Bændablaðið - 10.11.2011, Síða 20

Bændablaðið - 10.11.2011, Síða 20
20 Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 2011 Skógræktarráðstefnan Heimsins græna gull var haldin í salnum Kaldalóni í Hörpu laugardaginn 22. október sl. Um var að ræða ráðstefnu í tilefni af Alþjóðlegu ári skóga 2011 og var hún með fjölþjóðlegu yfirbragði. Flestir fyrirlesaranna voru komnir frá nágrannalöndum okkar, en eini fulltrúi Íslands var Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri Þjóðskóga. Fundarstjóri var Aðalsteinn Sigurgeirsson, forstöðumaður Rannsóknarstöðvar skógræktar- innar á Mógilsá, og ræddi hann efni ráðstefnunnar við blaðamann. Fjölþjóðlegt yfirbragð – íslenskur undirtónn „Árið 2011 er Alþjóðlegt ár skóga hjá Sameinuðu þjóðunum og það eru tildrög ráðstefnunnar,“ segir Aðalsteinn. „Skógræktargeirinn á Íslandi stóð fyrir einni ráðstefnu í vor af þessu tilefni þar sem áhersla var lögð á Ísland og möguleikana hér í skógræktarmálum. Upplegg þessarar ráðstefnu var hins vegar alþjóðlegt og þar með gert ráð fyrir að Ísland yrði í bakgrunninum. Við skipulagninguna var þannig gert ráð fyrir því að reyna að fá einhverja heildarmynd af stöðu skógræktar í heiminum og því var for- stöðumaður innan skógræktarsviðs Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, Mette Løyche Wilkie, fengin til að halda erindi um stöðu skógarmála á heimsvísu. Hún er yfirmaður þeirrar deildar sem sér um upplýsingasöfnun frá öllum aðildarríkjunum og gerði hún m.a. grein fyrir því að skógarþekjan héldi áfram að minnka, þó dregið hefði dálítið úr því á síðasta áratug – sér- staklega í hitabeltisskógum Brasilíu, sem skiptir miklu máli. Jan Heino, formaður samninga- nefndar um lagalega bindandi milli- ríkjasamning um skóga í Evrópu, var fenginn til að veita svipað yfirlit um stöðu mála í Evrópu og svo vildum við kynnast aðstæðum í tveimur nágrannalöndum okkar, menningar- lega og landfræðilega, sem þó eru mjög ólík. Annars vegar talaði Monika Stridsman, skógræktarstjóri Svíþjóðar, undir yfirskriftinni Frelsi með ábyrgð í sænska skógræktargeir- anum. Svíþjóð er mikið skógarríki þar sem um 70% landsins eru skógi vaxin og skógariðnaðurinn stendur undir drjúgum hluta þjóðarframleiðslu og útflutningsverðmæta. Hins vegar talaði Aine Ni Dhubháin frá Írlandi, sem er nokkuð nálægt okkur í skóg- ræktarlegu tilliti. Eins og Ísland var Írland skóglaust land fyrir um einni öld, en síðan hafa Írar aukið skógar- þekjuna jafnt og þétt – sérstaklega á allra síðustu áratugum. Í máli Aine kom fram að Írar hafi nú náð um 11% skógarþekju en árið 1996, þegar skógarþekjan var um 7%, var stefnan sett á að hún næði 17% árið 2040.“ Þröstur Eysteinsson var svo síðast- ur á mælendaskrá og segir Aðalsteinn að það hafi alveg verið við hæfi að ramma hina fjölþjóðlegu umræðu inn með samanburði við íslenskar aðstæð- ur. Þröstur fjallaði þar um íslenska skógrækt í sögulegu ljósi og um leið hina miklu vannýttu möguleika sem Íslendingar byggju yfir. Þeir væru ríkir af skóglausu landi og ættu að njóta þess að vera í þeirri aðstöðu að geta aukið útbreiðslu skóga til að ná mark- miðum í loftslagsmálum. Mikil verðmæti tapast í hitabeltinu Í erindi Mette Wilkie kom fram að áfram er mesta skógareyðingin í hita- beltinu. Á norðurslóðum, hjá þeim þjóðum þar sem almenn velmegun er, hafa skógar hins vegar verið að breiða úr sér – sérstaklega í Evrópu. Þá hefur á sumum stöðum í Asíu, sérstaklega Kína, orðið mikil aukning í skógrækt. Heldur hefur dregið úr skógareyðingu á síðustu tíu árum miðað við tíu árin þar á undan. Árin 1990 til 2000 nam skógareyðingin 8,3 milljónum hektara á ári, en næstu tíu árin var hún 5,2 milljónir hektara. Aðalsteinn segir skógareyðinguna í hitabeltinu einnig áhyggjuefni vegna þess að þar séu svæði í hættu sem eru í raun vagga lífræðilegrar fjölbreytni skóga í heim- inum. Skógarnir sem koma í staðinn, hvort sem um er að ræða á norður- slóðum eða í Kína, geta ekki fyllt það skarð sem eyðing hitabeltisskóganna hefur í för með sér í tilliti lífræðilegrar fjölbreytni. Það er því hætta