Bændablaðið - 24.02.2006, Side 24

Bændablaðið - 24.02.2006, Side 24
24 Þriðjudagur 28. febrúar 2006 Í þetta sinn hluti úr gamalli grein, aldrei er góð vísa of oft kveðin. Góður mjaltamaður / kona er lykillinn að góðu júgurheil- brigði, ekki flottar mjaltavélar. Þegar við heyrum orð eins og dráttarvélar, heyvinnuvélar, rúllubindivélar eða mjaltavélar þá tengjum við þau í huganum við búskaparhætti nútímans, vinnuhagræð- ingu og tíma- sparnað. Dráttarklárar, orf, hrífa, klyfjar og mjaltakonur heyra fortíðinni til og eru þá e.t.v. hluti af sveitarómantí- kinni líka. Af allri vél- væðingunni hlutust róttækar breytingar á bú- skaparháttum með tilheyrandi kostum og ókostum. Af öllum þessum „vélum“ hefur ein þá sérstöðu að vera gerð til þess að vera í samneyti við kýr í 5-8 mínútur tvisvar á dag við mjöltun þ.e.mjaltavélin. Mjaltavélin er því miður ekki svo fullkomin, að hún hafi til að bera mannlega eiginleika for- veru sinnar mjaltakonunnar, svo sem sjálfstæða hugsun , tilfinn- ingar, næmni og þá ekki síst mannlega hlýju í garð dýrsins. Mjaltavélin rauf að miklu leyti þau sterku bönd sem bundu saman mann og dýr, þar sem nærgætnar hendur mjaltakon- unnar skynjuðu óðar ef eitthvað var að, og hjörtu manns og dýrs slógu saman með tilheyrandi trausti dýrsins á manninum og væntumþykju mannsins á dýr- inu. Bændur hafa nú minni tíma fyrir hvern einstakling í hjörð- inni, hver kýr skiptir minna máli. Horfin er mjaltakona ! Gamli „mjalta- konu-þátturinn“ má aldrei gleymast, og er enn þann dag í dag aðal lykill- inn að góðu júgurheilbrigði og vellíðan kúa og kálfa. Vitað er að tauga- veikluð og óör- ugg kýr er líklegri til áfalla en sú ánægða. Ef framleiða á góða mjólk verður kúnni að líða vel, hún þarf að hafa á ykkur traust og það á að umgangast hana eins og dýr með næmar tilfinningar. Hún hefur meira vit í hausnum en margur heldur og gleymum ekki að kýrin finnur til sársauka eins og mann- skepnan þó hún hafi ekki eins hátt þegar eitthvað amar að. Í stuttu máli: Gleymið aldrei að sýna dýrinu góðvild og nær- gætni, það launar ykkur hlýjuna. Heyrt í sveitinni Kristján Gunnarsson, mjólkureftirlitsmaður, Norðurmjólk Um beit og bindingu Nú lítur út fyrir að útblásturskvóti Íslendinga verði uppurinn þegar Ál- verið í Straumsvík lýkur við fyrir- hugaða stækkun sína. Eins og kom- ið hefur fram í fréttum nýverið sjá menn aðallega tvennt í stöðunni ef halda á áfram áherslu stjórnvalda á stóriðju, en það er að minnka út- blástur frá öðrum þáttum svo sem bílaumferð og útgerð, eða að kaupa útblásturskvóta erlendis frá. Það sem gleymist hér er að uppgræðsla og beitarstjórnun geta einnig aukið útblásturskvótann. Bjartmar Svein- björnsson, prófessor í skógarvist- fræði við Alaskaháskóla fullyrti í dögunum út frá samanburðarrann- sókn sinni að villtur skógur/kjarr á Íslandi sé aðeins lítið brot af því sem hann væri ef ekki væri fyrir beit búfénaðar, en samkvæmt honum hefur beit búfjár mun meiri áhrif á uppvöxt trjáa og kjarrs á Íslandi heldur en veðurfar. Kyotosamningurinn hafði áhrif á mælingar á uppgræðslu Eftir Kyotosamninginn frá 1990 er uppgræðsla yfirleitt mæld í kolefn- isbindingu þar sem kolefnisbinding með landgræðslu og skógrækt dregst frá losun gróðurhúsaloftteg- unda hér á landi (tonn fyrir tonn). Bindingin felst í því að umbreyta koltvísýringi, CO2-andrúmslofsins, í lífræn efni sem geymd eru í gróðri og jarðvegi. Samdráttur CO2 meng- unar og kolefnisbinding eru því tvær mismunandi leiðir að sama markmiði, þ.e. að koma í veg fyrir breytingar á loftslagi jarðar. Í Kyoto bókuninni er kveðið á um að nota megi kolefnisbindingu skóga sem ræktaðir eru frá og með 1990 til frá- dráttar frá útstreymi koltvísýrings. Á aðildarþingi loftslagssamningsins haustið 2001 var auk þess ákveðið að þjóðir heims megi nota m.a. kol- efnisbindingu með landgræðslu, skógarumhirðu og beitarstjórnun sem leiðir til að