Bændablaðið - 10.11.2011, Síða 35
35Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvermber 2011
Óðinn Ívarsson er í fyrsta bekk
í Álfhólsskóla í Kópavogi. Hann
æfir karate og hefur senn æfingar
í fótbolta hjá Breiðabliki, svo það
er í nógu að snúast hjá Óðni, sem
hefur mjög gaman af að hlusta
á stafasögur í skólanum og að
sjálfsögðu að fara í frímínútur.
Nafn: Óðinn Ívarsson.
Aldur: Fimm en verð sex eftir nokkra
daga.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Í Kópavogi.
Skóli: Ég er í 1. bekk í Álfhólsskóla.
Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum? Að hlusta á sögurnar
um stafina sem við lærum og frí-
mínúturnar.
Hvert er uppáhalds dýrið þitt?
Kisa.
Uppáhaldsmatur: Píta með fullt af
grænmeti og sósu.
Uppáhaldshljómsveit: John Lennon.
Uppáhaldskvikmynd: Star Wars og
Hringadróttinssaga.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég hitti
Emblu litlu systur mína í fyrsta sinn
og sagði við mömmu og pabba: „hún
var í maganum mínum“. (Ég man líka
þegar Fríða amma var mjög veik og
dó en það er svo sorglegt að ég vil
ekki skrifa það.)
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Já, ég æfi karate og er að
byrja í fótbolta hjá Breiðabliki. Ég
bulla stundum lög á píanó, flautu og
gítar sem ég á.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Spila tölvuleiki og
horfa á myndir á Youtube.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Úhh, ég veit það alveg,
sko, það er njósnari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég var Mikki refur í
marga, marga mánuði með rautt skott
alla daga. Síðan var ég kisa í nokkrar
vikur og þá heimtaði ég að fá að borða
matinn minn á gólfinu eins og kisan
mín.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Fara í búðir.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt
í vetur? Renna mér á sleða. /ehg
Ætlar að verða njósnari!
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Notaleg og hlý peysa fyrir veturinn
PRJÓNAHORNIÐ
Nú er veturinn heldur betur far-
inn að láta vita af sér, þá er nú
gott að eiga eina hlýja, mjúka
peysu til að halda á manni hita.
Þessa uppskrift fengum við
hjá Ernu Björg Kjartansdóttur
í Mosfellsbænum.
Lopann fáum við allsstaðar og sprengda
mohairið, sem gefur peysunni sérstakan
svip, fæst í A4 bæði á Smáratorgi og Akureyri,
garn.is vefversluninni, Hannyrðabúðinni
Hveragerði, Vogue og Prjónakistunni
Selfossi, Framtíðinni Vestmannaeyjum,
Esar Húsavík, Kompunni Sauðárkróki,
Lost.is, Laufskálanum Neskaupsstað, Vaski
Egilsstöðum, Skemmunni Hafnarfirði, Litum
og föndri Kópavogi, Birki Ísafirði og Aþenu
Grindavík.
Ein stærð
Efni:
Fífa mohair grænsprengt, 2 dokkur
Plötulopi hvítur, 400 g
Hringpjónar nr. 8, 80 og 40 cm
Hringprjónar nr. 12, 80 og 40 cm
Prjónafesta:
10x10 cm = 9L og 13 umf. slétt prjón á
prjóna nr. 12. Sannreynið prjónafestu og
skiptið um prjónastærð ef þarf.
Aðferð:
Einn þráður af mohair og tveir þræðir af
plötulopa eru alltaf prjónaðir saman.
Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við
handveg eru lykkjur af ermum og bol sam-
einaðar á einn prjón og axlastykki prjónað
í hring. Kragi er prjónaður á röngunni.
Umferð á bol byrjar á hægri hlið en axla-
stykki byrjar umferð á samskeytum bols og
erma hægra megin á baki.
Ef prjónað er með áskrúfuðum prjónum
(KnitPro) er upplagt að vera með prjón nr. 8
vinstra megin og prjón nr. 12 hægra megin,
þá er léttara að prjóna.
Bolur:
Fitjið upp 98L á hringprjóna nr. 8, 80cm.
Tengið í hring og prjónið 1sl, 1br, 3 umferðir.
Skiptið yfir á hringprjón nr. 12, 80cm.
Prjónið slétt uns bolur mælist 50 cm (eða
sú lengd á bol sem óskað er eftir). Setjið 8L
á hjálparnælu sitthvoru megin – 41, 8, 41,
8. Geymið bol og prjónið ermar.
Ermi:
Fitjið upp 30L á hringprjón nr. 8, 40cm.
