Bændablaðið - 11.09.2007, Page 26
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. september 2007
Hækkun á verði búvara að und-
anförnu hefur aukið eftirspurn
eftir bújörðum. Í löndum sem
eru hagstæð til landbúnaðar, svo
sem Argentínu, sækjast banda-
rískir og evrópskir fjárfestar nú
eftir því að kaupa jarðnæði, jafn-
framt því sem verð á landi fer
þar hækkandi.
Fasteignamiðlarar í Argentínu
greina frá því að fyrirspurnum frá
útlöndum um jarðir til sölu fjölgi
nú sífellt. Þar hefur landverð hækk-
að um 10% á stuttum tíma í hér-
uðunum Buenos Aires, Córdoba,
Santa Fe og Entre Rios.
Verð á hektaranum er að með-
altali 10 þúsund US dollarar, en í
suðausturhluta landsins, Córdoba,
er það komið í 12 þúsund dollara.
Að sögn framkvæmdastjóra
ráðgjafarfyrirtækisins Compania
de Tierras (CAT) berast fyr-
irspurnir hvaðanæva að, en mest
frá Bandaríkjunum, Frakklandi og
Bretlandi. Evrópskir fjárfesting-
arsjóðir eru einkum á höttunum
eftir stórum samfelldum land-
areignum. Átta hundruð hektara
jörð er talin lítil í því samhengi.
Sem dæmi má nefna að írski
fjárfestingarsjóðurinn Agroterra á
nú þegar 17 þúsund hektara jarð-
næði í vestari hluta Buenos Aires-
svæðisins. Þá hafa breskir og
bandarískir fjárfestar eignast 50
milljóna dollara hlut í fyrirtækinu
El Tejar, sem rekur landbúnað. Það
ræður yfir 180 þúsund hekturum
af jarðnæði í Argentínu, Brasilíu,
Uruguay og Bólivíu.
Það léttir fjárfestum í Evrópu
kaupin að gengi gjaldmiðla er þeim
afar hagstætt um þessar mundir,
en ein evra samsvarar nú 4,3 arg-
entínskum pesóum. Sem dæmi má
nefna að hektari lands í Frakklandi
kostar nú 20 þúsund evrur eða um
27 þúsund US dollara (1 evra: 86
kr., 1 dollari: 63 kr.), en hektarinn
í Argentínu kostar 10 til 12 þúsund
dollara. Sléttur Argentínu hafa auk
þess þá kosti fyrir fjárfestingarfyr-
irtækin að þar er unnt að stunda
stórrekstur í landbúnaði.
Landsbygdens Folk
Slátrun er nú um það bil að kom-
ast í fullan gang um land allt.
Sláturleyfishafar hafa allir birt
verðskrár skrár sínar yfirleitt
með fréttabréfum sem einnig eru
hjá mörgum, aðgengileg á netinu.
Vænta má að flestir bændur hafi
þegar gengið frá sínum viðskiptum
í haust út frá þeim upplýsingum.
Þegar litið er á breytingar frá
fyrra ári þá hefur verð fyrir útflutn-
ingskjöt hækkað úr 220 kr/kg í 237
kr/kg eða um 7,73% hjá öllum þeim
6 aðilum sem verðskrár lágu fyrir
frá. (Verðskrá KS og Sláturhúss
KVH ehf eru nánast þær sömu)
Verð fyrir kjöt sem fer í þá fjóra
gæðaflokka sem tæplega 75% af
framleiðslunni falla í er eins og
með fylgjandi tafla greinir. Hækkun
frá fyrra ári lætur nærri að vera um
6% á þessum fjórum flokkum, lít-
ilsháttar breytileiki milli sláturleyf-
ishafa. Tekið skal fram að flokkun
er mismunandi milli búa og jafnvel
landshluta og sláturleyfishafa og
neðangreind tafla gefur því ekki
endilega rétta mynd af því með-
alverði sem bændur fá greitt eða
einstakir sláturleyfishafar greiða.
