Bændablaðið - 10.11.2011, Page 25

Bændablaðið - 10.11.2011, Page 25
25Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvermber 2011 Skiptar skoðanir í ESB um erfðabreytta ræktun Stjórnvöldum í Noregi bárust árið 2008 umsóknir um leyfi til innflutnings á tveimur stofnum af erfðabreyttum maís, þ.e. afbrigðunum NK603 og T25. Umsóknirnar hljóðuðu upp á að nota maísinn til framleiðslu á mat- vælum og fóðri en ekki til rækt- unar. ESB hefur veitt leyfi fyrir innflutningi á þessum stofnum en á hinn bóginn banna mörg lönd ESB ræktun þeirra hjá sér. Árið 2008 bannaði Þýskaland ræktun á stofninum T25. Ári síðar hótaði fjölþjóðafyrirtækið Monsanto að höfða mál gegn Þýskalandi þegar Þjóðverjar bönnuðu ræktun á erfða- breytta maísstofninum Mon 810. Þýskaland, Austurríki og Ungverjaland banna ræktun á erfðabreyttum maís, en Spánn, Tékkóslóvakía og Portúgal leyfa hana, en þó einungis til framleiðslu á fóðri og lífeldsneyti. Matvælastofnun ESB, EFSA, hefur komist að þeirri niðurstöðu að engar rannsóknaniðurstöður séu fyrir hendi, sem styðji bann við ræktun og notkun á erfðabreyttum maís til hvaða þarfa sem er. Í Noregi er það umhverfisráðu- neytið sem tekur ákvörðun, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, um það hvort leyfa skuli innflutning áður- nefndra stofna. Talsmaður ráðu- neytisins hefur tilkynnt að niðurstöð- unnar sé að vænta á þessu hausti og viðurkennir jafnframt að afgreiðsla málsins hafi dregist úr hófi. Á hinn bóginn séu hér í húfi langtímahags- munir neytenda og í engu megi slaka á til að tryggja þá. Nationen 22. sept. 2011. Þrjátíu og einn vísindamaður í Svíþjóð gagnrýnir löggjöf ESB um erfðabreytt matvæli: Segja lögin hindra nýtingu á hagkvæmari plöntuafbrigðum í landbúnaði Þrjátíu og einn vísindamaður við háskóla og vísindastofnanir í Svíþjóð hefur áhyggjur af því að of ströng löggjöf Evrópusambandsins kunni að koma í veg fyrir að hægt sé að nýta erfðabættar plöntur til að auka sjálfbærni í landbúnaði. Lögin hindri að hægt sé að nýta plöntuafbrigði sem séu harðger- ari gagnvart sjúkdómum, þurfi minni áburðargjöf og noti minna af dýrmætu vatni en aðrar plöntur. Hvetja þeir stjórnmálamenn til að breyta löggjöf Evrópusambandsins þar um. Eru þessar áhyggjur sænsku vís- indamannanna mjög athyglisverðar í ljósi erindis Ástralans Julian Cribb, sem hann hélt í sal Íslenskrar erfða- greiningar mánudaginn 17. október. Þar rakti hann lífsnauðsyn þess fyrir mannkynið að umbylta landbúnaði til að hægt yrði að brauðfæða jarðarbúa á komandi áratugum. Aukin beiting líftækni í landbúnaði er einmitt einn þeirra þátta sem Cribb telur nauð- synlega í baráttunni ef takast eigi að koma í veg fyrir stórfellda hungurs- neyð í næstu framtíð, þjóðflutninga og baráttu um mat og vatn víða um heim. Beiting erfðatækni er afar umdeild Beiting erfðatækni í landbúnaði til framleiðslu svonefndra erfðabreyttra matvæla (Genetically modified foods, GM eða GMO) hefur verið mjög umdeild og vísindarökum beitt í áróðri bæði með og á móti. Vegna gagnrýninnar hafa verið sett ströng lög í mörgum ríkjum til að hefta þróun í notkun erfðabreyttra jurta. Þessi umræða hefur oft verið mjög hatröm, bæði hér á landi sem og í Svíþjóð og víðar. Hérlendis hefur gagnrýnin m.a. beinst að fyrir- tækinu ORF Líftækni, sem hefur m.a. unnið að því að nýta líftæknina til að þróa aðferð til að framleiða verðmæt, sérvirk prótein í byggi til að nota í snyrtivörur og lyf. Fyrirtækið hlaut Nýsköpunarverðlaun Rannís, Útflutningsráðs og Nýsköpunarmiðstöðvar árið 2008 fyrir tilraunir sínar. Töluverð and- staða hefur þó verið við þessa starfsemi frá þeim sem telja slík inn- grip í náttúruna óskynsamleg. Sem dæmi var framið skemmdarverk á tilraunareit fyrir útiræktun fyrir- tækisins á byggi í Gunnarsholti árið 2009. ORF Líftækni hefur ræktað erfðabreytt bygg á akri frá árinu 2003 með hléum. Leyfi voru veitt til slíkrar ræktunar 2003 og 2005. Umhverfisstofnun veitti síðan ORF Líftækni leyfi árið 2009 til að rækta erfðabreytt bygg í Gunnarsholti og var leyfisveitingin byggð á ítarlegum umsögnum Náttúrufræðistofnunar