Bændablaðið - 10.11.2011, Qupperneq 4

Bændablaðið - 10.11.2011, Qupperneq 4
Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 20114 Fréttir Kýrin Trappa bíður pollróleg eftir að heimilisfólkið í Engihlíð opni dyrnar. Myndir / Halldóra Andrésdóttir. Þessi unga kýr gerði sig heima- komna, prílaði upp tröppur og bankaði upp á hjá heimilisfólkinu í Engihlíð í Vopnafirði á dögunum. Halldóra Andrésdóttir á Grænalæk sendi Bændablaðinu þessar myndir og sagði að kýrin hefði umsvifalaust verið nefnd Trappa vegna þessa uppátækis. Greinilegt var að hún var ekki til- búin að láta það stoppa sig þó enginn kæmi til dyra. Kíkti hún því inn um gluggann, svona rétt til að athuga hvort þar væri virkilega ekki neinn sem ætlaði að sýna þá lágmarks kurteisi að bjóða gestinum til stofu. Bankað upp á í Engihlíð Hvers lags ókurteisi er þetta - ætlar enginn að koma til dyra? Félagið Brákarbraut 19, sem er í eigu Jóns Sævars, Kristins og Snorra Þorbergssona og Guðjóns Kristjánssonar, hefur fest kaup á eignum fyrrum Sláturhúss Borgarness. Hafa þeir félagar unnið að standsetningu hússins að undanförnu. Ætlun þeirra er að leigja húsið út en það var nýtt sem sauðfjár- og stórgripasláturhús allt til ársins 2007. Byggingin er í heild um 700 fermetrar að stærð en þar af er sláturhúsið í um 500 fermetra plássi. Sumarið 2003 ákvað stjórn Borgarnes Kjötvara ehf., sem þá rak sláturhúsið, að hætta sauðfjár- slátrun í húsinu. Hugmyndin var að fara fram á úreldingu sláturhússins. Samkvæmt heimildum blaðsins var þó haldið áfram sauðfjárslátrun í hús- inu og einnig stórgripaslátrun allt fram á vetur 2007-2008. Þá var öllum starfsmönnum sagt upp í tengslum við nauðarsamninga Borgarness Kjötvara og slátrun hætt. Keyptu húsið af Landsbankanum Jón Sævar, sem er m.a. hestamaður í Skíðsholtum á Mýrum, segist hafa tekið hluta hússins á leigu ásamt Guðjóni Kristjánssyni, félaga sínum úr Borgarnesi. Landsbankinn hafi eignast húsið á uppboði á síðasta ári og sett eignina á sölu. Leituðu þeir félagar, ásamt bræðrum Jóns Sævars, þá eftir því við bankann að fá eignina alla keypta og náðust samningar um þau kaup. Fullbúið tækjum „Þegar ég fór að skoða þetta enn betur fannst mér skelfilegt að horfa upp á öll þessi tæki og búnað sláturhússins, sem lá þarna engum til gagns. Það var lagt í töluverðar fjárfestingar í húsinu upp úr árinu 2000. Síðan gengu menn bókstaflega út úr þessu, svona rétt eins og þeir hefðu skroppið í helgarfrí, þarna um veturinn 2007-2008.“ Jón Sævar segir að við kaupin hafi komið í ljós að engar kvaðir væru á húsnæðinu sem bönnuðu notkun þess sem sláturhúss. Þá hafi húsið enn verið skráð sem sláturhús hjá Fasteignamati ríkisins. Að sjálf- sögðu þyrfti þó að fara að kröfum Matvælastofnunar til að fá heimild til slátrunar í húsinu að nýju. Jón Sævar segir að ýmsir mögu- leikar séu á nýtingu hússins undir aðra starfsemi en slátrun. Þeir hafi þó viljað kanna hvort einhverjir hefðu áhuga á að nýta þann búnað sem fyrir er í húsinu, áður en hann yrði rifinn niður. „Við viljum bara leigja húsið með þeim búnaði sem þar er. Hugsanlega geta menn nýtt þetta aftur sem slátur- hús í stað þess að flytja gripi til slátr- unar mörg hundruð kílómetra leið eins og nú er. Það væri líka hægt að nýta það undir kjötvinnslu. Svo kemur bara í ljós hvort einhverjir hafa áhuga á slíku. Mér fyndist grát- legt, í allri umræðu um flutninga á sláturgripum langar leiðir, ef ekki er hægt að nýta þetta hús. Við viljum alla vega gefa mönnum tækifæri til þess.