Bændablaðið - 10.11.2011, Qupperneq 22

Bændablaðið - 10.11.2011, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 2011 Fróðleiksbásinn Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur Viðsældir ávaxtatrjáa hafa aukist mikið undanfarin ár og margir náð undraverðum árangri í ræktun þeirra. Epli minna mig alltaf á jólin og þar sem nú stytt- ist í hátíð ljóssins er ekki úr vegi að fjalla um epli og eplarækt í þessum fyrsta pistli mínum um garðyrkju hér í Bændablaðinu. Fyrir tæpum fimmtíu árum, þegar ég var barn, þótti stórkost- legt að fá epli í skóinn og einu sinni á ári kom faðir minn, sem var þjónn á MS Gullfossi, með kassa af rauðum „Delicious“ eplum frá Kaupmannahöfn og þá var eplalykt í húsinu og hátíð í bæ. Þess á milli heyrði maður um epli í ævintýrum og goðsögum. Í norrænni goða- fræði er talað um gullepli Iðunnar sem viðhélt æskublóma ásanna en í þeirri grísku fleygði gyðjan Eris epli til Heru, Afródítu og Aþenu og á því stóð „til hinnar fegurstu“. París var fenginn til að skera úr um hver þeirra skyldi fá eplið og væri fegurst. Hann valdi Afródítu vegna þess að hún lofaði honum fegurstu konu jarðar, þannig fékk hann Helenu fögru og það var upphafið að Trójustríðinu. Vonda stjúpan gaf Mjallhvíti eitrað epli sem endaði í stórfurðulegri atburðarás og ekki voru afleiðingarnar minni þegar Eva gaf Adam eplið af viskutrénu. Það eru sem sagt til viskuepli, ástarepli, Adamsepli, þrætuepli, epli góðs og ills og svo að sjálfsögðu matepli. Gróft áætlað eru til 7500 mis- munandi tegundir og yrki af eplum sem eru mjög ólík að stærð og bragðgæðum. Sum eru safarík og góð en önnur agnarsmá og grjót- hörð undir tönn og einungis ræktuð til skrauts. Í fyrstu eru öll epli græn og ljóstillífa en þegar þau þroskast eyðist blaðgrænan og eplin verða gul eða rauð. Upprunalegur vaxtarstaður epla er Kasakstan og fjalllendi Mið- Asíu og í náttúrulegum heimkynn- um sínum ná eplatré 8 metra hæð. Þurfa sól og skjól Eplatrjám eins og öðrum ávaxta- trjám, perum, plómum og kirsi- berjum, sem ætlunin er að fjalla um seinna í þessum pistlum, þarf að velja góðan stað í garðinum. Best er að koma þeim fyrir við suðurvegg og í góðu skjóli. Gott er að blanda hæfilegu magni af líf- rænum áburði í jarðveginn áður en eplatré eru gróðursett. Framræsla þarf að vera góð og gott er að jarðvegurinn sé eilítið sendinn. Við gróðursetningu skal gera svolítinn kúf á jarðveginn og planta trénu þannig að það standi aðeins ofar en jarðvegurinn í kring og það má alls ekki gróðursetja trén dýpra en þau stóðu áður. Nauðsynlegt er að setja staur niður með trénu til að styðja við það fyrstu árin. Eftir að eplatré hafa komið sér fyrir eru þau nægjusöm og nóg að kasta nokkrum kornum af áburði í jarðveginn í kringum þau tvisvar til þrisvar yfir sumarið. Gott er að vökva þau reglulega í þurrkatíð, sérstaklega á meðan aldinin eru að vaxa. Ávaxtatré þola vel klippingu en óþarfi er að klippa þau mikið nema hugmyndin sé að móta þau sérstaklega. Hæfilegt bil á milli trjáa er 3 til 5 metrar. Ræktuð eplatré eru undan- tekningalaust ágrædd. Það þýðir að ofanjarðarhlutinn, sem er fram- ræktað yrki, er græddur á rót af villieplatré. Ástæðan fyrir þessu er sú að rót framræktaðra yrkja er lélegri en villirætur. Rætur villiepla eru mismunandi og kallast rótar- stofnar. Algengustu rótarstofnar epla