Bændablaðið - 10.11.2011, Side 31
31Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvermber 2011
Hönnunarbásinn
Við upphaf byggðar á Íslandi
bjuggu menn að heita má niðri í
jörðinni, í torfkofum og stundum
í hellum. Torfbyggingarnar voru
víða við líði sem íbúðar- og úti-
hús í sveitum landsins vel fram
á síðustu öld. Með bættum efna-
hag fóru Íslendingar smám saman
að tileinka sér byggingarmáta
útlendinga og fóru að byggja hús
sín meira upp úr jörðinni og í
átt til skýja. Nýjustu hugmyndir
í arkitektúr benda þó til að nú séu
menn af illri nauðsyn aftur farnir
að huga að því að grafa byggingar
sínar niður í jörðina. Það er þó
með talsvert mikilfenglegri brag
en bændur í íslenskum sveitum
byggðu hús sín á öldum áður.
Hópur arkitekta hjá BNKR
Arquitectura í Mexíkóborg hefur
hannað 65 hæða gler- og stálpýra-
mída sem hugmyndin er að byggður
verði „á“ hinu sögufræga Zocalo-
torgi í miðri borginni, sem er eitt
stærsta borgartorg í heimi.
Fyrsti jarðkljúfurinn
Ef af þessum byggingaráformum
verður mun fólk samt ekki sjá neina
byggingu þegar það gengur um
torgið því hún á öll að vera neðan-
jarðar, og heila 300 metra niður í
jörðina. Verður þetta þar með fyrsti
jarðkljúfurinn, eða „earthscraper“ í
heiminum og algjör andstæða við
skýjakljúfana, sem á ensku kallast
„skyscrapers“ eða skýjaskraparar.
Byggingin sem hugmyndin er
að smíða (varla er hægt að tala um
að reisa niður í jörðina) mun, ef af
verður, verða 300 metrar á hæð, 65
hæðir og byggð úr stáli og gleri.
Þar eiga að vera söfn, verslanir og
skrifstofur.
Hönnuninni snúið á haus
Byggingin í Mexíkóborg mun bók-
staflega snúa nútíma arkítektúr á
haus. Ástæða hugmyndarinnar er
sú að í Mexíkóborg er nú harla lítið
pláss í miðborginni til að reisa ný
stórhýsi. Þá heimilar byggingalög-
gjöfin í landinu ekki að byggð séu
hús hærri en 8 hæða svo eina leiðin
til að fara framhjá þeim lögum er að
byggja niður í jörðina.
Birta og loft frá yfirborðinu
Esteban Suarez, einn af stofnendum
BNKR Arquitectura, segir þetta einu
leiðina fyrir svo stóra byggingu þar
sem erfitt sé að finna byggingar-
pláss í borginni. Hann telur að það
geti verið mjög hagkvæmt að byggja
slíkt hús. Talið er að það muni kosta
um 800 milljónir dollara að byggja
húsið, sem verður með pýramída-
lögun.
Frá þakinu á yfirborði jarðar mun
birta og loft streyma niður í miðju-
kjarna byggingarinnar. Vandinn
verður þó með náttúrulega lýsingu
á neðstu hæðunum en þar eru menn
að skoða hvort nýta megi ljósleið-
aratækni til að flytja sólarljósið svo
langt niður í jörðina. Þá er gert ráð
fyrir rýmum fyrir tré og gróður,
„earth lobbies“, til að auka loftgæðin
í byggingunni. Raforku fyrir húsið
ætla menn svo að framleiða með
vatnsaflsstöðvum sem nýta fallorku
yfirborðsvatnsins.
Söfn á efstu tíu hæðunum
Suarez segir að á efstu tíu hæðunum
verði söfn sem tileinkuð verði sögu
borgarinnar. Þá segir hann að við
það að grafa niður í jörðina muni
án efa finnast fullt af fornminjum,
allt frá tímum Asteka sem m.a. voru
frægir fyrir að byggja pýramída á
sömu slóðum, en reyndar voru þeir
ekki á hvolfi.
Næstu tíu hæðir þar fyrir neðan
verða tileinkaðar verslunum af
ýmsum toga, en hæðirnar þar fyrir
neðan verða nýttar undir skrifstofur.
Fleiri jarðkljúfahugmyndir
Arkitektastofan Indaliu Design
Studio hefur reyndar hannað annan
35 hæða jarðkljúf sem er þó ekki
hugsaður fyrir neinn sérstakan
stað á jörðinni. Hann er með tals-
vert hefðbundnara sniði og er eins
og sívalningur niður í jörðina. Það
sem er sérstakt við þá hönnun er
að niður í gegnum kjarna bygg-
ingarinnar er hugsunin að endur-
spegla sólarljósinu með risastórum,
íhvolfum spegli sem snýst um opið
efst á byggingunni og eltir sólina í
takt við snúning jarðar. Þá hönn-
uðu Fernando Castiñeira, Hernan
Goldfarb, Alejandro Ispani, Alex
Nelken, Javier Maratea og Malena
Verni hjá eVolo arkitektastofunni
framúrstefnulegan jarðkljúf sem
kynntur var árið 2007. Fleiri hug-
myndir hafa einnig komið fram um
jarðkljúfa af ýmsum toga.
/HKr.
Heimildir: CNN, BNKR Arquitectura,
Indaliu Design Studio, eVolo.
Erlendir húsahönnuðir komnir niður úr skýjunum og teikna sig niður í móður jörð líkt og Íslendingar á öldum áður:
Jarðkljúfum ætlað að leysa vanda vegna plássleysis á yfirborðinu
- Hugmyndir eru nú uppi um að byggja 300 metra háan (lágan) pýramída undir aðaltorgi Mexíkóborgar
Hópur arkitekta hjá BNKR Ar uitectura hefur hannað þennan glæsilega pýramída á hvol , sem hugmyndin er að
byggja undir ocalo-torginu í miðri Mexíkóborg. Ólíklegt er þó að guðstrúarsöfnuðir fari nokkurn tíma út í slíkar
byggingaframkvæmdir þó undirstaðan sé góð. Enda varla gott að eiga á hættu að mæta höfðingjanum í neðra
bölvandi og ragnandi á bak við næstu dyr.
Arkitektastofan Indaliu Design Stu-
dio hefur hannað þennan 35 hæða
jarðkljúf, þar sem risastór spegill á
að varpa sólarljósinu niður í jörðina.
Arkitektateymið Fernando asti eira, Hernan Goldfarb, Alejandro Ispani,
Alex Nelken, Javier Maratea og Malena Verni hjá eVolo arkitektastofunni
hannaði þessa framúrstefnulegu neðanjarðarbyggingu, sem kynnt var 2007.
Ný ærblanda Líf!
Lynghálsi 3 Reykjavík / Lónsbakka Akureyri / sími: 540 1100
Nú býður Lífland upp á tvær tegundir kjarnfóðurs
fyrir sauðfé, Ærblanda og hina nýju Ærblöndu Líf.
Innihalda þær m.a. mis hátt hlutfall fiskimjöls.
Úr jarðkljúfi BNKR sem hugmyndin er að byggja í Mexíkóborg.