Bændablaðið - 12.12.2006, Qupperneq 4
4 Þriðjudagur 12. desember 2006
Skógarbók Grænni
skóga komin út
Föstudaginn 8. desember kom
Skógarbók Grænni skóga út á
vegum Landbúnaðarháskóla
Íslands. Níels Árni Lund, skrif-
stofustjóri í Landbúnaðarráðu-
neytinu tók á móti fyrsta eintak-
inu fyrir hönd Guðna Ágústsson-
ar, landbúnaðarráðherra.
Skógarbók Grænni skóga
er hugsuð sem kennslubók og
almenn handbók um skógrækt á
Íslandi og ætlað að bæta úr brýnni
þörf fyrir slíkt námsefni. Land-
búnaðarháskóli Íslands gefur bók-
ina út í samvinnu við Skógrækt
ríkisins, Landgræðslu ríkisins og
landshlutabundnuskógræktarverk-
efnin. Í bókinni er m.a. fjallað um
stefnur og strauma í skógrækt, trjá-
tegundir, skógarvistkerfi, skilyrði
til nýskógræktar, skipulag skóg-
ræktar, skjólbeltarækt, umhirðu
ungskóga, viðarnytjar og útivistar-
skógrækt.
Ritstjóri bókarinnar er Guð-
mundur Halldórsson og formað-
ur ritnefndar var Magnús Hlyn-
ur Hreiðarsson, verkefnisstjóri
Grænni skóga. Höfundar efnis eru
fjölmargir sérfræðingar á sviði
skógræktar- og landgræðslu.
Bókin er 248 blaðsíður. Hún er
litprentuð með fjölda skýringar-
og ljósmynda, prentuð hjá Ásprent
á Akureyri. Bókin kostar 4.000
krónur og er m.a. seld í bókabúð-
um Pennans – Eymundssonar víða
um land og á skrifstofu Landbún-
aðarháskólans á Reykjum í Ölfusi
í síma 433-5303. Einnig er hægt
að panta hana í gegnum netfangið
magnea@lbhi.is og á heimasíðu
skólans, www.lbhi.is.
Níels Árni Lund skrifstofustjóri í Landbúnaðarráðuneytinu tók á móti
fyrsta eintakinu af Skógarbók Grænni skóga. Hér er hann, ásamt Magn-
úsi Hlyni Hreiðarssyni verkefnisstjóra Grænni skóga (t.h.) og Guðmundi
Halldórssyni ritstjóra bókarinnar.
Mikil virkni á
markaði með kýr
Verð á gripum hefur
hækkað
Þó nokkuð er um að kýr gangi
kaupum og sölum um þess-
ar mundir, en eftirspurn eftir
þjónustu Kúatorgs Búnaðar-
sambands Suðurlands hefur þó
ekki verið ýkja mikil. Ástæðuna
segir Jóhannes Símonarson hér-
aðsráðunautur þá að bændur
hugi fyrst að markaði fyrir gripi
sína innansveitar og verði oftast
ágengt í þeim efnum. Kúatorgið
var sett á laggirnar á vegum sam-
bandsins í fyrravetur.
„Þetta hefur ekki gengið eins
vel og við vonuðumst til,“ segir
Jóhannes. Hugmyndin var að birta
á torginu upplýsingar um þá gripi
sem til sölu væru hverju sinni, þann-
ig að bændur gætu leitað á einn
stað, á vefsíðu búnaðarsambands,
ef þeir hygðust annað hvort selja
eða kaupa. „Ástæðan fyrir því að
þetta hefur ekki virkað sem skyldi
er að bændur selja nánast eingöngu
innan sinnar sveitar og leita ekki til
okkar nema þegar það gengur ekki
upp,“ segir Jóhannes. Minni eftir-
spurn væri því eftir þjónustu Kúa-
torg en menn gerðu ráð fyrir.
Hver gripur verðmætari
Hann sagði að markaðurinn væri
býsna virkur um þessar mundir,
kýr gengju kaupum og sölum og
frekar væri skortur á kúm en hitt.
„Það er bjart yfir mjólkurfram-
leiðslunni,“ segir Jóhannes, „það
vantar mjólk og þegar ástandið er
með þeim hætti verður hver gripur
verðmætari.“
Jóhannes segir að kýr hafi hækk-
að í verði á liðnum misserum.
