Bændablaðið - 10.11.2011, Side 21
21Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvermber 2011
Víða um heim vex nú eftirspurn
eftir lífmassa til orku- og efna-
framleiðslu. Þetta á meðal annars
rætur í þeirri ákvörðun margra
iðnvæddra þjóða að auka hlut inn-
lendra og sjálfbærra orkugjafa í
heildarorkunotkun. Þannig hafa
bæði ESB og Bandaríki Norður-
Ameríku sett sér það markmið að
allt að 20% orku í samgöngum og
flutningum komi frá endurnýjan-
legum orkugjöfum árið 2020.
Áætlað er að stórauka orkufram-
leiðslu með lífmassa frá landbúnaði
og skógrækt. Nú sem stendur er líf-
eldsneyti (t.d. etanól og olía) fyrir
vélar og farartæki einkum fram-
leitt úr maís og repju, sem ræktað
er á frjósömu akurlendi. Þetta hefur
verið gagnrýnt á þeim forsendum að
orkuefnaframleiðslan keppi um land
við matvælaframleiðsluna. Margir
telja æskilegt að framleiða lífelds-
neyti fremur úr skógarafurðum og
þá gjarna úr skógi á rýru landi. Þrátt
fyrir þetta er þróunin víða sú að rækta
hraðvaxta tré og runna á góðu landi
þar sem auðvelt er að beita vélum við
ræktun og uppskeru. Sé ætlunin að
fá hátt hlutfall af viði í lífmassanum
eru gjarna notaðar aspir í tempraða
beltinu en tröllatré (Eucalyptus) þar
sem heitara er. Slík ræktun getur
gefið af sér borðvið auk lífmassans.
Skógrækt sem fyrst og fremst
miðar að lífmassaframleiðslu, og
mætti nefna akurskógrækt, hefur
mun styttri ræktunarlotu en skógrækt
sem ætluð er til timburframleiðslu.
Algeng ræktun varir í 3-20 ár. Ræktun
í 3-8 ár nefnist á ensku short rotation
coppice (SRC) og hefur verið nefnd
teinungarækt, og ef ræktunarlotan
er 8-20 ár er skógræktin nefnd short
rotation forestry (SRF), sem gæti
kallast skógrækt með stutta lotu eða
skammlotuskógrækt. Víðiræktun í
Svíþjóð og á Englandi er dæmigerð
teinungarækt þar sem venjulega er
uppskorið á þriggja ára fresti og upp-
skeran kurluð í heilu lagi.
Trjákenndur lífmassi er einnig
framleiddur úr öðrum plöntum en
trjám. Víða er korn- eða grashálmur
nýttur til framleiðslunnar. Sem
dæmi um orkugrös má nefna fílag-
ras (Miscanthus) og „switchgrass“
(Panicum virgatum). Það fer eftir
ýmsu hvað hentugast er að rækta.
Má þar nefna gerð ræktunarlands,
efnasamsetningu lífmassans sem á að
framleiða, hvaða orkuefni á að fram-
leiða og svo hvaða framleiðsluað-
ferðir er hentugt að nota. Stundum er
framleiðslan brennd beint, stundum
er hún gerjuð í etanól og svo er einnig
hægt að framleiða viðarkol, olíu, gas
o.fl.
Því fylgja ýmsir kostir að nota
trjágróður til þess að framleiða líf-
massa. Stofnkostnaður kann að vera
svipaður og við aðra ræktun, en rækt-
unin sjálf er nánast viðhaldsfrí. Trén
og runnarnir endurnýja skóginn með
rótar- eða stofnsprotum eftir að upp-
skorið er og því sparast plöntunar-
kostnaður. Tekjur skila sér þó síðar
en þegar einærar eða vetrareinærar
tegundir eru ræktaðar. Fjölær orku-
grös gefa heldur ekki fulla uppskeru
fyrr en nokkrum árum eftir sáningu
eða útplöntun.
Það er á margan hátt auðveldara
og ódýrara að stofna til lífmassaskóg-
ræktar á Íslandi en í grannlöndum
okkar. Má þar nefna að ekki þarf að
girða fyrir nagdýr og hjartardýr, en
þau dýr eru mikill Þrándur í Götu
ræktunar lauftrjáa víða um heim.
