Bændablaðið - 12.12.2006, Page 52
52 Þriðjudagur 12. desember 2006
Nú er lokið vinnu á kynbótamat-
inu í nautgriparæktinni haustið
2006 og ræktunarhópur fagráðs
í nautgriparækt hefur valið þann
nautahóp sem mun verða boðinn
til notkunar næstu mánuði sem
reynd naut. Ný nautaskrá mun
birtast á næstu vikum með ítarleg-
um upplýsingum um þessa gripi.
Hér verður gerð örstutt grein fyr-
ir þeim nautum sem koma nú til
noktunar að fenginni reynslu af
dætrum þeirra.
Byrjum samt aðeins á því að líta
á nautaárganginn frá 1999 sem nú
er kominn með það mikla reynslu af
dætrum að endanlega er ljóst hvað
þaðan kemur til framhaldsnotkunar
af þeim nautum. Eftirtekjan þar er
með rýrara móti eins og áður hefur
komið fram. Aðeins fimm naut úr
þeim hópi koma til framhaldsnotk-
unar og þar af aðeins eitt sem nauts-
faðir, Þollur 99008. Hann er öflugur
kynbótagripur sem enn styrkir sitt
mat með enn meiri upplýsingum
fyrir dæturnar. Hin nautin í þessum
hópi, sem eru í notkun sem reynd
naut, Ábætir 99002, Spuni 99014,
Ótti 99029 og Gangandi 99035 gera
það góðu heilli líka. Það er ástæða
til að benda á það að fjögur af þess-
um nautum; Ábætir, Þollur, Ótti og
Gangandi, eru undan mismunandi
nautum og um leið einu reyndu
nautum undan þeim feðrum sem í
notkun eru þannig að þessi naut eru
líklega þau sem eru hvað fjarskyld-
ust núverandi kúastofni í landinu og
af þeirri ástæðu einni um ýmislegt
áhugaverð til nokkurrar notkunar.
Ástæða er til að minna á að dætur
Ganganda eru einhver glæsilegasti
dætrahópur sem nokkru sinni hefur
komið fram um skrokkbyggingu og
júgurgerð, til viðbótar því að vera
taldar hafa frábærar mjaltir.
Meginviðbót nauta til notkunar
sem nýir gripir nú eru samt fyrstu
nautin úr árganginum frá 2000. Það
mikil reynsla er nú komin af dætr-
um eldri nautanna í þessum hópi að
sex þeirra eru nú valin til framhalds-
notkunar.
Skoðun á dætrum þessar nauta
lauk á síðastliðnu vori og niður-
stöður kvíguskoðunar fyrir þenn-
an nautaárgang liggja fyrir og eru
aðgengilegar á vef BÍ. Þessi nauta-
árgangur var að meginhluta mynd-
aður af tveimum stórum hálfbræðra-
hópum undan þeim Tjakki 92022
og Smelli 92028 en einnig eru
nokkrir synir Skugga 92025 en þeir
eru í yngri hluta hópsins þannig að
ekki er komin næg reynsla enn af
dætrum þeirra. Dætur nautanna í
þessum nautárgangi einkennast af
því að vera fallegar kýr að skrokk-
bygginu og hafa góða júgur- og
spenagerð. Mjaltir hjá þessum kúm
eru aftur á móti nokkuð breytilegar
og sum þessi naut gefa kýr sem eru
of gallaðar að þessu leyti. Í heild er
greinilegt að synir Smells skila öfl-
ugri kúm um afurðir en Tjakkssyn-
irnir sem tæplega kemur að óvart í
ljósi þeirrar reynslu sem nú er kom-
in af dætrum þessara tveggja nauta.
Ljóst er að þegar frekari reynsla
fæst af dætrum nautanna í árgang-
inum koma nokkur fleiri naut úr
honum til frekari notkunar þannig
að í heildina fæst þar góður hóp-
ur nauta en hins vegar virðist ekki
vera þar neinn afgerandi gripur eins
og stórstirni síðasta áratugar, Kað-
all 94017, Punktur 94032, Stígur
97010 og fleiri.
Nautin sem koma nú til notkun-
ar eru Laski 00010, Golli 00012,
Kistill 00017, Kósi 00026, Júdas
00031 og Náttfari 00035. Kistill
er sonur Tjakks en hinir fimm eru
Smellssynir.