Algengt verð á kvígum var á bilinu
75 til 85 þúsund krónur, en nú er
gangverð á kvígum á fyrsta mjalta-
skeiði um 120 til 130 þúsund krón-
ur. „Það má kannski segja að frekar
sé um að ræða leiðréttingu á verði
fremur en hækkun, verðið var alltof
lágt áður en þetta ástand byrjaði, “
segir Jóhannes og bætir við að upp-
eldiskostnaður á mjólkurkú sem ber
24 mánaða gömul, eins og algengt
er, sé um 120 þúsund krónur. Telur
Jóhannes því að kýr séu um þessar
mundir seldar á raunvirði, en telur
ekki ólíklegt, vari svipað ástand
áfram, að þær muni hækka í verði,
„ég spái því að minnsta kosti að
verðið lækki ekki.“
Hann segir eðlilegt að eðlilegt
verð fyrir eldri kýr með góða reynslu
sé um 150 þúsund krónur, jafnvel
eilítið hærra og bendir í því sambandi
einnig á að nú sé farið að greiða út
gripagreiðslur, 17 þúsund krónur
á ári sem bændur fá fyrir hverja kú
sem ber kálfi. „Það ætti frekar að
verða til þess að verðið hækkar.“
Jóhannes bætti við þeirri ábend-
ingu að bændur yrðu að hafa sam-
band við héraðsdýralækni áður en
gengið er frá sölu, fylgjast þyrfti
með öllum hreyfingum, því ekki
mættu allir selja frá sér gripi og
þeir mættu heldur ekki fara hvert
sem er.
Hefur einhver séð
Herdísarvíkur-Surtlu?
Er einhver með höfuðið af Her-
dísarvíkur-Surtlu hangandi uppi
á vegg hjá sér? Sé svo er sá hinn
sami beðinn að hafa samband
við Sauðfjársetur á Ströndum að
Sævangi í Steingrímsfirði. Þar
stendur til að setja upp sýningu
á frægu sauðfé og finnist Surtla
bíður hennar samvera með
sómagripum á borð við Dollý
hina klónuðu, Merino-hrútinn
Skrekk, Salómon svarta og Þoku
frá Smyrlabjörgum.
Vandinn er hins vegar sá að
lítið er til af minjum um sögu
Herdísarvíkur-Surtlu sem þó var
æði litrík. Til stóð að fella hana
eins og annað fé í fjárskiptum
sem gerð voru vegna mæðiveiki
haustið 1951. Þá var svæðið frá
Þjórsá vestur í Hvalfjörð hreinsað
af fé, að frátalinni Surtlu og lambi
hennar sem sluppu. Lambið náðist
í ársbyrjun 1952 en Surtla ekki þótt
hún sæist nokkrum sinnum. Voru
þó gerðar ítrekaðar tilraunir til að
ná henni.
Haustið 1952 gripu yfirvöld til
örþrifaráða og lögðu fé til höfuðs
Surtlu. Var hverjum þeim sem
næði henni, dauðri eða lifandi,
heitið 2.000 kr. í verðlaun. Þetta
bar árangur því laugardaginn 30.
ágúst féll Surtla fyrir byssuskoti
eftir langan eltingarleik. Höfði
hennar var skilað inn á skrifstofu
sauðfjárveikivarna og vígalauna
krafist.
Um þetta er fjallað í Öldinni
okkar þar sem sagt er að Surtla
hafi verið í eigu Hlínar Johnson í
Herdísarvík á Reykjanesi. Er talið
að Surtla hafi aldrei komist undir
mannahendur eftir að henni var
sleppt sem lambi. Í Öldinni okkar
er birt meðfylgjandi mynd af Surtlu
sem greinilega hefur verið stoppað
upp.
Nú fer Sauðfjársetur á Strönd-
um þess á leit við þann sem veit
hvar höfuðið er að finna eða hef-
ur aðrar upplýsingar um Surtlu að
hafa samband. Tilmælin eru und-
irrituð af Arnari S. Jónssyni fram-
kvæmdastjóra setursins en hann
hefur símana 451-3324 og 661-
2009. Einnig er hægt að koma upp-
lýsingum á framfæri á netfangið
saudfjarsetur@strandir.is
Fyrir skömmu var stofnaður
Áhugahópur um verndun Jökuls-
ánna í Skagafirði, þ.e. Jökulsár
austari og vestari ásamt Héraðs-
vötnum. Markmið hópsins er að
vernda árnar og að þegar í stað
verði horfið frá öllum hugmynd-
um um virkjun þeirra. Hópurinn
ætlar að beina sjónum fólks að
óafturkræfum áhrifum virkjana
í ánum, allt frá jökli til sjávar, og
áhrifum þeirra á skagfirskt sam-
félag.
