Fréttablaðið - 07.02.2012, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 7. febrúar 2012
Tónlist ★★★★ ★
Kiri Te Kanawa
Kiri Te Kanawa og Julian Reynolds fluttu lög úr
ýmsum áttum.
Eldborg í Hörpu 5. febrúar
Kiri Te Kanawa er með undurfagra rödd. Það er auð-
vitað þekkt staðreynd, enda er söngkonan ein sú fræg-
asta í heimi. En það staðfestist enn og aftur á tónleikum
í Hörpu á sunnudagskvöldið.
Ég heyrði Kiri Te Kanawa síðast syngja í Háskólabíói
fyrir rúmum sex árum síðan. Hún söng með sama píanó-
leikaranum og nú, Julian Reynolds. Efnisskráin var ekki
ósvipuð, m.a. voru lög eftir Franz Liszt á dagskránni á
báðum tónleikunum. Samt voru fyrri tónleikarnir ekk-
ert sérstakir. Ástæðan var hljómburðurinn í Háskóla-
bíói, sem var og er sérstaklega slæmur fyrir órafmagn-
aðan söng.
Himinn og haf er á milli þessara tveggja tónleika. Það
var unaðslegt að upplifa sönginn í Eldborginni á sunnu-
dagskvöldið. Söngkonan er orðin 67 ára gömul, en samt
er rödd hennar eins og í ungri konu. Háu tónarnir voru
einstaklega skærir og fallegir. Og túlkunin var fjölbreytt
og litrík, í anda hvers tónskálds.
Tónleikarnir hófust með þremur aríum úr óperunni
Júlíus Sesar eftir Handel. Þær voru hrífandi fagrar, líf-
legar og spennandi. Píanóleikurinn var líka glæsilegur,
en ég spurði sjálfan mig hvort píanóið hefði ekki þurft að
vera hálfopið (flygill getur verið alveg opinn, hálfopinn,
lokaður og næstum því lokaður). Hljómurinn var eins
og innan úr tunnu, fremur litlaus og flatur. Fínlegustu
blæbrigðin skiluðu sér ekki almennilega. Auðvitað vildi
Reynolds ekki yfirgnæfa sönginn, en gat hann ekki bara
spilað veikar og haft flygilinn opnari?
Fyrir utan þetta var dagskráin frábær skemmtun.
Þrjú lög eftir Liszt voru himnesk, sömu sögu er að
segja um jafnmörg lög eftir Bizet og líka eftir Gusta-
vino. Gaman var að heyra nýlega aríu, úr Vanessu eftir
Barber sem var flutt af gríðarlegum tilþrifum. Nýlegar
aríur eru sjaldgæfar á tónleikum söngvara hérlendis.
Tónleikunum lauk með Monologue úr leikritinu Master-
class eftir Jake Heggie. Það var mögnuð upplifun. Svo
komu þrjú aukalög, það síðasta Sveitin milli sanda eftir
Magnús Blöndal. Upprunalega útgáfa lagsins er fyrir rödd
og píanó, og píanóröddin er fremur látlaus, en afar seið-
andi. Reynolds virtist ekki hafa þessa útgáfu undir hönd-
unum, því það sem hann spilaði einkenndist af dinner-
tónlistarkenndum hlaupum. Það virkaði fremur billega.
Reynolds er samt frábær píanóleikari, það kom ekki
síst fram í lögunum eftir Liszt. Og Kiri Te Kanawa er
stórkostlegur listamaður. Fyrir utan nokkur atriði voru
þetta skemmtilegir tónleikar og öllum aðstandendum
þeirra til sóma. Jónas Sen
Niðurstaða: Rödd Kiri Te Kanawa naut sín einkar vel á
tónleikum í Eldborg í Hörpu.
Hrífandi fagurt
.000!
Vertu í hópi þeirra bestu. Hönnun Ford er
gegnheil og tekur mið af þér og þínum,
allri fjölskyldunni - stórum sem smáum. Spyrðu
um fyrirmyndarþjónustu Brimborgar. Nýttu þér
Þorratilboðið: seldu okkur gamla bílinn þinn og
kauptu Ford Kuga Titanium S AWD.
Veldu Ford. Komdu í Brimborg í dag.
skoðaðu
Þorratilboðið
Opið 9-17
2 fyrir 1
af lambasamlokum
í febrúar.
Nýbýlavegi 32 www.supersub.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 07. febrúar 2012
➜ Tónleikar
12.00 Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
mezzosópran og Antonía Hevasi píanó-
leikari halda hádegistónleika í Hafnar-
borg. Allir eru velkomnir.
➜ Kynningar
19.30 Göngu-Hrólfur og Vita halda
kynningarfund á ferðum sínum á Hótel
Hilton, Suðurlandsbraut 2.
➜ Tónlist
12.00 Strákadraumar - Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir messósópran og Antonía
Hevesi píanóleikari koma fram í
Hafnarborg, Strandgötu 36 í Hafnarfirði,
á hádegistónleikum sem hefjast klukkan
12 í dag. Á dagskrá eru buxnarulluaríur
eftir Mozart og Gounod og vögguljóð
eftir De Falla, Emil Thoroddsen og Jón
Þórarinsson.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Sigurður Líndal, prófessor og
kennari, flytur erindi á Lögfræðitorgi
Háskólans á Akureyri, M102 Sólborg
v/Norðurslóð. Yfirskrift erindisins er
Sögustefnan þýzka og sjálfstæðisbarátta
Íslendinga.
12.05 Fyrirlesturinn Goðsagnir og minn-
ingar að baki Arons sögu verður fluttur
á Þjóðminjasafni Íslands. Fyrirlesari er
Úlfar Bragason, en fyrirlesturinn er hluti
af hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags
Íslands: Hvað eru minningar? Aðgangur
er ókeypis og öllum opinn.
12.25 Opinn fyrirlestur í stofu 104
á Háskólatorgi um afvopnunarmál
Norður-Kóreu. Fyrirlesturinn, sem verður
í höndum Veru Knútsdóttur, er á vegum
Alþjóðamálastofnunar og NEXUS.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.