Bændablaðið - 12.02.2009, Side 17

Bændablaðið - 12.02.2009, Side 17
17 Bændablaðið | fimmtudagur 12. febrúar 2009 Líf og starf Ráðunautar stóðu í ströngu síð- astliðið haust við ýmiss konar landmælingar. Þeir tóku út verk- efni sem eru styrkhæf m.a. sam- kvæmt búnaðarlagasamningi. Sem dæmi voru mældir og teknir út tæpir 400 km af skurðum sem voru hreinsaðir á árinu og alls voru mældir og teknir út 12.203 ha af ræktunarlandi. Þar af voru 3.612 ha af grasrækt, 4.263 ha af grænfóðri og 4.328 ha af þreskt- um kornökrum. Samkvæmt reglum er skilyrði styrkveitingar út á ræktun það að bændur skili inn túnkorti þar sem stærð ræktunarinnar kemur fram. Þó svo að túnkortum sé skilað inn þá þarf í mörgum tilfellum að sann- reyna stærð ræktunarinnar og er þá stundum notað gps tæki og land- upplýsingakerfi með nákvæmum loftmyndum til að mæla túnin upp og geyma hnit þeirra. Afrakstur þessarar vinnu er meðal annars nákvæm kortlagning ræktunar á Íslandi geymd í landupplýsinga- kerfi Bændasamtakanna. Hér til hliðar er yfirlit yfir rækt- un eftir svæðum og einnig eftir búgreinum. Þess ber að geta að ræktun ársins 2008 er eflaust meiri en hér kemur fram því ekki sótt- ust allir eftir styrknum og ræktun á búi þarf að vera að lágmarki 2 ha til að vera styrkhæf. Einnig ber að nefna að í einhverjum tilfellum var grasi og korni sáð saman. Ekki er um tvöfaldan styrk að ræða og var ræktunin yfirleitt tekin út sem korn. Flokkun ræktunar eftir búgrein- um er ekki nákvæm og þá helst þau bú sem flokkast hér undir blönduð bú. Grasrækt eftir búnaðarsambandssvæðum. Grasrækt eftir búgreinum. Grænfóðurrækt eftir búgreinum. Kornrækt eftir búgreinum. Grænfóðurrækt eftir búnaðarsambandssvæðum. Kornrækt eftir búnaðarsambandssvæðum. Alls 3.612 ha Alls 4.263 ha Alls 4.328 ha Umsóknir um framlög til þróunar- og jarðabóta, vatns- veitna á lögbýlum og vegna lýsingarbúnaðar í ylrækt Sækja þarf um eftirtalin verkefni samkvæmt Búnaðarlagasamningi fyrir 1. mars nk.: ► Umhverfis- og þróunarverkefni í garðrækt/ylrækt ► Umhverfis- og fegrunarátak í sveitum ► Verkefni tengd búfjárhaldi og vinnuaðstöðu Að auki þarf að sækja um tvo flokka á sama eyðublaði fyrir 1. mars sem ekki falla undir Búnaðarlagasamning. Það eru annars vegar fram- lög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga: ► Framlög til stofnframkvæmda við vatnsveitur á lögbýlum og hins vegar framlög úr aðlögunarsamningi um starfsskilyrði fram- leiðenda garðyrkjuafurða: ► Fjárfestingar í lýsingarbúnaði í ylrækt. Nánari reglur fyrir ofantalda flokka má sjá á vef Bændasamtakanna, bondi.is. Einnig er hægt að nálgast reglurnar og eyðublöðin hjá við- komandi búnaðarsambandi. Aðstoð við kostnaðaráætlanir o.fl. sem fylgja skal umsóknum, veita viðkomandi ráðunautaskrifstofur. Ekki skal sækja um styrki á þessum tímapunkti í aðra flokka sem eru styrkhæfir samkvæmt Búnaðarlagasamningi heldur skal óska eftir úttekt ráðunautar í lok sumars, þegar framkvæmd er lokið. Frestur til þess verður auglýstur síðar. Sérstakt átaksverkefni í jarðrækt Stjórn Bændasamtakanna ákvað fyrir stuttu að veita allt að 4 milljónum króna í sérstakt átaksverkefni í jarðrækt. Þetta er gert í ljósi mikilla verðhækk- ana á aðföngum og verulega óhagstæðrar gengisþróunar. Bændum verður gefinn kostur á að sækja um sérstaka, einstakling- smiðaða ráðgjöf um áburðarnotkun og jarðrækt/fóðuröflun þeim að kostnaðarlausu. Gert er ráð fyrir að jarðræktarráðunautar heimsæki bændur og fari með þeim í gegnum fyrirkomulag jarðræktar á viðkom- andi býli með það að leiðarljósi að finna möguleika til hagræðingar og leita nýrra tækifæra. Meðal efnistaka má nefna nýt- ingu lífræns og tilbúins áburðar, áburðaráætlanagerð, endurræktun túna, hagkvæmni grænfóður- og kornræktar, notkunarmöguleikar skýrsluhalds og túnkorta svo að fátt eitt sé nefnt. Sækja skal um þessa þjónustu til viðkomandi ráðunautaskrifstofu. Gras-, grænfóður- og kornrækt árið 2008 Innflutningur á kjöti árið 2008 Samkvæmt verslunarskýrslum voru flutt inn 1.173 tonn af kjöti árið 2008, 15,6% meira en árið 2007. Mest var flutt inn af alifuglakjöti, 530 tonn, 38% meira en árið 2007. Innflutningur á nautakjöti jókst um 3,2% frá fyrra ári og nam 340 tonnum. Svipað magn var flutt inn af svínakjöti og 2007 eða um 280 tonn. Innflutningur á unnum kjötvörum jókst um 13,8% og nam tæpum 23 tonnum árið 2008. Innflutt kjöt er að langmestu hrein- ir vöðvar, s.s. kjúklingabringur, nauta- og svínalundir og hrygg- og lær- isvöðvar. Hlutdeild innflutnings í kjötmarkaði hér á landi er því meiri en þessar tölur gefa til kynna, þar sem innanlandsmarkaður er metinn á grundvelli sölu í heilum og hálfum skrokkum. EB Innflutningur á kjöti í kg 2007 2008 Aukning/ -minnkun Nautakjöt 329.140 339.788 3,24% Alifuglakjöt 384.124 530.398 38,08% Svínakjöt 281.284 279.760 -0,54% Aðrar kjötvörur af áðurtöldu 19.924 22.667 13,77% 1.014.472 1.172.613 15,59% Mest var flutt inn af alifuglakjöti í fyrra, rúmlega 530 tonn.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.