Fréttablaðið - 01.02.2012, Blaðsíða 40
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Anna Hildur til NOMEX
Anna Hildur Hildibrandsdóttir,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Útflutningsstofu íslenskrar tón-
listar, ÚTÓN, hefur störf í dag sem
verkefnastjóri hjá NOMEX, Útflutn-
ingsstofu norrænnar tónlistar. Anna
Hildur mun hafa úr einhverjum
peningum að moða því dönsk
yfirvöld hafa lagt tvær milljónir
danskra króna í NOMEX eða rúmar
fjörutíu milljónir króna. Fréttablaðið
hefur áður greint frá því að þessi
vistaskipti hennar væru á döfinni,
enda hefur Sigtryggur Baldursson
þegar verið ráðinn sem eftirmaður
hennar hjá ÚTÓN og
hefur hann einnig
störf í dag. Anna
Hildur verður með
bækistöðvar sínar í
London þar sem hún
hefur búið undanfarin
tuttugu ár en verður
á faraldsfæti um
öll Norðurlöndin
næstu mánuði í
tengslum við
nýja starfið. - fb
Úlfur og Máni á forsíðu
Vimeo
Myndband við nýjasta lag tón-
listarmannsins Úlfs Hanssonar
prýðir nú forsíðu deilisíðunnar
Vimeo.com undir liðnum „we
like“ eða okkur líkar á íslensku.
Lagið heitir Black Shore og verður
að finna á væntanlegri
plötu Úlfs sem
hefur fengið nafnið
White Mountain.
Máni M. Sigfússon
gerði myndbandið
við lagið, en hann
hefur til dæmis gert
myndbönd fyrir FM
Belfast, Snorra
Helgason og Sin
Fang. Um miðjan
dag í gær höfðu
fimmtán þúsund
manns horft á
myndbandið á
síðunni. - þeb
1 Sprengjuógn við Hverfisgötu
– atburðarásin frá upphafi
2 Mikill viðbúnaður við
Stjórnarráðið
3 Tveimur hundum bjargað úr
reykfylltri íbúð
4 Myndskeið sem sýnir
sprengjusveitina að störfum
5 Vélmennið sprengdi
torkennilega hlutinn