Eins og kunnugt er hefur um
árabil verið í umræðunni að virkja
bæði við Villinganes og Skatastaði.
Á haustdögum samþykkti síðan
meirihluti sveitarstjórnar Sveitar-
félagsins Skagafjarðar að gera ráð
fyrir báðum þessum virkjunarkost-
um inni á aðalskipulagi. Arna Björg
Bjarnadóttir er annar talsmaður
áhugahópsins. Tíðindamaður blaðs-
ins hitti hana á dögunum og lagði
fyrir hana tvær spurningar um þetta
mál.
Hvernig hyggist þið vinna þess-
um málstað frekara fylgis?
,,Mikilvægast af öllu virðist vera
að fræða fólk um áhrif virkjananna
á náttúru, mannlíf og atvinnulíf í
Skagafirði. Við höfum til þess opn-
að heimasíðu, www.jokulsar.org,
og þar gefst fólki einnig tækifæri
til að lýsa yfir andstöðu sinni gegn
virkjunum í Jökulsánum. Þá höfum
við nú þegar staðið fyrir fræðslu-
fundi um náttúru Skagafjarðar frá
jökli til sjávar sem og baráttufundi
gegn virkjunum í Jökulsánum. Báð-
ir þessir fundir voru mjög vel sóttir
og þá hafa fjölmargir lýst yfir and-
stöðu sinni gegn virkjunum í ánum
á heimasíðunni. Mjög mikill áhugi
virðist vera á málefninu bæði inn-
an héraðs sem utan. Það er ljóst að
það er ekki einkamál Skagfirðinga
hvernig farið er með náttúru lands-
ins þó svo að hún sé innan okkar
sýslumarka.“
En eruð þið ekki með þessu að
koma í veg fyrir fjölbreytileika í
atvinnulífi Skagfirðinga?
,,Nei, þvert á móti. Það er mikill
misskilningur að virkjanir við Vill-
inganes og Skatastaði muni auka
fjölbreytileika atvinnulífsins. Í
fyrsta lagi skapa sjálfar virkjanirnar
örfá störf og í öðru lagi bendir allt
til þess að orkan verði flutt beint úr
héraði. Það beinlínis kemur fram í
umhverfismatinuáVillinganesvirkj-
un og í pappírum virkjunaraðila að
orkan fari beint inn á byggðalínu.
Enda erum við að tala um afar litla
virkjun en hún er einungis 33 MW.
Þá er því við að bæta að líftími henn-
ar er einungis um 40 ár. Hægt er
að hefjast handa við smíði hennar
um leið og sveitarstjórn hefur sam-
þykkt aðalskipulagið og veitt fram-
kvæmdaleyfi. Skatastaðavirkjun er
skemmra á veg komin, en Lands-
virkjun og Héraðsvötn ehf. hafa sótt
um rannsóknarleyfi fyrir hana til
iðnaðarráðherra. Skatastaðavirkjun
er mun stærri en Villinganesvirkjun
eða um 180 MW. Þá hafa Alcoa og
Ísal lýst yfir áhuga sínum á að nýta
orkuna bæði frá Skatastaðavirkjun
og Villinganesvirkjun. Þó svo að
orkan yrði nýtt í héraði til orkufrekr-
ar stóriðju yrði það mikil afturför.
Það er grundvallaratriði að hafa
framtíðina að leiðarljósi þegar ver-
ið er að byggja upp atvinnulíf og
samfélag. Við vitum að virðisauk-
inn af frumframleiðslu á t.d. áli er
ekki mikill. Álið fer beint úr landi
með sama skipi og flutti súrálið í
það inn. Í Skagafirði eigum við að
leggja áherslu á hátt menntunarstig
og störf sem krefjast menntunar.
Enda haldast hátt menntunarstig og
fjölbreytt atvinnulíf í hendur. Fjöl-
breytt atvinnulíf tryggir að þó eitt
fyrirtæki hætti störfum kippi það
ekki stoðum undan öðru atvinnulífi
og þar með afkomu einstaklinga,“
sagði Arna Björg. /ÖÞ.
Áhugahópur um verndun Jökulsánna í Skagafirði
„Við erum að hefja störf, þetta
er komið í gang hjá okkur,“ seg-
ir Gunnar Örn Marteinsson en
nú fyrir skömmu skipaði Jónína
Bjartmarz umhverfisráðherra
starfshóp til að fara yfir og kanna
möguleika á stækkun friðlands í
Þjórsárverum sem og til að end-
urskoða núverandi mörk frið-
landsins og friðlýsingarskilmála.
