Bændablaðið - 10.11.2011, Side 23
23Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvermber 2011
útiljósakastarar
Hágæða
Margir uppsetnigamöguleikar
w
w
w
.e
xp
o.
is
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
ir
t m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
o
g/
e
ða
m
yn
da
br
en
gl
.
Nánari upplýsingar í síma 515 4040
eða lagnadeild@byko.is
Vnr. 11102-7 SVDGP333 CDMTD150W/942 IC A-NB-
Kastari
PHILIPS útikastari, 150W,
malmhalógen pera fylgir.
Stærð 52x32x22 cm.
150W malmhalógen pera fylgir!
Á aðalafundi Eyþings, sam-
taka sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslu sem haldinn var
fyrir nokkru var stjórn falið að
setja saman vinnuhóp sem á að
gera tillögur að aðgerðum til að
stemma stigu við útbreiðslu skógar-
kerfils og bjarnarklóar á svæðinu.
Vinnuhópurinn á einnig að
semja greinargerð um mögulega
aðkomu Eyþings, fyrir hönd aðildar-
sveitarfélaganna, að öðrum þáttum
umhverfismála, s.s. málefnum sjálf-
bærrar þróunar, loftlagsmálum, norð-
urslóðamálum og umhverfismennt.
Greinargerðina skal leggja fram og
afgreiða á aðalfundi Eyþings 2012.
Aðgerðir gegn skógar-
kerfli og bjarnarkló
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
samþykkti á fundi á dögunum
að sameina Hafralækjarskóla og
Litlulaugaskóla frá og með 1. ágúst
2012 í eina stofnun með tvær starfs-
stöðvar.
Skipuð verður sérstök nefnd sem
fær það verkefni að leggja fram til-
lögur um útfærslu og koma með
hugmyndir um hvernig nýta megi þá
kosti sem skapast með þessari sam-
einingu þannig að faglegur ávinningur
verði af. Ekki munu vera uppi nein
áform um að fækka starfstöðvum
eða segja upp fólki samhliða þessum
breytingum á yfirstjórn skólamála.
Stórutjarnaskóli mun starfa áfram
sem sérstök stofnun.
Skólar sameinaðir
í Þingeyjarsveit
Áhersla var lögð á nauðsyn þess
að stytta hringveginn á aðalfundi
Eyþings, samtaka sveitarfélaga í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslu sem
haldinn var á dögunum.
Í ályktun sem samþykkt var
á fundinum segir að fyrir liggi að
stytting hringvegarins sé þjóðhags-
lega hagkvæm og að framkvæmdin
þjóni því heildarhagsmunum íbúa og
fyrirtækja í landinu.
Á fundinum var einnig rætt um
ýmis verkefni á sviði samgöngumála
sem Eyþing leggur áherslu á að farið
verði í, enda séu þau mikilvæg fyrir
framþróun og hagsmuni landshlut-
ans í heild. Þeirra á meðal er gerð
iðnaðarvegar frá Húsavíkurhöfn að
iðnaðarsvæðinu á Bakka, flughlað á
Akureyrarflugvelli, Dettifossvegur,
frá Dettifossi að Ásbyrgi, snjóflóða-
varnir á milli Dalvíkur og Ólafsfjaðar
og ný brú á Jökulsá á Fjöllum.
Fundurinn benti einnig á að mikil-
vægt væri að byggja nýja brú yfir
Skjálfandafljót, á vegi 85 og eins að
leggja nýjan veg milli Þórshafnar og
Bakkafjarðar.
Vilja stytta hringveginn
Júlíus nýr formaður ERL
Eigenda- og ræktendafélag land-
námshænsna (ERL) hélt aðal-
fund sinn í Bændahöllinni þann
5.nóvember sl.
Nýr formaður félagsins er Júlíus
Már Baldursson, Tjörn á Vatnsnesi.
Valgerður Auðunsdóttir Húsatóftum
er gjaldkeri og Guðný Linda
Gísladóttir Dalsmynni ritari.
Samþykkt var að sækja um aðild
að samningi UNESCO um varð-
veislu menningarverðmæta vegna
landnámshænunnar en með þátttöku
í þessum samningi er það tryggt að
íslenska landnámshænan verður talin
með á lista yfir menningarverðmæti
íslensku þjóðarinnar þegar íslenska
ríkið leggur fram sinn lista á næsta
þingi Menningarmálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna.
Þá var lögð fram tillaga um að
stofnuð verði þriggja manna nefnd,
sem hafi það hlutverk fram að næsta
aðalfundi ERL að skilgreina og
lýsa einkennum íslensku landnáms-
hænunnar. Jafnframt vinni nefndin
að gerð veggspjalds í samvinnu við
Bændasamtök Íslands sem nú þegar
hafa verið lögð drög að. /smh