kallast M27, M9 og M26 en gerð rótarstofnsins ákvarðar hæð trésins. Ágræðslan er yfirleitt gerð í 20 sentímetra hæð frá rótarháls- inum. Nauðsynlegt að velja góð yrki Forsenda þess að vel takist til með ræktunina er að velja yrki sem reynst hefur vel. Yrki eru plöntur sem fjölgað er kynlaust og allir afkomendur eru sömu arfgerðar og móðurplantan. Plönturnar eru valdar til ræktunar vegna sérstakra eiginleika, hversu harðgerðar þær eru eða vegna mikillar uppskeru, bragðgæða eða blómfegurðar. Reynslan af yrkjunum er mis- munandi en mörg þeirra lofa góðu. Yrki sem vanir eplaræktendur, eins og Jón Guðmundsson á Akranesi, mæla með og hafa þroskað aldin hér á landi eru flest upprunnin frá Noregi, Svíþjóð, Kanada og Finnlandi og heita „Sävstaholm“, „Carroll“, „Haugmann“, „Melba“, „Quinte“ og „Huvitus“. Frjóvgun og aldinmyndun Frjóvgun blómanna er forsenda þess að aldin myndist og að við fáum epli á eplatrén okkar. Eplatré og ávaxtatré almennt eru það sem er kallað sjálffrjóvgandi eða ósjálf- frjóvgandi og svo eru sum yrki það sem kallað er hálfsjálffrjóvgandi. Ef um er að ræða tré sem ekki frjóvga sig sjálf verður að hafa að minnsta kosti tvö tré af ólíkum yrkjum í garðinum til að frjóvgun geti átt sér stað. Þetta stafar af því að tré sem eru af sama yrki eru í raun sama planta sem fjölgað hefur verið kynlaust. Sjálffrjóvgandi yrki eru til dæmis „Sunset“ og „Scrumptious“. Auk þess eru til hálfsjálffrjóvgandi yrki, sem þýðir að þau geta frjóvgað sig sjálf en eru betri með öðrum yrkj- um. Dæmi um það eru „Transparent Blanche“ og „James Grieve“. Einnig eru til yrki með þrjá litninga en þau eru ónothæf til að frjóvga með, dæmi um það eru „Close“, „Gravenstein“ og „Jonagold“. Á svokölluðum fjölskyldutrjám eru fleiri en eitt yrki grædd á eina rót og þannig næst uppskera yfir lengri tíma og fjölbreytni í bragði og lit. Gallinn við fjölskyldutré er að ef eitt yrkið er mjög kraftmikið getur það vaxið fram úr öðrum og orðið ráðandi. Til að eplatré, sem ekki frjóvga sig sjálf, frjóvgist þarf að minnsta kosti tvö ólík yrki sem blómstra á svipuðum tíma. Sjálfur mundi ég ekki treysta því að eplatré frjóvgi sig sjálf, skiptir þá engu hvort þau eru sögð sjálffrjóvgandi eða ekki, og hafa frekar tvö eða þrjú ólík yrki í garðinum. Yfirleitt sjá flugur um frjóvgunina en þeir sem vilja vera alveg vissir um að frjóvgun takist bera frjókornin á milli blómanna á trjánum með mjúkum pensli eða fjöður. Garðyrkja & ræktun Eplatré í alla garða Öruggt viðhald - allra hagur Vinnuverndarstofnun Evrópu, sem staðsett er á Spáni, stendur árlega fyrir evrópsku vinnuvernd- arvikunni. Þetta sameiginlega átak Evrópuþjóða er haldið í október ár hvert en Vinnueftirlitið sér um framkvæmd verkefnisins hér á landi. Reynt er að ná víðtækri sam- vinnu um verkefnið í hverju landi. Vinnuverndarvikan verður að þessu sinni notuð til að kynna fyrir atvinnulífinu áhættumat í tengslum við viðhaldsvinnu og þá sérstaklega hvað varðar viðhald véla og tækja. Bændur hafa löngum verið þekktir fyrir að standa sjálfir að viðhaldi tækja sinna og því á þessi boðskapur erindi við þá. Landbúnaður er ein hættulegasta atvinnugrein sem fyrir- finnst og þar verða mörg vinnutengd slys. Í fyrirbyggjandi skyni er rík áhersla lögð á gerð áhættumats áður en farið er í viðhaldsvinnu. Áhættumat heitir formlega skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað, en er í daglegu tali kallað áhættumat starfa. Það er lögbundin skylda allra sem standa að atvinnu- rekstri, líka einyrkja og þeirra sem reka fjölskyldufyrirtæki, að sjá til þess að áhættumat sé unnið fyrir dag- lega verkþætti og við undirbúning viðhaldsvinnu er alveg nauðsynlegt út frá öryggissjónarmiði að gera áhættumat á verkinu áður en vinnan fer af stað. Fimm reglur við undirbúning viðhaldsvinnu (áhættumat): 1) Skipulagning á viðhaldsvinn- unni Áhættumat þarf að framkvæma. Allir sem koma að viðhaldsvinn- unni eiga að vera upplýstir um niðurstöður áhættumats fyrir verkið og þeir eiga að taka þátt í gerð áhættumats og undirbún- ingi viðhaldsverksins. Með því eykst ekki aðeins öryggi þeirra sem vinna við viðhaldið, heldur aukast einnig gæðin við vinnuna á verkinu. 2) Gera vinnusvæðið öruggt Girða þarf vinnusvæðið af til að halda hugsanlegri umferð (manna og skepna) frá því. Hægt er að nota grindur, borða eða önnur merki og tákn til að loka svæðinu. Læsa þarf vélum og tryggja að notað sé eitthvert slíkt kerfi að ekki sé hægt að ræsa vélar meðan verið er að vinna við viðhald á þeim. 3) Notkun á viðeigandi búnaði Þeir sem vinna viðhaldsvinnuna verða að hafa réttan búnað við verkið. Þeir geta þurft að vinna á svæðum sem ekki eru hugsuð til að vinna á og þeir geta lent í mjög mismun- andi hættum, sem leiðir hugann að notkun á við- eigandi pers- ónuh l í fum. Það verður að tryggja: séu aðgengileg eftir þörfum. gefi ekki frá sér neista ef unnið er í eldfimu andrúmslofti. hönnun þannig að þægilegt sé að handleika þau. 4) Að unnið sé eftir skipulagi Beita þarf réttum og öruggum vinnubrögðum og tryggja þarf að allir sem koma að verkinu hafi sameiginlegan skilning á því hvernig vinna á verkið. Fylgjast verður með því þegar á verkið líður að ávallt sé farið eftir öllum öryggisreglum. Viðhaldsvinna er oft unnin undir mikilli pressu, t.d. þegar bilun hefur stöðvað verk- efni dagsins og allt er í kyrrstöðu vegna þess. Öruggum vinnu- reglum verður að fylgja, þrátt fyrir að þrýstingurinn um að biluninni verði „reddað“ sé mikill. 5) Skoða vel og fara yfir frágang svæðisins þegar verkinu er lokið Viðhaldsferlinu lýkur með því að verkið er yfirfarið til að tryggja að öllum verkþáttum sé lokið. Rusl og drasl sem hugsanlega safnaðist saman meðan á verkinu stóð þarf að fjarlægja. Þá er hægt að lýsa yfir að viðgerð sé lokið. Svona einfalt er ferlið – en það þarf að fara í gegnum þessi fimm atriði til undirbúnings fyrir þá sem vinna eiga viðhaldsvinnuna. Vinnuverndarvikan er átak í öryggismálum í tengslum við við- haldsvinnu. Átakið beinist að atvinnurekendum og eru einyrkjar s.s. bændur í þessum markhópi. Allir sem vinna við eða þurfa að sinna við- haldi eru hvattir til þátttöku í átakinu, t.d. með því að hefja skipulega vinnu við gerð áhættumats. Viðhaldsvinna leggur menn í hættu, vinnan er áhættusöm í sjálfri sér, en að sleppa viðhaldi leggur ennþá fleiri menn í enn meiri hættu. Þeir sem viðhalda ekki vélum sínum og öðrum búnaði á fullnægjandi hátt eða hunsa öryggi í kringum vélar og tæki taka stóra áhættu á stórkostlegu tjóni. Inghildur Einarsdóttir Vinnuvistfræðingur M.Sc. deildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu Inghildur Einarsdóttir

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.