Bændablaðið - 11.03.2008, Page 13
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. mars 200813
ar
gu
s
07
-0
91
Lækjarmel 1-2 /// 116 Reykjavík
Sími 535 3500 /// www.kraftvelar.is
Komatsu WB97-2
Árgerð 2005, vinnustundir 4.462
Verð 54.190 € án vsk.
Komatsu WB97-2
Árgerð 2005, vinnustundir 2.293
Verð 56.290 € án vsk.
Case 9033
Árgerð 1999 vinnustundir 8.050
Verð 56.190 € án vsk.
Komatsu PC15-8
Árgerð 1999, vinnustundir 2.110
Verð 9.790 € án vsk.
Hyundai Robex 130 W
Árgerð 1998 vinnustundir 6.431
Verð 27.780 €
Case 580
Árgerð 1999, vinnustundir 4.870
Verð 25.590 € án vsk.
´
Komatsu WB97S-2
Árgerð 2001 vinnustundir 5.275
Verð 35.790 € án vsk.
Notaðar vélar
til sölu
SELD
Greinargerð:
Kostnaður fólks sem býr úti á landi
og þarf oft að sækja læknisþjón-
ustu um langan veg getur verið
gríðarlegur. Núgildandi reglur eru
flóknar og illskiljanlegar. Það er
nægjanlegt álag fyrir alla aðila að
verða fyrir áföllum vegna alvarlegra
sjúkdóma. Óviðunandi er að við
það bætist hjá landsbyggðarfólki
verulega íþyngjandi ferðakostnaður
vegna læknismeðferða.
Mál nr. 25 Jöfnuður til
náms
Búnaðarþing 2008 skorar á mennta-
málaráðherra og fjármálaráðherra
að hækka jöfnunarstyrki til sam-
ræmis við raunverulegan kostnað
við nám, og tryggja þannig jafna
möguleika ungmenna til framhalds-
skólanáms, óháð búsetu.
Mál nr. 26 Rannsóknir á
innfluttum matvælum
Búnaðarþing 2008 leggur áherslu
á að gerðar séu sambærilegar rann-
sóknir á gæðum innfluttra búvara
og gerðar eru á íslenskum búvör-
um. Þingið felur stjórn BÍ að fylgja
málinu eftir við hlutaðeigandi yfir-
völd.
Mál nr. 27 Starfshópur um
Selen í landbúnaði
Búnaðarþing 2008 felur stjórn BÍ,
í samvinnu við LBHÍ og Mat væla-
stofnun, að tilnefna starfshóp til að
skoða með hvaða hætti vænlegt er
að bæta upp skort á seleni og öðrum
snefilefnum í gróffóðri hér á landi.
Mál nr. 28
Sjúkdómarannsóknir
Búnaðarþing 2008 gerir þá
kröfu til Matvælastofnunar og
rannsóknaraðila dýrasýna, að tökur
og rannsóknir á sýnum úr dýrum
sem drepast af óþekktum orsökum
verði viðkomandi bónda ávallt án
kostnaðar, svo fremi sem sýnataka
fari fram með samþykki héraðs-
dýralæknis eða staðgengils hans.
Greinargerð: Sjá www.bondi.is
Mál nr. 29
Rafkyndikostnaður
Búnaðarþing 2008 beinir því til iðn-
aðarráðherra að beita sér fyrir aukn-
um styrkveitingum vegna aðgerða
sem draga úr kostnaði vegna kynd-
ingar íbúðarhúsnæðis á köldum
svæðum, þannig að styrkur fáist út
á aðgerðir sem sannanlega draga úr
upphitunarkostnaði. Lagabreytinga
kann að vera þörf.
Greinargerð: Sjá www.bondi.is
Mál nr. 30 Skattlagning
ökutækja
Búnaðarþing 2008 skorar á ríkis-
stjórn Íslands að lækka gjöld og
skattaálögur á díselolíu og stuðla
þannig að notkun díselbíla frekar
en bensínbíla sem myndi draga úr
koltvísýringsmengun.
Mál nr. 31 Raforkudreifing
Búnaðarþing 2008 skorar á stjórn-
völd að setja fjármuni í þrífösun á
rafmagni í dreifbýli og felur stjórn
BÍ að fylgja málinu fast eftir.
Greinargerð: Sjá www.bondi.is
Mál nr. 32 Hagkvæmni
áburðarframleiðslu
Búnaðarþing 2008 beinir því til
iðnarráðuneytisins að könnuð verði
hagkvæmni þess að hefja aftur
köfnunarefnisframleiðslu og blönd-
un á áburði hér á landi, m.a. með
hliðsjón af hækkandi áburðarverði.