Íslands og vísindamanna innan Ráðgjafarnefndar um erfðabreyttar lífverur. Var þessi leyfisveiting kærð en síðan staðfest af ráðherra og gildir hún til ársins 2013. Bandaríkin öflugust Í grein á vefsíðu www.non-gm-far- mers.com frá 2006 er sagt að eftir áratugar innleiðingu á erfðabreyttri ræktun standi fjórar þjóðir undir 99% af slíkri ræktun í heiminum. Þar séu Bandaríkin með 55% og síðan Argentína, Kanada og Brasilía með samanlagt 44%. Það þarf því ekki að koma á óvart að Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt Evrópusambandið harðlega fyrir sína ströngu löggjöf um framleiðslu á erfðabreyttum mat- vælum. Það að stór hópur vísinda- manna frá ríki eins og Svíþjóð, sem er innan ESB, komi með slíka gagn- rýni er óneitanlega athyglisvert. „Umhverfisvænni landbúnaður“ Í greinargerð sænsku vísinda- mannanna, sem m.a. er fjallað um á vefsíðunni DN.se (http://www. dn.se/ledare/huvudledare/forlegad- tekniksyn), fullyrða þeir að líftækni stuðli að umhverfisvænni landbúnaði og skógrækt í framtíðinni. Þar segir m.a. að ein af stærstu áskorununum sem blasi við mannkyninu sé að útvega fæðu, eldsneyti og hreint vatn fyrir stöðugt fleira fólk með því að beita umhverfisvænum og sjálfbærum landbúnaði og skógrækt. „Gríðarlegar framfarir hafa orðið í rannsóknum á plöntum og við skilj- um nú hvernig plöntur vaxa, hvernig þær verja sig gegn sjúkdómum og umhverfisáreiti og hvaða þættir takmarka aukna framleiðslu í land- búnaði og skógrækt. Rannsóknir hafa verið forsendur þróunar, sér í lagi í rannsóknum á erfðafræði plantna.“ Síðan segir: „Evrópsk löggjöf um erfðaverk- fræði hefur hindrað innleiðingu á þessari grunnþekkingu samhliða markmiðum um að gera landbúnað og skógrækt sjálfbær og umhverfis- væn. Þessar reglur setja mjög ströng skilyrði fyrir nýtingu fjölbreytileika í plöntum sem þróaður hefur verið með erfðaverkfræði, á sama tíma og breytileiki sem þróaður hefur verið með hefðbundinni kynblöndun er leyfður án nokkurra athugasemda. Sumir umhverfisverndarhópar sem eru á móti notkun erfðabreyttra plantna gagnrýna nýtingu erfðatækni- nnar með þeim rökum að þróunin sé tengd stórum, ráðandi fyrirtækjum, það sé óvissa um áhættuna og ekki sé hægt að nota erfðabreyttar jurtir í landbúnaði nema að auka um leið notkun tilbúins áburðar. Því muni engir græða á notkun erfðabreyttra plantna nema alþjóðleg fyrirtæki.“ Sænsku vísindamennirnir, sem starfa flestir í sænskum háskólum með stuðningi sænska rannsóknar- ráðsins, reyna að svara þessari gagn- rýni í sömu grein. Segja þeir að með beitingu líf- og erfðatækni sé hægt að ná fram stýrðum eiginleikum í plöntunum á mun skilvirkari og fljótlegri hátt en náist með kynbótum og hefðbundnum ræktunaraðferðum. Þúsundir slíkra plantna séu nú rækt- aðar á hverjum degi í sænskum háskólum. „Engin vísindaleg óvissa“ Þá segja þeir að engin vísindaleg óvissa sé um að erfðabreyttar plöntur séu hættulegri fyrir fólk og umhverfi en plöntur sem ræktaðar hafi verið með hefðbundnum aðferðum. Löggjöf um þessi mál hafi verið mótuð þegar engar áreiðanlegar og fullnægjandi tölulegar staðreyndir lágu fyrir um erfðabreyttar jurtir. Nú viti menn betur. Þá hafi um 300 milljónum evra verið veitt til 500 sjálfstæðra rann- sóknarhópa til að rannsaka þessa áhættu. Niðurstaðan hafi verið sett fram í samantektinni „A decade of EU-funded GM research“. Þar komi fram að jurtir sem ræktaðar hafi verið með beitingu erfða- og líftækni séu í sjálfu sér ekki áhættusamari en jurtir sem hafi verið erfðabættar með hefð- bundnum ræktunaraðferðum. „Við vitum að auðveldara er að hafa stjórn á breytingum sem náð hefur verið fram með lífefnatækni en breytingum sem náð er fram með öðrum hætti,“ fullyrða vísindamenn- irnir. Þeir hvetja stjórnmálamenn til að breyta lögunum. Það séu eigin- leikar plantnanna sem eigi að stjórna því hvaða plöntur eigi að vera undir eftirliti en ekki tæknin til að fram- leiða þær. Þeir telja eigi að síður að ekki eigi að afnema allt eftirlit með innleiðingu erfðabreyttra plantna. Afbrigði sem séu eitruð eða geti kallað fram ofnæmisviðbrögð eða