Bændablaðið - 11.03.2008, Qupperneq 4

Bændablaðið - 11.03.2008, Qupperneq 4
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. mars 20084 Hafist hefur verið handa við gerð stefnumótunaráætlunar fyrir ferðaþjónustu í Þingeyjar sýsl um. Að vinnunni standa At vinnu þró- unarfélag Þingeyinga, Ferða- mála setur Íslands og Rannsókn- ar stofnun ferðamála á Nýja Sjá- landi. Stefnumótunin byggir á reynslu og vinnu sérfræðinga frá Kanada og Nýja Sjálandi. Markmið stefnumótunarinnar er að greina möguleika til uppbygg- inar á ferðaþjónustu til framtíðar, út frá úttekt á því sem svæðið hefur upp á að bjóða. Úttektin, sem unnin er í samvinnu við lykil hagsmuna- aðila og þá sem þekkja vel til á svæðinu er síðan er borin undir aðra hagsmunaaðila í ferðaþjónustu og þarfir hennar til framtíðar greind- ar með þeim hætti. Allir hags- munaaðilar munu einnig koma að vinnunni á tveggja daga námskeiði og hugarflugsfundi um stefnumót- un á svæðinu sem haldinn verður í byrjun maí. Úttektin er unnin af íslenskum sérfræðingum í málefn- um ferðaþjónustu í samvinnu við lykilaðila en greining og kortavinna er í höndum erlendra sérfræðinga og byggir á þeirra vinnu á ýmsum svæðum hvaðanæva úr heiminum. Í sameiningu munu síðan rannsak- endur og hagsmunaaðilar vinna stefnumótun til fimm ára, en áætl- að er að vinnan verði endurtekinn að þeim tíma liðnum. Landfræðilegum upplýsinga- kerfum (GIS) er beitt við úttekt og greiningu á ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslum. Gögnum um einsstaka staði, s.s. fossa, byggða- minjar, sundlaugar, veitingastaði og vegaslóða er safnað í aðgreind- ar þekjur sem nýtast til að átta sig á þyrpingum ólíkra möguleika til uppbygginar í framtíðinni. Með þessari aðferð er þáttað saman nálg- unum fræðimanna og hagsmunum atvinnugreinarinnar á máta sem auðvelt er að setja fram í kortum og myndum en jafnframt nýtist til frekari greininga. Sá landfræðilegi upplýsingagrunnur sem byggður verður upp í Þingeyjarsýslum mun nýtast sem fyrirmynd í sambæri- lega gagnaöflunar- og stefnumót- unarvinnu á öðrum landssvæðum og getur að lokum orðið undirstaða landnýtingaráætlunar fyrir íslenska ferðaþjónustu. MÞÞ Stefnumótunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslum Mun nýtast sem fyrirmynd á öðrum landssvæðum Fylkisstjórn Manitoba hefur ný lega kynnt hugmyndir sínar um aðgerðir upp á 60 milljónir kanadískra dollara til að styðja við svínabændur og nautakjöts- framleiðendur. Ástæða þessara aðgerða eru gríðarlegar hækk- anir á aðföngum, lágt afurðaverð og hátt gengi kanadíska dalsins. Aðgerðirnar byggjast á því að svínabændur geta fengið hag- stætt lán til að laga slæma lausa- fjárstöðu. Upphæð lánsins miðast við ákveðna upphæð á hvern grip. Lánið er til átta ára og er afborg- unarlaust fyrstu þrjú árin. Vextir eru lægri en gengur og gerist í Kanada. Svínabændur telja væntanlegar aðgerðir fara langt með að hjálpa bændum í gengum erfiðleikana. Það sé hinsvegar ókostur að upp- hæð lánanna takmarkist við 2,5 milljónir dala, sem mun þýða að stærri framleiðendur fá takmark- aðan stuðning. Fá en mjög stór fyr- irtæki framleiða 40% af öllu svína- kjöti í fylkinu. Bændur telja þó að aðgerðir fylkisstjórnar beri vott um trú þeirra á að greinin verði með tímanum fær um að greiða þessi lán til baka. Tillögur um að styðja við nauta- kjötsframleiðslu eru ekki eins yfir- gripsmiklar. Eftir kúariðutilfelli í Albertafylki 2003 urðu mikli erf- iðleikar hjá kanadískum nautakjöts- framleiðendum. Þá var gripið til svipaðra aðgerða, þ.e. bændum voru veitt lán á hagstæðum kjörum. Nú stendur þessum framleiðendum til boða að fresta greiðslum þessara lána í þrjú ár líkt og hjá svínabændum. Nautgripabændur telja að ekki sé nóg gert og vilja sjá meiri stuðn- ing sem komi öllum í greininni til góða. Viðræður eru þó enn í gangi milli nautgripabænda og fylkis- stjórnar og vilji beggja aðila er að finna ásættanlega lausn. Þrátt fyrir tímabundna erfiðleika í einstökum greinum telja flestir að framtíðarhorfur í kanadískum land- búnaði