Bændablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 1
Auglýsingasíminn er 563 0300 Netfang augl@bondi.is Næsta blað kemur út 14. mars Upplag Bændablaðsins 14.182 Þriðjudagur 28. febrúar 2006 4. tölublað 12. árgangur Blað nr. 233 Bændur um beitina Brot úr merkri sögu Í þessu blaði hefjum við umfjöllun um kúabeit, beitarskipulag, ræktun grænfóðurs og ýmsa fleiri þætti sem máli skipta. 20-21 16 Dráttar- vélarnar hans Friðjóns „Ógeðlega gott........“ Líklega heldur Silvía Nótt því fram að það sé ógeðslega gott að klóra sér.... sem er útaf fyrir sig alveg rétt. Kýr eru nautnaskepnur ekki síður en mannfólkið og eitt það besta sem þær vita um er að láta svona kúabursta velta eftir haus og baki. Á stundum er meira að segja biðröð eftir því að komast í þetta magnaða klórtæki, sem sagt er að örvi blóðrásina og haldi kúnum hreinum og rólegum. Myndin var tekin á Káranesi í Kjós. Sauðfjárveiki- varnagirðing- ar eru víða í slæmu ástandi Sigurður Sigurðarson, dýralækn- ir á Keldum, segir að víða séu sauðfjárveikivarnagirðingar í slæmu standi. Höfuðástæðan fyr- ir því er fjárskortur. Hann segir að sums staðar fáist heimamenn ekki til að vinna við lagfæringar á girðingunum. Þá þurfi að fá að- komumenn til að vinna verkið og síðan þarf að halda þeim uppi meðan á verkinu stendur og það sé mjög dýrt. Nú sé verið að reyna að koma þeirri skyldu yfir á heimamenn að þeir vinni við viðgerðir á girðingunum að sjálf- sögðu á fullum launum. Sigurður bendir á að ef kindur fara á milli hólfa þá verði umsvifa- laust að slátra þeim þannig að eig- endur þeirra verði fyrir miklu tjóni. Þannig fóru rúmlega 50 kindur á milli hólfa í Dölunum síðastliðið sumar. Tilfinnanlegt tjón Jónas Sæmundsson, fjárbóndi á Reykhólum, sagði í samtali við Bændablaðið að mjög slæmt ástand væri á sauðfjárveikivarnagirðing- unni úr Þorskafirði yfir í Stein- grímsfjörð. Hann segir að menn sem fengnir voru til að gera við girðinguna hafi unnið verkið svo illa að ekkert gagn varð að. ,,Ég er með upprekstrarland við girðinguna en hinumegin er Djúpi- dalur. Þaðan bárust mér fréttir í júlí um að fé frá mér væri komið yfir. Ég ákvað þá að fara meðfram girð- ingunni og skoða ástand hennar og þá kom í ljós að hún var opin á tveimur stöðum og allir búnir að sleppa sínu fé. Ég er á heilbrigðu svæði en kindum frá mér sem fara yfir verður að slátra. Ég hef orðið fyrir gríðarlegum búsifjum hin síð- ari ár af þessum sökum,“ sagði Jón- as Sæmundsson. Slæmt ástand í Dölunum Ásmundur Daðason frá Lamb- eyrum sagði að ástand girðingar- innar milli suður og norðurdalanna í Dalasýslu væri mjög slæmt og fé færi þar á milli enda girðingin orðin gömul. Hann sagði að nefnd væri að störfum sem skoða á þessi mál og væri verið að ræða þann mögu- leika að leggja einhverjar girðingar niður en halda lykilgirðingum við. Gunnar Sæmundsson, varafor- maður Bændasamtakanna, á sæti í þessari nefnd sem fjallar um æði margt sem viðkemur sauðfjársjúk- dómum. Hann sagði að ekki væri farið að ræða formlega um að fækka girðingum og stækka hólfin og engar fastar hugmyndir komnar upp um það. Hins vegar taldi hann víst að lagðar yrðu til einhverjar breytingar enda væri vilji ráða- manna til að skoða þetta mál. Nú er svo komið að mörg börn þori ekki að koma við fugla af ótta við að smitast af fuglaflensu. Þetta segir Skúli Einarsson bóndi á Tannstaðabakka í V.