á því, með eyðingu regnskóga t.a.m. í Brasilíu og Indónesíu, að við taki vistkerfi sem er mun rýrara og fábreyttara. Í lok erindis síns birti Mette Wilkie forvitnilega tölfræði sem ætti að ein- hverju leyti að geta glatt íslenskt áhugafólk um skógrækt, þrátt fyrir erf- iðan mótbyr á stundum. Þar kom fram að Ísland er í öðru sæti á heimsvísu þegar tekið er tillit til hlutfallslegrar aukningar á nýskógrækt. Einungis Franska Pólýnesía er ofar á þeim lista. Aðalsteinn segir þó ekki mega taka þessa tölfræði of hátíðlega, þar sem Ísland hafi auðvitað verið sérlega skógarlítið land miðað við önnur lönd þegar þessar mælingar hófust fyrir um áratug. Ísland hefur á þessum tíma bætt við sig um 6% skógarþekju. Sem fyrr segir beindi Jan Heino sjónum eingöngu að Evrópu og gaf hlutfallslegt yfirlit um ýmsar hliðar skógræktar í álfunni. Þar kemur í ljós að mikill munur er á skógar- þekju landa sunnan til miðað við á Norðurlöndunum. Mörg lönd í Suður- Evrópu hafa mjög litla skógarþekju en nágrannalönd Íslands eins og Svíþjóð, Finnland og Noregur eru mikil og rótgróin skógræktarlönd. Ísland sker sig þó úr, með einungis um 0,4% skógarþekju og vermir botnsætið, en Finnland er andstæðan með um 76%. Almennt má segja um Evrópu að þar hafi aukning á skóglendi verið um 800 þúsund hektarar á ári – sl. 20 ár – vegna nýskógræktar eða sjálf- græðsluskóga. Þar af eru um 1.000 til 1.500 hektarar hér á landi. Í máli Heino kom fram að 70% af nýtingu skóga í Evrópu er nýting á trjáviði. Stærsti hluti þeirra 30% sem eftir standa er nýttur í tengslum við ferðamennsku og náttúruskoðun. Eignarhaldi skóga í Evrópu er almennt nokkuð jafnt skipt milli ríkis og einkaaðila. Íslenskir skógar eru meðal þeirra sem eru hvað mest í einkaeign, eða um 70%, og í Vestur-Evrópu er eignarhald skóga almennt í þá veru. Í Austur-Evrópu eru skógar meira í ríkiseign og í Sviss eru þjóðskógar nánast 100% af skógum landsins. Framtíðarsýn evrópskra skóga er fögur Heino er sem fyrr segir formaður samninganefndar um lagalega bind- andi milliríkjasamning um skóga í Evrópu. Nokkur tími fór því í að greina frá störfum þessarar nefndar, en unnið er út frá yfirskriftinni Evrópskir skógar 2020. Þar er lagt út af þeirri framtíðarsýn að evr- ópskir skógar verði mikilvægir til framleiðni og fjölnytja og leggi sinn skerf af mörkum til sjálfbærrar þró- unar samfélaga; til velfarnaðar fyrir mannfólk og hagþróun í heiminum. Helstu markmiðin sem eiga að nást með þessum samningi eru þríþætt: sjálfbær nýting skóga, að viðhalda og auka skógarauðlindir og tryggja að skógar standist loftslagsbreytingar og svo á að auka þanþol skóga gagnvart náttúruhamförum og vernda gagnvart ýmsum ógnum. Aðalsteinn segir að þessi sameigin- lega skógastefna hafi verið í undir- búningi í um 20 ár og hefur Ísland tekið fullan þátt í því starfi. Gagnvart Íslandi er kannski mikilvægast í mark- miðum nefndarinnar að stórauka hlutverk skóga í mótvægisaðgerðum gegn loftslagsbreytingum. Stefnt er að því að samningurinn verði undir- ritaður í lok næsta árs. Fjórir fundir verða haldnir fram að þeim tíma og mun sá fyrsti þeirra verða haldinn nú í nóvember í Genf. Gagnrýni á neikvæðni og afturhald Þröstur Eysteinsson rakti fremur dapurlega sögu skóga á Íslandi í stuttu en skýru máli. Hann gerði grein fyrir því hvernig stórvaxnir skógar, ríkulegur botngróður og víð- áttumikið kjarr hefðu hopað fyrir kröfum manna um beitarland og byggingartimbur, vegna kolagerðar og smíða á verkfærum. Þá sótti búfé fæðu sína æ meira í skóga og fram undir 1950 var skógviður notaður til að elda mat. Skógarnir gátu því ekki endurnýjað sig. Jarðvegsrof og eyðimerkurmyndun fylgdu í kjöl- farið. Hann sagði Ísland hafa verið í sömu stöðu og nágranna þess, en endurheimt skóga síðan hefði gengið mun hægar á Íslandi. Erindi Þrastar var býsna bein- skeytt gagnrýni á neikvætt við- horf Íslendinga gagnvart skógrækt. Framan af 20. öld hefði almenn fátækt verið ástæða fyrir hægagangi í skógrækt, en síðan hefði málið snúist um að reyna að sannfæra Íslendinga um að tré gætu vaxið hér