Bændablaðið - 10.11.2011, Qupperneq 12

Bændablaðið - 10.11.2011, Qupperneq 12
Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 201112 Fréttir Hörgdælskir bændur, sem slógu í gegn síðastliðið vor með sýning- unni Með fullri reisn, hyggjast nú halda í víking til höfuðborgarinnar og sýna verkið þar dagana 11. og 12. nóvember. Sýnt verður í Iðnó og verða hinir hörgdælsku þar á ferðinni, fáklæddir sem fyrr. Leikfélag Hörgdæla tók verkið Með fullri reisn til sýninga á liðnum vetri og má með sanni segja að það hafa vakið mikla lukku, troðfullt var á allar sýningar fram eftir vori og komust færri að en vildu. Annir við sauðburð og önnur hefðbundin vorverk bænda gerðu að verkum að hætta þurfti sýningum en jafnframt var ákveðið, í ljósi þess hve viðtökur voru góðar, að taka verkið til sýninga á ný þegar haustannir væru afstaðnar. Tilbúnir að fækka fötum á ný „Nú eru allir hressir og klárir í slaginn á ný,“ segir Bernharð Arnarson, for- maður Leikfélags Hörgdæla. Stefnt er að því að sýna verkið tíu sinnum norðan heiða að Melum, voru fyrstu sýningar um síðustu helgi og eins verður sýnt um komandi helgi og þá næstu. Að því búnu ætla menn að pakka leikmyndinni saman og bruna í bæinn. Sýnt verður í Iðnó og geta áhugasamir aflað sér nánari upplýsinga á vefsíðunum miði.is og á heimasíðu Leikfélags Hörgdæla sem hýst er á vefsíðu sveitarfélagsins, horgarsveit.is. „Það er mikið að gera í sveitinni á vorin og við urðum að hætta sýn- ingum vegna sauðburðar og annarra aðkallandi vorverka. Þá var staðan þannig að enn var þó nokkur eftir- spurn eftir að sjá sýninguna og bið- listi hafði myndast. Við ákváðum því að taka verkið til sýninga á ný þegar hefðbundnum hauststörfum lyki og nú eru allir tilbúnir að fækka fötum á ný,“ segir Bernharð. Ánægð með góðar viðtökur Hann segir að þeir sem ekki kom- ust á sýninguna í vor fái nú til þess tækifæri og viðbrögð séu eftir vænt- ingum, búið sé að selja bróðurpart miðanna á þær sýningar sem áform- aðar eru. „Við erum auðvitað mjög ánægð með hversu mikinn áhuga fólk hefur sýnt okkur, en frá því við frumsýndum í mars á liðnum vetri hefur fjöldinn allur af fólki sótt sýninguna og eftir því sem ég best veit skemmta menn sér konunglega,“ segir Bernharð. /MÞÞ. Leikfélag Hörgdæla „Með fullri reisn", heima og að heiman: Fáklæddir Bændur spígspora um borgina MS Selfossi hefur tekið í notkun tvo nýja og glæsilega mjólkur- söfnunarbíla af fullkomnustu gerð. Annar bíllinn er af gerðinni Benz, hefðbundinn stellbíll með 14.500 lítra tanki, en hinn bílinn er Volvo, fjöurra öxla með 20.000 lítra tanki. Báðir bílarnir eru á loftpúðum að framan og aftan. Ýmsar nýjungar eru í bílunum, m.a er tveggja dælu kerfi í þeim báðum, sem eykur afköst við dælingu á mjólk úr tæplega 400 ltr. á mínútu í 850 til 870 ltr. á mín. Nýju bílarnir kostuðu 17,5 millj- ónir króna. Auk þess eru komnir til landsins hjá MS 4 nýir beislisvagnar, 18.500 ltr. hver, 3ja öxla með lyftan- legum búkka. MS Selfossi gerir út stóran flota af bílum, bæði mjólkursöfnunarbíla og dreifingarbíla en á síðasta ári óku bílarnir 1,1 milljón km. /MHH Tveir nýir mjólkursöfnunarbílar hjá MS Selfossi Guðmundur Geir Gunnarsson (fyrir miðju), mjólkurbússtjóri MS Selfossi, ásamt mjólkurbílstjórunum Garðari Gestssyni (t.h) og Guðlaugi Stefánssyni. Nýju mjólkursöfnunarbílarnir sjást fyrir aftan þá. Mynd / MHH. Mjög ómakleg umræða hefur verið í fjölmiðlum undanfarið vegna hreindýra sem hafa verið að flækjast og festast í girðingum síðustu vikur í landi Flateyjar á Mýrum. Hefur umræðan verið á þann veg að þetta sé eingöngu bændum að kenna, þeim standi á sama og aðhafist ekkert í mál- unum. Þá hafa