Gunnar er tilnefndur í hópinn
af Skeiða- og Gnúpverjahreppi,
formaður starfshópsins er Árni
Bragason, en aðrir í hópnum eru
Egill Sigurðsson tilnefndur af
Ásahreppi og Þorgils Torfi Jóns-
son tilnefndur af Rangárþingi
ytra.
Fram kemur í skipunarbréfi að
framkvæmdir í nágrenni núverandi
friðlands og við jaðra þess frá því
friðlýsing var ákveðin árið 1979
hafi vakið upp spurningar um æski-
legar breytingar á mörkum þess. Er
hópnum ætlað að fara yfir málefni
friðlandsins, meta stöðuna og ræða
við sérfræðinga og hagsmunaaðila
á svæðinu, einnig að gera tillögur
um stækkun friðlandsins svo og
hugsanlegar breytingar á mörkum
þess. Hefur umhverfisráðherra lýst
þeirri skoðun sinni að stækka beri
friðlandið og láta af frekari orkunýt-
ingaráformum á þessu svæði.
Starfshópurinn hélt fund á dög-
unum þar sem að sögn Gunnars var
farið yfir vinnureglur og verklag og
þá var efnt til fundar í gærkvöldi,
mánudagskvöld með fulltrúum
ýmissa hagsmunaaðila, s.s. náttúru-
verndarsamtaka, Landsvirkjunar og
Vegagerðar. „Þetta er mjög stórt
og mikið verk sem þarf að vinna á
mjög skömmum tíma. Það ber þess
nokkurn keim að hraða þurfi málinu
svo niðurstaða liggi fyrir á ákveðn-
um tíma,“ segir Gunnar og vísar þar
til kosninga næsta vor, en starfshópn-
um er ætlað að skila niðurstöðum
sínum 1. febrúar á næsta ári. „Þann-
ig að við höfum frekar nauman tíma
til að klára þetta mikilvæga mál.“
Skiptar skoðanir voru í Skeiða-
og Gnúpverjahreppi um málið,
þ.a. hvort leyfa ætti tilteknar fram-
kvæmdir innan Þjórsárvera eða
ekki. Gunnar segir viðhorf margra
hafa breyst, „það hafa orðið miklar
breytingar varðandi skoðanir folks
á náttúruvernd í landinu og þar
með líka hér í sveitinni, það er aðal-
málið,“ segir hann.
Getur skapað góða sátt um málið
Fram kemur í umsögn sveitarstjórn-
ar Skeiða- og Gnúpverjahrepps
í fyrri mánuði vegna tillögu til
þingsályktunar um stækkun frið-
lands í Þjórsárverum, að það sé
alit sveitarstjórnar að þær breyt-
ingar sem kunna að verða gerðar
á friðlandinu í Þjórsárverum eigi
fyrst og fremst að miða að vernd-
un þess svæðis sem myndar verin
sjálf. Vel sé hægt að ná þeim mark-
miðum þó friðlýsing sé ekki jafn
víðtæk og fram komi í áðurnefndu
frumvarpi. Þá segir sveitarstjórn
að sú leið sem umhverfisráðherra
fari nú, að skipa starfshóp í sam-
ráði við sveitarstjórnir á svæðinu,
„teljum við vænlega til árangurs
og komi til með að geta skapað
góða sátt um málið.“
Þjórsársver eru á meðal helstu
náttúrugersema Íslands og hafa
mikið verndargildi í alþjóðlegu
samhengi, en svæðið er víðáttu-
mesta gróðurvin miðhálendisins
auk þess sem þar er að finna mestu
varpstöðvar heiðargæsar í heimi.
Arna Björg Bjarnadóttir.
Starfshópur til að kanna möguleika á stækkun
friðlands í Þjórsárverum
Stórt og mikið verk sem
vinna þarf á skömmu tíma
Matarverð lækkað
Alþingismenn stigu fyrsta
skrefið í átt til lækkunar á
matarverði í anda tillagna rík-
isstjórnarinnar rétt áður en
þeir fóru í jólafrí. Samþykkt
var sem lög breyting á virð-
isaukaskatti sem lagður er á
matvörur úr 14% í 7%, auk
þess sem vörugjöld af matvör-
um voru lækkuð verulega.
Þriðja atriðið, tollalækkanir á
óunnu kjöti, er óafgreitt en það
hefur væntanlega mest áhrif á
kjör bænda. Tillögur um þær
verða væntanlega lagðar fram
eftir að þing kemur saman um
miðjan janúar. Allur pakkinn á
svo að taka gildi 1. mars og lækka
matarverð um allt að 16%.