Bændablaðið - 10.11.2011, Síða 32

Bændablaðið - 10.11.2011, Síða 32
32 Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvember 2011 Vélabásinn Ford Transit Connect: Með mjög aðgengilegt farangursrými Brimborg er með umboð fyrir nokkrar bílategundir, þ.á.m. Ford, en í síðustu viku reynsluók ég Ford Transit Connect 200S sem er lipur sendibíll í smærri kantin- um. Transit Connect kemur með 1,8 TDCi díselvél sem á að skila um 75 hestöflum og ætti að vera mjög hentugur bíll fyrir smærri sendingar og flutninga. Að keyra bílinn innanbæjar er ósköp svipað og að keyra venju- legan fólksbíl, fyrir utan að þegar þarf að bakka í stæði er útsýnið aftur fyrir bílinn í baksýnisspegl- unum ekkert sérlega gott (hægt er að panta nálægðarskynjara að aftan sem aukabúnað í bílinn fyrir 65.000 kr.). Hliðarspeglarnir eru tvískiptir með litlum, víðum neðri speglum, sem eru mjög góðir og ná vel til blinda punktsins (blindi punktur- inn er í um 45 gráðu horni út frá afturhorni og hefur reynst mörgum mótorhjólamanninum varasamur). Oftast nægur kraftur Krafturinn ætti að nægja í flestum tilfellum, en bíllinn gæti verið latur upp úr Hvalfjarðargöngunum með hámarks hleðslu (hámarks burðar- geta er 825 kg). Bremsur eru mjög góðar, spólvörn er í bílnum og á blautum malarslóða með mikilli mold í fann ég vel hvernig spól- vörnin kom á og fór af til skiptis eftir því hversu gott veggripið var. Á malarvegi er furðu lítið malar- vegahljóð (þrátt fyrir að bíllinn hafi verið alveg tómur), en örlítið heyrðist af grjótbarningi innan í afturbrettunum. Tómur sendibíll á malarvegi er alltaf frekar laus að aftan, en Transit Connect er furðu stöðugur að aftan miðað við marga aðra sendibíla. Alls ók ég bílnum rúma 100 km og samkvæmt aksturs- tölvunni var meðaleyðsla 9,1 lítri í þessum blandaða akstri. Á 90 km hraða á Reykjanesbrautinni núll- stillti ég tölvuna og á þeim hraða var bíllinn að eyða á bilinu 4,3 til 4,7 lítrum á hundraðið. Gott og aðgengilegt farangursrými Farangursrýmið er 174 cm langt og er aðgengi mjög gott inn í rýmið. Báðar hliðar er hægt að opna og tvöföld hurðin að aftan býður vel- komna glettilega stóra hluti. Sex festingar eru í gólfi til að festa niður hluti með böndum. Kunningi minn sem starfar við lyftuviðgerðir er nýlega búinn að fá svona bíl og er með öllum helstu verkfærum og varahlutum hagan- lega raðað aftur í bílnum. Hann lætur vel af Ford Transit Connect og er mjög sáttur við bílinn, sem hentar honum vel. Truflun vegna speglunar af glugga á skilrúmi Það eina sem ég fann að bílnum er glugginn á skilrúminu milli öku- manns og farangursrýmis, en þegar keyrt er í myrkri speglast ljósin af bílunum sem maður mætir í glugg- anum og þaðan í baksýnisspegilinn og í augu ökumanns. Þetta væri auð- veldlega hægt að laga við hönnun bílsins og í framleiðslu með því að halla glugganum þannig að speglunin fari fyrir ofan spegilinn, en að breyta þessu getur verið snúið og tímafrekt. Jákvæðir punktar: Þægilegur í akstri innanbæjar, hljóð- lát vél (af díselvél að vera), burðar- mikill miðað við stærð, góðir hliðar- speglar með hitunarbúnaði, tímastillt olíumiðstöð, lítið malarvegahljóð. Neikvætt: Ökumannssætið mætti vera betra, speglun úr skilrúmsglugga í augu ökumanns (sérstaklega óþægilegt í myrkri). Nánari upplýsingar um Ford Transit Connect má finna á vefsíðunni www. brimborg.is. Vélaprófanir hlj@bondi.is Hjörtur L. Jónsson Verð: 3.190.000 kr. með vsk. og 2.541.833 kr. án vsk. Lengd: 4.275 mm Breidd: 1.293 mm Hæð 1.739 mm Hestöfl: 75 Vél: 1.560cc. disel Þyngd 1.467 kg Helstu mál Ford Transit Connect: Speglunin í glugganum y r í faran- gursrýmið var tru andi. Farangursrýmið er glettilega stórt með mörgum gólffestingum. Upplýsingatækni og fjarskipti Fjarskiptabásinn Allir landsmenn skulu eiga kost á 30 Mb netsambandi árið 2022. Á sama tíma munu 99% landsmanna eiga kost á 100 Mb netsambandi og 99,9% eiga kost á háhraðafarneti. Þetta kemur fram í tillögum að tólf ára fjarskiptaáætlun auk fjögurra ára framkvæmdaáætlunar sem var kynnt á fjölmennum fundi SKÝ, Skýrslutæknifélags Íslands, á Grand hótel í síðustu viku. Ný fjar- skiptaáætlun 2011-2022 er mun víðtækari en sú fyrri. Þannig eru sett markmið um