Bændablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 40
40 Þriðjudagur 28. febrúar 2006 Það styttist í Búnaðarþing 2006 en það verður haldið dagana 5. til 8. mars næstkomandi. Har- aldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, var spurð- ur hvaða mál hann teldi að yrðu fyrirferðamest á Búnaðarþing- inu? Við munum að sjálfsögðu ræða byggðamálin í sínum víðasta skilningi og leggja ef til vill nýjar áherslur fram varðandi það mál og höfum fengið þau til umsagnar nýja þings- ályktunartil- lögu um byggðaáætl- un. Vonandi koma þar fram nýir fletir þannig að við fáum nýja sýn í byggðamál- unum,“ sagði Har- aldur. ,,Ég hygg að raf- orkuverð í dreifbýli muni verði fyrirferða mikið mál. Bændur hafa farið misjafnlega út úr þeim breyt- ingum og vilja án efa ræða þau mál ítarlega enda ekki enn séð fyrir endann á þeim. Hann sagði að án efa yrðu miklar umræður um alþjóðasamn- inga og verðmyndun búvara og alla þá þungu umræðu sem þar hefur farið fram. Þá nefndi hann þrjú erindi sem komin eru til bún- aðarþings um framlög til land- græðsluverkefna. Þar eru bændur að knýja á um að Landbótasjóður verði efldur þannig að þeir geti staðið við þær landbótaáætlanir sem þeir hafa skrifað undir að framkvæma í tengslum við gæða- stýringu. Haraldur segir það mjög alvarlegt mál ef Landbótasjóður fær ekki fjármagn til að standa undir þeim landbótaverkefnum sem menn hafa tekist á hendur. Þetta setur gæðastýringuna og þá bændur í óvissu sem hafa undir- gengist ákveðnar kröfur með sín beitarmál. Haraldur segir að tengt umræð- unni um byggðamál verði umræða um fjarskipti og nettengingar. Það er vaxandi umræða um að góð fjarskipti og góðar samgöngur séu forsendur þess að efling lands- byggðarinnar geti farið fram. Þá verður rætt um tvöfalda bú- setu, að það verði raunverulegur valkostur að eiga tvö heimili á Ís- landi, bæði í dreifbýli og þéttbýli. Þetta geti skipt miklu máli fyrir sveitirnar. Auk þess munu bændur ræða ýmis fagleg innri mál, hvernig þeir reka sitt félagskerfi, um orlofssjóð Bændasamtakanna þar sem menn eru að hugsa um nýjar og breyttar áherslur frá því sem verið hefur. Haraldur Benediktsson formaður Bændasam- takanna Byggðamál, raf- orkuverð og Landbótasjóður, meðal helstu mála búnaðarþings Hólaskóli í heimsókn Nemendur á fyrsta ári í ferðamáladeild Háskólans á Hólum komu í síðustu viku í heimsókn í Bændahöllina til kynna sér starfsemi Bændasamtaka Íslands. Nemendurnir voru í höfuðborginni í tvo daga og kynntu sér staklega Food and Fun hátíðina sem greint er frá á blaðsíðu 2. Mikil eftirspurn hefur verið síð- ustu árin eftir spírum sem notað- ar eru í fiskhjalla. Í haust er leið voru sendar 600 spírur af rauð- greni frá Hallormsstað til Grinda- víkur. Spírurnar eru úr grisjun á rauðgreni frá 1954-1956. Þetta er önnur grisjun í reitnum sem er um 1,4 hektarar, grisjað í um 1.200 tré á hverjum hektara. Það er fyrirtækið Haustak í Grindavík sem keypti spírurnar. Það þurrkar að mestu hausa af keilu á hjöllunum og fara þeir á Nígeríu- markað en þorskur og ýsa eru þurrk- uð í gufuhita. Sömuleiðis hefur Hreinn Óskars- son, skógarvörður á Suðurlandi selt spírur sem teknar hafa verið í Haukadal. Dr. Ólafur Eggertsson, jarð- fræðingur að Mógilsá, rannsóknar- stöð Skógræktarinnar, sagði að þessi spírusala væri umtalsverð bú- bót fyrir Skógræktina því að hún gerði betur en að greiða kostnaðinn við grisjun skóganna. Hann