Bændablaðið - 10.11.2011, Síða 1
34
20. tölublað 2011 Fimmtudagur 10. nóvember Blað nr. 359 17. árg. Upplag 24.000
16 22
Girðingum ekki ætlað
að halda hreindýrum
- Ríkið gæti verið bótaskylt segir lögfræðingur BÍ
Elías Blöndal Guðjónsson lög-
fræðingur Bændasamtaka Íslands
segir að í girðingarlögum séu
ákvæði um hvernig farið skuli
með girðingar.
„Skylt er að halda öllum girðing-
um svo vel við að búfé eða öðrum
stafi ekki hætta af þeim. Ýmist getur
verið um að ræða umráðamenn
lands, Vegagerðina, sveitarfélög eða
ríkissjóð samkvæmt lagaboði eða
samningum.
Girðingarreglugerð fjallar svo
um uppsetningu og frágang girð-
inga. Eðli málsins samkvæmt lúta
lágmarkskröfur fyrir girðingar ekki
að því að halda hreindýrum.“
Elías segir að með því rísi upp
álitamál um hvernig skuli farið með
tjón á girðingum og afgirtu landi af
völdum ágangs hreindýra.
„Hreindýr eru friðuð samkvæmt
lögum nr. 64/1994 um vernd,
friðun og veiðar á villtum fuglum
og villtum spendýrum. Hins vegar
veitir ráðherra heimild til veiða úr
stofninum árlega. Þá er kveðið á um
í sömu lögum að ráðherra geti veitt
tímabundið leyfi til veiða í því skyni
að koma í veg fyrir tjón af völdum
hreindýra, en aðeins að fenginni
umsögn Umhverfisstofnunar og
hreindýraráðs. Við höfum séð
hvernig þetta úrræði virkar í fram-
kvæmd að því er varðar álftir og
gæsir og því varla hægt að telja það
raunhæfan kost.“
Færa má rök fyrir bótaskyldu
ríkissjóðs
Í umræddum lögum eru ekki ákvæði
um bótagreiðslur til handa þeim sem
verða fyrir tjóni af völdum villtra
dýra. Elías telur hins vegar að færa
megi fyrir því rök að íslenska ríkið
sé bótaskylt vegna tjóns af völdum
hreindýra á girðingum og ræktuðu
landi á grundvelli ólögfestrar hlut-
lægrar ábyrgðarreglu.
„Girðingarnar og ræktarlandið
njóta auðvitað friðhelgi samkvæmt
eignarréttarákvæði stjórnarskrár-
innar og þegar löggjafinn takmarkar
þennan eignarrétt með því að banna
mönnum með friðunarlögum að
verja eigur sínar er eðlilegt að ríkis-
sjóður bæti mönnum það tjón sem
þeir verða fyrir af þeim sökum.
Hæstiréttur hefur haldið á lofti
þessu sjónarmiði í frægum dómi
frá árinu 1966 þar sem ríkissjóður
var dæmdur bótaskyldur fyrir tjón
á æðarvarpi af völdum arnar. Með
friðun á tilteknum villtum dýrateg-
undum hlýtur að fylgja ábyrgð.
Víða í Evrópu eru ákvæði í lögum
um bótagreiðslur úr ríkissjóði eða
öðrum sérstökum sjóðum vegna
tjóns á eigum manna af völdum
villtra dýra.
Við höfum af einhverjum ástæð-
um ekki viljað viðurkenna að þetta
sé vandamál hér á landi en tjón af
völdum villtra dýrategunda hér á
landi, s.s. álfta, gæsa, refa og hrein-
dýra, hleypur örugglega á hundr-
uðum milljóna á ári hverju.“
/fr
Sameiginleg hrútasýning Fjárræktarfélaganna í Öxarfirði og Þistilfirði var haldin þann 25. október í fjárhúsunum
hjá þeim bræðrum Rúnari og Sigþóri Þórarinssona í Sandfellshaga 1. Mættir voru þar um 50 veturgamlir hrútar
og 18 lambhrútar. Á myndinni eru þrír efstu í flokkum veturgamalla. 1. sæti talið frá hægri: Fjarki 10-150 frá
Sandfellshaga 2, faðir Búri 09-165. Fjarki er félagseign þeirra í Hagalandi, Garði, Kollavík og Gunnarsstöðum og
það er Gunnar Þóroddsson Hagalandi sem heldur í hrútinn. - 2. sæti Safír 10-264 úr Flögu, faðir Grábotni 06-833,
það er Ómar Reynisson einn eigenda hans sem heldur í hann. - 3. sæti Eiki 10-155 frá Bjarnastöðum, faðir Loki
09-607, það er Halldór Olgeirsson eigandi hans sem heldur í hann. - Sjá nánar bls. 7 Mynd Sigþór Þórarinsson.
Ógilding á yfirtöku
Stjörnugríss staðfest
Áfrýjunarnefnd samkeppnis-
mála hefur staðfest úrskurð
Samkeppniseftirlitsins frá því í
júlí sl. en með honum var yfirtaka
Stjörnugríss á rekstri svínabúanna
Brautarholts og Grísagarðs ógilt.
Rekstrarfélög umræddra búa urðu
gjaldþrota og komust búin þar með
í eigu Arion banka. Arion banki og
Stjörnugrís færðu þau rök fyrir yfir-
tökunni að um væri að ræða gjörning
sem uppfyllti reglur um félög á fall-
andi fæti, þ.e. að fyrir hendi væri
heimild til að leyfa samruna sökum
alvarlegra fjárhagserfiðleika fyrir-
tækja. Samkeppniseftirlitið féllst
hins vegar ekki á þetta.
Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
var horft til þess að með kaupum
Stjörnugríss á búunum hefði fyrir-
tækið komist í markaðsráðandi stöðu
og styrkt markaðsráðandi stöðu sína
á sláturmarkaði. Sömuleiðis hefðu
kaupin, ásamt sterkri stöðu fyrir-
tækjasamstæðunnar á eggjamarkaði,
styrkt stöðu hennar gagnvart fóður-
seljendum, kjötvinnslum og dag-
vöruverslunum.
Stjörnugrís og Arion banki kærðu
niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins en
með úrskurði áfrýjunarnefndar 8.
nóvember sl. var niðurstaðan hins
vegar staðfest.
/fr
Ráðunautur segir hreindýraumræðu einhliða og ósanngjarna í garð bænda:
Hreindýr ollu 8,5 milljóna króna tjóni
- Eyðileggja ræktarland og girðingar fyrir bændum í Flatey á Mýrum
Hreindýr hafa valdið gríðarlegu
tjóni hjá bændum á Mýrum í
Hornafirði síðustu ár. Meðal
annars nemur tjón á girðingum og
ræktarlandi hjá bændum í Flatey
8,5 milljónum króna á þessu ári
einvörðungu. Hávær umræða
hefur verið upp á síðkastið um
hreindýr sem flækst hafa í girð-
ingum, dýrunum til tjóns eða jafn-
vel dauða. Ráðunautur gagnrýnir
einhliða og óvægna umræðu um
málið og segir bændum að ósekju
kennt um.
Í grein sem Grétar Már Þorkelsson
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Suðurlands skrifar í Bændablaðið
kemur fram að hann hafi tekið út tjón
af völdum hreindýra á ræktarlandi og
girðingum í landi Flateyjar á Mýrum
nú í haust.
Samkvæmt úttekt Grétars ollu
hreindýr tjóni upp á 8.480.000
krónur á þessu ári. Þar af var tjón
á girðingum um hálf milljón króna
en afgangurinn tjón á kornrækt,
hveitirækt og túnum. Í landi Flateyjar
er einnig svokölluð félagsræktun
sem bændur úr nágrenninu nýta.
Samkvæmt úttektinni á félags-
ræktuninni er tjón á ræktarlandi
og girðingum þar síðustu fimm ár
3.228.390 krónur.
Bændur í Flatey og þeir sem
nytja umrædda félagsræktun tóku
undir grein Grétars í samtali við
Bændablaðið. Þá hafa bændur víðar
í sýslunni orðið fyrir tjóni af völdum
hreindýra og stendur til að taka það
tjón út.
Hreindýr eyðileggja girðingar
Að mati Grétars hefur umræðan á
síðustu misserum verið óvægin í garð
bænda og landeigenda.
„Hreindýrum hér er að fjölga, um
það er ég alveg viss og bændur á
svæðinu eru sammála um það. Aukið
álag á girðingar og ræktarland hér
er af þeim sökum, það leyfi ég mér
að fullyrða.
Að mínu mati þyrfti að leyfa mun
meiri veiðar á svæðinu, að minnsta
kosti þyrfti að fella mun fleiri tarfa
þar sem þeir eru allt of margir á
svæðinu. Það er ekki hægt að kenna
bændum um það að tarfar á fengitíma
eyðileggi fyllilega góðar girðingar og
dragi síðan girðingardræsur á eftir
sér. Það er óupplýst og ósanngjörn
umræða.“
Aukinn ágangur í byggð
Náttúrustofa Austurlands er vökt-
unaraðili hreindýrastofnsins. Þegar
skýrslur stofunnar eru skoðaðar
kemur í ljós að áætlaður fjöldi dýra
á Mýrum og í Suðursveit er talinn
vera 150 dýr veturinn 2010-2011.
Það er hins vegar fækkun frá árunum
áður. Þrjá vetur þar áður er fjöldi dýra
á sama svæði talinn vera 200 dýr.
Rán Þórarinsdóttir sérfræðingur
hjá Náttúrustofu Austurlands segir að
fækkun dýra á svæðinu geti skýrst af
því að dýr hafi fært sig yfir á annað
svæði. Jafnframt tekur hún fram að
fjöldi dýra segi ekki allt um ágang
dýranna á ræktuðu landi.
„Með beinum árlegum talningum
fáum við upplýsingar um fjölda
dýra en mat á ágangi byggir mikið
til á upplýsingum frá landeigendum
sjálfum.
Þær upplýsingar sem við höfum
um hagagöngu dýra, gefa til kynna
að dýr séu lengur í byggð á Mýrum
og Suðursveit heldur en í öðrum
sveitarfélögum.
Ef dýr staldra lengur við í byggð
heldur en áður gæti það komið fram
sem aukinn ágangur á ræktuðu landi
jafnvel þótt dýrum hafi fækkað.
Frekari athuganir þyrfti til að fá
fullnægjandi svör við því hvernig
dýrin nýta úthaga og ræktað land á
ársgrundvelli og hvort breytingar á
svæðisnotkun muni leiða til meiri
ágangs á ræktuðu landi.“ /fr
Bærinn okkar
Hnjúkur
Garðyrkja & ræktunÚr öskuskýi í
öskubuskuævintýri til Eistlands