Laski 00010 er frá Dalbæ í
Hrunamannahreppi og var móðir
hans, Lubba 177, fádæma endingar-
góð og öflug, dóttir Rauðs 82025.
Dætur Laska er góðar mjólkurkýr
með jákvæð efnahlutföll í mjólk
og er afurðamat hans 113. Þetta
eru fallegar kýr með ágæta júgur-
og spenagerð og hafa 118 í mat um
frumutölu. Þær hafa jákvætt mat
fyrir mjaltir og eru mjög skapgóð-
ar. Kynbóteinkunn hans er 112.
Golli 00012 er frá Garðsá í
Eyjafjarðarsveit og er móðir hans,
Brúða 311, enn í fullu fjöri og sýnir
því líkt og Lubba 177 einstaka end-
ingu og hefur verið feikilega öflug
mjólkurkýr, en hún er dóttir And-
vara 87014. Golli gefur mjólkur-
lagnar kýr með fremur hátt fituhlut-
fall og próteinhlutfall um meðaltal
og afurðamat 115. Þessar kýr hafa
sterka júgurgerð en spena aðeins
í grófara lagi og dómur þeirra um
mjaltir og skap er í tæpu meðallagi.
Kynbótamat hans er 104.
Kistill 00017 er, eins og áður
var nefnt, eini Tjakkssonurinn í
þessum hópi en hann er frá Bryðju-
holti í Hrunamannahreppi og móð-
ir hans, Mása 167, var öflug mjólk-
urkýr undan Daða 87003. Dætur
hans virðast mjólkurlagnar með
efnahlutföll mjólkur nærri meðal-
tali og afurðamatið 111. Þetta eru
snotrar kýr með gallalitla júgur- og
spenagerð, mjaltir nærri meðaltali
og fá mjög lofsamlega umsögn um
skap. Kynbótaeinkunn 106.
Kósi 00026 er frá Svertingsstöð-
um í Eyjafjarðarsveit og var móðir
hans, Gullbrá 142, farsæl og öflug
mjólkurkýr en hún var dóttir And-
vara 87014. Dætur hans eru vel í
meðallagi mjólkurlagnar, með góð
efnahlutföll í mjólk og afurðamat
hans er 109. Þetta eru sterkbyggð-
ar kýr með góða júgurgerð og
spena. Mjaltir eru aðeins breytileg-
ar og dómur um þann eiginleika í
slöku meðallagi en dómur um skap
jákvæður. Kynbótaeinkunn 106.
Júdas 00031 er frá Syðri-Knarr-
artungu á Snæfellsnesi og var móð-
ir hans, Blökk 119, mjög öflug og
farsæl kýr undan Þræði 86013 og
þess má geta að móðurmóðir hans,
Hosa 109, var ekki síður athyglis-
verður gripur en hún féll á síðasta
ári og hafði lagt að baki nær 15
ár í framleiðslu og skilað meiri
æviafurðum en flestar íslenskar
mjólkurkýr. Dætur hans eru vel
mjólkurlagnar með efnahlutföll í
tæpu meðallagi og afurðamat hans
er 105. Þessar kýr fá mjög jákvætt
gæðamat hjá eigendum sínum enda
dómur bæði um mjaltir og skap
mjög jákvæður. Júgurgerð er sterk-
leg en spenar stundum heldur í
lengra lagi. Kynbótaeinkunn hans
er 106.
Náttfari 00035 er frá Vorsabæ
í Landeyjum en móðir hans, Góða-
nótt 165, var fádæma mjólkurlagin
og öflug kýr af þekktri móðurlínu
þar sem margar kúnna hafa verið í
hópi hæstu kúa í landinu í kynbóta-
mati en Góðanótt var dóttir Daða
87003. Dætur hans eru fádæma
mjólkurlagnar (mat um mjólkur-
magn 134) en efnahlutföllin í mjólk-
inni lág og mat fyrir próteinhlutfall
aðeins 78 en afurðamat samt feiki-
hátt eða 122. Þetta eru öflugar kýr
með góða júgur- og spenagerð.
Dómur fyrir mjaltir er í slöku með-
allagi en þetta þykja skapgóðar kýr.
