Bændablaðið - 12.12.2006, Page 49
49Þriðjudagur 12. desember 2006
H
ön
nu
n:
S
pö
r
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
Á
gú
st
sd
ót
ti
r
Háþ rýstidælur
Þegar ðar euh ámarks öfur
K 6.80 M Plus
Vinnuþrýstingur: 20-135 bör
Vatnsmagn: 530 ltr/klst
Túrbóstútur + 50%
Lengd slöngu: 9 m
Sápuskammtari
Stillanlegur úð i
K 7.80 M Plus
Vinnuþrýstingur
20-150 bör
Stillanlegur úð i
Sápuskammtari
K 7.85 M Plus
Vinnuþrýstingur:
20-150 bör
Vatnsmagn:
550 ltr/klst
Stillanlegur úð i
Sápuskammtari
Túrbóstútur + 50%
12 m slönguhjól
Vatnsmagn: 550 ltr/klst
Túrbóstútur + 50%
Lengd slöngu: 9 m
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
K 5.80 M Plus
Vinnuþrýstingur:
20-125 bör
Vatnsmagn:
450 ltr/klst
Lengd slöngu: 7,5 m
Stillanlegur úð i
Túrbóstútur + 50%
Sápuskammtari
Ýmsir aukhlt
Sn únigsdkur
Byggjum brýr er heiti á Evrópu-
verkefni sem styrkt er af Leon-
ardo sjóðnum. Nú í liðnum mán-
uði var haldinn verkefnafundur
á Ítalíu og sóttu hann nokkrar
íslenskar konur sem tengjast
þessu verkefni.
Fulltrúar Landbúnaðarháskóla
Íslands voru Ásdís Helga Bjarna-
dóttir og Theodóra Ragnarsdóttir,
frá Lifandi landbúnaði fóru þær
Ragnhildur Sigurðardóttir, Álfta-
vatni, Laufey Guðmundsdóttir,
Lækjarhúsum, og Sigrún Ásta
Bjarnadóttir, Stóru-Mástungu, en
að auki fór Sigríður Bragadóttir,
Síreksstöðum, fyrir hönd Bænda-
samtaka Íslands, sem einnig eiga
aðild að verkefninu auk Landbún-
aðarháskólans og Lifandi landbún-
aðar.
„Þetta er tveggja ára verkefni
og það er nú hálfnað,“ segir Ásdís
Helga. Auk Íslands eiga aðild að
verkefninu fulltrúar frá Ítalíu,
Tékklandi, Slóvakíu, Danmörku
og Þýskalandi. „Á vegum þessa
verkefnis hefur verið unnið að því
að koma upp og virkja tengslanet
kvenna í dreifbýli,“ bætir Ásdís
Helga við. Hún segir að í upphafi,
þegar verkefnið hófst haustið 2005,
hafi verið unnin þarfagreining
meðal kvenna í dreifbýli á þörf-
um þeirra fyrir námskeið og eða
fræðslu og eftir að henni var lokið
varð niðurstaðan sú að búnir voru
til níu mismunandi námspakkar.
Í þeim má finna grunn- og fram-
haldsáfanga um fjarnám, námskeið
um heimavinnslu og sölu afurða,
landbúnaðartengda ferðaþjónustu,
örnámskeið um landbúnað, tíma og
verkefnastjórnun, um notkun fjár-
hunda, um samskipti og framkomu
og miðlun og nýtingu upplýsinga.
Útbúin verður handbók fyrir lyk-
ilkonur sem munu halda utan um
fræðslustarfið í samvinnu við verk-
efnastjórnina. Vefgrunnurinn www.
building-bridges.is hefur verið
útbúinn og verður námspökkunum
miðlað um hann, en einnig verður
hægt að taka þátt í staðarnámi í eig-
in heimahéraði. Einn námspakki er
þegar kominn inn í grunninn, en
stefnt að því að setja þá inn jafnt
og þétt og gera þá þannig aðgengi-
lega.
„Fundurinn á Ítalíu var á marg-
an hátt sérstæður, en þar áttum við
fund með Félagi kvenna í atvinnu-
rekstri í Flórens og hittum að máli
bændur í Toskana-héraði, en við þá
ræddum við stöðu og framtíð land-
búnaðarins. „Á margan hátt var
reynsla kvenna frá öllum þessum
sex löndum svipuð; flótti kvenna
úr dreifbýli í þéttbýli er mikill,
möguleikar á því að lifa eingöngu
á landbúnaði eru takmarkaðir, erfitt
er að eignast eða komast yfir jarðir
svo eitthvað sé nefnt,“ segir Ásdís
Helga. Þannig hafi margt verið
með svipuðum hætti, en leiðirnar
að markmiðunum aftur á móti mjög
mismunandi;stoðkerfilandbúnaðar-
ins er byggt upp með mismunandi
hætti í löndunum, viðhorf og sýni-
legur vilji stjórnvalda til að ná fram
jafnrétti innan stéttarinnar, sem og
einnig stofnana, er mismunandi.
Um 80 þátttakendur tóku virkan
þátt í umræðunni um þetta verkefni
og vakti fundurinn almenna athygli.
Þannig sagði ítalska sjónvarpið frá
fundinum og ræddi við forsvars-
menn þess.
