Bændablaðið - 10.11.2011, Side 18
Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 201118
Umræður um hvernig brauðfæða
skuli heiminn snúast oft um
samanburð á ræktunaraðferðum
og hver þeirra muni helst auka
uppskeru. En við þurfum að
meta þetta á heildrænni hátt.
Framleiðsla næringarríkrar
fæðu með aðferðum sem vernda
vistkerfi er ekki síður mikilvægur
þáttur sjálfbærrar fæðufram-
leiðslu en uppskerumagn.
Frjósemi jarðvegs er grund-
völlur lífrænna aðferða. Heilbrigður
jarðvegur eykur ekki aðeins upp-
skeru og verndar umhverfið heldur
fóstrar hann líka jarðvegsörverur
sem flytja matjurtum næringar-
efni á borð við vítamín og stein-
efni, sem nauðsynleg eru heilsu
manna og dýra. Rodale-stofnunin
í Bandaríkjunum hefur nýverið birt
niðurstöður 30 ára ræktunartilrauna
sem báru saman lífrænar og hefð-
bundnar ræktunaraðferðir. Lífrænar
aðferðir reyndust jafnast á við eða
gera betur en hefðbundnar aðferðir
í öllum þeim þáttum sem kannaðir
voru.
Uppskera svipuð eða betri í
lífræna kerfinu
Uppskera á maís og sojabaunum var
sambærileg í báðum kerfum þegar
jarðvinnsla var notuð og uppskera
á hveiti var einnig svipuð. Maís og
sojabaunir þoldu samkeppni „ill-
gresis“ mun betur í lífræna kerfinu
en hinu hefðbundna, þótt uppskera
væri svipuð. Þá var maísuppskera
rúmlega 30% meiri í lífræna kerf-
inu en hinu hefðbundna á þurrka-
tímabilum.
Lífrænar aðferðir eru sjálfbærari
og hagkvæmari
Hefðbundinn landbúnaður notar
tilbúinn áburð til að auðga jarðveg
af köfnunarefni og eiturefni til að
halda í skefjum illgresi, skordýrum
og sveppum. Þessi efni eyða jarð-
vegsörverum, ræna matjurtir nær-
ingargildi sínu og menga vatn og loft.
Í lífrænni ræktun er tilbúinn áburður
bannaður og náttúruleg varnarefni
má aðeins nota ef brýnar ástæður
eru til. Lífrænn landbúnaður bætir
jarðvegsgæði með skiptiræktun, nátt-
úrulegum áburði og ræktun plantna
sem binda köfnunarefni úr lofti með
örverum.
Lífrænn landbúnaður notar 45%
minni orku og nýtir hana auk þess
betur. Framleiðni reyndist 28% meiri
í lífræna kerfinu. Þótt því sé haldið
fram að plönturæktun sem útheimtir
jarðvinnslu krefjist meiri orkunotk-
unar sýndi rannsóknin að hefðbundin
jarðvinnslukerfi eru orkufrekust.
Fram kom að hefðbundin rækt-
unarkerfi losa 40% meira af gróður-
húsalofttegundum en lífræn kerfi á
hverja þyngdareiningu uppskeru.
Lífrænar aðferðir binda meira kolefni
í jarðvegi en hefðbundnar og vinna
þannig gegn loftslagsbreytingum. Á
fyrri árum rannsóknarinnar komst
Rodale-stofnunin að því að 75% sam-
dráttar í kolefnislosun, sem Kyoto-
sáttmálinn ætlaði Bandaríkjunum,
mætti ná með því að taka upp líf-
rænar aðferðir á þeim 160 milljónum
ekra sem nú eru notaðar til ræktunar
á soja og maís.
Rannsókn Rodale sýndi að ágóði
af lífrænum kerfum er næstum þre-
faldur, eða 558 dollarar á hverja
ekru á ári, miðað við ágóða af hefð-
bundum kerfum, sem reyndist 190
dollarar á ekru á ári. Og jafnvel án
verðálagningar reyndust lífrænu
kerfin samkeppnishæf við hefð-
bundnu kerfin, m.a. af því að bændur
í lífrænni ræktun þurfa ekki að kaupa
tilbúinn áburð og eiturefni.
