Bændablaðið - 11.03.2008, Qupperneq 31

Bændablaðið - 11.03.2008, Qupperneq 31
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. mars 200831 Klikkaðast að sitja á brjálaðri kind Í grunnskóla Bolungarvíkur eru rúmlega 130 nemendur og einn af þeim er Sigríður Elma Björns- dóttir sem er tíu ára gömul. Henni leiðist reikningur en finnst þess þá skemmtilegra í lífsleikni, handavinnu, náttúrufræði og mat reiðslu í skólanum. Nafn: Sigríður Elma Björnsdóttir. Aldur: 10 ára. Stjörnumerki: Bogmaður. Búseta: Bolungarvík. Skóli: Grunnskóli Bolungarvíkur. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Mér finnst gaman í lífsleikni, handavinnu, nátt- úrufræði og matreiðslu. Hvað er uppáhaldsdýrið þitt? Ég á kött sem heitir Eldur, ég fékk hann í ágúst, hann er voðalega skemmtilegur. Uppáhaldsmatur: Lasagna, kjúk- lingur, lambalæri og pizza þetta er allt sem mér finnst gott. Uppáhaldshljómsveit: Birgitta Haukdal og Björgvin Halldórs- son, mér finnst þessi vera mjög góð, sérstaklega lagið Vertu ekki að plata mig, sem bekkurinn minn söng á árshátíðinni okkar. Uppáhaldskvikmynd: Bratz og Skolað í burtu. Fyrsta minningin þín? Ég man eftir því þegar ég var lítil að leika mér við kindurnar, það var skemmtilegt, ég var í sveitinni hans afa. Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á hljóðfæri? Nei, en mér finnst gaman að syngja. Ég vil verða söngkona þegar ég verð stór. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í tölvu? Fara í leik sem maður getur klætt dúkkur í. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Fatahönnuður og söngkona. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Sitja á brjálaðri kind. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Vera í stærðfræði. ehg Fólkið sem erfir landið Sigríður Elma er 10 ára gömul og búsett í Bolungarvík en hún stefnir á fata hönnun og jafnvel að verða söngkona þegar hún verður stór. Aðalfundur Félags nautakjötsframleiðenda verður haldinn í Ásgarði Kjósarhreppi 15. mars 2008 kl. 14:00. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Nýir félagar velkomnir. Upplýsingar í síma 897-7687 (Snorri). Stjórnin

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.