Mál nr. 35 Flutningsjöfnun
á olíu
Búnaðarþing 2008 hvetur stjórn-
völd til að falla frá áformum um að
leggja niður Flutningsjöfnunarsjóð
olíuvara. Íbúar í dreifbýli búa nú
þegar við verulega hærra elds-
neytisverð á lítra þrátt fyrir flutn-
ingsjöfnun. Verði henni hætt gæti
það leitt til enn frekari hækkunar
á bensíni og dísilolíu í dreifbýli.
Sú ráðstöfun mun auka enn á þann
aðstöðumun sem er á milli höf-
uðborgarsvæðisins og landsbyggð-
arinnar.
Greinargerð: Sjá www.bondi.is
Mál nr. 37 Landgræðsla
Búnaðarþing 2008 telur brýnt að
fjármagn til Landbótasjóðs og verk-
efnisins „Bændur græða landið“
verði aukið í samræmi við hækkun
áburðarverðs.
Mál nr. 38 Varnarlínur og
flutningur á búfé og tækjum
Búnaðarþing 2008 skorar á Mat-
væla stofnun og sjávarútvegs- og
land búnaðarráðuneyti að ljúka
endur skoðun á varnarlínum fyrir
sauðfé, sem gert er ráð fyrir í skýrslu
nefndar landbúnaðarráðherra um
endurskoðun á vörnum gegn búfjár-
sjúkdómum frá júlí 2006. Jafnframt
leggur Búnaðarþing áherslu á að
virt séu ákvæði laga nr. 25/1993
um samráð við heimaaðila vegna
breytinga á girðingum og fleira.
Mál nr. 40 Hnitsetning
landamerkja
Búnaðarþing 2008 felur stjórn
Bændasamtaka Íslands að miðla
þeirri þekkingu til búnaðarsam-
banda sem til er um hnitsetningu
landamerkja og frágang þeirra
til þinglýsingar. Þá hvetur þingið
sveitarfélög og félög bænda til að
gangast fyrir almennri skráningu
og varðveislu á örnefnum í sam-
starfi við Örnefnasafn.
Mál nr. 41 Bótaréttur
vegna framkvæmda
í almannaþágu og
framkvæmd eignarnáms
A. Það er sjálfsögð krafa land-
eigenda að undirbúningur fram-
kvæmda í almannaþágu fylgi eft-
irfarandi ferli sem aðallega byggir
á lögum um eignarnám.
a. Gerður er samningur við landeig-
endur til að undirbúningsrann-
sóknir geti farið fram.
b. Ákvörðun framkvæmdaaðila
um hvort ráðist verður í fram-
kvæmdir
c. Samningaferli við landeigendur.
d. Náist samningar hefjast fram-
kvæmdir með eðlilegum hætti
e. Náist samningar ekki er mál-
inu vísað til Matsnefndar eign-
arnámsbóta. Fyrsta aðgerð
nefndarinnar er að leita sátta
með aðilum.
f. Framkvæmdir hefjast ekki nema
með heimild Matsnefndarinnar
sbr. 14. gr. laga nr. 11/1973.
g. Í engu tilfelli má hefja fram-
kvæmdir nema þetta ferli sé til
enda gengið.
B. Búnaðarþing 2008 leggur áherslu
á að samningsréttur landeigenda sé
virtur ef gerðar eru breytingar á
eldri mannvirkjum. og ef eigenda-
skipti verða á mannvirkjum sem
reist hafa verið í almannaþágu.
C. Búnaðarþing 2008 krefst þess að
Alþingi geri eftirfarandi lagabreyt-
ingar:
Áréttuð er fyrri krafa Bænda-
sam taka Íslands um afnám 3. mgr.
40. gr. laga nr. 80/2007
Krafist er að 3. mgr. 71. gr. laga
nr. 81/2003 verði færð til samræmis
við 5. mgr. 71. gr. sömu laga.
Að annarri málsgrein 71. gr.
laga 81/2003 verði breytt, þannig
að eigandi fjarskiptavirkis sjái um
og beri kostnað af flutningi þess
ef nauðsyn ber til vegna verklegra
framkvæmda.
D. Búnaðarþing 2008 leggur
áherslu á að skipulag vegna fram-
kvæmda verði unnið í samráði við
landeigendur.
E. Búnaðarþing beinir því til land-
eigenda að leggja aukna áherslu á
að fá árlegar leigugreiðslur en ekki
eingreiðslur eins og tíðkast hefur.
F. Búnaðarþing 2008 felur stjórn
Bændasamtaka Íslands að skipa
starfshóp sem hafi eftirfarandi hlut-
verk:
a. Kynna þeim fyrirtækjum sem
við á, ályktanir búnaðarþings í
þessu máli.
b. Kynna sveitarstjórnum sömu
ályktanir.
c. Standa fyrir kynningu á úrskurð-
um matsnefndar eignarnámsbóta
og samningum við landeigendur
eftir því sem við á.
