Bændablaðið - 10.11.2011, Side 39

Bændablaðið - 10.11.2011, Side 39
39Bændablaðið | fimmtudagur 10. nóvermber 2011 Til sölu Hesturinn okkar og Árbók Ferðafélags Íslands. Tilboð óskast í „Hesturinn okkar“ innbundinn í leður 1960-1979, 1.-20. árg. Einnig Árbók Ferðafélags Íslands innb. í leður 1928- 1970. Uppl. á netfangið svanurha@ simnet.is Til sölu MF-135 með tækjum. Nokkrir gamlir traktorar. Flottur Fiat 80-90 dráttarvél. Er frábær. Búslóð, margt gamalla muna. 10 fylfullar hryssur, grunnskráðar. Fín aukabúgrein. 6 hjóla lyftutengd múgavél. Antik tein- ótt föt klæðskerasaumuð af Vigfúsi Guðbrandssyni og co. Uppl. í síma 865-6560. Til sölu Hydrac ámoksturstæki, Eurokipp 1200. IH-484, árg. ´79, í góðu lagi. Claas R-33 heyhleðsluvagn, Kemper, 28 rúmm. Fæst fyrir lítið. Wild aðfærsluband. Uppl. í síma 863-1272 eða 463-1272. Til sölu fínt antiksófasett, 3+2+1, með kögri. Verð kr. 60.000. MF-35 árg. ´57 (Gullmolinn). Sturtuvagn, gamall. Fást saman á kr. 100.000. Þarfnast hagra handa. Flott norskt sófasett, 3+1+1. Verð kr. 60.000 og gamall tjaldvagn. Verð kr. 130.000. Uppl í síma 865-6560. Til sölu 29" sjónvarp, skrifborð, L: 1,60 og B: 0,75 m, húsbóndastóll, svefnsófi og 50 lítra rafmagns-hitakútur. Uppl. í síma 893-3475. Til sölu MF-50B traktorsgrafa í ágætis lagi. Er á norðanverðu Snæfellsnesi. Uppl. gefur Kiddi í síma 867-8300. Til sölu 6.000 lítra Wedholms mjólk- urtankur, árgerð 2005. Áföst kælivél. Þvermál 1700 mm. Lengd 4300 mm. Hæð 2180 mm. Uppl. í síma 899-2017. Til sölu Ski Doo X Rotax 800R, árg. 2007. Nýupptekin vél hjá K2M, Akureyri. Upphækkað stýri, hlífar á dempurum o.fl. Taska og bensínbrúsi fylgja með. Ásett verð kr. 1,2 milljónir. Tilboð. Uppl. í síma 896-8949. Til sölu Valtra Valmet 8050 dráttarvél, árg. ´02, 120 hö. með tækjum. Vél í mjög góðu standi. Uppl. í síma 691- 4995. Til sölu Schuttle 9600 snjóblásari, árg. ´06. Uppl. í síma 867-6417. Til sölu 8 tonna malbikunarstöð. Mercedes Bens Unimog 1600, árg. ´92. Man 10-150 með krana, árg. ́ 94, krabbi. Kubota BX 2200, árg. ́ 06, með sláttubúnaði, 20 feta gámavagn, 8 m tjörutankur á vagni, loftpressur, vökva- mótorar, dælur, vatnsdælur, gróður- húsagler, járn, járnrör og fl. Uppl. í síma 865-5613. Til sölu brauðgerðartæki. 12 tonna mjöltankur, rúlluborð (útflatningsvél), smábrauðavél, kringlur, pylsubrauð. Bakarofn Revent 50x70 plötustærð. Raspkvörn stór og fl. Uppl. gefa Árni í síma 896-3470 eða Guðmundur í síma 892-1031. Gjafagrindur. Smíðum gjafagrindur fyrir nautgripi og hross sem hannaðar eru með það að markmiði að slæðist sem minnst. Gott fóður er dýrt og því óhagkvæmt að nota það til upp- græðslu eða sem undirburð Sjá nánar á www.buvit.is Til sölu Nissan Terrano II, árg. 2001, 7 manna, beinskiptur, bensín, ekinn tæpl. 114.000 km. Bíllinn er nú stað- settur í Skagafirði. Fæst á góðu stgr. verði. Uppl. í síma 557-3718 eða 846- 3142, Þorsteinn. Ferguson, árg. 1949, til sölu. Mikið af nýjum varahlutum, ný dekk, bretti, stýri, kúpling + pressa og fleira. Vél langt komin. Sandblásinn og grunn- aður. Uppl. í síma 820-2727. Til sölu Lister rafstöð, 3. cyl. árg. ’93, þriggja fasa, 230/400 volt, 12 kW. Lítið notuð. Fín í varaaflið. Uppl. í síma 895 