séu mjög góðar. Reiknað er með að eftirspurn frá Asíu á margs konar afurðum haldi áfram að vaxa og svo er verð á hveiti og korn- vörum alls konar hærra en nokkru sinni. Sigurgeir Sindri Bjarni Jóns- son hefur ver ið ráð- inn fram- k v æ m d a - stjóri Sam- bands garð- yrkjubænda og hefur þegar tekið til starfa. Bjarni vann áður hjá Frjó ehf., sem selur m.a. vörur fyrir garð- yrkjubændur. „Þeir sem voru við- skiptamenn mínir þar eru orðnir yfirmenn mínir í dag eftir að hafa ráðið mig í vinnu,“ segir Bjarni. Hann segir þessi starfsskipti mikla breytingu fyrir sig, því hann fari úr sölu- og markaðsstarfi yfir í vinnu fyrir garðyrkjubændur. Bjarni segir mikla vinnu fylgja þessu nýja starfi, allavega sýnist honum ærin verkefni bíða úrlausnar, en um er að ræða hagsmunagæslu fyrir þau fjögur félög sem mynda sam- bandið. Bjarni er lærður prentsmiður og vann við það fram til 1990, þegar hann flutti til Svíþjóðar þar sem hann vann í 7 ár í stórri umbúða- verksmiðju. Hann flutti heim 1997, skipti þá um starfsvettvang og fór í sölu- og markaðsstarf. Bjarni er Reykvíkingur, fæddur árið 1959. S.dór Fylkisstjórn Manitoba kynnir aðgerð- ir vegna vanda kjötframleiðanda Með dómi Héraðsdóms Reykja- víkur hinn 27. febrúar sl. var komist að þeirri niðurstöðu að breytingar á samþykktum Mjólkursamsölunnar í Reykjavík og samþykkt á bráða birgðaákvæði samfara því, sem samþykkt var á aðalfundi í mars árið 2002, hefði verið ólögmæt, og hefði bakað Auðhumlu skaðabótaskyldu gagn- vart félagsbúinu að Hálsi. „Ég er ánægður með þessa nið- urstöðu héraðsdóms en auðvitað verður að gæta að því að þetta er undirréttardómur og búið er að áfrýja málinu.“ segir Sigurbjörn Magnússon hæstaréttarlögmað- ur, en hann sótti málið fyrir hönd Félagsbúsins að Hálsi. Aðdragandi þessa máls er sá að breytingar voru gerðar á sam- þykktum Mjólkursamsölunnar árið 2002 og var nokkrum fjölda félagsmanna í kjölfarið gert að innleysa séreign sína í séreigna- sjóði félagsins. Félagsbúið að Hálsi var í þeim hópi. Ábúendur voru hins vegar ósáttir við þá ákvörðun og vildu ávaxta fé sitt áfram í sjóðum samsölunnar. Í samþykktum Mjólkursamsöl- unnar var ákvæði þess efnis að sér- eign hvers mjólkurframleiðenda félli til útborgunar að tíu árum liðnum frá því að viðkomandi bóndi hætti framleiðslu mjólkur, en væri að öðru leyti ekki kræf. Í málinu gerði félagsbúið að Hálsi þá kröfu að viðurkennt yrði að breytingar sem gerðar voru á samþykktum Mjólkursamsölunnar sem gerðu að verkum að innleysa þyrfti séreign í séreignasjóði væri ólögmæt og að sú breyting hefði bakað samsölunni skaðabóta- skyldu gagnvart félagsbúinu. Taldi félagsbúið sig hafa orðið fyrir tjóni í kjölfar breytinga á samþykktunum. Það hefði því farið á mis við veruleg fjárhags- leg verðmæti sem fylgdu inneign- um félagsmanna við endurmat og hækkanir á séreignahlutum. Hefðu eigendur búsins átt þess kost að eiga áfram sína eign í séreignarsjóði hefði það leitt til verulegrar hækkunar á inneign í séreignarsjóðnum, svo sem raunin varð hjá öðrum félagsmönnum. Sigurbjörn segir að með dómn- um sé staðfest að breytingar á samþykktum hafi verið ólögmæt- ar og viðurkennt sé að bændur að Hálsi hafi orðið fyrir umtalsverðu fjárhagstjóni. Fjármagn í séreign- arsjóði hafi aukist verulega, fyrst árið 2004, um 550 milljónir og svo aftur árið 2006 um 1,5 millj- arð. Aukningin er til komin með tilfærslu af eiginfé félagsins yfir á séreignarsjóðsreikninga. Sigurbjörn segir að gera megi ráð fyrir að á bilinu 400 til 500 bændur séu í sömu sporum, marg- ir hverjir þó með smáa inneign „við höfum ekki áætlað hversu stórar fjárhæðir getur verið að ræða í þessu máli, en um verulega upphæð getur verið að ræða. Ég giska á að upphæðin sem menn eigi rétt á geti verið þrisvar sinn- um hærri en sú fjárhæð sem dæmd var Sigurbirni Hjaltasyni á Kiðafelli með dómi Hæstaréttar.