Einnig er illgresisvandi mun minni
hér en víðast hvar annars staðar.
Hver er staðan hér á landi?
Skemmst er frá því að segja að
skógrækt eins og hér hefur verið lýst
er ekki hafin hér á landi, né heldur
ræktun annarra orkuplantna að
undanskildri ræktun á repju í litlum
mæli. Aðstæður til ræktunar á orku-
skógi eru samt sem áður að mörgu
leyti góðar. Fyrst og fremst má þar
nefna að landrými er töluvert, og ekki
þarf að nýta allt land til fóðurfram-
leiðslu. Þorbergur Hjalti Jónsson og
Björn Traustason á Mógilsá hafa gert
úttekt á stærð lands sem hægt væri
að nýta til iðnviðarræktunar og er
í minna en hundrað kílómetra fjar-
lægð frá núverandi og áformuðum
kísiljárnverksmiðjum á Suður- og
Vesturlandi. Þessar tölur eru sem hér
segir. Framræst mýri er 139 þúsund
hektarar, graslendi, mói og hálfgróið
og lítt gróið land er 128 þúsund ha að
flatarmáli og tún eru 67 þúsund ha.
Samtals eru því 334 þúsund hektarar
á svæðinu hæfir til ræktunarinnar.
Að sjálfsögðu verður allt þetta land
ekki nýtt á þennan hátt, t.d. má strax
draga túnastærðina frá þessari tölu.
Ekki er heldur auðvelt að átta sig á
hve áfjáðir landeigendur verða í að
hefja ræktun iðnviðar. Ef fjórðungur
af óræktuðu landi yrði nýttur til iðn-
viðarskógræktar, mundi það nema
um 67 þúsund ha, sem er jafn stórt
núverandi ræktarlandi á þessu svæði.
Þörf fyrir iðnvið
Hver er þá þörfin fyrir iðnvið? Miðað
við lágmarks viðarþörf verksmiðja
á Grundartanga, í Helguvík og við
Þorlákshöfn þyrfti að rækta skóg á
40 þúsund ha. Ef viðurinn ætti að
koma í stað innfluttra kola og koks
þyrfti skóg á 255 þúsund ha, sem
þýddi í raun að allt óræktað land á
Suður- og Vesturlandi yrði að taka
undir skógrækt.
Þá má spyrja: Af hverju að binda
sig við innan við 100 km fjarlægð
frá verksmiðjunum? Skýringin á
þeirri tölu er að flutningskostnaður
frá skógi til verksmiðju yrði líklega
viðráðanlegur innan þessara marka.
Viður og viðarkurl er dýrt í flutningi.
Verksmiðjan á Grundartanga flytur
því mikið inn af kolum og koksi,
sem mun hagkvæmara er að flytja
en við. Ef framleidd væru viðarkol
úr skógarafurðum utan þess svæðis
sem áður er rætt um, væri hægt að
stækka svæði til ræktunar á iðnviði
töluvert, vegna þess að viðarkolin eru
hagkvæmari í flutningi. Flutningur
með skipum gæti líka reynst ódýrari
en landflutningur.
Heppilegar trjátegundir
Til framleiðslu á iðnviði er hægt að
nota margar tegundir barr- og lauf-
trjáa. Sjálfsagt er að nýta grisjunar-
við úr greni- og furuskógum, eins
og gert var í Skorradal á síðasta ári.
Ef ekki þarf að afbarka viðinn þarf
ekki að gera miklar kröfur um að
trén séu beinvaxin. Þá mætti nota
víði, gráelri, birki og reynivið.
Sólarkísilframleiðsla gerir hins vegar
kröfu um að viðurinn sé afbarkaður
og til þess þarf beina boli, og þeir fást
aðeins með gæðaræktun á barrtrjám
eða ösp. Hér á landi er alaskaösp
sú tegund sem líklega hentar best í
iðnviðarframleiðslu. Hún vex hratt
á góðu landi, er auðveld í fjölgun
og lítil afföll verða á gróðursettum
plöntum. En klónavalið þarf að
vanda.