mæta skuldbinding- um vegna Kyoto bókunarinnar. Að- eins er tekið tillit til skóga á land- svæði sem hefur verið skóglaust í meira en 50 ár. Nýskógar sem gróð- ursettir eru eftir 1989 eru oft kallað- ir Kyotoskógar, vegna þess að það er eingöngu kolefnisbinding í þeim skóglendum sem er frádráttarbær frá CO2-losun. Á mynd hér að neð- an eru tölur yfir kolefnisbindingu á Íslandi frá 1990. Heimild: Landgræðsla og Skóg- rækt ríkisins Kolefnisbinding á Íslandi Aðstæður til kolefnisbindingar með landgræðslu og skógrækt þykja óvenju góðar hér á landi. Það stafar m.a. af því að um 96% skóglendis og um 50% gróðurs hér á landi hef- ur eyðst frá landnámi ásamt miklum jarðvegi. Þessari hnignun landkosta hefur fylgt stórkostleg röskun vist- kerfa og tap á lífrænu efni, til dæmis hefur ígildi um 1.600 milljóna tonna af kolefni glatast frá landnámsöld. Miðað við núverandi uppgræðslu- hraða tæki það um 500 ár að vinna upp það sem tapast hefur. Hvert uppkomið tré mun halda áfram að binda kolefni í um 100 ár frá gróð- ursetningu. Við landgræðslu heldur bindingin áfram í að minnsta kosti 60 ár eftir sáningu eða aðrar land- bótaaðgerðir. Hægt er að nýta báðar þessar leiðir nær samhliða, þ.e.a.s. að binda fyrst með landgræðslu og síðan með skógrækt. Heildarkold- íoxíðlosun Íslendinga er um þrjár milljónir tonna árlega. Gert er ráð fyrir að frádráttarbær kolefnisbind- ing í gróðri og jarðvegi sé nú á milli 200.000-300.000 tonn eða nærri 10% af losun CO2. Tillagan Það er mín skoðun að hægt sé að þrefalda bindinguna með einni sárs- aukalítilli aðferð sem ég tel að allir muni þó hagnast á þegar allt kemur til alls. Sú aðferð fellst í því að verja á annan hátt helmingi af því fé sem nú er varið til sauðfjárræktar í dag, en samkvæmt fjárlögum 2006 var heildarupphæð á liðnum Greiðslur vegna sauðfjárframleiðslu alls 2.983 m.kr. Mín tillaga gengur út á það að bjóða helmingi af þeim bændum sem þiggja niðurgreiðslu vegna sauðfjárframleiðslu að breyta framleiðslu sinni í kolefnisbúskap. Samkvæmt þessu verða þá 1.492 m.kr. til ráðstöfunar eða svipað því sem nú er varið til allra skógræktar og landgræðslu-verkefna í landinu samanlagt. Ástæða þess að ég tel að binding kolefnis þrefaldist þó að fjármagnið aðeins tvöfaldist, eru nokkrar. Í fyrsta lagi þá er beitar- stjórnun frádráttarbær, þannig að um leið og land fer úr beit hækkar frádráttarbær binding. Í öðru lagi mundi eina markmið verkefnanna vera kolefnisbinding og þess vegna hægt að vinna mjög markvisst og velja alltaf hagkvæmasta kostinn til bindingar. Samkvæmt stjórnunar- fræðunum er það sem er mælt stjórnað og yfirleitt fátt annað. Í þriðja lagi er þegar búið að greiða fyrir stofn- og stjórnunarkostnað hjá Landgræðslu, Skógrækt og lands- hlutabundnum skógræktarverkefn- um þannig að upphæðin ætti að geta nýst óskipt til kolefnisbúskapar. Í fjórða lagi þá þekkja sauðfjárbænd- ur staðhætti á löndum sínum og ná- grenni mjög vel og vita hvar bestu skilyrðin til ræktunar eru. Þeir eiga nú þegar mikið af tækjakosti og búa yfir bæði góðri verkþekkingu og dugnaði sem til þarf. Þeir sem græða á þessu fyrirkomulagi eru fyrst og fremst bændur, bæði þeir bændur sem breyta til og þeir sem eftir yrðu. Ef ríkissjóður mundi greiða fyrir hvert tonn kolefnis, til dæmis 2.500 kr., þá gætu dugleg- ustu bændurnir með góð ræktunar- skilyrði bætt afkomu sína verulega (hagkvæmasta kolefnisbindingin er að rækta ógróið land með lúpínu eða öðru slíku). Þess má geta að heimsmarkaðsverð á kolefnis/út- blásturskvótum er 1.600 kr. (20?