Bændablaðið - 12.12.2006, Page 26
26 Þriðjudagur 12. desember 2006
Allir fá þá
eitthvað fallegt
Krakkarnir í 1. bekk í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit
hlakka mikið til jólanna og voru búin að hugsa sér eitt-
hvað sem þau langar að fá í jólagjöf. Gjafmildir jólasvein-
ar eru greinilega í uppáhaldi og enginn var neitt sérstak-
lega hræddur við Grýlu.
Tinna Ósk Ompi Rúnarsdóttir– Mig lang-
ar í fjarstýrðan bíl í jólagjöf, hinn bilaði og
klessir alltaf á. Í jólafríinu ætla ég að baka
piparkökur og smákökur með mömmu minni.
Uppáhalds jólasveinninn minn er Kjötkrókur
af því að hann er vinur Kertasníkis, en ég hef
samt ekkert spjallað við þá. Stekkjastaur er
fyrsti jólasveinninn.
Ólafur Már Þrastarson – Í jólagjöf langar mig í tölvuleiki og í jólafríinu ætla
ég að baka smákökur og leika mér með jóladót. Uppáhalds jólasveinninn minn
er Skyrgámur því ég fæ alltaf skyr hjá honum.
Guðjón Valberg Hilmarsson – Mig langar í byssu, svona fallbyssu, og ... man
ekki eftir meiru. Ég ætla bara að leika í jólafríinu. Fyrsti jólasveinninn sem
kemur er Stekkjastaur en Stúfur er uppáhalds jólasveinninn minn.
Ágúst Máni Ágústsson – Ég er að spá að mig langar í svona Brúder, það er
sko dótadráttarvél, og líka byssu. Í jólafríinu ætla ég að baka með mömmu
minni og leika mér, kannski líka taka til en mér finnst skemmtilegast að baka.
Uppáhalds jólasveinninn minn er Kertasníkir, það er svo auðvelt að gefa hon-
um en erfitt að setja kjöt ofan í skóinn fyrir Kjötkrók.
Katrín Sigurðardóttir – Mig langar í Baby Born-dúkku í
jólagjöf en í jólafríinu ætla ég bara dansa í kringum jólatréð
og leika mér eitthvað. Fyrsti jólasveinninn sem kemur heitir
Stekkjastaur.
Jökull Karlsson – Í jólagjöf vil ég fá bíla, helst sportbíla, og
svo Playmo. Þegar jólafríið kemur ætla ég að lesa af pökkun-
um og hjálpa pabba að jólaskreyta. Uppáhalds jólasveinninn
minn er Kjötkrókur því hann hengdi hangikjötslæri upp í eld-
húsinu þegar hann kom í fyrra.
Tristan Darri Ingvarsson – Mig langar í skíði, nærbuxur
og fótboltaskó í jólagjöf og í jólafríinu ætla ég bara að fara
að versla í bænum, og reyna að verða stærri en pabbi minn.
Pottasleikir er uppáhalds jólasveinninn minn af því að hann
gaf mér gott í skóinn.
Ísak Rögnvaldsson – Uhh ... mig langar í svona Playmo-ridd-
ara og líka gönguskíði í jólagjöf en ég hef samt aldrei farið á
gönguskíði. Ég ætla bara að leika í jólafríinu, kannski svona
bóndaleik með Tristani. Kertasníkir er uppáhalds jólasveinn-
inn minn því hann gaf mér bangsa, svona með ól og bandi, en
Stekkjastaur er samt fyrsti jólasveinninn.
Valdimar Níels Sverrisson – Mig langar sko í krossara í jóla-
gjöf, og fjórhjól og dótadráttarvél. Í jólafríinu ætla ég bara að
leika mér við Andrés og Reyni og líka hjálpa til í fjósinu. Mér
finnst Skyrgámur hundleiðinlegur, hann skildi bara eftir skyr
á bekknum en Kertasníkir er miklu skemmtilegri, hann setur
bara kerti í skóinn og það eru engin læti í honum.
Birkir Blær Óðinsson – Í jólagjöf langar mig í vélmenni,
svona dótavélmenni, og eitthvað meira dót. Ég ætla bara að
leika mér í jólafríinu mínu. Fyrsti jólasveinninn sem kemur
er Stekkjastaur en það er enginn í uppáhaldi.
María Rós Magnúsdóttir – Mig langar í snyrtiborð í jóla-
gjöf og líka vélmenni sem ber póst og blöð og stóran bangsa.
Ef pabbi verður kominn heim þá ætla ég að byggja með hon-
um snjóhús í jólafríinu og leika mér úti. Ég er ekkert hrædd
við jólasveinana og Skyrgámur er uppáhalds jólasveinninn
minn því þegar hann koma á leikskólann í fyrra gaf hann mér
dót og skyr.
Jón Smári Hansson – Mig langar í fjarstýringarþyrlu og
svona dót sem getur keyrt á sandi. Það er með rauð augu og
fæst í Glerártorgi, við hliðina á þar sem maður kaupir græn-
metið. Í jólafríinu ætla ég að skjóta upp flugeldum með pabba
mínum. Uppáhalds jólasveinninn minn er Hurðaskellir.
Fræðaþing
landbúnaðarins 2007
Hið árlega Fræðaþing landbúnaðarins verður haldið dagana
15. og 16. febrúar n.k.
Þingið verður haldið í Reykjavík.
Dagskrá þingsins verður fjölbreytt að vanda. Fyrri daginn,
15. febrúar, verður sameiginleg
dagskrá fyrir hádegi og síðan verða þrjár samtíma málstof-
ur eftir hádegi, ásamt veggspjaldasýningu. Föstudaginn 16.
febrúar verða tvær málstofur árdegis og þrjár síðdegis.
Drög að dagskrá þingsins í heild verða birt á www.landbunad-
ur.is næstu daga.
Undirbúningsnefndin
Ný útgáfa af MARK (www.bufe.
is) er komin á Netið. Í þessari
nýju útgáfu geta kúabændur
fengið upplýsingar um fjölda árs-
kúa annars vegar miðað við raun-
tímastöðu (12 mánuði aftur í tím-
ann) og hins vegar fjölda árskúa
á tímabilinu 1. september 2005 til
31. ágúst 2006 en sú tala var not-
uð til grundvallar útreikningi á
gripagreiðslum sem bændur hafa
fengið sent yfirlit um. Jafnframt
geta bændur fengið nánari yfir-
litsskýrslu þar sem kemur fram
hver og ein kýr ásamt fjölda
daga á skýrslu. Þetta er hægt fyr-
ir bæði áðurnefnd tímabil.
Bændum er vinsamlega vísað
á MARK til að leita nánari upplýs-
inga og ef þeir hafa athugasemdir
við útreikninginn á fjölda árskúa
er þeim bent á að hafa samband
við viðkomandi búnaðarsamband.
Allar lögmætar leiðréttingar verða
teknar til greina og eru þá grund-
völlur að leiðréttum gripagreiðsl-
um næsta mánaðar á eftir. Rétt er
að taka fram að þessi útreikningur
byggist á þeim gögnum sem koma
í gegnum skýrsluhaldið og á hjarð-
bókum sem hafa borist eða verið
skráðar beint í MARK. Ítrekað skal
mikilvægi þess að skila inn full-
nægjandi upplýsingum í samræmi
við reglugerð um skyldumerkingar
búfjár nr. 289/2005.
Gripagreiðslur í
nautgriparækt á Netinu