segir að viðarnytjar séu af ýmsum toga eins og arinviður, jólatré, spírusal- an og fleira. Sala á spírum gerir betur en að greiða grisjunarkostnað Nýtt þróunar- verkefni í hrossarækt Kristinn Guðnason, formaður Fé- lags hrossabænda, sagði á opnum fundi, sem félagið boðaði til ásamt Bændasamtökunum, í Þing- borg í Hraungerðishreppi að nýtt þróunarverkefni í hrossarækt hefði komið í stað umboðsmans hestsins. Nýja þróunarverkefnið fær 25 milljónir króna á ári næstu fimm árin. Formaðurinn sagði að þar yrðu unnin mörg fjölbreytt verkefni en fagráðið hafi sam- þykkti að leggja mikla áherslu á frjósemi íslenska hrossastofnsins, sem hefur dvínað síðustu ár. Á fundinum fjallaði Kristinn einnig um afurðasölumálin en mjög illa hefur gengið að selja hrossakjöt úr landi vegna erfiðra markaða, sem m.a. má rekja til óhagstæðrar gengisþróunar. Þá fjallaði hann einnig um spatt í hrossum, landsmótið í sumar og um framtíð Félags hrossabænda svo eitthvað sé nefnt. /MHH Þriðjudagur 28. febrúar 2006 ÚRVALSFATNAÐUR Á ÍSLENSKA BÆNDUR Tilboð til 10. mars Ef keypt er vinnuflíspeysa og samfestingur fæst stuttermabolur á 500 kr. Sjá nánar á bls. 34 Árið 2003 tóku gildi ný raforku- lög sem komu að fullu til fram- kvæmda í byrjun þessa árs. Það sem snýr að neytendum fyrst og fremst er sú staðreynd að ekki er lengur heimilt að selja rafmagn á mismunandi verði eftir notk- un. Bændur hafa almennt komið frekar illa út úr þessum breyt- ingum og raforkuverð hækkað víða í dreifbýli. Ástæðan liggur að hluta til í þeim breytingum sem gerðar voru á lögunum en fyrst og fremst vegna “rangra” reikningsaðferða við sölu raf- magns í eldra kerfinu. Þetta kemur fram í gögnum sem Þór- arinn E. Sveinsson, fulltrúi hjá Bændasamtökunum, hefur safn- að saman; meðal annars frá Orkustofnun. Niðurgreiðslurnar í gamla kerf- inu voru hugsaðar vegna rafhitun- ar húsa. Í reynd var víða allt raf- magn mikið niðurgreitt, en það hefur breyttst í nýja kerfinu. Upp- haflegt hámark á rafhitun var 35.000 kWst/ári en það var hækk- að á síðasta ári í 40.000 kWst/ári. Þórarinn segir að niðurgreiðsl- urnar séu til sífelldrar endurskoð- unar. Þeirri hugmynd hafi verið velt upp, hvort það sé eðlilegt að allir séu með sama hámarkið, þeg- ar horft er til stærðar húsnæðis, aldurs þess og fjölskyldustærðar. Það séu mýmörg dæmi um not- endur með alltof mikla notkun þrátt fyrir að vera undir hámark- inu. Einnig þurfi að kanna hvort ekki sé ástæða til að vera með sér- staka íbúðarflokkun á lögbýlum. Nánast öll atvinnustarfsemi krefst raforkunotkunar og spurningin sé sú hvort hlutfallið 85% hitun og 15% almenn notkun ætti að vera eitthvað annað í dreifbýlinu. „Víst er að þessi kerfisbreyting hefur haft áhrif víða. Meira heyrist eðlilega um hækkun rafmagns en lækkun. Kerfið verður ekki virkt að fullu fyrr en neytendur geta far- ið að velja sér birgja, vonandi síð- ar á árinu. Samkvæmt upphafleg- um hugmyndum ættu þá að opnast möguleikar til lækkunar. Ekki má heldur gleyma möguleikum bænda og landeigenda til fram- leiðslu rafmagns og sölu inn á landskerfið. Nauðsynlegt er að bændur – sem aðrir rafmagnsnot- endur - fylgist vel með þessum breytingum og að upphafleg markmið og ásetningur við kerfis- breytinguna nái fram að ganga,” segir Þórarinn. Þróun raforkuverðs í dreifbýli frá árinu 2004 til 2006 Raforkuverð hefur víða hækkað í dreifbýli

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.