Þá má meta nokkurs mismun á
greiðslukjörum en SAH Afurðir
ehf og SS greiða innlegg að fullu
næsta föstudag eftir sláturviku og
KS og Sláturhús KVH ehf greiða 7
dögum eftir sláturdag.
EB
Á markaði
Verð á sauðfjárafurðum haustið 2007
Innflutningur ýmissa búvara frá áramótum
Júlí
kg
Frá áramótum
kg
Frá áramótum
kr. cif verðmæti
Nautgripakjöt 45.062 184.843 87.223.061
Svínakjöt 29.493 88.774 46.812.986
Alifuglakjöt 36.830 132.158 50.683.049
Ostur 9.675 106.294 75.475.464
Kartöflur 606.017 1.109.333 66.681.772
Tómatar 25.772 419.019 59.390.249
Nýtt blómkál og hnappað spergilkál 26.050 247.468 45.715.426
Nýtt hvítkál 70.327 487.919 12.504.346
Nýtt kínakál 10.391 211.795 20.992.546
Nýtt spergilkál 9.195 138.504 20.802.766
Jöklasalat 121.739 720.493 96.269.505
Annað nýtt salat 37.795 231.329 132.313.207
Nýjar gulrætur og næpur 87.686 596.978 69.318.938
Nýjar gulrófur 36.889 122.974 6.485.549
Gúrkur 3.555 128.035 21.787.980
Sveppir 21.848 106.407 38.728.722
Paprika 108.748 757.416 160.599.595
Ný jarðarber 36.288 223.234 129.935.711
Verð á greiðslumarki verðlagsárið 2007-2008
Þann 1. september sl. voru 1.241 þúsund lítrar greiðslumarks fluttir milli lögbýla. Meðalverð var 289 kr/lítra. Á
síðasta verðlagsári var meðalverð 286,72 kr/lítra. /EB
Dagsetning
gildistöku
Sala á
greiðslumarki ltr.
Uppsafnað frá
upphafi verðlagsárs, ltr.
Meðalverð síðustu
500.000 ltr. kr/ltr*
1. september 2007 1.241.046 1.241.046 289,08
* Að baki meðalverði er að lágmarki miðað við síðustu 500 þúsund lítra.
Meðfylgjandi tafla sýnir innflutning á ýmsum búvörum
fyrstu 7 mánuði ársins. Innflutningur á nautakjöti nam
tæpum 185 tonnum eða um þriðjungi af því sem flutt var
inn allt árið í fyrra. Af alifuglakjöti var búið að flytja inn
rösk 132 tonn eða tæplega helming þess magns sem
flutt var inn í fyrra og af svínakjöti tæp 89 tonn en allt
árið í fyrra voru flutt inn tæp 73 tonn. Innflutningur á
Kínakáli er meiri en allt árið í fyrra, 212 tonn á móti 207
í fyrra. Af öðrum grænmetistegundum er innflutningur
orðinn um 60-70% af því sem var í heildina á síðasta ári.
640 milljónir í
gæðastýringu
Nú í haust verða alls greidd-
ar út rösklega 640 millj. kr.
sem gæðastýringarálag. Á síð-
asta ári var greitt á 6.670 tonn
af dilkakjöti. Miðað við sama
magn í haust ætti greiðslan að
nema nærri 96 kr/kg. EB
Hlutdeild % af
innleggi 2006
SS SAH Fjallalamb Norðlenska KS Sláturfélag
Vopnfirðinga
U3 12,38 385 383 395 382 385 388
R2 22,56 381 381 386 379 383 382
R3 28,98 359 357 361 356 360 359
O2 10,22 366 366 361 366 368 366
100 þúsund fjár slátrað hjá SS á Selfossi
Sauðfjárslátrun hjá SS á Selfossi er hafin af fullum krafti og er gert ráð
fyrir að slátrað verði um 100 þúsund fjár. Um 130 starfsmenn munu vinna
við slátrunina og SS hefur m.a. ráðið 80 útlendinga til verksins, um 40
Skandinava, 25 Pólverja og 13 nýsjálenska slátrara, samkvæmt upplýs-
ingum frá Hermanni Árnasyni stöðvarstjóra. MHH
SS gerir ráð fyrir að slátra um 100 þúsund fjár í sláturhúsi sínu á Selfossi
haustið 2007.
