Bændablaðið - 11.03.2008, Qupperneq 12

Bændablaðið - 11.03.2008, Qupperneq 12
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. mars 200812 Búnaðarþing 2008 var haldið daga 2.-6. mars 2008. Alls voru 46 mál tekin fyrir á þinginu en ályktanir eru birtar hér fyrir neðan. Í sumum tilvikum eru langar greinargerðir sem fylgja en ekki er unnt að birta þær allar hér í Bændablaðinu. Lesendum er því vinsamlegast bent á vef Bændasamtakanna, www.bondi. is, þar sem nálgast má greinar- gerðir í fullri lengd ásamt erind- unum sjálfum. Þar er einnig að finna fundargerðir þings- ins, ræður við setningarathöfn, nefndarskipan og skrá yfir bún- aðarþingsfulltrúa ásamt fleiru. Mál nr. 9 um búfjárhald og nr. 19 um gripagreiðslur komu ekki úr nefnd. Erindum nr. 14 um brunavarnir, nr. 18 um kynn- ingarmál, nr. 33 um skattlagn- ingu vegna niðurskurðar riðu og máli nr. 43 um tryggingasamning við bændur var vísað til stjórnr Bændasamtakanna. Nokkur mál voru sameinuð en mál nr. 23. um gjöld á fóðurblöndur og mál nr. 24 um verðhækkanir á aðföng- um og mál nr. 34 um verð á rekstrarvörum voru afgreitt með kjaramálaályktun sem var mál nr. 44. Mál nr. 36 um landbóta- sjóð var afgreitt með máli nr. 37 um landgræðslu. Mál nr. 39 sem fjallaði um skráningu örnefna var afgreitt með máli nr., 40 um hnitsetningu landamerkja. Mál nr. 1 Reikningar Bændasamtaka Íslands Fjárhagsnefnd búnaðarþings leggur til að búnaðarþing 2008 samþykki reikninga Bændasamtaka Íslands, Nautastöðvarinnar á Hvanneyri og Þorleifskoti fyrir árið 2007 eins og þeir liggja fyrir á þingskjali 1. Mál nr. 2 Fjárhagsáætlun fyrir árið 2008 Búnaðarþing 2008 samþykkir fjár- hagsáætlun Bændasamtaka Íslands og Nautastöðvar BÍ á Hvanneyri eins og þær liggja fyrir. Mál nr. 3 Fjallskil Búnaðarþing 2008 felur stjórn Bændasamtaka Íslands að skipa starfshóp sem hafi það hlutverk að skoða stjórnvaldsfyrirmæli um fjallskil, einnig dóma og annað sem varðar framkvæmd fjallskila. Þá hafi starfshópurinn það hlut- verk að skilgreina helstu vandamál sem tengjast lögum um afréttarmál- efni og fjallskil og framkvæmd þeirra laga. Ef starfshópurinn telur nauðsyn- legt að lögum um afréttarmálefni og fjallskil verði breytt, skili hann tillögum þar um til stjórnar BÍ fyrir 15. janúar 2009, ásamt skýrslu um starf hópsins. Mál nr. 4 Ræktarland Búnaðarþing 2008 skorar á sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra að skipa starfshóp sem fái það hlutverk að finna leiðir til þess að tryggja varðveislu góðs rækarlands til framtíðar. Í starfshópnum verði full- trúar sjávarútvegs- og landbún- aðarráðuneytis, Samtaka sveitar- félaga og Bændasamtaka Íslands. Starfshópurinn skili skýrslu fyrir 15. janúar 2009. Mál nr. 5 Fjarskipti Búnaðarþing 2008 beinir því til stjórnar Bændasamtaka Íslands að koma eftirfarandi ályktun á fram- færi við stjórnvöld: Búnaðarþing hefur ítrekað ályktað um mikilvægi öflugra teng- inga við Internetið til að stuðla að áframhaldandi byggð á öllu landinu. Stjórnvöld hafa ekki staðið sig í að tryggja jafnræði í þessu mikilvæga hagsmunamáli landsbyggðarinnar. Það eru vonbrigði að ekki tókst að tryggja öllum landsmönnum aðgang að háhraðanettengingum á síðasta ári eins og lofað var í núgildandi fjarskiptaáætlun stjórnvalda. Minnt er á umfangsmikla viðhorfskönn- um Félagsvísindastofnunar sem Bændasamtökin létu framkvæma, meðal bænda, á sl. ári þar sem fram kemur m.a. að 48% þeirra sem nýta sér Internetið eru ekki með háhraðanettengingu. Búnaðarþing fagnar lang- þráðu útboði á háhraðanetteng- ingum til um 1400 heimila og fyrirtækja á landsbyggðinni, sem auglýst var í síðustu viku, á vegum Fjarskiptasjóðs. Vonir