Bændablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | fimmtudagur 12. febrúar 2009
Utan úr heimi
Aukaafurðin ostamysa inniheld-
ur mótefni sem getur dugað
gegn kálfaskitu. Aðferðin við að
vinna mótefnið úr mysunni er
tiltölulega einföld og hráefnið er
ódýrt. Samt hefur engum komið
til hugar að gera það fram að
þessu.
„Hugmyndin liggur svo í augum
uppi að það er ótrúlegt að engum
skuli hafa dottið hún í hug áður,“
segir Erik Larsen, vísindamað-
ur við Dýralækningadeild DTU
(Danmarks Tekniske Universitet),
um mótefni sem hann og sam-
starfsmaður hans, prófessor Peter
Helgaard, hafa fundið upp í sam-
starfi við hið nýstofnaða fyrirtæki
Multimerics ApS. Þeir áætla að
unnt verði að draga úr kálfadauða
um helming með því að gefa kálf-
unum hreinsað mótefni frá auka-
afurðinni ostamysu.
Forvörn í stað lækningar
Um 15% kálfa á venjulegu kúabúi
drepast fyrstu dagana eftir burð,
flestir af niðurgangi sem veirur
og bakteríur valda og ónæm-
isvarnir kálfsins ráða ekki við. Til
að vinna gegn þessu vandamáli
gæta bændur þess að kálfarnir fái
næga broddmjólk eftir burð. Eftir
að kálfurinn hefur verið tekinn
frá kúnni sólarhring eftir burð fær
hann aukamagn af mótefnum með
ígildi móðurmjólkur. Það dugir þó
ekki og bændur verða oft að grípa
til lyfja til að vinna bug á sjúk-
dómnum. Það er hér sem ostamys-
an kemur til sögunnar.
Lars Erik Larsen segir þá leit-
ast við að láta mótefni úr mysunni
líkjast sem mest þeim mótefnum
sem fyrir eru í þörmum kálfanna.
Afurðinni, sem þeir hafi enn ekki
gefið nafn, sé svo unnt að bæta í
ígildi mjólkurinnar sem kálfarnir
fá þegar þeir eru teknir frá kúnni.
Þannig megi styrkja ónæmisvarnir
kálfsins og koma í veg fyrir nið-
urgang í stað þess að þurfa að
lækna hann.
Fyrir tveimur árum hófu
áðurnefndir tveir vísindamenn
við DTU samstarf við Kirsten
Bisgaard-Frantzen, líftækniverk-
fræðing hjá Seruminstituttet. Þau
settu sér það markmið að hagnýta
hugmynd sem byggðist á tækni
við að vinna mótefni úr osta-
mysu, stofnuðu saman fyrirtækið
Multimerics og fundu upp aðferð
til þess sem þau fengu einkaleyfi
fyrir og með hjálp fleiri aðila
stofnuðu þau hlutafélag um verk-
efnið.
Þróunarvinnan heldur áfram
og í framtíðinni er stefnt að fram-
leiðslu mótefna bæði fyrir dýr og
menn úr hinni yfirfljótandi og
ódýru ostamysu.
Þess skal að lokum getið að
niðurgangur er algengur sjúkdóm-
ur í þróunarlöndum, þannig að hér
er einnig á ferð mikilvægt verk-
efni til að bæta heilsufar fólks.
Skólablað DTU, Dynamo
Ostamysa gegn kálfaskitu
Yfirstandandi fjármálakreppa
kom flestum í opna skjöldu. Um
hana hafði lítið verið fjallað í
markaðsfræðum undanfarin ár.
Kenningarnar og raunveruleik-
inn rákust illilega á.
Viðbrögð stjórnvalda voru hins
vegar gamalkunn og fólust í því
að ríkið lagði fram fé til að styrkja
bankana og efnahagslífið upp á
hundruð milljarða evra eða dollara.
Þetta ráð var hið sama og notað var
í fyrri kreppu, en dugar það núna?
Ráð þeirra Roosevelts forseta
og hagfræðingsins Keynes dugðu
vegna þess að jafnframt efnahags-
aðgerðunum var tekið á félags-
legum þáttum. Þar má nefna að
aðgerðir til atvinnusköpunar, lengd
vinnutíma, frí og atvinnuleysisbæt-
ur fengu forgang fram yfir hagvöxt,
lága verðbólgu og greiðslujöfnuð á
fjárlögum.