á landi yfir höfuð – og enn eimdi eftir af þeirri hugsun hér á landi. Máli sínu til stuðnings, og því að skógrækt væri að ýmsu leyti ákjósan- leg hér á landi, tók Þröstur dæmi um að minnsta kosti fjórar trjátegundir yxu jafn vel eða betur á Íslandi en aðal timburtrén yxu í Skandinavíu á sömu breiddargráðum – þar sem úrvinnsla skógarafurða er stærsta atvinnugreinin. Hann sagði að það væri líka áhugaverð staðreynd að skógar, sem urðu til við aðeins lítið brot af mjög svo takmarkaðri gróður- við grisjun að skila um 100 milljónum króna í brúttótekjur á ári og skapa um 15 ársverk. Það væri merkilegt að hugsa til þess að þetta væri grisjun á landsvæði sem væri einungis um 80 hektarar, en það samsvaraði svæði sem væri álíka stórt og Öskjuhlíðin að viðbættum Fossvogskirkjugarði. Trén sem eftir yrðu héldu áfram að vaxa næstu áratugina og marfalda verð- mæti sitt. Við þessa grisjun opnast skógarnir og verða betri til útivistar og lífríkið verður fjölbreyttara. Sagði Þröstur að ef Íslendingar ættu í dag 200.000 hektara af slíkum skógum – og við grisjuðum eða felldum 3% þeirra á hverju ári – gæfi það um tvö þúsund ársverk og það munaði um minna í okkar litla samfélagi. Sagði hann að 200.000 hektarar væru aðeins um 2% af Íslandi og við gætum auðveldlega komið okkur upp slíkri auðlind á komandi áratugum – og raunar miklu stærri – án þess að ganga á önnur gæði lands, svo sem kornræktarland, útsýni, fornleifar eða mófuglastofna. Það væru engir raunverulegir árekstrar þar á milli. Þröstur lagði áherslu á að við þyrft- um að snúa vörn í sókn í skógrækt á Íslandi. Í samanburði við nágranna- lönd okkar – þau lönd sem hafa til- tölulega litla skógarþekju – værum við ekki nálægt þeim þegar kæmi að markmiðunum. Á það bæði við um markmið á stærð skógarþekjunnar og eins hraða skógræktunarinnar. Íslendingar hafa það markmið að klæða 5% af láglendinu skógi, en ólíkt því sem gerist hjá nágrönnum okkar eru ekki tiltekin tímamörk á því markmiði. Hefur Þröstur reiknað út að miðað við núverandi hraða á gróður- setningu muni taka um 250 ár að ná því takmarki. Því sé helst um að kenna að ríkisframlög til skógræktar hafi dregist saman um helming að raun- virði frá 2004 og einungis helming þess sé hægt að skýra með efnahags- hruninu. Þetta hafi gerst þrátt fyrir að við höfum haldið því fram, á vettvangi loftslagssáttmála Sameinuðu þjóð- anna, að nýræktun skóga væri mikil- vægur þáttur í viðbrögðum okkar í loftslagsmálum og að við myndum gera ráð fyrir henni óbreyttri frá því sem var árið 2005. Íslandi ríkt af skóglausu landi Það að Ísland sé ríkt af skóglausu landi gefur Íslendingum mikla möguleika, að mati Þrastar, sem aðrar þjóðir hafa ekki. Við höfum þannig tækifæri til að ná markmiðum í loftslagsmálum auk möguleika til iðnaðarnota og fram- leiðslu á byggingartimbri – sem gætu gert skógrækt sjálfbæra á Íslandi. Þröstur segir að það eina sem okkur skorti sé vilji; það sé ekki lengur afsökun fyrir því að vera á móti skógrækt að okkur skorti sönnun þess að hún sé möguleg hér á landi í miklum mæli. Við gætum, ef við vildum, orðið kolefnishlutlaus þjóð með nýræktun skóga einni. Eðlilegra væri þó að skógræktin bæri helming þeirrar ábyrgðar, sem þýddi nýræktun skóga á um 5% af landinu. Hann segir að ef við viljum geti Ísland orðið útflytjandi skógarafurða í stað þess að vera einn mesti innflytjandi heims þeirra miðað við höfðatölu. /smh Skýringarmynd frá Mette Wilkie. Hér sjást nettóbreytingar á skógarþekju á árunum 2005-2010. Miðað er við fjölda hektara á ári. Á myndinni sést að skógareyðingin er mest í Brasilíu, Indónesíu og Ástralíu, en nýrækt mest í Kína. Á þessari skýringarmynd frá Jan Heino má sjá hlutfall skógarþekju í löndum Evrópu. Ísland er ekki á listanum en væri þar langneðst með um 0,4%. Skógræktarráðstefnan Heimsins græna gull var haldin Hörpunni: Ísland er eftirbátur nágranna sinna – verðmætasköpun í skógrækt hér á landi ómarkviss, að mati sviðsstjóra Þjóðskóga Mette Løyche Wilkie. Jan Heino. Þröstur Eysteinsson.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.