Skýrslur SÞ telja lífrænar
aðferðir geta brauðfætt heiminn
Árið 2007 gaf Matvæla- og land-
búnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna
(FAO) út skýrsluna „Lífrænn land-
búnaður og fæðuöryggi“. Einn af
embættismönnum FAO dró saman
niðurstöðu hennar með þessum
orðum. „Lífrænn landbúnaður
er„heildrænt framleiðslukerfi sem
sneiðir hjá tilbúnum áburði og eitur-
efnum og erfðabreyttum lífverum,
lágmarkar mengun lofts, jarðvegs
og vatns, og hámarkar heilbrigði
plantna, dýra og manna“.
Í skýrslu IAASTD , sem út kom
2008, var mælt með því að lífrænar
aðferðir væru notaðar til framleiðslu
landbúnaðarafurða framtíðarinnar.
Skýrslan byggði á tilstyrk fimm
stofnana Sameinuðu þjóðanna og
ráðgjöf rúmlega 400 vísindamanna
í yfir 80 þjóðlöndum varðandi fram-
tíðarlandbúnað heimsins.
Lífræn framtíð Íslands
Árangur lífræns landbúnaðar byggist
á því að hann viðurkenni margbreyti-
leika náttúrunnar og reyni að vinna
með henni. Hefðbundinn landbúnað-
ur tuktar náttúruna til með tilbúnum
efnum – aðferðum sem mengað hafa
umhverfið og fæðukeðjuna og gert
bændur unnvörpum háða þjóðlausum
efnaframleiðslufyrirtækjum.
Viðurkenning og stuðningur er
það sem helst hindrar að lífrænn
landbúnaður sjái heiminum fyrir
nægu framboði á heilnæmu fæði.
Með því að taka upp lífrænan land-
búnað er líklegt að tryggja megi
framtíð íslensks landbúnaðar og
veita byggðaþróun langþráðan
stuðning. Íslenskir háskólar þurfa
að auka rannsóknir til að byggja
upp þekkingu á lífrænum aðferðum
við íslenskar aðstæður. Og stjórn-
málamenn okkar þurfa að stórauka
fjárframlög til uppbyggingar á líf-
rænum landbúnaði. Með því yrði
fæðuöryggi þjóðarinnar stórlega
aukið að magni og heilnæmi.
Sandra B. Jónsdóttir
sjálfstæður ráðgjafi
Lífrænn landbúnaður getur
brauðfætt heiminn
Sandra B. Jónsdóttir.
Niðurstöður samanburðarrannsókna Rodale-stofnunarinnar á lífrænni og hefðbundinni ræktun: Árleg uppskera
(yields), ágóði (pro t), orkuneysla (energy input) og losun gróðurhúsalofttegunda (greenhouse gases) á atareiningu.
Heimild: Rodale Institute, The Farming Systems Trial (www.rodaleinstitute.org).
Forsíða skýrslu Rodale Institute.
Sauðfjárslátrun er lokið þetta
haustið á Hvammstanga. Aldrei
fyrr hefur jafnmörgu fé verið
slátrað og í haust, en heildarslátr-
un er komin í 87.367 fjár. Þetta
var sjötta haustslátrun Sláturhúss
KVH ehf. og hefur fjölgun verið
öll árin.
Sagt er frá þessu á vefnum feykir.
is. Þar kemur fram að meðalvigtin
endaði í 16,2 kílóum, sem er tíu
grömmum lakara en í fyrra þegar hún
var 16,3 kíló. Boðið verður upp á tvo
sláturdaga í nóvember og desember
þar sem bændur geta komið með það
sem eftir hefur orðið.
Magnús Freyr Jónsson sláturhús-
stjóri segir í samtali við vefinn að
alls hafi 126 manns verið á launa-
skrá í sauðfjárslátruninni. Nú taki
við hrossa- og folaldaslátrun fram
að áramótum en auk þess verði naut-
gripum slátrað vikulega.
Hvammstangi:
Metslátrun