Prjónið 1sl, 1br, 9 umf. Skiptið yfir á prjóna
nr. 12, 40cm og prjónið um 9cm. Aukið þá
út um 2L undir miðri ermi (1L eftir fyrstu
lykkju og 1L fyrir síðustu lykkju). Prjónið svo
slétt 6 cm og aukið út á sama hátt. Prjónið
svo aftur slétt 6 cm og aukið út á sama hátt.
Þá eiga að vera 42 L á prjóninum. Prjónið
svo þar til ermi mælist 57 cm eða eftir
þörfum. (Ermin er höfð um 10 cm lengri
en venjuleg ermalengd því hún er svo brotin
inn á við til að fá einskonar jakkaermaútlit,
ef jakkaútlit er ekki notað mælið þá eigin
ermalengd og miðið við hana.) Setjið síðan
8L á hjálparnælu.
Axlastykki:
Sameinið bol og ermar á hringprjón nr. 12.
Prjónið fyrri ermi við bol, svo framstykki,
svo seinni ermi við bolinn og að lokum bak-
stykki. Þá eiga að vera á prjóninum 182 L.
Prjónið næstu umferð þannig – prjónið ermi
uns 1L er eftir af henni, þá er sú lykkja og
fyrsta lykkja á bol (næsta lykkja) prjónaðar
saman. Prjónið síðan framstykki uns 1L er
eftir af því áður en ermi byrjar, prjónið þessa
1L og fyrstu lykkjuna á erminni saman. Gerið
alveg eins hinu megin. Setjið merki við allar
þessar úrtökur. Þetta markar miðjuna á las-
kaúrtökunni.
Laskaúrtaka:
Prjónið 1 L sl, prjónið 2 L saman til hægri
*prjónið ermina slétt þar til 3 L eru eftir að
merki. Prjónið þá 2 L saman til vinstri, 1
L sl (merki), prjónið 2L saman til hægri*.
Endurtakið frá *–* á hverjum samskeytum
bols og ermar þar til 3 L eru eftir af umf.
Prjónið 2 L saman til vinstri. Gerið þessa
úrtöku í annarri hverri umferð eða þar til 48L
eru eftir á prjóni.Skiptið þá yfir á hringprjón
nr. 8, prjónið 2sl og 2br, 3 umf.
Kragi:
Skiptið aftur yfir á prjóna nr. 12 og snúið við
svo að réttan er á röngunni þannig takið
1L fram af og steypið bandinu fram fyrir
svo ekki myndist gat. Prjónið slétt 4 umf.
Prjónið * 6L auka út um 1L* endurt. frá **
út umferð. Prj 4 umf. Prj.*7L auka út um 1L*
endurt. frá *–* út umferð. Prj. 4 umf. Prj.
*8L og aukið út um 1L* endurt. frá *–* út
umferð. Þá á kraginn að mælast ca 17 cm
og 72 L að vera á prjóninum. Fellið laust af.
Frágangur:
Lykkið saman undir höndunum og gangið
frá endum. Skolið úr peysunni og leggið
til þerris.
Bókabásinn
Veiðisögur eftir Bubba Morthens
kom út í byrjun nóvember hjá
bókaútgáfunni Sölku.
Bubbi Morthens hefur verið
ástríðuveiðimaður frá því hann
man eftir sér. Hann hefur átt ótal
dýrmætar stundir við ár og vötn
ásamt fjölskyldu sinni og góðum
félögum. Hér kallar hann fram
eftirminnilega atburði, glímu við
silung í Meðalfellsvatni og átök
við stórlaxa í ám víða um land.
Hann segir sögur sem hrífa les-
andann alla leið fram á árbakkann
og Einar Falur Ingólfsson styður við
frásögnina með óviðjafnanlegum
ljósmyndum af fiskum og náttúrunni.
Bubbi staldrar við í Kjósinni,
Rangánum, Norðlingafljóti,
Grímsá, Kjarrá, Miðfjarðará, Hítará,
Norðurá, Langá, Vatnsdalsá, Stóru
Laxá í Hreppum, Hofsá og Laxá í
Aðaldal. Einnig gefur hann gagn-
leg ráð um græjur og ýmislegt hvað
varðar réttu handtökin. Bókin er 160.
bls. og prentuð í Póllandi í umsjón
Prentmiðlunar ehf.
Veiðisögur
Barnabókin Agnar Smári - Tilþrif
í tónlistarskólanum eftir Höllu
Þórlaugu Óskarsdóttur er komin
út hjá bókaútgáfunni
Sölku. Bókin er
fyrsta bók Höllu
Þórlaugar en hún
semur bæði texta
og myndskreytir en
bókina prýða gullfal-
legar myndir.
Agnar Smári er
svo sem ekkert ólíkur
öðrum sjö ára strákum,
nema hann er ívið lægri
í loftinu. Uppáhaldsiðja
hans er að semja tónlist
og það fer ekki fram hjá
neinum þegar hann spilar verkin sín.
