Fréttablaðið - 01.02.2012, Side 19
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Málþing um framtíð ferðamannaborgarinnar
Reykjavíkur verður haldið á vegum Höfuðborgar-
stofu í Hörpu fimmtudaginn 9. febrúar frá 14 til
16. Yfirskriftin er: Hvernig aukum við samkeppn-
ishæfni Reykjavíkur og styrkjum stöðu ferða-
mannaborgarinnar?
M
arkmiðið með ferðinni
var að finna stað fyrir
snjóhús, grafa það og
gista í því um nótt-
ina,“ segir Ásgeir Eggertsson sem
ásamt félögum sínum í nýliðahópi
tvö í Hjálparsveit skáta í Garðabæ
byggði og svaf í snjóhúsi á Hellis-
heiði um liðna helgi í beljandi rign-
ingu.
„Við lögðum af stað á laugardags-
morgni, fórum upp á Hellisheiði og
gengum frá Suðurlandsvegi inn að
skátaskálanum Þrymheimum,“
lýsir Ásgeir sem ásamt félögum
sínum varð samferða stórum
hópi fólks á nýliðanámskeiði
sveitarinnar.
Bygging snjóhúss er eitt af því
sem nýliðar eiga að læra. Þeir
þurfa að finna góðan stað, kanna
snjóalögin og meta hvort aðstæð-
ur henti til snjóhússgerðar. „Það
er reyndar skemmtilegt að segja
frá því að nýliðar síðustu ára hafa
ekki getað byggt snjóhús vegna
snjóleysis. Þannig hafði leiðbein-
andi okkar aldrei áður byggt snjó-
hús fyrr en nú um helgina,“ segir
Ásgeir glaðlega en bætir við að
hann hafi þess í stað verið með
fræðin alveg á hreinu.
Veðrið var afleitt þennan dag,
rok og rigning. Ásgeir segir að
töluvert hafi lekið í gegnum snjó-
inn til að byrja með. „En svo virt-
ist snjórinn þéttast og lekinn hætti
þegar lengra var komið. Svo lak
ekkert á okkur þegar snjóhúsið var
fullbúið,“ segir hann en um fimm
tíma tók að fullklára húsið sem
var um tveir sinnum þrír metrar
á stærð auk rýmis í anddyri. „Þá
vorum við orðin blaut og þreytt en
við héldum á okkur hita með því að
grafa,“ segir hann.
Vistina í húsinu um nóttina segir
hann hafa verið nokkuð góða. „Við
vorum með svokallaðan bivak sem
er utanyfirpoki yfir svefnpokann
og dýnuna til að verja okkur fyrir
raka,“ útskýrir hann en viðurkenn-
ir að nokkuð rakt hafi verið orðið
í svefnpokanum undir morgun.
„Maður fann hins vegar til vellíð-
unar að hafa búið til eigið afdrep
til að sofa í, það var skemmtileg
tilfinning.“
En er ekkert hættulegt að sofa
í svona húsi? Gæti það hrunið eða
loftið klárast? „Við vorum með opið
loftgat svo loftið var mjög fínt hjá
okkur. Þá var yfir okkur að minnsta
kosti tveggja metra traustur snjór
og því nánast ómögulegt að þakið
hryndi á okkur,“ svarar Ásgeir og
útilokar ekki að hann sofi í snjóhúsi
aftur ef tækifæri gefst.
solveig@frettabladid.is
Nýliðahópur tvö úr Hjálparsveit skáta í Garðabæ gróf sig í fönn á Hellisheiði um liðna helgi.
Ásgeir er hér lengst til vinstri með félögum sínum í Nýliðum 2 úr Hjálparsveit skáta í Garðabæ. MYND/ÁSGEIR EGGERTSSON
Niðurrignd í snjóhúsi
Bonito ehf. Friendtex
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
opnunartimi Lagersölu fimmtud-laugard. 12.-18.00
LAGERSALA HEFST Á MORGUN
FIMMTUDAG 02.02 KL.12.00
AÐEINS Í 3 DAGA
3.STK BUXUR KR. 5.000.-
EÐA VELUR 3. FLOTTAR
FLÍKUR OG GREIÐIR KR. 6.000.-
VATTERAÐIR JAKKAR KR. 5.900.-
VETRAR JAKKAR 5.900.-
JAKKAR FRÁ 2.900-
VERÐ SEM ÞÚ HEFUR EKKI SÉÐ ÁÐUR
KOMDU ÞETTA ER SVO GEGGJAÐ
– Vorferð, allt í blóma
Linz, Salzburg og Vínarborg
Beint flug frá Keflavík og Akureyri
28 apríl. – 1. maí
Aðeins einn virkur dagur!
Verð aðeins 95.900 kr. á mann í tveggja manna herbergi
Innifalið. Flug, skattar, hótel með morgunmat, rúta til og frá flugvelli
og íslenskur fararstjóri.
Við fljúgum til hinnar fögru menningar og tónlistarborgar Lins í Austurríki sem valin
var menningarborg Evrópu 2009 og gistum þar. Borgin er æfa gömul með yfir
60% af flatarmálinu sem græn svæði. Stutt er til Vínar og Salzburg, en við bjóðum
uppá dags ferðir til þeirra glæstu borgar auk ferðar um ægi fagra náttúru landsins.
Ferðalöngum gefast því möguleiki á að skoða 3 stórkostlegar borgir í sömu ferðinni
og kynnast einstakri náttúru fegurð Austurríkis.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Vertu vinurSími 551 2070
Opið mán.-fös. 10-18.
Opið á laugard. 10-14.
Vandaðir þýskir herraskór úr leðri í úrvali
Til dæmis:
Teg: 23007/221 • Litur: svart
Stærðir: 40 - 47 • Verð: 16.975.-
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is