Að sögn Gísla Garðarssonar,
sláturhússtjóra í sláturhúsi
SAH afurða ehf., var meðal
fallþungi dilka sem slátrað var
hjá þeim í ágúst 1,2 kg meiri en
á sama tíma í fyrra. Og dilkar
sem slátrað var 3. september
voru að meðaltali 700 grömm-
um þyngri en sama dag fyrir
ári. Gísli segir að lömbin séu
feit miðað við stærð og þurfi
því að skerast vel fyrir slátrun.
,,Það sagði mér gamalreynd-
ur bóndi sem vinnur hjá okkur í
sláturhúsinu að þurrkasumar ætti
að þýða væn lömb því sauðkind-
in aðlagaði sig betur þurrviðri en
hrakviðrunum. Það virðist ætla
að ganga eftir,“ sagði Gísli.
Anna Margrét Jónsdóttir, sauð-
fjárræktarráðunautur á Blönduósi,
sagði að hluti af skýringunni væri
sá að sumarið hefði verið alveg
áfallalaust. Eftir að fénu var
sleppt út hefði alltaf verið gott
veður og þó nokkur gróður komið
upp tiltölulega snemma í vor. Hún
benti enn fremur á að það fé sem
slátrað var í ágúst og fyrstu dag-
ana í september hefði ekki gengið
á heiðum uppi í sumar. Um hefði
verið að ræða heimgengið fé og
það sem hefði verið í nærliggj-
andi fjöllum.
Anna Margrét sagði að þess
vegna gæti fallþunginn breyst
þegar réttir hæfust og fé kæmu af
heiðum. Hún sagðist vera smeik
um að fallþungi dilka gæti orðið
lakari af fénu sem gekk á heið-
unum í sumar einmitt vegna
þurrkanna, enda þurrara þar en
nærri byggð. En allt kemur þetta
í ljós að loknum göngum og rétt-
um.
S.dór
Sláturhús SAH afurða ehf. á Blönduósi
Meðalþungi dilka í ágúst 1,2 kg
meiri en á sama tíma í fyrra
Ekki lengur skylda í
ESB að hafa land í tröð
Allt útlit er fyrir að ESB muni ekki
krefjast þess af bændum á næsta ári
að taka land úr ræktun til að njóta
óskertra styrkja. Mariann Fischer
Boel yfirmaður landbúnaðarmála
ESB hefur gefið til kynna að hún
muni leggja þetta til, m.a. í ljósi
þess að nú stefnir í að kornbirgð-
ir heimsins verði aðeins 111 millj.
tonn í lok þess framleiðsluárs sem
nú er að hefjast, þar af aðeins 31
millj.tonn í aðal útflutningslönd-
unum. Að auki eykst eftirspurn
eftir korni til framleiðslu á bio-
eldsneyti, hratt og því er fram-
kvæmdastjórn ESB örugg um að
10-17 millj.tonna aukning á fram-
boði valdi ekki offramboði. Frekar
muni þetta stuðla að jafnvægi í
verði og hægja á þeim gríðarlegu
hækkunum sem hafa verið á korni
undanfarið. EB
Fjárfestar í Evrópu og Ameríku
kaupa jarðnæði í Argentínu
125 milljón l af mjólk
Nú liggja fyrir bráðabirgðatölur
um innvigtun mjólkur á verðlags-
árinu sem lauk um síðustu mán-
aðamót. Samkvæmt þeim voru
lagðir inn 123.622.505 lítrar í
afurðastöðvum MS og var aukn-
ingin frá fyrra ári 10.490.889
lítrar, eða 9,27%.
Innvigtun hjá Mjólku liggur
ekki fyrir en hún hefur sennilega
verið á aðra milljón lítra. Það
merkir að heildarframleiðsla á
mjólk hefur verið um 125 milljónir
lítra og hefur aldrei verið meiri.
–ÞH