bloggheimar logað í þessum umræðum og verið skrifað á þeim vettvangi að bændur séu upp til hópa dýraníðingar, hirði hreindýraarðinn og loki svo bara augunum fyrir stöðu mála. Bændur í Flatey fá engan hreindýraarð þar sem landið utan girðingar er í eigu ríkisins. Meðal hreindýraarður bænda í sýslunni dugar fyrir um 30 girðingarstaurum eða hálfum áburðarsekk. Talsmenn umhverfisverndarsam- taka hafa farið mikinn í umræðunni og lagt málið mjög einhliða upp í fjölmiðlum. Umræðan snýst aðal- lega um það að bændur fari ekki að girðingarlögum og gjarnan er vitnað í lög og reglugerðir um girðingar. Engum dylst að þær myndir sem birst hafa í fjölmiðlum og á heimasíðum umhverfisverndarsamtakanna eru óhugnanlegar. Til dæmis má sjá mynd af dauðu hreindýri með appel- sínugulan borða vafinn utan um sig. Þessi borði var fastur á staur utan við íbúðarhúsið í Flatey og var notaður á hverjum degi við að randbeita kúm. Mjög hæpið má telja að girðingarlög nái inn í húsagarða. Vottuð og fjárheld girðing Í Flatey háttar svo til að innan jarðar þar er svokölluð félagsrækt sem nytjuð er af bændum í sveitinni. Það skal tekið fram að girðingin umhverfis Flatey, þ.e. umhverfis félagsræktina og land Lífsvals sem á jörðina Flatey, telst búfjárheld sam- kvæmt lögum og reglugerðum um girðingar. Umrædd girðing var vottuð af undirrituðum fyrir fjórum árum þegar hún var girt ný. Rafgirðing er umhverfis félagsræktunina, innan umræddrar girðingar og kemst ekk- ert búfé að henni. Hins vegar hafa hreindýr með ágangi sínum eyðilagt þá girðingu og flækt sig í henni. Búið er að taka um 2 kílómetra af rafgirðingunni og stendur til að taka restina á næstu dögum. Þeir bændur sem nytja félagsræktina telja sig ekki hafa bolmagn til að girða upp árlega vegna ágangs hreindýranna. Það er hinsvegar afar vont að geta ekki sett girðinguna aftur upp til að aðskilja félagsræktina frá landi Lífsvals og til að báðir aðilar geti haft þá möguleika að hafa búpening úti við ef til kæmi. Á það skal einnig bent að ef rafgirðingin yrði löguð og sett upp aftur yrði hún sama slysagildran og hún væri ef hún lægi niðri. Hreindýr hafa verið að flækja sig og drepast í girðingum frá því að þau fóru að halda til á svæðinu. Breytir þar engu hvort girðingar eru uppistandandi eða liggja niðri. Þetta er ekkert einsdæmi í sýslunni og hafa bændur á öðrum svæðum einnig orðið fyrir sama tjóni og bændur á Mýrum. Ósamræmi í málflutningi Umhverfisstofnun er með eftirlits- menn á sínum vegum sem fylgjast með hreindýrunum hluta úr árinu. Svo virðist sem Umhverfisstofnun og umhverfisverndarsamtök tali ekki sama máli. Ef dýr festist í girðingu virðist ekkert sjálfgefið að það megi ná því og losa það við draslið, líklega vegna mjög strangra laga um friðun villtra dýra. Samt sem áður er bónd- anum eða umráðamanni girðingar- innar kennt um. Fastur á hornum með eðlilega hreyfigetu? Um daginn tjáði talsmaður Umhverfisstofnunar sig í fjölmiðlum um hreintarfa sem fastir voru saman á hornunum. Sagði hann að ekkert yrði aðhafst á meðan þeir hefðu eðlilega hreyfigetu, þeir færu bráðum að fella hornin og myndu þá losna. Ég get ekki ímyndað mér að það geti talist eðlileg hreyfigeta að vera fastur með hausinn við einhvern annan í viku eða tvær. Það þyrfti allavega að vera gott samkomulag milli beggja aðila. Hvað með dýraverndarsjónarmið? Á að rífa niður raflínur vegna álftadauða? Það má taka sem dæmi að álftin er algerlega friðuð og hefur tjón bænda verið gríðarlegt síðustu ár vegna skemmda af þeirra völdum á kornökrum og túnum. Ekki fæst leyfi til að verjast þessum vágesti með fækkun. Á hverju ári drepast hundruð álfta þegar þær fljúga á