveðinni persónu eða kynlífsupplifun jafnvel þó að það valdi þér óþægindum, tilfinningalegum sársauka eða fíkn?
9. Ertu búin að missa töluna yfir rekkjunauta þína, eða hversu mörgum þú hefur sofið hjá?
Já □ Nei □ Já □ Nei □
10. Finnurðu fyrir örvæntingu þegar þú hugsar um þörf þína til að finna þér elskhuga, fá kynferðislegt "fix" eða finna framtíðar maka? 23. Hefurðu einhverntíma óskað þess að þú gætir hætt einhverri kynferðislegri hegðun eða sambandi í ákveðinn tíma?
Já □ Nei □ Já □ Nei □
11. Hefur þú stundað óábyrgt kynlíf, án þess að hugsa um afleiðingarnar þ.e. án þess að leiða hugann að því að þú gætir fengið herpes, lekanda, getið barn, orðið ólétt o.s.frv.? 24. Finnst þér eins og tilfinningalegur sársauki í lífi þínu fari vaxandi, sama hvað þú gerir? Já □ Nei □
Já □ Nei □ 25. Finnst þér eins og þú hafir ekki heilbrigða sjálfsmynd? Já □ Nei □
12. Ertu í sambandi sem þú getur ekki slitið þótt þig langi til þess?
Já □ Nei □ 26. Finnst þér erfitt að ráða við líf þitt sökum þess að þú ert að verða tilfinningalega háðari öðrum í vaxandi mæli? Já □ Nei □
13. Trúirðu því að vandræði í "ástarlífi" þínu stafi af því að þú ert alltaf með "röngu" manneskjunni?
Já □ Nei □ 27. Hefur þú einhverntíma hugsað að það gæti orðið meira úr þér og þú gætir fengið meira út úr lífinu ef þú værir ekki svo knúin/n af þörf þinni fyrir kynlíf og sambönd? Já □ Nei □
14. Hefur þú einhverntíma ógnað eða eyðilagt alvöru samband sem þú hefur verið í út af kynlífshegðun þinni utan sambandsins?
Já □ Nei □