Bændablaðið - 12.12.2006, Qupperneq 32
32 Þriðjudagur 12. desember 2006
Þegar blaðamaður Bændablaðs-
ins leit inn í höfuðstöðvar MS í
Reykjavík í lok nóvembermán-
aðar voru jólamjólkurvörurnar
farnar að streyma til neytenda,
verið var að leggja lokahönd á
ísterturnar og hjá Osta- og smjör-
sölunni voru ostakörfurnar sívin-
sælu í pökkun.
Bændablaðið hitti Baldur Jóns-
son, markaðsstjóra, og JónAxel Pét-
ursson, framkvæmdastjóra sölu- og
markaðssviðs, MS í Reykjavík að
máli.
„Okkar stóra vara er að sjálf-
sögðu mjólkin. Jólin eru engin sér-
tími í sölu fyrir mjólkina því sala á
drykkjarneyslumjólk stendur í stað
í desembermánuði Allar tegundir
seljast í allbærilegu magni en jóla-
vörurnar stækka óneitanlega mark-
aðinn. Þetta kryddar tilveruna að
klæða vörurnar í jólabúning og ger-
ir okkur sýnilegri fyrir jólin. Neyt-
endur kunna að meta þetta,“ útskýr-
ir Jón Axel.
Fyrir jólin í fyrra fór MS af stað
með jólavef á Netinu www.jolamj-
olk.is sem hefur verið gríðarlega
vel sóttur. Þar má meðal annars
fræðast um jólasveinana, taka þátt í
spurningakeppni eða finna girnileg-
ar uppskriftir svo fátt eitt sé nefnt.
„Við byrjuðum fyrir margt löngu
með jólajógúrtina og í byrjun seld-
um við innan við hundrað þúsund
eintök en í dag eru að fara um þrjú
hundruð þúsund þannig að neytend-
ur kunna þessari tilbreytni greini-
lega vel. Kókómjólk í „jólabúningi“
nýtur einnig meiri eftirspurnar.Sala
á sýrðum rjóma eykst mikið fyrir
jólin og rjóminn tekur óneitanlega
mesta stökkið því hann selst þrefalt
meira í desember en aðra mánuði
ársins,“ segir Baldur.
15 þúsund ístertur
Sala á jólaís hefur verið nokkuð
stöðug undanfarin ár hjá Emmessís
en þar seljast að jafnaði um 15 þús-
und ístertur fyrir jólin.
„Við byrjum að undirbúa fram-
leiðsluna í byrjun október og hefst
hún fljótlega íframhaldi af því.
Framleiðslan nær hámarki í lok
nóvember. Það er mjög tímafrekt
að framleiða ískökur og er sú fram-
leiðsla því oftast tekin yfir lengri
tíma. Jólaísinn er hinsvegar ein-
faldari í framleiðslu og vélvæddari
þannig að mesta törnin hjá okkur í
framleiðslunni er yfirleitt búin áður
en desembermánuður byrjar,“ sagði
Leifur Örn Leifsson, framkvæmda-
stjóri Emmessíss.
Jólaös í afurðarstöðunum
Mjólkurvörur í hátíðarbúning
Baldur Jónsson, markaðsstjóri og Jón Axel Pétursson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs MS við sýnis-
horn af framleiðsluvörum fyrirtækisins
Mjólkurvörur komnar í hátíðarbúning.
Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri Emmessíss, með starfsstúlkum við gerð jólaístertna.
Það er tímafrek vinnsla í jólaístertum en reynt er að ljúka þeirri framleiðslu
áður en desembermánuður rennur upp.
Sævar Arngrímsson framleiðslustjóri Emmessíss fylgist með jólafram-
leiðslunni.