Bændablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 31

Bændablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 31
31Þriðjudagur 28. febrúar 2006 Grunnskólinn í Þorlákshöfn hef- ur haldist reyklaus þetta skóla- árið. Í tilefni þess var nemendum 8., 9. og 10. bekkjar boðið til Reykjavíkur þar sem m.a. var farið á leiksýningu Verslunar- skóla Íslands. Halldór Sigurðsson skólastjóri sagði það mikinn viðburð að ná skólanum algerlega reyklausum. Í fyrra munaði mjög litlu að það tækist en nú er takmarkinu náð. Mikill áróður hefur verið gegn reykingum í skólanum í gegnum tíðina og hann hefur borið þann ár- angur að þetta hefur verið að smá- mjakast í rétta átt. „Svo hjálpar það til í þessu máli að hér er geysilega mikið og gott íþrótta- og félagslíf. Krakkarnir eru flestir í íþróttum, sem er ein besta forvörnin gegn reykingum,“ sagði Halldór Sigurðsson. Þess má geta að meðfylgjandi mynd var tekin í afgeiðslu Lýðheilsustofnunar, en þangað fóru krakkarnir. Plássið var afar lítið sem útskýrir hvers vegna taka þurfti tvær myndir og setja þær saman. Námskeið með þekktum er- lendum beitarsérfræðingi Skeifan 2 • 108 Reykjavík S. 530 5900 • Fax 530 5911 www.poulsen.is Fyrir flestar dráttavélar kr. 12.960 m/vsk Fáðu þér sæti Þann 6. mars nk verður haldið námskeið á vegum LBHÍ sem ber yfirskriftina „Skipulag beitar fyrir mjólkurkýr”. Að sögn Þóroddar Sveinssonar tilraunastjóra á Möðruvöllum voru það ráðunautar sem óskuðu eftir þessu námskeiði. „Ástæðan er að í sumar verða bændur að framleiða mikla mjólk og þá þarf að standa vel að beitar- skipulagi og því ekki úr vegi að skerpa á þekkingu okkar um beit og það sem að henni snýr. Nám- skeiðið er byggt upp á fyrirlestrum kennara LBHÍ en aðalfyrirlesarinn er Dr Mark Rutter, þekktur beitar- sérfræðingur hjá The Institute of Grassland and Environmental Research (IGER) í Bretlandi. Sér- svið Marks er beitarhegðun og beitarval jórturdýra og beitar- skipulag mjólkurkúa”. Fyrirlestrarröð Marks ber yfir- skriftina; „Matching grass supply to grazing patterns for dairy cows in various grazing systems” Önnur erindi sem verða flutt á námskeiðinu eru; • Nokkrir gullmolar úr innlendum beitarrannsóknum • Áhrif uppeldis á beitarval og beitarhegðun kúa • Grænfóður er undirstaða haust- beitar fyrir mjólkandi kýr • Hugað að heilsufari mjólkurkúa á beit • Hagnýt hjálpartæki við að áætla beitar- og ræktunarþarfir • Hvernig hámörkum við mjólk- urframleiðsluna í sumar? Námskeiðið er einkum ætlað ráðunautum en bændur eru að sjálfsögðu velkomnir. Námskeiði verður haldið á Hvanneyri 6. mars og hefst kl 10:00 og því lýkur um 16:30 sama dag. Skráning er í höndum endurmenntunarstjóra LBHÍ, Guðrúnar Lárusdóttur, net- fang: gurra@lbhi.is og sími: 843- 5308. Reyklaus skóli í Þorlákshöfn

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.