4408. Óska eftir Kaupi allar tegundir af vínylplötum. Borga toppverð. Sérstaklega íslensk- ar. Vantar 45 snúninga íslenskar. Staðgreiði líka vínylplötusöfn. Uppl. gefur Óli í síma 822-3710 eða á olisigur@gmail.com Óska eftir gömlu timbri, öllum stærðum og gerðum. T.d. kúlupanel, 1x4 og 1x6, gólffjölum. Má vera illa farið og veðrað. Einnig gömlum áhöldum og verkfærum t.d. mjólkurbrúsum og fl. Má vera ryðg- að og úr sér gengið. Kem og tek til í skemmunum og útihúsunum. Sparaðu þér ferð á haugana. Uppl. í síma 899- 6664 eða 820-7449. Sumarbústaður til flutnings. Óska eftir að kaupa sumarbústað (helst á Vesturlandi). Þarf að vera hægt að flytja hann. Benedikt, sími 863-6895, bharmony@mmedia.is Óska eftir að kaupa dráttarvél með ámoksturstækjum. Þarf helst að vera með fjórhjóladrifi. Má þarfnast smá lagfæringar. Þarf að vera á Suðurlandi. Uppl. í síma 690-3972. Óska eftir að kaupa Ford 3000, árg. u.þ.b. ´70. Þarf að vera í slarkfæru ástandi. Einnig háþrýstidælu. Uppl. í síma 891-9900 eða 461-2243. Óska eftir að kaupa ódýra tveggja öxla kerru. Einnig dráttarvél með tækjum og 2-3 hesta kerru. Uppl. í síma 690-6455 eða steinikuld@hotmail.com Óska eftir mjaltafötu, þarf ekki að vera með loki og tækjum. Uppl. síma 861- 8651. Grafa. Vantar smágröfu ca. 2,3 tonn. Má þarfnast einhvers viðhalds eða við- gerðar. Ef þú hefur tæki hafðu sam- band. Sími 696-8556. Óska eftir notuðum afrúllara (helst pólskum), má þarfnast viðgerðar. Hef til sölu vélsleðahræ af Yamaha ET 400. Uppl. í síma 863-1082. Óska eftir að kaupa hrognabakka, 44x44. Uppl. í síma 616-2311. Óska eftir að kaupa notaðan 12-14 tonna götuskráðan sturtuvagn. Aðeins góður vagn kemur til greina. Uppl. í síma 899-9947. Óska eftir að kaupa greiðslumark í sauðfé. Uppl. í síma 847-9194. Óska eftir að kaupa millikassa í Land Crusier 90, beinskiptan. Uppl. í síma 478-1005 eða 661-5926. Atvinna Austurrískur skiptinemi við Háskóla Íslands óskar eftir að vinna sem sjálf- boðaliði á íslensku sveitabýli fyrir mat og húsaskjól í vikutíma á milli 10. og 17. desember. Hún hefur áhuga á að kynnast sveitalífi, helst á Norður- eða Austurlandi en aðrir staðir koma einnig til greina. Áhugasamir hafi samband í síma 775-1482 eða með tölvupósti á lisi.schneider@gmx.net Kúabú. Vanur starfsmaður óskast á kúabú á Vesturlandi. Uppl. í síma 869-3725. Pierre-Sylvain, franskur, 21 árs gamall maður óskar eftir vinnu á sveitabæ nálægt Reykjavík frá miðjum janúar til lok aprílmánaðar á næsta ári. Hann ólst upp á sveitabæ og hefur reynslu af ýmsum búfjárstörfum. Áhugasamir hafi samband við Pierre á netfangið ps.labarthe@hotmail.fr Óska eftir að ráða tamningamann á sveitabæ á Suðurlandi. Góð hross og prýðis aðstaða. Uppl. í síma 898-4992 eða 892-0570. Gisting Skammtímaleiga. Fullbúin íbúð í hjarta Reykjavíkur til leigu. Uppábúin rúm fyrir allt að fjóra. Íbúðin leigist ekki skemur en tvær nætur. Íbúðin er falleg og snyrti- leg. Myndir og nánari uppl. á hlemm- urapartments.com og í síma 822-0614. Orlofsíbúð á Akureyri. Ódýrt lítið stúdíó, tvíbreitt rúm og koja. Uppbúin rúm og handklæði. Sérstakt tilboð virka daga fram að jólum. Leigusali sér um þrif. Sigrún 868-2381. Geymið auglýsinguna. Íbúð í Hveragerði