Nú fram að áramótum verður, að
sögn Ásdísar Helgu, lögð lokahönd
á námsáfangana og þeim komið
fyrir í námsgrunninum. Allir verða
þeir aðgengilegir á ensku til að
byrja með, en á vordögum má gera
ráð fyrir að þeir verði komnir að
einhverju leyti einnig inn í grunn-
inn á íslensku.
Fyrstu áfangarnir fyrir konur í
dreifbýli verða í boði nú fljótlega
eftir áramót og þær konur, sem
kunna að hafa áhuga, geta sett sig
í samband við Ragnhildi Sigurðar-
dóttur, ragnhildur.umhverfi@sim-
net.is.
Konur í dreifbýli taka þátt í Evrópuverkefninu Byggjum brýr
Vandinn oft áþekkur en
leiðir að lausn mismunandi
Fjölþjóðlegur fundur á Ítalíu.
þjónustu bænda sem hefur verið í
smíðum í rúm 2 ár. Kerfið verður
mjög nútímalegt að því leytinu að
það tengir saman í eitt sölunet þá
150 ferðaþjónustubændur sem eru
innan samtakanna. Miðlægur bók-
anagrunnur mun halda utan um
upplýsingar um öll gistirými og
þjónustu ferðaþjónustubænda og
viðskiptavinir geta leitað að ferða-
þjónustu á vefsíðunum, búið til
ferðapakka, bókað og greitt á raun-
tíma.
Þessi rauntímabókunarlausn
byggir á að allir þjónustuveitend-
ur í kerfinu séu nettengdir og geti
viðhaldið réttri bókunarstöðu um
hvað er bókanlegt til viðskipta-
vinarins. Þegar vinnan við þessa
lausn fór af stað fyrir um 3 árum
sáum við það fyrir að allir ferða-
þjónustubændur ættu kost á ISDN
tengingum í ársbyrjun 2006 en
krafan um öflugri nettengingar hef-
ur aukist mjög mikið síðustu miss-
eri á internetinu almennt. Flestar
vefsíður sem hafa einhverskonar
verslunar- og viðskiptakerfi eða
upplýsingakerfi þurfa á háhraða-
nettengingum að halda í dag. Þær
eru einfaldlega ekki hannaðar með
lághraða nettenginar í huga. Það er
mjög ánægjulegt að ný fjarskipta-
áætlun Alþingis gerir ráð fyrir að
Fjarskiptasjóður styðji við upp-
byggingu fjarskiptakerfa á þeim
svæðum sem fjarskiptafyrirtækin
munu ekki bjóða háhraðatenging-
ar. Félag ferðaþjónustubænda hef-
ur áður ályktað um mikilvægi þess
að nettengingar eflist í dreifbýli
og nú eru töluverðir viðskiptalegir
hagsmunir í húfi að það gerist sem
fyrst.
Undirritun samstarfssamninga
– spennandi viðfangsefni
framundan
Á Uppskeruhátíðinni var skrifað
undir tvo samstarfssamninga. Ann-
ars vegar er á ferðinni nýtt verkefni
sem unnið verður í samstarfi við
Landgræðslu ríkisins og Skógrækt-
arfélag Íslands og þá var endurnýj-
aður samstarfssamningur við Hóla-
skóla-Háskólann á Hólum hins
vegar.
Græðum land og bætum loftslag
Félag ferðaþjónustu bænda og
Ferðaþjónusta bænda hf. skrifuðu
undir samning við Landgræðslu
ríkisins og Skógræktarfélag Íslands
á Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu
bænda. Markmiðið með samn-
ingnum er að Félag ferðaþjónustu
bænda og Ferðaþjónustu bænda hf
hvetji félaga sína til skipulagðrar
landgræðslu og skógræktar. Jafn-
framt að vekja athygli ferðamanna
á því hvernig þeir geta bætt fyrir þá
losun gróðurhúsalofttegunda sem
ferðalög þeirra valda.
Umhverfismál og þjónustugæði
Á undanförnum árum hefur Ferða-
þjónusta bænda hf. og Félag ferða-
þjónustu bænda í samvinnu við
Ferðamáladeild Hólaskóla-Háskól-
ans á Hólum, unnið markvisst að
því að efla gæði og fagmennsku
ferðaþjónustu í dreifbýli. Samstarf-
ið hefur verið árangursríkt og er
vilji til að endurnýja samstarfið
með sérstakri áherslu á vinnu við
að auka gæði íslenskrar ferðaþjón-
ustu.
Markmiðið með verkefninu er
sem fyrr að skipa ferðaþjónustu-
bændum í fremstu röð hvað varðar
gæði þjónustu, skýra ímynd og sjálf-
bæra þróun fyrirtækja með notkun
Green Globe til að markaðssetja
þann árangur. Ferðaþjónusta í dreif-
býli er ört vaxandi atvinnugrein
og íslenskir ferðaþjónustubændur
gegna mikilvægu hlutverki í upp-
byggingu öflugrar ferðaþjónustu
á landsbyggðinni. Með stuðningi
við gæða- og vöruþróunarstarf í
greininni er lagður grundvöllur að
auknu samkeppnishæfi íslenskrar
ferðaþjónustu til framtíðar. Lögð er
áhersla á samstarfsverkefni á tveim-
ur meginsviðum á næstu þremur
árum, þ.e. á sviði umhverfismála
og þjónustugæða.
Skrifað undir samning um samstarfsverkefni Ferðaþjónustu bænda,
Skógræktarinnar og Landgræðslunnar.