eru bundnar við að með útboðinu verði jafnræði allra landsmanna tryggt að öflugum háhraðanettengingum sem eru lífæð upplýsingasamfélagsins. Þingið tekur heilshugar undir stefnu- yfirlýsingu ríkisstjórnar Geirs H. Haarde um að tryggja öllum lands- mönnum aðgengi að þeirri byltingu sem orðið hefur í gagnaflutningum og að landið verði eitt búsetu- og atvinnusvæði. Það er hins vegar áhyggjuefni að sum svæði eru ekki hluti af aug- lýstu útboðssvæði Fjarskiptasjóðs vegna skilyrða í lögum um upp- byggingu háhraðanettenginga á markaðsforsendum. Stjórnvöld verða að tryggja íbúum á þeim svæðum sambærilega úrlausn. Þýðingarmikið er að tryggja áframhaldandi starfsemi Fjarskipta- sjóðs með árlegum fjárveitingum ríkisins. Ólíklegt er að markaðsleg- ar forsendur skapist á næstu árum við að tryggja öllum landsmönnum aðgang að upplýsingahraðbrautinni á sambærilegum kjörum óháð land- fræðilegri staðsetningu. Skorað er á ríkisstjórnina að endurskoða lög um Fjarskiptasjóð þannig að hann virki í framtíð- inni sem bakhjarl byggðanna í að tryggja íbúum alls landsins háhraðanettengingar. Það verður best gert í samvinnu við sveitarfélög á hverjum stað og kæmi þá aðstoð Fjarskiptasjóðs í formi styrkja, faglegrar aðstoðar og eftirlits með þjónustu fjarskiptafyrirtækja. Mál nr. 6 Þjóðlendumál Búnaðarþing 2008 lýsir yfir stuðn- ingi við framkomið frumvarp á Alþingi, þskj.630 − 386 mál, um breytingar á lögum nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Mál nr. 7 Dýralæknaþjónusta Búnaðarþing 2008 skorar á rík- isvaldið að leggja fram fjármagn til að tryggja dýralæknaþjónustu á strjálbýlum svæðum svo allir dýra- eigendur landsins hafi aðgang að þjónustu dýralækna. Greinargerð: Þegar endanlegur aðskilnaður eftir- lits og almennrar dýralæknaþjón- ustu verður að veruleika er nauð- synlegt að tryggja þjónustuþáttinn á svæðum sem eru of fámenn til þess að sjálfstætt starfandi dýra- læknar sjái sér hag í að bjóða þar fram þjónustu sína. Nauðsynlegt er að hið opinbera leggi fram fé til að tryggja fullnægjandi þjónustu og dýravelferð á þessum svæðum. Mál nr. 8 Samgöngumál Búnaðarþing 2008 skorar á sam- gönguráðherra að láta hefja nú þegar vinnu við uppbyggingu vega- kerfis í dreifbýli sem víða hefur verið vanrækt svo áratugum skiptir. Greinargerð: Sjá www.bondi.is Mál nr. 10 Bændabókhald og bókhaldsforritið dkBúbót Búnaðarþing 2008 beinir því til Landbúnaðarháskóla Íslands og Bændasamtaka Íslands að öll kennsla og námskeiðahald í bók- haldi og rekstri verði aukin. Ákveðin grunnkennsla í bók- haldi og rekstri þarf að vera skyldu- fag við þær deildir LbhÍ sem út- skrifa ráðunauta. Árlega þarf að bjóða upp á endur menntun í bændabókhaldi og bókhaldsforritinu dkBúbót fyrir bændur og þá sem starfa við bændabókhald. Halda þarf áfram að skipuleggja byrjenda- og fram- haldsnámskeið í dkBúbót í sam- starfi við búnaðarsamböndin. Bæta þarf upplýsingar og leið- beiningar á vefnum um rekstur, bókhald og dkBúbót. Uppfæra þarf vefinn eftir því sem við á. Greinargerð: Sjá www.bondi.is Mál nr. 11 Íslenski geitfjárstofninn Búnaðarþing 2008 leggur áherslu á varðveislu íslenska geitfjárstofns- ins. Leita þarf leiða til að á öllum landsvæðum séu möguleikar á að varðveita stofninn. Lagt er til að stuðningur við geitfjárrækt verði efldur sem og rannsóknir á stofn- inum. Búnaðarþing styður tillögu til þingsályktunar um eflingu íslenska geitfjárstofnsins sem nú liggur fyrir Alþingi og flutt er af þingmönnum úr öllum flokkum. Greinargerð: Sjá www.bondi.is Mál nr. 12 Landbúnaðarháskóli Íslands Búnaðarþing 2008 hvetur Landbúnaðarháskóla Íslands til að marka skýra stefnu um uppbygg- ingu