með húsbúnaði. Skammtímaleiga, 2 - 4 vikur í senn. Verð fyrir 2 vikur er kr. 55.000. Sjá nánar á www.bustadur.is Einnig gefur Anna uppl. í síma 693-6478. Geymið auglýsinguna. Dýrahald Óskum eftir að koma eins og hálfs árs íslenskum hundi í pössun. Helst í sveit á Norðurlandi. Uppl. í síma 848-5964, Kristján. Leiga Lítið sveitabýli óskast til leigu í grennd við Selfoss. Uppl. í síma 775-0145 eða á netfangið hrutur04@hotmail.com Til leigu. Íbúðarhús -hesthús. Til leigu 70 fm íbúðarhús í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Á sama stað er til leigu að hluta eða öllu leyti aðstaða í hesthúsi sem rúmar rúmlega 30 hross ásamt góðri inniaðstöðu til tamninga. Stutt er í leikskóla og alla þjónustu. Uppl. í síma 898-1556 og á netfangið hestahotel@vorsabaer.is Sumarhús til leigu í Ölfusi. Kvenfélagið Bergþóra leigir út sumarhús í Ölfusi. Fallegur staður og með gott útsýni. Aðeins 5 mínútna akstur er bæði til Hveragerðis og á Selfoss. Húsið er stórt og rúmgott, svefnpláss fyrir allt að 12 manns. Heitur pottur og leiksvæði fyrir börn. Allar uppl. veitir Aldís í síma 864-4743 og Rósa í síma 483-4461. Samstarfsnefnd um sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþings vestra leggur til við sveitarstjórnir beggja sveitarfélaganna að kosið verði um sameiningu þeirra í almennri íbúakosningu þann 3. desember næstkomandi. Tillaga þess efnis var samþykkt á sjötta fundi sam- starfsnefndarinnar sem haldinn var á Borðeyri nýverið. Tillagan byggir á niðurstöðu samantektar nefndarinnar og KPMG um sameiningu sveitarfélaganna og úttektar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á fjárhagslegum áhrifum sameiningar sveitarfélaganna. Samþykkt var að senda tillögu nefndarinnar ásamt samantekt til umræðu í sveitarstjórnum beggja sveitarfélaganna. Formanni nefndarinnar var falið að tilkynna Innanríkisráðuneyti og sveitarstjór- num Bæjarhrepps og Húnaþings vestra niðurstöðu samstarfsnefndar með formlegum hætti. Árlegur sparnaður um 10 milljónir Ætla má að árlegur sparnaður í rekstri vegna sameiningar Bæjarhrepps og Húnaþings vestra gæti numið allt að 10 milljónum króna, einkum vegna yfirstjórnar og hagræðingar hjá fræðslustofnunum. Þá munu árlegar tekjur frá Jöfnunarsjóði aukast um 10,2 milljónir króna sam- kvæmt úttekt Jöfnunarsjóðs. Einnig er möguleiki á viðbótarframlögum frá Jöfnunarsjóði verði sameining samþykkt. Þetta kemur fram í skýrslu KPMG um sameiningu sveitarfélag- anna. Í skýrslunni segir að reynslan af sameiningu sveitarfélaga sýni að þótt sparnaður verði af rekstri eins mála- flokks hafi oft orðið kostnaðarhækk- anir í öðrum málaflokkum. Mikil samvinna sé aftur á móti til staðar á milli sveitarfélaganna tveggja í dag og því sé ekki talið líklegt að veruleg útgjaldaaukning verði við sameininguna. Í skýrslunni kemur einnig fram að án sameiningar gæti Bæjarhreppur þurft að leita til annarra landssvæða eftir sameiningu eða samvinnu með sín verkefni. Húnaþing vestra yrði þá af tekjum sem komið hafi frá Bæjarhreppi og þannig gæti myndast óhagræði í rekstri Húnaþings vestra. Þungur rekstur Þá kemur fram í skýrslunni að rekst- ur sveitarfélaganna beggja sé mjög þungur og sé Bæjarhreppur á árinu 2010 með