raf- magnslínur, ætti þá ekki að skikka Landsnet til að grafa allar línur í jörð? Með þessu er ég ekki að tala gegn umhverfisverndarsinnum heldur þvert á móti. Hins vegar er nauð- synlegt að umræðan sé málefnaleg og vönduð en ekki öfgakennd og einhliða. Ábyrgðin hjá Umhverfisstofnun Umhverfisstofnun ætti að beita sér fyrir því að lögum yrði breytt þannig að handsama mætti dýr sem lenda í þessu og krefjast aukinna fjárfram- laga frá ríkinu til að standa straum af þeim kostnaði. Björgunarsveitir hafa aðstoðað hreindýraeftirlitsmenn á svæðinu við að losa dýrin oftar en einu sinni og fá þær ekkert greitt fyrir. Ábyrgðin liggur að mínu mati að stórum hluta hjá Umhverfisstofnun. Óeðlilegt að bændur beri einir tjón af völdum hreindýra Þetta mál er ekki hægt að einfalda með neinum hætti miðað við núver- andi lög og reglugerðir um girðingar og friðun villtra dýra. Rafgirðingin verður tekin niður en það mun ekki breyta því að girðingu vantar á þetta svæði og treystir bóndinn sér ekki til að bera þann kostnað við viðhald og uppsetningu. Hreindýrin mundu flækja sig í henni og skemma fyrir hundruð þúsunda á hverju ári. Forsendur fyrir girðingalögum eru brostnar í þessum tilvikum þar sem óeðlilegt er að bændur beri einir kostnað sem hlýst af tjóni af völdum hreindýra. Bændur í Flatey og þeir sem nýta félagsræktina hafa á hverju vori lagað girðingarkafla þar sem mesta álagið er. Gaddavír sem fannst í hreindýrum er úr þeirri girðingu. Ekki er hægt að sakast við bændur vegna þessa og fráleitt að segja að þeir sinni ekki sínum skyldum varðandi viðhald girðingarinnar. 8,5 milljóna króna tjón vegna hreindýra í Flatey Undirritaður framkvæmdi úttekt á tjóni á girðingum og ræktarlandi í Flatey sem rekja má beint til hrein- dýra. Kostnaður bændanna sem nytja félagsræktina hefur á síðustu 5 árum verið 3.228.390 krónur. Þar ef er tjón á girðingum 1.609.146 krónur og tjón á ræktarlandi 1.679.250 krónur. Tekið skal fram að umræddar upphæðir eru varlega áætlaðar. Þá var einnig lagt mat á tjón á ræktun og girðingum af völdum hreindýra hjá bændum í Flatey, þ.e. ekki þeirra sem eru í félagsræktinni. Í sumar þegar korn var að koma upp var mjög mikið beitarálag á svæð- inu og að jafnaði milli 100 og 150 hreindýr þarna á beit. Hreindýrin átu um 25 hektara af korni, 2 hektara af vetrarhveiti og eyðilögðu um 17 hektara af vallarfoxgrasi, þannig að sáðgresisþekjan þar er nú einungis um 20 prósent vallarfoxgras. Auk þessa er kostnaður við girðingarvið- hald metinn á um 500.000 krónur á ári. Tjónið á ræktarlandinu með girð- ingarkostnaði hjá Flateyjarbændum er um 8.480.000 krónur og það bara í ár. (Nánari forsendur er hægt að nálgast hjá undirrituðum) Þörf á að grisja hreindýra- og álftastofna Það er hins vegar spurning hvort ekki ætti að fækka hreindýrum á þessum slóðum vegna mikillar fjölgunar dýra. Í það minnsta ætta að fella fleiri tarfa þar sem allt of mikið er af þeim á svæðinu. Það er ekki hægt að segja að bændur eigi bara að girða hærri girðingar þar sem það hefði verulegan kostnaðarauka í för með sér, og af hverju ættu bændur að fara girða fyrir hreindýr á sinn kostnað? Best væri að grisja í hjörðunum, eins í álftastofninum, þar sem þessar skepnur geta greinilega ekki séð sér fyrir fæðu nema í ræktunarlöndum bænda með tilheyrandi tjóni fyrir þá. Þessi mál þarf að leysa á þann hátt að allir hafi hag af og setja hugtakið um dýravernd á hærra plan. Virðingafyllst Grétar Már Þorkelsson Ráðunautur Búnaðarsambandi Suðurlands. Ómakleg umræða um hreindýr og bændur: 8,5 milljóna króna tjón hjá Flat- eyjarbændum vegna hreindýra Í umræðunni

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.