/t) fyrir tonnið. Til samanburðar er breytilegur einingarkostnaður við bindingu eins tonns við landgræðslu eða skógrækt frá 400-2.000 kr. sam- kvæmt upplýsingum frá Land- græðslu og Skógrækt ríkisins. Þetta yrði líka til hagsbóta fyrir þá sauð- fjárbændur sem eftir yrðu þar sem 50% framleiðsluskerðing myndi þýða að útflutningsskylda yrði lögð niður. Á síðasta ári var útflutnings- skylda af framleiddu lambakjöti um 40%, í ár er hún rétt tæp 20%. Hugsanlegt er að jafnvægi myndist þarna á milli næstu ár. Útflutnings- skylda skiptir bændur töluverðu máli því tekjur bænda af útflutningi eru yfirleitt aðeins einn þriðji miðað við að kjötið sé selt innanlands. Hægt er að færa rök fyrir því að hagur þeirra bænda sem eftir verða muni batna um 20-30% ef þessi leið yrði valin. Sér í lagi ef minna fram- boð á lambakjöti myndi færa kjötið yfir í hærri lúxusvöruflokk í hugum neytenda sem ég tel það ætti reynd- ar að vera. Ríkssjóður/skattgreið- endur myndu einnig njóta góðs af því þar sem kolefniskvóti upp á 500 tonn á markaðsvirði 800 m.kr. kæmi í þeirra hlut (miðað við fyrr- greindar forsendur). Þau landsvæði sem auka kolefniskvóta hvað mest ættu að ganga fyrir ef til stóriðju, orkufreks iðnaðar kemur eða að njóta andvirði söluverðs kvótans til annarrar atvinnuuppbyggingar sem samstaða í héraði væri um, enda hefðu heimamenn unnið fyrir þeirri uppbyggingu. Á þennan hátt gætu fyrrverandi sauðfjárbændur aftur orðið sá máttarstólpi sem þeir einu sinni voru með tilliti til að veita at- vinnu og halda uppi byggð í héraði. Með því að tengja landbúnað við aðrar atvinnugreinar og atvinnuupp- byggingu á þennan hátt tel ég að skapist meiri sátt um landbúnaðinn í heild sinni. Einnig gæti íslenska rík- ið betur uppfyllt skuldbindingar sín- ar á alþjóðavettvangi í framtíðinni þegar og ef Alþjóðaviðskiptastofn- unin krefur íslenska ríkið um að lækka stuðning við hefðbundna landbúnaðarframleiðslu. Almenn- ingur í heild sinni ætti einnig að hagnast þar sem gróðurlaus og gróðurlítil landsvæði verða grædd upp og hægt verður að skila afkom- endunum landi sem væri eitthvað í átt við það land sem forfeðurnir byggðu. Kolefnisbúskapur í stað sauðfjárræktar Andri Ottesen kennir rekstrar- og hagfræði við Landbúnaðarháskóla Ís- lands og er sérfræðingur hjá Hagþjónustu landbún- aðarins. Skoðanir og tillög- ur í greininni eru þó ein- göngu hans. Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara Bráðabirgðatölur fyrir desember 2005 jan.06 nóv.05 feb.05 Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild % Framleiðsla 2005 jan.06 jan.06 janúar '05 3 mán. 12 mán. m.v. 12 mán. Alifuglakjöt 535.337 1.448.939 5.817.060 10,6 -2,0 7,5 24,1% Hrossakjöt 92.797 390.673 766.777 5,4 16,5 -11,3 3,2% Kindakjöt*, 2.516 385.997 8.737.414 -14,7 -34,5 1,1 36,2% Nautgripakjöt 224.313 762.420 3.480.879 -21,0 -15,8 -3,1 14,4% Svínakjöt 445.286 1.367.749 5.360.691 15,9 2,3 -3,2 22,2% Samtals kjöt 1.300.249 4.355.778 24.162.821 4,6 -6,2 0,5 Mjólk 9.616.549 26.818.128 109.575.203 1,4 -2,6 -2,3 Sala innanlands Alifuglakjöt 521.593 1.480.017 6.050.929 5,1 4,4 14,8 26,3% Hrossakjöt 62.116 192.812 534.710 29,4 8,5 -7,9 2,3% Kindakjöt 772.916 2.139.000 7.557.186 41,2 14,3 4,0 32,8% Nautgripakjöt 220.280 770.483 3.493.337 -24,1 -15,3 -3,0 15,2% Svínakjöt 445.217 1.380.973 5.371.702 19,2 6,0 -0,8 23,3% Samtals kjöt 2.022.122 5.963.285 23.007.864 15,2 5,0 4,0 Mjólk: Sala á próteingrunni: 9.228.489 27.634.422 112.681.956 14,1 1,8 2,8 Sala á fitugrunni: 7.721.675 26.633.870 101.247.949 6,6 4,2 2,7 * Kindakjöt lagt inn samkv. útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið í framangreindri framleiðslu. Tölur um framleiðslu og sölu Mjólku ehf eru ekki innifaldar þar sem fyrirtækið hefur hafnað að skila skýrslum samkvæmt 77. gr laga nr. 99/1993 Jörð óskast Óska eftir að kaupa jörð hvar sem er á landinu, aðallega til veiða á rjúpu. Ekki væri verra ef um fiskveiði væri einnig að ræða. Allar stærðir og verðbil koma til greina. Möguleiki á að ábúandi fái að búa áfram á jörð. Fullum trúnaði heitið. Hafið samband við Benedikt í s.898 6640 eða á netfanginu rjupnaland@hotmail.com Bændablaðið kemur næst út: þriðjudaginn 14. mars

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.