Bændablaðið - 12.12.2006, Side 37
37Þriðjudagur 12. desember 2006
asgeir@agro.is · www.agro.is · s.: 894 3065
Heilfóður
og ráðgjöf
Áratuga reynsla í
þjónustu við bændur
g
u
n
d
es
ig
n
·2
00
6·
00
1
Korn var ræktað á 3.600 hektur-
um lands á liðnu sumri og voru
ræktendur 457 talsins. Heildar-
uppskera var um 11.500 tonn,
eða um 3,2 tonn á hektara. Fyr-
ir tveimur árum, 2004, fékkst
sama uppskera af 2.900 hektur-
um lands, en það ár var metár
hvað uppskeru varðar. Þetta
kom fram á aðalfundi Landssam-
bands kornbænda sem haldinn
var á dögunum.
Fjölmörg erindi voru flutt á
aðalfundi kornbænda; Jónatan Her-
mannsson tilraunastjóri fjallaði um
kornrækt og tilraunastörf og þeir
Tryggvi Stefánsson, meistaranemi
í sameindalíffræði, og Magnús
Ágústsson, garðyrkjuráðunautur
Bændasamtakanna, fjölluðu um
sjúkdóma í byggi og varnir gegn
þeim. Sigurlaug H. Leifsdóttir í
Nýjabæ sagði frá Kornþurrkunar-
félagi Suðurlands og Halldór K.
Jónsson sagði frá kornþurrkunar-
stöð við Laugagerðisskóla á Snæ-
fellsnesi, en þessar tvær stöðvar
eru ólíkar í alla staði; önnur þeirra
er færanleg en hin afar stór og með
mikil geymslusíló og húsakost. Þá
fjallaði Einar Sveinbjörnsson veður-
fræðingur um hlýnandi veðurfar og
betri möguleika til kornræktar sem
fylgja í kjölfarið. Ólafur Eggerts-
son sagði frá hveitirækt á Þorvalds-
eyri, en hún gengur mjög vel.
Vilja takmarka álftastofninn
Tölvuverð umræða varð á fund-
inum um að nú væri tímabært að
huga alvarlega að því að takmarka
stærð álftastofnsins því álft er orð-
in mikið og alvarlegt vandamál á
ákveðnum svæðum og hefur valdið
miklum skaða á ræktarlöndum og
ökrum.
Á fundinum var Jónatan Her-
mannssyni afhent gjöf frá stjórn
sambandsins í tilefni af 60 ára
afmæli hans. Honum var færður
nýr vasahnífur sem komið hafði ver-
ið fyrir á útskornum skildi. Stjórn
samtakanna færði Jónatan þakkir
fyrir einstakt framlag til kornræktar
á Íslandi, en hann hefur náð ótrúleg-
um árangri í kornkynbótum.
Í stjórn Landssambands korn-
bænda eru Ólafur Eggertsson, Þor-
valdseyri, Gunnar Jónsson, Stóru-
Ökrum, og Guðmundur Jón Guð-
mundsson, Holtsseli.
Landssambands kornbænda:
Nær 460 bændur rækta
korn á 3.600 hekturum
Stjórn Landssambands kornbænda færði Jónatan Hermannssyni gjöf í tilefni af stórafmæli hans á dögunum.
Myndin er tekin við afhendinguna, frá vinstri Jónatan, Ólafur Eggertsson, Guðmundur J. Guðmundsson og Gunn-
ar Jónsson.