Yfirstandandi kreppa verður
ekki leyst nema tekið verði tillit til
tveggja nýrra þátta í hagstjórninni;
í fyrsta lagi alþjóðlegrar yfirsýn-
ar, vegna þess að ákvarðanir ein-
stakra landa eða fyrirtækja skipta
máli á heimsvísu, og á hinn bóginn
að tekið verði tillit til hagsmuna
umhverfisins, en ljóst er að ákvarð-
anir í efnahagsmálum hafa óhjá-
kvæmilega áhrif á umhverfismál,
hvort sem um er að ræða nýtingu
auðlinda eða ráðstöfun úrgangs og
mengandi efna.
Sú stefna að hvetja efnað fólk
til að auka jólainnkaupin eða veita
stórfé í framleiðslu orkufrekra bíla
getur ekki verið rétt svar við yfir-
standandi kreppu.
Athyglisvert er að fylgjast með
því hve viðhorf til hagfræðinnar
hafa mikið verið að breytast á síð-
ustu áratugum. Til marks um það
er að verðlaunapeningur í hagfræði
árið 2002 til minningar um Alfred
Nobel var veittur sálfræðingi.
Jafnframt er auðséð að hagfræði
sem fræðigrein stendur á breiðari
grunni en fyrr. Áhugaverðar nýj-
ungar til lausnar þeim stóru úrlausn-
arefnum sem maðurinn stendur
andspænis (matvælaframleiðsla,
veðurfar/umhverfi og efnahagsmál)
er að finna á mörkum fræðigrein-
anna heimspeki, þjóðfélagsfræði
og náttúruvísinda.
Allt er hvað öðru háð. Þannig
hefur það reyndar alltaf verið.
Bæði hugtakið hagfræði (ökonomi)
og vistfræði (ökologi) eiga uppruna
sinn í gríska orðinu „oikos“, sem
merkir heimilishald. Bæði hug-
tökin fjalla um að fara með eigur
heimilisins, þ.e. þjóðarinnar eða
jarðarinnar. Þar verður ekki undan
því vikist að setja sér skynsamleg
markmið um meðferð auðlindanna
og að hugsa fyrir því að þær hvorki
rýrni né skaðist. Þegar svo er komið
að 500 efnuðustu neytendur jarðar-
innar eru með meiri einkaneyslu en
416 milljónir fátækustu jarðarbú-
anna, þá hefur eitthvað mistekist í
útdeilingu verðmæta meðal fólks.
Skilningur nútímafólks á orðinu
hagfræði samsvarar best merkingu
gríska orðsins „chrematisme“, að
áliti franska hagfræðiprófessors-
ins Serge Latouche við Sorbonne
háskólann. Orðið merkir nánast
„viðskipti“, þar sem hvorki sið-
fræði né umgengni við náttúru-
auðlindir koma nærri. Nútíma hag-
fræði svífur því í einhverju tóma-
rúmi án tengingar við umhverfi
sitt. Hagkerfið verður að fá að vaxa
sjálfs sín vegna. Við veitum meira
fé í vegagerð og aukum bílaumferð
án tillits til þess hvað umhverf-
ið þolir og hvort til séu aðrar og
umhverfisvænni lausnir, svo sem
hópflutningar. Mergur málsins er
sá að nútíma hagfræði er undirlögð
„skynsemi“, sem er ekki lengur
skynsöm.
Von okkar, sem nú lifum, er
að þær efnahagskreppur, og aðrar
kreppur sem við glímum við, opni
augu okkar fyrir því að sjá betur
samhengi hlutanna. Það er einkum
í frönskumælandi löndum sem birst
hefur víðari sýn á hagstjórn en áður.
Serge Latouche hefur kynnt hug-
takið „décroissance“ (croissance
merkir vöxtur), orð sem ætlað er
að hrista upp í fólki. Décroissance
merkir m.ö.o. samdrátt í umsvif-
um niður í æskilegt umfang og er
róttækara en orðið núllvöxtur, sem
hingað til hefur verið mest notað
í þessu sambandi. Orðunum er þó
ætlað svipað hlutverk, að lýsa sjálf-
bærri framleiðslu og neyslu, jafn-
framt því að hámarka lífsgæði sem
flestra.