Kynbótamat hans er 113.
Af þessum nautum sem nú fara
í notkun verður Laski 00010 notað-
ur sem nautsfaðir, Náttfari 00035
verður ekki notaður þannig vegna
lágs próteinhlutfalls mjólkur. Góð-
ar vonir eru um nokkur fleiri öflug
naut úr þessum hópi í mars þegar
næg reynsla verður fengin til að
fella endanlegan afkvæmadóm
fyrir öll nautin úr árganginum frá
2000. /JVJ/
Stjórn raforkubænda hélt fund
þann 9. nóvember. Aðalmál fund-
arins var undirbúningur fyrir fund
með iðnaðarráðherra sama dag.
Tilefni þess fundar var að gera
sem besta grein fyrir samkeppn-
isstöðu nýrra og nýlegra aðila á
raforkumarkaði í samkeppni við
verð Landsvirkjunar og annarra
aðila sem kaupa raforku í heild-
sölu. Það verð hefur hins vegar
mótast m.a. af ýmsum undanþág-
um samkvæmt sérlögum sem
hvert þessara fyrirtækja hefur
fengið við stofnun og bakstuðn-
ingi ríkis og stærri sveitarfélaga
við lánsfjárútvegun á lágum vöxt-
um.
Stjórn Landssamtaka raforku-
bænda telur því ljóst að nýir
raforkuframleiðendur sem selja
orku inn á netið eru að keppa við
niðurgreitt verð og munu þurfa
að standast þá samkeppni í fram-
tíðinni.
Á ágætum fundi með iðnaðar-
ráðherra benti stjórnin hins veg-
ar skriflega á leiðir til nokkurra
úrbóta sem ekki ættu að þurfa
langan aðdraganda og var því lof-
að að málið yrði skoðað í heild
sinni. Enn fremur lagði stjórnin
fram bréfasamskipti milli hennar
og Samkeppniseftirlits sem að
endingu fann leið til að vísa mál-
inu frá sér þrátt fyrir að í erindis-
bréfi hennar komi glöggt fram að
henni sé skylt að sinna slíkri mis-
munun, enda sér stofnunin ekki
út yfir „stóru málin“.
Nú er að sjá hver verða við-
brögð stjórnvalda og hve langan
tíma tekur að móta afstöðu og
taka ákvarðanir, en stjórn Lands-
samtakanna telur ekki ástæðu til
annars en að ætla að tekið verði
á málinu af skilningi og fullum
velvilja.
Fh. stjórnar,
Birkir Friðbertsson
Frá stjórn Landssam-
taka raforkubænda
Ný reynd naut til notkunar
– Kynbótamat í nautgriparæktinni haustið 2006
Laski 00010 úr Hrunamannahreppnum er eitt nýju nautanna og er með
kynbótaeinkunnina 112 sem telst mjög gott.
Frá 1. janúar 2007 verður starf-
semin á Akureyri rekin undir
nafni Vélavers og mun þjónusta
verða með svipuðu sniði og ver-
ið hefur að því undanskildu að
innflutningur á Case IH dráttar-
vélum og bindivélum ásamt vara-
hlutum verður ekki beint til Akur-
eyrar heldur til Reykjavíkur og
verður þaðan dreift á landsvísu.
Rekstur Vélatorgs á Akureyri,
mun frá sama tíma flytjast í hús-
næði Vélavers að Krókhálsi 16,
Reykjavík, og mun Vélatorg annast
áfram innflutning og sölu á Case
IH dráttarvélum og bindivélum,
en varahluta- og viðgerðarþjónusta
verður undir nafni Vélavers.
Þjónustumiðstöð Vélavers á
Akureyri mun frá 1. janúar n.k. ann-
ast sölu og þjónustu fyrir öll tæki
frá bæði Vélaveri og Vélatorgi.
Tilgangur þessara breytinga er
að efla sölu og þjónustu á vélum og
tækjum frá Vélaveri og Vélatorgi á
landsvísu.
StarfsmennVélatorgsmunuflytj-
ast til þjónustumiðstöðvar Vélavers
á Akureyri frá 1.janúar nk. og mun
Jónas Þór Jónasson veita þjónustu-
miðstöðinni forstöðu.
