Bændablaðið - 24.02.2006, Síða 13

Bændablaðið - 24.02.2006, Síða 13
13Þriðjudagur 28. febrúar 2006 Félag ferðaþjónustubænda leggur eftirfarandi erindi fyrir Búnaðarþing 5. til 8. mars 2006: „Félag ferðaþjónustu- bænda óskar eftir því að Bún- aðarþing láti kanna ástæður stórhækkaðs raforkuverðs til bænda. Ferðaþjónustubændur sem kynda með rafmagni hafa lent í allt að 35% hækkun milli áranna 2004 og 2005 sem er með öllu óásættanlegt. Hafa hlutaðeigandi aðilar bent á hvor annan þegar kemur að út- skýringum. Raforkusalar benda á að niðurgreiðslur vegna húshitunar frá ríkinu hafi lækkað og stjórnvöld benda annars vegar á að raf- orkusalar hafi notfært sér ný raforkulög til hækkana og hins vegar að þessi hækkun hafi verið fyrirséð og eðli- leg.“ 35-40% hækkun! Marteinn Njálsson, formaður Félags ferðaþjónustu- bænda, segir að þegar breytingarnar á raforkulögunum voru kynntar hafi menn talið að í dreifbýlinu myndi raforkuverð hækka um 2-3% en í þéttbýlinu yrði um 3-5% lækkun að ræða. Þannig hafi það verið kynnt. „Nú kemur það í ljós að hjá kúabændum og ferða- þjónustubændum sem nota mikla raforku og þeim sem kynda hús sín með raforku hefur verð hækk- að um 35 til 40%. Við höfum fengið það staðfest hjá rafmagns- veitunum að þessi hækkun sé viðvarandi en ekki eitthvað sér- stakt fyrir árið 2005. Það er því ljóst að eitthvað hefur brugðist í útreikningum og fyrir það verð- um við að greiða,“ segir Mar- teinn. Hann bendir á að margir ferðaþjónustubændur noti raf- orku til húshitunar og greiða nú- orðið 70 til 75 þúsund krónur á mánuði. Aðrir hafi aðgang að jarðvarma og því verði mikil mismunun innan stéttarinnar á þessu sviði. Marteinn segir að RARIK skýri hækkunina á þann veg að niðurgreiðslur á raf- orku til húshitunar hafi lækkað. Stjórnvöld segi hins vegar að raforkufyrirtæki og dreifingarfyrirtæki hafi notfært sér breytingar á raforkulögunum og hækkað verðið. ,,Þess vegna viljum við að Búnaðarþing álykti um þetta og láti kanna hina raunverulegu ástæðu þessarar hækkunar á raforkuverði. Við getum ekki metið hvor hafi rétt fyrir sér, RARIK eða stjórnvöld,“ segir Mar- teinn Njálsson. Raforkuverð til ferðaþjónustubænda Allt að 35% hækkun milli áranna 2004 og 2005 Á Kirkjubæjarklaustri errekin upplýsingaþjónustafyrir ferðamenn eins og svovíða á landinu og nú þjónar hún orðið þjóðgarði eftir að þjóðgarðurinn í Skaftafelli var stækkaður. Fjölmargar upplýsingaþjónustur fá styrki frá ríkinu til að halda úti rekstrinum en ekki upp- lýsingaþjónustan á Klaustri. Sveitarstjórn Skaftárhrepps hefur farið fram á liðsinni ráð- herra við þá kröfu að upplýs- ingaþjónustan á Klaustri hljóti árlegan styrk til starfseminnar eins og fjölmargar sambærileg- ar upplýsingaþjónustur í land- inu. Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps, sagði að sveitarstjórn hefði ekki fengið nein skýr svör við því hvers vegna upplýsinga- þjónustan fær ekki styrk. Hann sagði að leitað hafi verið til þingmanna sem vísuðu á Ferðamálastofu. Sömuleiðis hafi verið leitað til ráðherra en án árangurs. Á Höfn er upplýsingaþjón- usta, sem var ekki skilgreind sem landshlutamiðstöð því hún var annars staðar á Austfjörð- um. Síðan er landshlutasmið- stöð í Hveragerði og þessar miðstöðvar báðar fá styrk. Sú í Hveragerði 2,5 milljónir króna á ári og á Höfn 1 milljón króna. Í ár verður opnuð upp- lýsingamiðstöð í Vestmanna- eyjum og hún fær 2,5 milljónir króna í styrk. Á Selfossi, Hellu og Hvolsvelli eru upplýsinga- miðstöðvar sem fá ekki styrk. Gunnsteinn bendir hins veg- ar á að upplýsingamiðstöðin á Kirkjubæjarklaustri hafi gríðar- lega stórt landssvæði undir auk þess að þjóna þjóðgarði. Þess vegna þyki fólki í Skaftár- hreppi sanngjörn krafa að fara fram á styrk til rekstrarins auk þess sem upplýsingamiðstöðin á Kirkjubæjarklaustri sé næst- elsta upplýsingamiðstöð lands- ins. Aðeins miðstöðin í Reykja- vík er eldri. Næst í röðinni Ferðamálastofa segir að miðstöðin á Kirkjubæjar- klaustri verði sú næsta í röð- inni til að hljóta styrk þegar næsta upplýsingamiðstöð fái viðurkenningu. Komið hefur fram tillaga um að ráða atvinnu- og ferða- málafulltrúa í Skaftárhreppi. Gunnsteinn segir að menn vilji bíða og sjá hvað setur varðandi vaxtarsamning fyrir Suðurland sem hann segir að sé í fæðingu. Kirkjubæjarklaustur Upplýsingaþjónustan fær ekki opinberan styrk

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.