Þessi saga segir frá deginum
örlagaríka þegar mamma Agnars
Smára ákveður að senda hann í tón-
listarskólann til að læra „almenni-
lega“ tónlist. Í skólanum leynist
ýmislegt bak við luktar dyr og Agnar
Smári lendir, ásamt besta vini sínum,
í ótrúlegum hremmingum. Til allrar
hamingu fara þó hlutirnir betur en á
horfist í fyrstu.
Halla Þórlaug Óskarsdóttir
(f. 1988) útskrifaðist af eðlis-
fræðibraut Menntaskólans
í Reykjavík árið 2008. Þá
fór hún í Myndlistarskóla
Reykjavíkur og þaðan lá
svo leiðin í myndlistarnám
við Listaháskóla Íslands en
hún lýkur þar námi næsta
vor. Vorið 2011 fór hún
sem skiptinemi til Parísar
og lærði þar grafíska
hönnun og myndskreyt-
ingar. Halla hefur mikla
reynslu af að vinna með börnum en
hún hefur bæði starfað í æskulýðs-
starfi og sumarnámskeiðum ÍTR en
einnig eitt sumar í jafningjafræðslu
Hins hússins.
Bókin er 40. bls. og prentuð í
Póllandi í umsjón Prentmiðlunar.
Agnar Smári
– Tilþrif í tónlistarskólanum
Skagfirskar
skemmtisögur
Út er komin hjá Bókaútgáfunni
Hólum bókin Skagfirskar
skemmtisögur í samantekt Björns
Jóhanns Björnssonar. Þar kennir
ýmissa grasa eins og sögurnar hér
á eftir bera með sér:
Drullusokkur
Í gegnum tíðina hefur Bjarni Har,
kaupmaður á Sauðarkróki, haft ýmsa
aðstoðarmenn og bensíntitti starf-
andi í versluninni. Einn veturinn
kom ungur piltur frá Hofsósi til
starfa, Pálmi Rögnvaldsson, síðar
bankaútibússtjóri á Hofsósi. Fyrsta
daginn hjá Pálma kom gömul kona
snemma morguns inn í verslunina
og spurði:
,,Áttu drullusokk, Bjarni minn?“
Bjarni benti þá á Pálma og sagði:
,,Já, bara þennan, en má ekki
missa hann!“
Löngu síðar leit Pálmi við í versl-
uninni hjá Bjarna Har., skömmu fyrir
jól, og fór að rifja upp að nú væru
40 ár liðin frá því að hann aðstoðaði
hann í versluninni.
,,Já, eru 40 ár liðin,“ sagði Bjarni,
,,þá hefði ég nú flaggað í hálfa væri
stöngin ekki brotin!“
Hrútur undir stýri
Jóhannes Haraldsson, kallaður
Kóreu-Jói, átti um tíma forláta Lödu
Sport jeppa og var eitt sinn á ferð
út á Reykjaströnd með hrút aftur í.
Á miðri leið trylltist hrúturinn og
komst einhvern veginn fram í með
þeim afleiðingum að stýrið læstist
og Jói missti Löduna út fyrir veg.
Skemmdist bíllinn nokkuð og daginn
eftir fór Jói til Ragnars Pálssonar,
bankastjóra og umboðsmanns
Sjóvár, og sagði farir sínar
ekki sléttar. Spurði hvort hann fengi
ekki bílinn bættan og Ragnar taldi
svo vera. Þá fór Kóreu-Jói að lýsa
því hvernig hrúturinn hefði tryllst
og komist fram í. Þá stoppaði Ragnar
hann af og sagði:
,,Uss, uss, Jói minn, ekki minnast
á að hrúturinn hafi keyrt!“
Hjólhestur
Albert Magnússon, löngum kallaður
Berti krati, var ásamt konu sinni
lengi með unga vinnumenn úr hér-
aðinu í fæði á Öldustígnum. Má þar
nefna Sigurð Björnsson frá Hólum,
eða Bróa, Gunnbjörn Berndsen,
Aðalstein Jónsson, eða Steina Putt,
Sigurð Frostason og Hofsósinginn
Kristján Björn Snorrason. Berti
þótti elda góðan mat og var sér í
lagi sterkur í soðningunni. Einhverju
sinni fengu þeir hins vegar tortuggið
hrossakjöt og mælti Brói þá stundar-
hátt:
,,Þetta hlýtur að vera hjólhestur!“
Þá skaut Steini Putt fram hökunni,
kjamsaði aðeins á kjötinu og sagði:
,,Já, ég held að ég sé akkúrat með
pedalann núna!“
Eitt sinn tók Óðinn upp á því að
vera Mikki refur í nokkra mánuði og
var þá með rautt skott upp á hvern
einasta dag.