Bændablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 39
39Þriðjudagur 28. febrúar 2006
Á síðari árum hefur eftirspurn
eftir því að komast í skotveiðar
aukist og hafa bændur og aðrir
landeigendur orðið varir við
vaxandi áhuga almennings. Auk-
in og almenn eftirspurn í skot-
veiðar felur í sér ótvíræð sókn-
arfæri og möguleika til verð-
mætasköpunar í dreifðum
byggðum landsins. Samkvæmt
gildandi lögum er öll veiði inn-
an landamerkja lögbýla óheimil
nema með leyfi landeigenda eða
ábúenda. Landeigendur geta því
ákveðið að banna allar veiðar á
sínu landi eða sett skilyrði um
hvernig að þeim skuli staðið ef
þeir leyfa veiðar á annað borð.
Nýting auðlinda er vandmeð-
farin og er virk auðlindastjórnun
mikilvæg þegar til lengri tíma er
litið til að tryggja sjálfbæra nýt-
ingu. Við ákvarðanatöku um
nýtingu auðlinda þarf að taka
mið af hefðum og staðbundinni
þekkingu ásamt vísindarann-
sóknum. Ótakmarkaður aðgang-
ur að auðlindum er oft óæskileg-
ur þar sem hætta er á að nýting-
in leiði til ofnotkunar og hnign-
unar. En þegar eignarréttur nýt-
anlegrar auðlindar er vel skil-
greindur er tilhneigingin sú að
eigandinn stýri aðgengi að auð-
lindinni og tryggi verðmæta-
sköpun til framtíðar.
Skipulag og samstaða
Búnaðarsamtök Vesturlands hrintu
síðastliðið haust af stað sérstöku
átaksverkefni þar sem viðfangs-
efnið er skotveiðihlunnindi og
hvernig auka megi hagrænt gildi
þeirra. Búnaðarsamtök Vestur-
lands hafa staðið fyrir stofnun
hlunnindafélaga meðal landeig-
enda og ábúenda og hafin er kort-
lagning skotveiðihlunninda á
starfssvæði Búnaðarsamtaka Vest-
urlands.
Skipulag og samstaða um hóf-
lega nýtingu skotveiðihlunninda er
líklega besta leiðin til að gefa há-
marksarð án ofnýtingar og um leið
auðveldar slíkt skipulag aðgengi
sportveiðimanna. Landeigendur
fara með veiðiréttinn í eignarlönd-
um og er því vænlegt til árangurs
að koma á veiðieftirliti í samstarfi
við þá. Markviss veiðistjórnun í
eignarlöndum ætti að gera það að
verkum að hægt verði að hafa gott
eftirlit með skotveiðum. Við telj-
um því ákjósanlegt að landeigend-
ur hafi með sér samstarf, skipu-
leggi stór svæði, geri þau sýnileg
og fái veiðimanninn til þess að
virða settar reglur um veiðisvæði,
tíma og aflamark. Þó svo að marg-
ir landeigendur leigi nú þegar
veiðimönnum lönd til skotveiða
þarf heildstæðara og víðtækara
skipulag, til þess að auka megi arð
af auðlindinni. Hlunnindafélög eru
því mikilvægur hlekkur til þess að
skapa umgjörð fyrir starfið, skapa
samstöðu um hóflega nýtingu, há-
marka arð af auðlindinni og
tryggja góða þjónustu við veiði-
menn. Þessar auðlindir eru ekki
óþrjótandi og því þurfa landeig-
endur að gæta þess að nýta veiði-
réttinn á skynsaman hátt.
Við hvetjum alla landeigendur
að huga að þessum málum. Þetta
er mikilvægt hagsmunamál fyrir
landeigendur og ábúendur, sem og
landsmenn alla, því stjórnlausar
veiðar leiða að öllu líkindum af
sér ofnýtingu og þar með hnignun
fuglastofna í landinu. Tökum
höndum saman og tryggjum hóf-
lega nýtingu fuglastofna.
Allar nánari upplýsingar um
átaksverkefnið er hægt að nálgast
á skrifstofu Búnaðarsamtaka Vest-
urlands og á heimasíðunni bu-
vest.is.
Sigríður Jóhannesdóttir,
Búnaðarsamtökum
Vesturlands
Stjórnun og
ábyrgð í félögum
Um hvað er fjallað á námskeiðinu?
Fyrir hverja er þetta námskeið?
Hvað er gert?
Kennari
Tími
Stjórnun félaga, aðallega
hlutafélaga.
Kjörna og ráðna stjórnendur.
Þeir sem sitja í stjórnum félaga
og fyrirtækja á vegum bænda eru
hvattir til að koma.
Gerð verður grein fyrir hlutverki
og ábyrgð stjórnenda
(félagsstjórnar og
framkvæmdastjóra), samskiptum
þeirra og verkaskiptingu. Einnig
verða skoðaðar reglur um
viðskipti félaga við stjórnendur
þeirra.
Áslaug Björgvinsdóttir
lögfræðingur og dósent við
lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Efnt verður til þriggja námskeiða
sem standa í níu kennslustundir.
Það fyrsta var haldið í Eyjafirði
föstudaginn 24. febrúar kl. 10:00-
17:00 og næsta verður
föstudaginn 3. mars, kl. 10:00-
17:00 á Selfossi. Verð: 16.600 kr.
Haldið í samstarfi við
Bændasamtök Íslands
Skotveiðar í
eignarlöndum