póstmál, rafræn samskipti og stafræna miðlun auk fjarskiptamála og samspils allra þessara málaflokka, eins og kemur fram á vefsíðu innanríkisráðu- neytisins. ,,Ætlum að halda forystunni í fjarskiptum“ Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra mun leggja tillögu að þingsályktun um fjarskiptaáætlun fyrir Alþingi á hinu 140. löggjafar- þingi nú í haust. Í ávarpi ráðherra á fundinum kom fram að fjarskipta- sjóður fær áfram hlutverk í nýrri fjarskiptaáætlun. Hlutverk hans verður að tryggja að markmið fjar- skiptaáætlunar stjórnvalda nái fram að ganga. Í fyrstu fjarskiptaáætlun stjórnvalda, 2005-2010, var það hlut- verk fjarskiptasjóðs að hrinda í fram- kvæmd markmiðum áætlunarinnar um uppbyggingu á GSM-sambandi á stofnvegum og að tryggja öllum landsmönnum aðgang að upplýs- ingahraðbrautinni. Það var m.a. fjármagnað með þeim fjármunum sem fengust með sölu Símans. Í máli ráðherra kom fram að Íslendingar ætluðu að halda forystu í hlutfalli íbúa sem notfæra sér netið hvar sem þeir búa á landinu. Á það væri lögð áhersla í nýrri fjarskiptaætlun að bjóða öruggt samband með hraða og bandbreidd sem nauðsynleg er hverju sinni. Orðrétt sagði hann: ,,Við ætlum líka að viðhalda og efla möguleika til gagnaflutninga um landið og til og frá landinu og við sjáum að á þessu sviði eru ýmsir atvinnumöguleikar sem við getum þróað í samráði og samstarfi við atvinnugreinina fjar- skipti.“ Þúsund breiðbandstengingar búa til 80 ný störf Í erindi Sigurbergs Björnssonar, skrifstofustjóra í innanríkisráðuneyt- inu, kom fram að forsenda nýrrar fjar- skiptaætlunar væri stefna ríkisstjórn- arinnar í fjarskiptamálum, sem vissu- lega ber mark sitt af þröngri stöðu í ríkisfjármálum. Endurskoðunarferlið hófst með samráðsfundi sem ráðu- neytið og verkefnastjórn um fram- kvæmd fjarskiptáætlunar stóðu fyrir haustið 2009. Opið samráð um áætlunina hefur verið á netinu. Í máli Sigurbergs kom fram að sam- kvæmt sóknaráætlun stjórnvalda, Ísland 2020, séu þjóðhagsleg áhrif breiðbandsvæðingar umtalsverð. Þannig leiði þúsund nýjar breið- bandstengingar til 80 nýrra starfa og 10% aukning á breiðbandsteng- ingum skilar sér í 1% hærri þjóðar- framleiðslu. Fjarskiptaáætlun yrði að þessu sinni samþættuð samgön- guáætlun hvað varðar markmið og tímaramma. Í máli Sigurbergs kom fram að uppbygging á fjarskiptaneti landsins yrði á hendi markaðsaðila en ríkið kæmi að uppbyggingu þar sem um markaðsbrest væri að ræða, sbr. háhraðaverkefni fjarskiptasjóðs. Í þessu sambandi yrði m.a. litið til alþjónustukvaða fjarskiptafyrirtækja en Evrópureglur gæfu meira svig- rúm en áður fyrir einstök ríki. Eitt af markmiðum fjarskiptaáætlunar er að skipa verkefnahóp sem skili tillögum að útfærslu á alþjónustukvöð í fjar- skiptum, sem verði endurskoðuð á fjögurra ára fresti, fyrst árið 2014. Þá þurfi að innleiða Evrópuregluverk í fjarskiptum eftir þörfum. Í nýrri fjarskiptaætlun er lagt til að auðlinda- gjald fyrir tíðnir verði innleitt, sem m.a. standi straum af kostnaði við að ná markmiðum fjarskiptaáætlunar. 30 Mb netsamband fyrir alla landsmenn árið 2022 sviðsstjóri tölvudeildar Bændasamtaka Íslands jbl@bondi.is Jón Baldur Lorange Upplýsingatækni og fjarskipti Markmið um ljósleiðarasamband (100 Mb gagnaflutningshraði): Finnland 2015 (2 km fjarlægð frá 99% heimila, alþjónustu- kvöð í dag 1Mb) Danmörk 2020 Ísland 2022 (99% heimila, 50% árið 2014, 1-2 Mb í dag fyrir alla landsmenn) Verkefnastjórn fjarskipta- áætlunar, skipuð af innanríkis- ráðherra: Gunnar Svavarsson, formaður, Baldur Jónasson, Guðbjörg Sigurðardóttir og Jón Baldur Lorange. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sér- fræðingur í innanríkisráðuneytinu, er verkefnastjórninni til aðstoðar. Grundvallarmarkmið fjar- skiptaáætlunar verða hliðstæð markmiðum samgönguáætlunar stjórnvalda, sem ásamt sam- ræmdum tímasetningum greiða fyrir samþættingu við hana. Þessi markmið eru: Aðgengileg og greið fjarskipti. Hagkvæm og skilvirk fjarskipti. Umhverfisvæn fjarskipti. Örugg fjarskipti. Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra í ræðustól. Frá fundi SK , Skýrslutæknifélags Íslands, á Grand hótel í síðustu viku.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.