umhverfisvandamál eigi að vera undir eftirliti stjórnvalda og sjálf- stæðra eftirlitsaðila. Slíkt eftirlit eigi þá að ná til allra varasamra afbrigða, hvort sem þau séu framleidd með erfðatækni eða ekki. Segja þeir í niðurlagi greinarinnar að þeirra hugur standi til þess að bændum heimsins verði gefinn kostur á að fá til ræktunar fræ og plöntur sem gefi mest af sér og hafi verið þróaðar með tilliti til þess að nota sem minnst vatn og tilbúinn áburð. Núverandi löggjöf komi þó í veg fyrir slíkt. Undir þessa grein rita eftirfarandi vísindamenn nöfn sín: Stefan Jansson, Catherine Bellini, Christiane Funk, Per Gardeström, Markus Grebe, Vaughan Hurry, Pär Ingvarsson, Edouard Pesquet, Göran Samuelsson, Wolfgang Schröder, Åsa Strand, Hannele Tuominen, Johan Trygg og Xiao-Ru Wang hjá háskól- anum í Umeå. Inger Andersson, Rishikesh Bhalerao, Peter Bozhkov, Christina Dixelius, Åsa Lankinen, Karin Ljung, Ewa Mellerowicz, Ove Nilsson, Jan Stenlid, Sten Stymne, Björn Sundberg, Eva Sundberg, Sara von Arnold og Gunnar Wingsle hjá Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar. Urban Johanson, Henrik Jönsson, Per Kjellbom, Christer Larsson og Carl Troein hjá Háskólanum í Lundi. Adrian Clarke, Magnus Holm, Bengt Oxelman og Cornelia Spetea Wiklund hjá Háskólanum í Gautaborg. Annelie Carlsbecker og Stenbjörn Styring hjá Háskólanum í Uppsölum. Harry Brumer hjá Konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi. Elzbieta Glaser hjá Háskólanum í Stokkhólmi. Ráðstefnan Hrossarækt 2011 Ráðstefnan Hrossarækt 2011 verður haldin á Hótel Sögu, laugar- daginn 19. nóvember og hefst kl. 13:00. Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki sem áhuga- mönnum. Ráðstefnustjóri: Víkingur Gunnarsson. Dagskrá: 13:00 Setning - Kristinn Guðnason formaður Fagráðs í hrossarækt 13:05 Hrossaræktarárið 2011 – Niðurstöður kynbótamats - Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ 13:30 Heiðursverðlaunahryssur 2011 14:10 Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins 14:15 Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins 14:20 Erindi: - Landnám hesta á eyjum Norður-Atlantshafsins, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri 14:50 Tilnefningar og verðlaun fyrir ræktunarmann/menn ársins 2011 15:10 Kaffihlé 15:30 Kynbótahross á landsmóti, framtíðarsýn, Kristinn Guðnason 15:35 Umræður í umræðuhópum um innlegg Kristins 16:05 Niðurstöður úr umræðuhópum 16:20 Umræður um ræktunarmál almennt 17:00 Ráðstefnuslit Fagráð í hrossarækt Landgræðsla ríkisins Auglýsing um styrki úr Landbótasjóði árið 2012 Landbótasjóður Landgræðslu ríkisins úthlutar árlega styrkjum til margvíslegra landbótaverkefna til landeigenda, sveitarfélaga, félaga- samtaka og annarra umráðahafa lands. Tilgangur þeirra er að færa ábyrgð og framkvæmd landgræðsluverkefna heim í héruð. Skilyrði fyrir styrkveitingu er m.a. að verkefni sem sótt er um styrk til falli að árherslum og markmiðum landgræðsluáætlunar 2003-2014. Við ákvörðun um styrkveitingar er m.a. lögð áhersla á: Æskilegt er að gerð hafi verið landgræðslu- og landnýtingaráætlum til a.m.k. 3ja ára fyrir það svæði sem ætlunin er að vinna með og við mat umsókna er m.a. tekið tillit til þess hvort svo sé. Styrkur til einstakra verkefna getur að hámarki numið 2/3 af áætl- aðum kostnaði þess. Landgræðslan veitir ráðgjöf við framkvæmd þeirra verkefna sem sjóðurinn styrkir og hefur jafnframt eftirlit með framvindu þeirra og mati á árangri. Umsóknareyðublöð Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur eru á heimasíðu Landgræðslu ríkisins (www.land.is). Einnig er hægt að fá eyðublöð, úthlutunar- reglur og nánari upplýsingar á héraðssetrum Landgræðslunnar og á skrifstofu Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti. Umsóknarfrestur er til 12. desember n.k. Umsóknir skal senda til: Landgræðsla ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella eða á netfangið land@land.is. Landgræðsla ríkisins Gunnarsholti, 851 Hella Sími 488-3000 Veffang www.land.is - Netfang land@land.is

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.