Í pólitískri umræðu nú til dags
birtist áberandi tvöfeldni. Annars
vegar eru dregin fram umhverf-
ismál, svo sem hlýnun lofthjúps-
ins og bágborin lífskjör í fátækum
löndum, á sama tíma og pólitísk-
ar ákvarðanir leiða til aukinnar
hlýnunar og vaxandi fátæktar.
Hnattrænni hlýnun er lýst sem
mikilli vá á sama tíma og vikist
er undan hverjum þeim aðgerðum
sem af alvöru taka á málunum.
Úrlausnarefnin er hins vegar því
aðeins unnt að leysa að mönnum
auðnist að sjá hagfræði (ökonomi),
vistfræði (ökologi) og þarfir fólks í
samhengi.
Nationen/Ole-Jakob Christensen, stytt
Hagfræði og skynsemi
Sviss leyfir ekki langflutninga á sláturdýrum
Í Sviss er það sjónarmið ríkjandi að hér eftir sem hingað til verði
langflutningar á sláturdýrum um landið ekki leyfðir. Hér er um
að ræða flutning gripa frá norðanverðri Evrópu til Suður-Evrópu.
Það styttir flutningavegalengdina um nokkur hundruð kílómetra
að fara um Sviss.
En þrátt fyrir öll lagafyrirmæli fara þarna fram miklir flutningar á
búfé á dráttarvögnum með gripi á þremur hæðum og flutningatíminn
getur verið allt að 40-50 klst.
Ef Sviss gæfi formlega heimild til þessara flutninga væri landið
jafnframt orðið meðábyrgt fyrir slæmri meðferð á búfé. Einnig er sú
skoðun uppi að þessir flutningar auki hættu á að búfjársjúkdómar ber-
ist til landsins.
Landsbygdens Folk
Öryggismálastofnun Bandaríkj-
anna eða USA's National Intelli-
gence Council (NIC), sú deild
sem fjallar um allar upplýsing-
ar sem leyniþjónusta ríkisins
aflar, gaf út árlega skýrslu sína í
nóvember sl. Stofnunin leggur á
fjögurra ára fresti fram skýrslu,
þ.e. í aðdraganda nýs kjörtíma-
bils forseta Bandaríkjanna, þar
sem skyggnst er inn í nálæga
framtíð.
Nýja skýrslan, sem ber nafnið
Global Trend eða Hnattræn þróun,
beinir sjónum sínum allt fram til
ársins 2025. Hún skiptist í sjö meg-
inkafla:
* Alþjóðavæðing fjármálakerfis-
ins
* Breytileg þróun einstakra þjóða;
þær stækka, minnka og deil-
ast upp á sama tíma, allt eftir
heims hlutum
* Þjóðir eins og Kínverjar og Ind-
verjar komast til aukinna áhrifa
* Mitt í allsnægtunum er að finna
skort
* Hættan á átökum eykst
* Hvernig tekst alþjóðlegum sam-
tökum að takast á við vanda-
mál?
* Hvernig dreifast völdin í heim-
inum þegar þeim löndum fjölgar
sem berjast um yfirráðin?
Heimurinn eins og við höfum
þekkt hann frá seinna stríði mun
taka stakkaskiptum. Ný stórveldi,
svo sem Brasilía, Rússland, Indland
og Kína, munu ekki aðeins koma
til sögunnar, þau munu spyrja nýrra
spurninga og setja nýjar leikregl-
ur. Flutningur lífsgæða frá vestri
til austurs, sem átt hefur sér stað
síðustu áratugi, mun halda áfram
í fyrirsjáanlegri framtíð. Það mun
einnig auka álag á auðlindir jarðar,
svo sem vatn, fæðu og orku, og í
ljós munu koma alvarleg tilfelli um
skort þegar íbúum jarðar fjölgar enn
frekar. Hættan á árekstrum eykst,
að nokkru leyti vegna vaxandi
óstöðugleika í Miðausturlöndum.