og verkefni starfsstöðva sinna utan Hvanneyrar. Þingið minnir á mikilvægi þess fyrir skólann að halda öflugri tengingu við hefð- bundnar greinar landbúnaðarins og leiðbeiningastöðvarnar. Greinargerð: Sjá www.bondi.is Mál nr. 13 Gæði fóðurs og birgðir Búnaðarþing 2008 beinir því til stjórnar BÍ að taka upp viðræð- ur við stjórnvöld og fóðursala um hvernig betur megi tryggja gæði og birgðir á innfluttu fóðri á hverjum tíma. Í ljósi matvælaöryggis þarf að leggja sérstaka áherslu á að lág- marksbirgðir fóðurs séu að jafnaði til í landinu. Greinargerð: Óánægja hefur komið fram varð- andi hreinleika hráefnis til fóð- urgerðar og nauðsynlegt er að leita leiða til að bæta úr því. Núverandi eftirlit byggist fyrst og fremst á pappírum, en dæmi eru um að ekki hafi verið tekin hráefnissýni hjá fóðursala í nokkur ár. Nauðsynlegt er að efla þetta eftirlit. Þá hefur einnig ítrekað komið til þess á síðustu misserum að fóður- salar hafa ekki átt hráefni til fóður- gerðar. Mikilvægt er að stjórnvöld leiti leiða til að tryggja að minnsta kosti þriggja mánaða birgðir fóðurs í landinu. Mál nr. 15 Húsnæði BÍ Búnaðarþing 2008 heimilar stjórn Bændasamtaka Íslands að hefja endurbætur á skrifstofuhúsnæði Bændasamtakanna. Stefna þarf að góðu og aðlað- andi vinnuumhverfi starfsmanna. Stjórn er jafnframt heimilað að selja norðurálmu þriðju hæðar Bændahallarinnar til Hótel Sögu. Mál nr. 16 Vistforeldrar í sveitum Búnaðarþing 2008 beinir því til stjórn ar Bændasamtaka Íslands að styðja við starfsemi Landssamtaka vistforeldra í sveitum. Mál nr. 17 Merking íslenskra landbúnaðavara Búnaðarþing 2008 fagnar því að vinna er komin vel á veg við sér- staka upprunamerkingu á íslensk- um búvörum. Skýrar reglur og öfl- ugt eftirlit þarf að vera með notkun merkisins til að tryggja áreiðanleika þess. Gera þarf tímasetta aðgerð- aráætlun við innleiðingu og kynn- ingu á merkinu og tryggja til þess fjármagn. Jafnframt að skerpt verði á reglum um merkingu uppruna- lands innfluttra landbúnaðarafurða. Þingið leggur áherslu á að verkinu verði hraðað. Greinargerð: Sjá www.bondi.is Mál nr. 20 Málefni mjólkurframleiðslu Búnaðarþing 2008 skorar á sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra að eyða þeirri óvissu sem ríkir um afsetningu afurðastöðva á mjólk sem framleidd er umfram greiðslu- mark. Mál nr. 21 Beint frá býli Búnaðarþing 2008 beinir því til stjórnar BÍ að hún styðji við stofn- un samtakanna Beint frá býli. Greinargerð: Vaxandi áhugi er fyrir heima- vinnslu afurða meðal bænda og voru samtökin Beint frá býli stofn- uð 29. febrúar 2008. Miklar vonir eru bundnar við verkefnið beint frá býli. Samtökin þurfa nú að marka sér stefnu til framtíðar. Setja þarf reglur um kröfur til framleiðsl- unnar og hvernig haldið verði utan um hana. Mikilvægt er að Bændasamtök Íslands veiti sam- tökunum faglegan stuðning við þá vinnu sem er framundan. Mál nr. 22 Greiðslur ferðakostnaðar Búnaðarþing 2008 skorar á félags- málaráðherra að breyta reglum um endurgreiðslu ferðakostnaðar sem fellur til hjá einstaklingum sem sækja þurfa læknisþjónustu út fyrir heimahérað. Reglurnar þurfa að vera þannig að ferðakostnaður sem af slíku hlýst sé endurgreiddur að fullu. Samþykktir Búnaðarþings 2008 Frá setningarhátíðinni. Fremstur á myndinni hér að ofan er varafor- maður dönsku bændasamtakanna, Ib W. Jensen. Við hlið hans situr Erna Bjarnadóttir hagfræðingur BÍ og síðan koma þingmennirnir Steingrímur J. Sigfússon, Árni Þór Sigurðsson og Sturla Böðvarsson. Hér til hliðar er Atli Guðlaugsson stjórna Grundartangakórnum sem söng við setninguna.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.