Símsvörun fyrir þjónustumið-
stöðina á Akureyri mun fara fram
í gegnum skiptiborð Vélavers í
Reykjavík. Símanúmer og faxnúm-
er Vélatorgs verða óbreytt.
Vélaver hefur ákveðið að selja
núverandi húseign sína á Akureyri,
þar sem hún hentar ekki lengur fyr-
ir starfsemina.
Sérstaklega á þetta við um
aðstöðu til að þjónusta Iveco
atvinnubifreiðar og stærri vinnuvél-
ar.
Starfsemin mun þó væntanlega
verða í núverandi húsnæði fram á
árið 2008.
Vélaver stefnir að því að byggja
nýtt húsnæði fyrir starfsemina sem
flutt verður í á árinu 2008, en þá
verða liðin 10 ár frá því að fyrir-
tækið hóf eigin sölu- og þjónustu-
starfsemi á Akureyri.
Fyrirtækið hefur meðal annars
leitað eftir 10.000 fermetra lóð und-
ir starfsemina á nýju athafnasvæði
hjá Hörgárbyggð utan Lónsbakka á
Akureyri.
Vélaver stefnir að því að byggja
yfir starfsemina á Akureyri
Framtíð Húsabakka í Svarfaðar-
dal var til umræðu á fundi sem
efnt var til á dögunum, en til hans
var boðað í kjölfar íbúaþings í
Dalvíkurbyggð. Á þinginu komu
fram ýmsar hugmyndir um fram-
tíð Húsabakka.
Skólahúsin á Húsabakka hafa
staðið meira eða minna auð og verk-
efnalaus frá því grunnskólahald var
lagt þar niður árið 2005. Sem kunn-
ugt er var hatrömm andstaða meðal
íbúa Svarfaðardals gegn lokuninni
og freistuðu Svarfdælingar í kjölfar
lokunarinnar þess að segja sig úr
lögum við sveitarfélagið Dalvíkur-
byggð.
Á fundinum voru ræddar ýmsar
hugmyndir um framtíðarverkefni
staðarins, s.s. náttúrufræða- og
menningarsetur, þjóðsagnasetur,
leikskólarekstur, handverksmið-
stöð, jóga- og heilsumiðstöð, mið-
stöð fyrir nýbúafræðslu og einnig
var reifuð sú hugmynd að flytja
yngribarnakennslu Dalvíkurskóla
fram á Húsabakka. Skipaðir voru
fjórir vinnuhópar til áframhaldandi
undirbúnings.
Sparisjóður Svarfdæla og KEA
lýstu á sínum tíma vilja sínum til
að styðja fjárhagslega við uppbygg-
ingu náttúrufræða- og menning-
arseturs á Húsabakka í minningu
Hjartar E. Þórarinssonar sem var í
stjórn beggja þessara stofnana um
árabil. Fram kom í máli Svanfríðar
Jónasdóttur bæjarstjóra á fundin-
um að vilji væri enn til staðar hjá
þessum stofnunum að koma að upp-
byggingu á Húsabakka.
Lister hjá Poulsen
Lister Shearing Equipment Limited í Bretlandi og Poulsen hf, Skeif-
unni 2 í Reykjavík hafa gert með sér samkomulag um að Poulsen
verði umboðsmaður þeirra hér á landi. Lister fjárklippur og tilheyr-
andi vara- og aukahlutir hafa verið seldir hér á landi í áratugi enda
um að ræða góða og viðurkennda vöru frá gamalgrónu fyrirtæki.
„Ég byrjaði að selja Lister hjá Véladeild Sambandsins árið 1965,“ segir
Agnar Hjartar hjá Poulsen, „þannig að þetta eru meira en fjórir áratugir
sem ég hef verið í samvinnu við Lister. Undanfarin ár hafa nokkur fyrir-
tæki hér á landi flutt inn Lister, en nú hafa þeir óskað eftir því að hafa
þetta á einni hendi, þetta eru skynsamir menn og völdu Poulsen,“ bætir
Agnar við.
Poulsen var að fá inn sendingu af Lister-Nova barkaklippum og eru
þær á sérstaklega hagstæðu verði í tilefni þessara tímamóta.
(Fréttatilkynning)
Margar hugmyndir um Húsabakka