Asparrannsóknir og kynbætur
Verulegir fjármunir og mikil vinna
hefur verið lögð í klónatilraunir og
kynbætur á alaskaösp hér á landi.
Í tengslum við iðnviðarverkefni
sem hófst í lok níunda áratugarins
voru lagðar út tilraunir um land allt
á vegum Rannsóknastöðvar skóg-
ræktar á Mógilsá. (Um þessar til-
raunir má lesa í grein eftir Aðalstein
Sigurgeirsson í Skógræktarritinu
2001.) Kynbætur sem byggðu á því
að víxla saman klónum hófust þá
einnig, en í kjölfar þess að asparryð
fannst hér árið 1999 var hrundið af
stað stóru kynbótaverkefni sem enn
stendur yfir. Árið 2007 voru svo fram-
leiddir tegundablendingar af ösp, sem
vonir standa til að vaxi enn hraðar en
alaskaösp. Úr öllum þessum efniviði
er nú verið að velja efnilega klóna til
prófunar. Tilraunareitir sem lagðir
voru út í skóginum í Þrándarholti
(Sandlækjarmýri) í Gnúpverjahreppi
í byrjun tíunda áratugarins veita
nú verðmætar upplýsingar fyrir
iðnviðarverkefnið, sem unnið er í
samvinnu Rannsóknastöðvarinnar
á Mógilsá og járnblendiverksmiðju
Elkem á Grundartanga. Mælingar
og útreikningar sýna að reikna má
með að 20 ára skógur sé tilbúinn til
sölu sem iðnviður fyrir kísiliðnaðinn.
Viðarmagn í slíkum skógi gæti verið
á annað hundrað rúmmetrar á hekt-
ara. Í framtíðinni væri hægt að auka
viðarmagnið eða stytta ræktunarlot-
una með notkun vaxtarmeiri klóna.
(Sjá nánar í grein um ösp á Íslandi
eftir Halldór Sverrisson, Fræðaþingi
landbúnaðarins 2011, í greinasafni á
landbunadur.is.)
Fjölþætt notagildi
Þótt hér hafi mest verið rætt um
markað fyrir iðnvið, er líklegt að
eftirspurn verði eftir viði til margra
annarra hluta. Viðarkurl verður hér
eftir sem hingað til eftirsótt sem
undirburður undir búfé og sem efni
í stíga. Á köldum svæðum er hægt
að nota viðarkurl til húshitunar, en
það er nú þegar gert á Hallormsstað.
Veitingastaðir sækjast eftir viði í
bökunarofna og ef trjábolir ná vissum
gildleika nýtast þeir sem smíðaviður,
girðingaefni o.fl. Einnig má nefna
að á bændabýlum verður hægt að
skipuleggja skógræktina þannig að
skógurinn skýli búfé og ræktunar-
landi. Í lok 15-20 ára ræktunarlotu
verða því margir möguleikar á að
koma framleiðslunni í verð og ef
þá er hagkvæmt að nota landið til
annars, er hægur vandi að fjarlægja
stubba og rætur með þar til gerðum
búnaði og kurla sem eldivið eða til
að nota í undirburð eða stígagerð.
Ekki má heldur gleyma því að
kolefnisbinding er mikil í hraðvaxta
skógi. Ef til vill verða kolefniskvótar
verðmæt verslunarvara í framtíðinni
og jafnvel þótt viðurinn væri nýttur
til brennslu, er þar um kolefnishlut-
laust eldsneyti að ræða.
Halldór Sverrisson, Þorbergur
Hjalti Jónsson og Aðalsteinn
Sigurgeirsson
Höfundar eru starfsmenn
Landbúnaðarháskóla Íslands og
Rannsóknastöðvar Skógræktar
ríkisins á Mógilsá.
Stórfelldur markaður fyrir viðarmassa
Með trjákynbótum má auka vaxtar-
hraða. Myndin sýnir ösp á öðru ári
eftir gróðursetningu.
Tæplega tvítugur skógur í Biskupstungum. Á mörgum bújörðum er land sem taka má undir skógrækt.
Smíðum glugga, hurðir og opnanleg fög í
þeim stærðum og gerðum sem henta þér.