Vatn, matur og breytingar á
veðurfari
Um þessar mundir er talið að 21
land með alls 600 milljónir íbúa
skorti annað hvort jarðnæði eða
vatn. Búist er við fólksfjölgun um
1,4 milljarða manns í 36 lönd-
um fram til ársins 2025. Skortur
á tryggum aðgangi að vatni mun
víða um heim verða meiri en áður
hefur þekkst, bæði til drykkjar
og akuryrkju. Á sama tíma áætlar
Alþjóðabankinn að eftirspurn eftir
matvælum muni aukast um 50%
fram til 2030.
Matvælaiðnaðurinn hefur hing-
að til brugðist vel við skilaboðum
frá markaðnum, en búvörufram-
leiðslan truflast sem fyrr af röngum
pólitískum aðgerðum sem takmarka
fjárfestingar.
Sú stefna, sem víða er við lýði
í þróunarlöndunum, að halda niðri
verði á matvælum í því skyni að
róa íbúa borganna og leggja heldur
fé til uppbyggingar á iðnaði, hefur
orðið dýrkeypt fyrir matvælafram-
leiðsluna. Einnig er vandamál ef
valdamenn í þessum löndum hafa
meiri áhyggjur af óeirðum í borg-
unum en tekjum fólks í dreifbýli.
Þá eru líkur á að matarskortur auk-
ist í framtíðinni. Með vaxandi þétt-
býli vex hættan á að landbúnaður
sitji á hakanum í mörgum löndum.
Í stærstu kornútflutningslönd-
unum; Bandaríkjunum, Kanada,
Argentínu og Ástralíu, vex áhugi
á líforku og sá áhugi nýtur stuðn-
ings ríkisstjórna í þessum löndum.
Sú framleiðsla leggur þar undir
sig mikið af akurlendi og vatni til
vökvunar.
Ýmis lönd í Asíu hafa sett höml-
ur á útflutning búvara og það,
ásamt aukinni eftirspurn stækkandi
millistéttar eftir próteinríkum mat,
hefur leitt til verðsveiflna á heims-
markaði fyrir búvörur, á markaði
þar sem verð var hátt fyrir.
Leyniþjónusta Bandaríkjanna
vekur einnig athygli á að minna
framboð á korni auki líkur á spá-
kaupmennsku með korn og að það
setji vaxandi mark á viðskipti með
búvörur í framtíðinni.
Heimurinn mun, að áliti leyni-
þjónustunnar, spila póker fram til
ársins 2025 í viðskiptum með mat-
væli og orku þar sem samkeppni og
átök verða áberandi.
Internationella Perspektiv
Flóknari heimur framundan
Draumfarir
hesta
Hesta dreymir, rétt eins og fólk.
Það er niðurstaða þýskrar rann-
sóknar. Hvað þá dreymir er aftur
ekki vitað, enn sem komið er.
Með hjálp svefnrannsóknastofu
á hjólum og fjartengdra rafskauta
hafa vísindamenn við Ludvig
Maximilian háskólann í München
rannsakað svefn hesta. Fest voru
28 rafskaut á höfuð hesta og fylgst
með þeim á hinum mismunandi
stigum svefnsins.
Niðurstöðurnar komu verulega
á óvart, segir á þýsku vefsíðunni
cavallo.de. Svefnfarir hesta eru
hinar sömu og manna. Hesturinn
fylgir sama ferli og maðurinn.
Djúpur svefn er eins, og jafnvel
REM-svefn (svefn með hröðum
hreyfingum augna, e. „rapid eye
movement“) er hinn sami. Það
styður kenningar vísindamannanna
um að hesta dreymi.
Svefnþarfir hesta eru þó ekki
eins miklar og fólks. Hestar sofa
alls fjórar klst. á nóttu, en vakna
oft inn á milli. Þeir bæta svo upp
nætursvefninn með „kríum“ á dag-
inn.
Hingað til hefur verið talið að
svefn hesta sé dýpri þegar þeir
liggja en þegar þeir standa. Nú er
hins vegar álitið að enginn munur
sé þar á, þar sem REM-svefninn
á sér jafnt stað hjá liggjandi sem
standandi hestum.
Landsbygdens Folk/LoA