-Húnavatns- sýslu sem tekur á móti hópum barna, sem dvelja í Skólabúðunum á Reykjum, og sýnir þeim skepnurnar og búskapinn. Skúli segir einnig að börnin kvíði því þegar farfuglarnir koma til landsins. Þau virðast mjög óörugg og hafa spurt hvort þau deyi ef þau finni dauða lóu og taki hana upp. Hann tel- ur að of mikið hafi verið gert úr hættunni af fuglaflensu í fjölmiðlum og að betur þurfi að útskýra málið fyrir börnunum. Hann segist þó skynja einhverja breytingu á málflutningi fjöl- miðlanna um fuglaflensuna nú síðustu daga. Skúli segist hafa eytt drjúgum tíma í að ræða þetta mál við börnin og leiða þau í sann- leikann í málinu. Þau róist dálítið við það en hann segir að svona mál verði að vinnast í gegnum fjölmiðla, sem börnin horfa og hlusta á. Fræða börnin á réttan hátt Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segist hafa heyrt um það að börn séu hrædd og kvíðin og því sé afar nauðsynlegt að fræða þau á réttan hátt. Hann segist hafa séð fyrirsögn í dagblaði um að Íslendingar hafi almennt ekki áhyggjur af fuglaflensunni en þetta skili sér ekki til barna. Það þurfi að segja þeim rétt og satt frá. "Það þarf líka að brýna fyrir þeim að ef þau sjá dauða fugla eigi þau alls ekki að snerta þá, heldur segja foreldrum sínum eða einhverjum fullorðnum frá þeim og þá fer málið í réttan farveg," sagði Halldór Runólfs- son. Börnin fá villandi upplýsingar og hræðast fuglaflensu Þora ekki að snerta fugla Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði Ákveðið hefur verið að halda Alþjóðlega hestadaga í Skaga- firði í apríl nk. Byrjað var með þessa samkomu í fyrra og ár- angurinn þótti það góður að ástæða væri til að halda þessu áfram. Hestadagarnir standa í fjóra daga, hefjast á sumardag- inn fyrsta 20. apríl og lýkur 24. apríl. Dagskráin fyrsta daginn fer fram á Hólum þar sem verða fyr- irlestrar og sýnikennsla í húsa- kynnum Bændaskólans. Næstu tveir dagar verða í reiðhöllinni Svaðastöðum og á vellinum við höllina. Á föstudeginum verða kynbótadómar, forkeppni í tölti og sýning. Daginn eftir verður svo yfirlitssýning kynbótahrossa og markaðsdagur þar sem ýmiss varningur verður á boðstólnum. Um kvöldið verður svo hápunkt- urinn, úrslit í töltkeppni og sýning í reiðhöllinni. Lokadaginn verður svo opið hús hjá ýmsum hrossa- ræktarbúum í héraðinu sem gestir geta heimsótt og skoðað bæði að- stöðu og gripina. Það er Ingimar Ingimarsson sem skipuleggur hestadagana af hálfu heimamanna. Hann sagði að þeir, sem að þessu stæðu, vonuð- ust eftir að innlent hestafólk fjöl- mennti í Skagafjörðinn þessa daga. Þeir væru líka auglýstir er- lendis, t.d. á hinum Norðurlönd- unum og í Þýskalandi og nokkrir útlendingar hefðu komið í fyrra. Vonandi næði þessi viðburður með tímanum að vekja áhuga meðal erlendra hestaáhugamanna. /ÖÞ Úrvals fatnaður á íslenska bændur. Bls. 34

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.