“ /HKr. Unnið að því að koma Sláturhúsi Borgarness í notkun að nýju - Félagið Brákarbraut 19 keypti húsið og hyggst leigja það út Jón Sævar Þorbergsson segir að reynt verði að leigja húsið út með þeim sláturbúnaði sem í því er. Mikil aðsókn var á alla við- burði á Fræðsludögum um járn- ingar sem Járningamannafélag Íslands og Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands stóðu fyrir á dögunum. Um 60 manns sóttu námskeið, yfir 100 manns fræðslufyrirlestra og ríf- lega 200 manns komu á opinn dag í Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum. Félag járningamanna fékk til landsins hinn þekkta járningamann Mitch Taylor frá Bandaríkjunum og hlaut hann mikið lof fyrir sitt framlag til fræðsludaganna. Fjölmargir aðilar er tengjast járningavörum kynntu þær og það nýjasta á boðstólum, s.s. Ásbjörn Ólafsson ehf., Ó. Johnson og Kaaber ehf., Brimco, Ástund og Lífland. Í lok dagskrárinnar fór fram þriðja Íslandsmótið í járningum. Mustad og Ó. Johnson og Kaaber gáfu verðlaunin. Alls voru kepp- endur sjö og var mjög mjótt á mun- unum. Kristinn Hugason, fulltrúi Landbúnaðar- og sjárútvegsráðu- neytisins, veitti verðlaunin. Í fyrsta sæti var Högni Sturluson, í öðru Leó Hauksson og í því þriðja Erlendur Fræðsludagar um járningar og Íslandsmót Járningamaðurinn Mitch Taylor frá Bandaríkjunum sýnir réttu handtökin. Kokkar, blaðamenn, bændur og aðrir matgæðingar gæddu sér á dögunum á nýbökuðum eplakök- um úr íslenskum eplum. Tilefnið var útgáfa nýju mat- reiðslubókarinnar „Eldum íslenskt með kokkalandsliðinu“ sem er nýkomin í verslanir. Þorsteinn Sigmundsson, bóndi í Elliðahvammi, tók á móti gestum í útgáfuhófi á Vatnsenda en þar ræktar hann m.a. eplatré sem hafa gefið ríkulega upp- skeru. Að hans sögn er þess ekki langt að bíða að íslensk epli verði algeng á markaðnum, jafnvel ekki nema örfá ár. Eplakökur úr íslenskum eplum Geitfjárræktarfélags íslands fagn- aði 20 ára afmæli sínu á aðalfundi sínum sem haldinn var sl. laugar- dag hjá Búgarði á Akureyri. Ný stjórn félagsins er þannig skipuð: Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir, Háafelli Borgarbyggð er for- maður, Stefanía Sigurðardóttir, Vorsabæ 2 Skeiðum er ritari og Helgi H Bragason, Setbergi, Fellum er gjaldkeri. Þá er Gunnar Júlíus Helgason, Vogum Vatnsleysuströnd meðstjórnandi, auk Hallveigar Guðmundsdóttir, frá Húsdýragarði Reykjavíkurborgar. Að sögn Jóhönnu var á fundinum farið yfir liti íslensku geitarinnar og heiti litanna, en stefnt er á að ljúka gerð veggspjalds með geitalitum innan tíðar. „Þar sem geitur voru orðnar æði fáar á landinu fækkaði litaafbrigðum einnig, en nú þegar aftur fjölgar í stofninum skjóta upp kollinum ýmsir fallegir litir sem taldir voru horfnir og því er mikil- vægt að samræma heiti á þeim. Umræður voru um aukinn áhuga á afurðum geita og mikilvægi þess að geitaræktendur standi saman og nái að tengjast betur sín á milli með t.d. aukinni notkun á heimasíðu félags- ins, www.geit.is. Anna María Lind Geirsdóttir textillistakona kynnti verkefni sitt um geitafiðu (kasmír) og hefur hún unnið mikið og óeigin- gjarnt starf við að leita leiða til að nýta fiðuna og að láta rannsaka gæði hennar. Einnig var kynnt nýtt merki félagsins sem Anna María hannaði og gaf félaginu. Að síðustu var rætt um sæðingar en í fyrra var í fyrsta sinn safnað 8 höfrum á sæðingastöð og nú í ár bætast þrír nýir hafrar við til sæðistöku. Skipulagning þess starfs hefur mest verið í höndum Birnu Baldursdóttur hjá Erfðalindasetri.“ Að sögn Jóhönnu hefur geitum og geitaeigendum fjölgað til muna á síðustu 2-3 árum. Geiturnar voru um 730 á vetrarfóðrum síðasta vetur hjá 64 eigendum, en félagar í Geitfjárræktarfélaginu eru orðnir 80. /smh Geitfjárræktarfélags Íslands 20 ára Haldið upp á afmælið á aðalfundinum sl. laugardag Jóhanna B. Þorvaldsdóttir formaður sker afmæliskökuna.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.