Bændablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 17
17Þriðjudagur 28. febrúar 2006
Bræðurnir frá Kistufelli, Tómas (t.v.) og Þóroddur Már, meðal minja um verkmenntaþróun 20. aldar.
Heiðursvörður dráttarvélanna við þjóðveginn um Lundarreykjadal, eins og hann leit út á útfarardegi Friðjóns
Árnasonar.
Hanomag Combitrac R 440 og R 45
Vélin fjær á myndinni er Hanomag
Combitrac R 440, árgerð 1959, 40 hö,
knúin 4 strokka vatnskældri dísilvél.
Framleiðandi Hanomag, Hannover í
Þýskalandi. Umboð Bergur Lárusson h/f.
Friðjón Árnason pantaði þessa vél og
ætlaði hana til moksturs. Þegar til kom
tókst honum ekki að fjármagna kaupin
svo hún var seld Ingimar Ólafssyni,
verktaka á Ísafirði. Hann mun hafa not-
að hana til moksturs um árbil. Síðar
kaupir Steingrímur Pétursson að Garð-
stöðum í Djúpi vélina á Bolungavík. Þá
vantaði á hana annað framhjólið. Hann
setti á hana hjól af vörubíl og notaði
þannig um tíma. Þaðan lenti hún aftur til
Bolungavíkur. Friðjón eignaðist vélina
loks árið 2003, 44 árum eftir að hann
pantaði hana. Ekki komu fleiri Hanomag
vélar af þessari gerð til landsins
Nær á myndinni er Hanomag R 45 ár-
gerð 1956, knúin 4 vatnskældri strokka
dísilvél 45 hö. Framleiðandi Hanomag,
Hannover í Þýskalandi. Umboð Bergur
Lárusson h/f. Dráttarvél þessa keypti
nýja Almenna Byggingafélagið h/f. Var
hún m.a. notuð við byggingu Steingríms-
stöðvar. Seinna var hún notuð við mokst-
ur á hrájárnsbörrum á Mýrdalssandi,
þeim er fyrrum komu úr ms. Persier eftir
frægt strand skipsins á Dynskógafjöru.
Eftir 1970 kaupir Friðjón Árnason
vélina austan úr V-Skaftafellsýslu og not-
aði til mokstur á vörubíl sinn. Það var
fyrsta dráttarvélin sem hann eignaðist.
Moksturstæki er vélinni fylgdu voru nær
örugglega þau langfyrstu á dráttarvél
sem komu með vökvastýrða skóflu. Enda
voru tæki þessi af allt annarri stærðar-
gráðu en þá þekktust á dráttarvélum.
Þar sem hún var ekki með aflstýri
þótti hún heldur erfið viðureignar, og eru
til sögur af baráttu manna við hana. Sá
sem var með vélina í Steingrímsstöð er
sagður hafa verið maður ekki einhamur,
en þurfti stundum að sinna öðrum hús-
bónda. Þótti þá gott ef afleysingamenn
dugðu hálfan dag á vélinni áður en þá
þraut örendið. Ekki komu fleiri vélar af
þessar gerð til landsins. Þótt hún sé af
framleiðanda aðeins talin 45 hö hefur
hún verið einhver stærsta dráttarvél sem
til var hérlendis um árbil.
Hanomag Combitrac R 440 og R 45
Hansa-Ford
Allgaier A 111 Porsche-System árgerð 1955. 11 ha eins strokks
loftkæld dísilvél. Framleiðandi, Allgaier-Werke Uhingen Þýska-
landi. Umboð var Elding Trading Company, Reykjavík, en fram-
seldi Helga Magnússyni & Co söluumboðið. Á árunum 1955-6
voru fluttar inn 20 vélar af þessari gerð og ein af gerðinni 122
árið 1957. Eins og fleiri þýskar dráttarvélar frá þessum tíma
reyndust Allgaier A111 ekki sérlega vel og týndu því fljótlega töl-
unni. Þó mun allavega ein vera til í góðu standi vestur í Reykhóla-
sveit. Þessi illa farna vél í safni Friðjóns kom sunnan úr Mosfells-
sveit fyrir milligöngu Arnar Oddgeirssonar vélsmiðs, en upphaf-
lega var hún í eigu Péturs Guðmundssonar í Laxnesi í Mosfells-
sveit sem mun hafa fengið hana nýja.
Helsta skart Allgaier vélanna hefur án verið Porsche-merkið,
sem prýddi vélarkápu þeirra og sjá má á blaðsíðu 18.
Hansa-Ford. Þessa dráttarvél smíðaði Hans El-
íassen bóndi að Ytri-Hraundal í Hraunhreppi.
Mótor með vélarhlíf og vatnskassi er Ford 8N.
Afturöxull líklegast úr Chevrolet vörubíl, fram-
öxull úr gömlum fólksbíl. Grind og gírkassi úr
vörubíl.
Kannski er þessi vél sú merkilegasta sem til er
úr safni Friðjóns Árnasonar. Allavega má slá því
föstu að engin önnur slík muni finnast í heimin-
um. Hansi í Hraundal var danskur vélvirki og
snillingur sem hefur líklega fengið þá hugmynd
að smíða sér traktor þegar fann þennan Ford
mótor á undirstöðu, sennilega í Sölunefndinni.
Þegar Friðjón fann traktor Hansa í Hraundal
fannst flestum sem vit höfðu á söfnun þetta vera
einskisvert heimasmíðað drasl, sem ekki tæki að
varðveita. Þó voru þeir til sem voru á annarri
skoðun og hvöttu hann eindregið til að taka hann
í safnið Þeir og sögðu að væru allar hans vélar
komnar á safn myndi engin þeirra vekja jafn
mikla athygli og þessi. Og víst er um það að grip-
urinn er einstakur og hreint ekki illa farinn.
Allgaier A 111
Massey Harris Pony 10 ha bensín með hliðstæðum lokum (nær á
myndinni). Framleiðandi Massey-Harris Co, Toronto, Ontario
Kanada. Umboð Orka h/f. Árin 1948-55 voru fluttar inn 54 vélar
af þessari gerð. Þóttu þær liprar og reyndust vel við slátt og til
annarra léttra bústarfa. Ekki er vitað nú hvar Friðjón fékk vélina,
en nokkuð gott ástand hennar gæti bent til norðlenskra ævidaga.
Vélin til hægri á myndinni er Fahr D180H, loftkæld MWM dís-
il, 24 hö. Vél þessi kom notuð til landsins að Öxl í Þingi. Friðjón
Árnason fær hana þar illa farna. Hún er nú í vörslu bræðra hans
að Kistufelli. Að minnsta kosti ein vél af þessari gerð kom ný til
landsins. Alls voru framleidd 8500 eintök af þessari gerð og talin
meistarastykki Fahr verksmiðjanna.
Massey Harris Pony
og Fahr D180H