“ segir hann. Sigurbjörn segir að með dómn- um sé komið fordæmi sem skort hafi áður. Dómur sem féll í Hæstarétti í máli Kiðafellsbóndans hafi ekki þótt nægjanlega for- dæmisgefandi „nú er fordæmið komið og verði niðurstaðan stað- fest í Hæstarétti verður Auðhumlu gert að leiðrétta útborgun á sér- eignarsjóðsinneign bænda í sam- bærilegri stöðu. Ég vona svo sannarlega að félagið sjái sóma sinn í að sýna fyrrum félagsmönn- um sínum þá virðingu að greiða bændum út þennan mismun,“ segir Sigurbjörn. MÞÞ Breytingar á samþykktum Mjólkursamsölunnar dæmdar ólögmætar í Héraðsdómi Reykjavíkur Viðurkennt að bændur að Hálsi urðu fyrir fjárhagstjóni Trjáfellingar og grisj- un með keðjusög Nýlega var haldið námskeið í trjá- fellingum og grisjun með keðju- sög að Reykjum í Ölfusi á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands. Níu manns sóttu námskeiðið; skógar- bændur, starfsmenn sveitarfélaga og skógfræðingar. Leiðbeinendur voru þeir Björgvin Eggertsson, Böðvar Guðmundsson og Þorkell Gunnarsson. Námskeiðið var bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagur var bók- legur, þar sem m.a. var farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og leyfi og öryggis- sjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig var fjallað um val á trjám til fellingar og komið inn á grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fengu nemendur að kynnast innviðum keðjusaga með því að taka þær í sundur. Komið var inn á hvernig framkvæma eigi einfalda bilana- leit í söginni, ásamt því að læra hefðbundið viðhald, þrif sagar og brýningu keðju. Loks var einn og hálfur dagur helgaður trjáfell- ingum og grisjun í skógi í hlíðum Reykjafjalls. MHH Þrír af þátttakendum á námskeiðinu, talið frá vinstri; Úlfur Óskarsson, skóg- fræðingur hjá Landbúnaðarháskólanum, Þorbergur Hjalti Jónsson, skógar- vörður Skógræktar ríkisins á Suðurlandi og Aðalsteinn Sigurgeirsson, for- stöðumaður rannsóknarstöðvar skógræktarinnar á Mógilsá. Nýr framkvæmdastjóri hjá Sambandi garðyrkjubænda Miklar umræður urðu um fjall- skilamál á nýliðnu Búnaðarþingi, enda má segja að þær miklu breyt- ingar sem orðið hafa á atvinnu- háttum í sveitum landsins síðustu ár kalli á breytingar í fjallskila- málum. Meðal annars hefur verið kvartað yfir því að á sumum svæð- um sé ekki hægt að manna leitir á haustin og því sé fé sums staðar að koma af fjalli fram eftir vetri. Erindi um málið frá Bún aðar- sam bandi Norður-Þingeyinga hljóð aði svo: „Búnaðarþing 2008 beinir því til stjórnar Bændasamtaka Íslands að kanna hvort þörf sé á að breyta lögum og/eða reglugerðum sem í gildi eru um fjallskil.“ Þórólfur Sveinsson, formað- ur Landssambands kúabænda, bar einnig fram erindi um fjallskila- málin, sem hljóðaði svo: „Búnaðarþing 2008 felur stjórn BÍ að beita sér fyrir endurskoðun laga um afréttarmálefni og fjallskil, nr. 6/1986. Markmið með endur- skoðuninni yrðu einkum að ná sátt um nýtingu afrétta við gjörbreyttar forsendur í búfjárhaldi og stuðla eftir föngum að hóflegri en víðtækri þátttöku jarðeigenda í þeim kostn- aði, sem óhjákvæmilegur er vegna nýtingar afréttarlanda. Jafnframt að finna leiðir til að sætta gagnstæð sjónarmið varðandi skyldu landeig- enda til að smala heimalönd, óháð því hvort þeir eiga búfé eða ekki.“ Málinu var vísað til allsherj- ar nefndar en meðal annarra í þeirri nefnd er Sveinn Ingvarsson í Reykjahlíð í Skeiða- og Gnúp- verjahrepp i. Hann segir í samtali við Bændablaðið miklar breyting- ar ha fa orðið á búháttum í sveitum landsins og því ríki ekki fullkomin sátt um þetta mál. „Í sumum sveitum er stór hluti jarða ekki lengur í eigu hefð- bundinna bænda. Eins má benda á að kúabændur eiga yfirleitt ekki sauðfé í dag,“ segir Sveinn. Hann segir menn ætla að setja þetta mál í milliþinganefnd, sem afla muni allra þeirra gagna sem nauðsynleg séu til að fá fulla yfirsýn yfir málið. Nefndin leggi síðan til- lögu fyrir næsta Búnaðarþing um fjallskilamálin. S.dór Breytingar á atvinnuháttum til sveita kalla á breytingar á fjallskilamálum Fylgst með umræðum á Búnaðar þingi, frá vinstri: Birna Þorsteins dóttir, Guðmundur Davíðsson, Nanna Jónsdóttir og Karl Kristjánsson.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.