neikvæða framlegð af veltufé frá rekstri, sem gangi ekki til lengri tíma litið. Húnaþing vestra sé með 6% framlegð af heildartekjum og jákvætt veltufé frá rekstri sem nemi 4,1% af heildartekjum. Það hafi farið lækkandi á undanförnum árum. Í niðurstöðum skýrslu KPMG segir að sameining þessara tveggja sveitarfélaga teljist hagkvæm fyrir báða aðila og yrði fjárhagsstaða þess yfir meðaltali á landsvísu. Nú um miðjan nóvember verður kynningarbæklingi um sameininguna dreift inn á hvert heimili í sveitar- félögum. Almennir kynningarfundir um sameininguna verða svo haldnir þriðjudaginn 22. nóvember næst- komandi, klukkan 16 á Borðeyri og klukkan 20 í Húnaþingi vestra. Sameining Bæjarhrepps og Húnaþings vestra: Talin hagkvæm fyrir báða aðila Næsta Bændablað kemur út 24. nóvember Fjórir starfsmenn Norðlenska á Húsavík voru heiðraðir eftir 30 ára starf nú þegar sláturtíð lauk hjá fyrirtækinu nýverið. Sigmundur Hreiðarsson, stöðvarstjóri Norðlenska á Húsavík, afhenti þeim gjöf frá fyrirtækinu. Fjórmenningarnir eru Halldór Sigurðsson frá Sandhólum á Tjörnesi, sem er réttarstjóri og vann áður hin ýmsu störf á sláturlínunni, Þröstur Jónasson frá Sílalæk í Aðaldal, nú kjötmatsmaður en hefur unnið við nánast allt í sambandi við slátrun, Ragnheiður Jóhannesdóttir frá Klambraseli í Aðaldal, en hún vinnur við innanúrtöku og þykir eiga fáa sína líka á því sviði og Sigurgeir Jónasson frá Helluvaði í Mývatnssveit, sem er í gærunum. „Allt þetta fólk hefur sýnt fyrir- tækinu hollustu og sinnt sínum verk- um af mikilli kostgæfni, sem ber að þakka,“ segir Sigmundur. „Vonandi fáum við að njóta starfskrafta þeirra í mörg ár í viðbót.“ Yfir 500 tonn til uppgræðslu Sigmundur þakkar góðu starfsfólki hjá sláturhúsi Norðlenska vel unnin störf í nýliðinni sláturtíð, það eigi jafnt við um þá sem unnu í hinni eig- inlegu sláturtíð sem og vinnslu, en fyrirtækið hafi á að skipa mjög góðum og sterkum hópi starfsmanna. Þá segir Sigmundur að innleggj- endur, tengiliðir og harðduglegir f l u t n i n g s a ð - ilar eigi einnig þakkir skildar. „Flutningsaðilar hafa virkilega lagt sig fram og skilað mikilli og góðri vinnu,“ segir hann. Sérstakir aðilar eru svo í því að keyra öllu gori upp á lokuð svæði Landgræðslunnar ofan við Húsavík og dreifa þar úrgang- inum, „með frábærum árangri,“ segir Sigmundur, en þetta haustið má gera ráð fyrir að Norðlenska skili yfir 500 tonnum til uppgræðslu landsins, „og geri aðrir betur“. Fjórir heiðraðir að lokinni sláturtíð hjá Norðlenska „Hafa sinnt verkum sínum af hollustu og kostgæfni“ Ragnheiður Jóhannesdóttir er af- burða góð í innanúrtöku og erfitt eða nánast útilokað að finna annan eins starfsmann hvað þetta varðar. Þröstur Jónasson hefur starfað við slátrun frá unga aldri eða í um 50 ár. Hann starfar nú við kjötmat og varla hægt að hugsa sér meiri fagmennsku á því sviði. Sigurgeir Jónas- son, Geiri eins og hann er kallaður, hefur starfað hjá Norðlenska í 30 ár og allan þann tíma við gærur. Halldór Sigurðsson, bóndi og réttar- stjóri til margra ára og þar er ekki í kot vísað þegar kemur að dugnaði og samviskusemi. Halldór hefur starfað við slátrun í meira en 50 ár.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.