Mál nr. 42
Landbúnaðarsafn Íslands
Búnaðarþing 2008 heitir stuðningi
Bændasamtaka Íslands við starf-
semi Landbúnaðarsafns Íslands og
hvetur um leið önnur samtök og
stofnanir, sem láta sig landbúnað
varða, til að styðja við safnið.
Greinargerð: Sjá www.bondi.is
Mál nr. 44 Kjaramál bænda
Eins og Bændasamtök Íslands hafa
bent á síðustu mánuði hefur rekstr-
arkostnaður í landbúnaði hækkað
verulega um heim allan. Hliðstæð
þróun blasir við hér og rekstrarút-
gjöld íslenskra bænda hafa á síð-
ustu vikum og mánuðum hækkað
meira en áður hefur þekkst.
Þessar hækkanir eru að mestu
leyti hluti af alþjóðlegri þróun sem
nú leiðir hvarvetna til hækkandi
matvælaverðs. Sem dæmi má nefna
gríðarlegar hækkanir á fóðurverði,
sáðvörum, olíu og ekki síst á áburð-
arverði sem hefur hækkað sem
næst 80%. Þá hefur orðið óheyri-
leg hækkun á fjármagnskostnaði
sem á sér bæði uppruna í alvar-
legu ástandi á fjármálamörkuðum
heimsins og stöðu efnahagsmála á
Íslandi. Afleiðingar þessara hækk-
ana eru þær að rekstrarforsendur í
íslenskum landbúnaði eru brostnar
að óbreyttu afurðaverði. Þessi staða
er ekki aðeins alvarleg fyrir bænd-
ur, heldur ógnar hún einnig aðgengi
íslenskra neytenda að gæðamatvæl-
um á sanngjörnu verði.
Framtíð íslensks landbúnaðar
og þar með mataröryggi þjóðarinn-
ar, er undir því komið að bændur
standi af sér núverandi þrengingar.
Við þessar aðstæður leggur Bún-
aðarþing 2008 áherslu á að afurða-
verð til bænda verður að hækka í
samræmi við aukinn tilkostnað.
Að öðru leyti leggur þingið
áherslu á eftirfarandi:
1. Tollar á innfluttar landbúnaðar-
vörur verði ekki lækkaðir.
2. Samkvæmt gildandi lögum fell-
ur útflutningsskylda kindakjöts
niður 1. júní 2009. Lögð er
áhersla á að núverandi skipan
haldist og útflutningsskyldunni
beitt áfram.
3. Til að draga úr áhrifum gríð-
arlegrar hækkunar á áburð-
arverði, leggi ríkissjóður fram
fjármagn til að mæta þessum
kostnaðarauka árið 2008 og
stuðli þannig að lægra verði til
neytenda.
4. Gjöld á innfluttar fóðurblöndur
verði felld niður.
5. Beita þarf áfram öllum tiltækum
faglegum leiðum til að lækka
framleiðslukostnað íslenskra
búvara.
Mál nr. 45 Málefni WTO
Búnaðarþing 2008 ítrekar álykt-
un sína frá búnaðarþingi 2006 um
alþjóðasamninga og íslenskan land-
búnað.
Nýleg samkomulagsdrög (frá
8. febrúar sl.) ganga enn lengra en
fyrri drög frá júlí í 2007 í að koma
til móts við kröfur útflutningslanda,
svo sem um lækkun tolla og nið-
urskurð á stuðningi strax við gildis-
töku nýs samkomulags. Þá hefur
ekki verið tekið tillit til óska G10
landanna um aukinn fjölda vöruteg-
unda sem sættu minni lækkun tolla.
Búnaðarþing skorar á stjórnvöld
að standa vörð hag íslensks land-
búnaðar í samningunum og vinna
áfram náið með öðrum ríkjum sem
hafa svipaðar áherslur.
Mál nr. 46 Frístundabyggð
Búnaðarþing 2008 leggst eindregið
gegn samþykkt umrædds frumvarps
í núverandi mynd. Það er krafa
Bændasamtaka Íslands að skipaður
verði að nýju starfshópur svo sem
gert var hinn 21. júlí 2006 til þess
að yfirfara og endurskoða fyrirliggj-
andi frumvarp og freista þess að ná
um það sem víðtækastri sátt og sam-
stöðu þeirra er málið varðar.
Greinargerð: Sjá í 14 tölusett-
um liðum á www.bondi.is
Haraldur Benediktsson formaður BÍ og Marteinn Njálsson formaður Félags
ferðaþjónustubænda ræða málin í þinghléi.
Sigurbjartur Pálsson og Þórarinn I. Pétursson blaða í þinggögnum.