Fréttablaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 6
3. mars 2012 LAUGARDAGUR6
DÓMSMÁL Þakhýsi á Suðurhúsum 4 fær
að vera þar áfram samkvæmt dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur.
Nágrannarnir í næsta húsi kröfðust
þess að þakhýsið yrði fjarlægt.
Eigendur þess höfðu áður tekið það
niður í desember 2008 eftir að Hæsti-
réttur dæmdi það ólöglegt en settu
það aftur upp í ágúst í fyrra eftir að
Reykjavíkurborg breytti deiliskipulagi
Húsahverfis þannig að við byggingin
rúmaðist innan skipu lagsins. Það sama
gildir reyndar einnig um margar aðrar
fram kvæmdir við íbúðarhús í hverfinu
sem ekki uppfylltu skilmála fyrra
skipulags.
Rök nágrannanna fyrir dómi voru
meðal annars þau að samkvæmt
skipulagslögum væri óheimilt að
breyta skipulagi þannig að þegar
gerðar framkvæmdir sem áður voru
ólöglegar verði lögmætar. Þar með
hafi nýtt byggingarleyfi fyrir þak-
hýsinu verið ógilt. Héraðsdómur féllst
ekki á þetta.
Að auki töldu nágrannarnir þakhýs-
ið raska hagsmunum þeirra. Þau hafi
byggt hús sitt samkvæmt fyrra deili-
skipulagi og vænst þess að það mundi
standa áfram. Héraðs dómur fellst
hins vegar ekki á að ná grannarnir
hafi getað gert ráð fyrir því að
fyrra deiliskipulagið myndi „standa
óbreytt um aldur og ævi“. - gar
Héraðsdómur telur breytt deiliskipulag í Húsahverfi í Grafarvogi vera löglegt:
Þakhýsi sem sneri aftur fær að vera
FRÉTTABLAÐIÐ 20. FEBRÚAR Fyrir stuttu
kom fram hér í blaðinu að hjónin í Suð-
urhúsum 2 segja þakhýsi nágrannanna
skerða útsýni og taka frá þeim birtu.
EFNAHAGSMÁL Markaðsaðilar á skuldabréfa-
markaði búast ekki við því að Seðla-
bankanum takist að ná verðbólgumarkmiði
sínu á næstu tveimur árum. Þá gera þeir ráð
fyrir 4,3% meðalverðbólgu næstu 10 ár sem
er talsvert umfram markmiðið um 2,5%.
Þetta eru niðurstöður könnunar sem Seðla-
bankinn stóð fyrir á meðal markaðsaðila
um væntingar þeirra til þróunar hagstærða
næstu misseri.
Könnun sem þessi verður framvegis lögð
fyrir markaðsaðila ársfjórðungslega en hún
er að erlendri fyrirmynd.
Leitað var til alls 27 markaðsaðila á
skuldabréfmarkaði, nánar tiltekið banka,
lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingar-
sjóða, verðbréfamiðlana og eignastýringar-
fyrirtækja.
Niðurstöður könnunarinnar voru þær að
markaðsaðilar búast við því að verðbólga
verði 5% eftir eitt ár og 4,7% eftir tvö ár.
Verðbólga mældist 6,5% þegar könnunin var
send út en samkvæmt verðbólguspá Seðla-
bankans verður verðbólgan komin niður í
3,6% í lok árs. Þá búast markaðsaðilar við
4,3% meðalverðbólgu næstu tíu árin.
Í takt við þessar væntingar um verðbólgu
búast markaðsaðilar við því að stýrivextir
Seðlabankans hækki um 0,75 prósentustig á
þessu ári. Þá hækki bankinn vexti um 0,25
prósentustig til viðbótar á fyrsta fjórðungi
næsta árs. - mþl
Könnun Seðlabankans leiðir í ljós vantrú á peningastefnunni:
Markaðsaðilar svartsýnir á verðbólgu
SEÐLABANKINN Markaðsaðilar virðast hafa litla trú á
getu Seðlabankans til að ná verðbólgumarkmiði sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
DÓMSMÁL „Það þarf ekki síst að vekja athygli á þessum yfirgangi hjá borginni,“ segir Arngunnur R. Jónsdóttir, sem enn á ný glímir við þakhýsi sem nágrannar höfðu áður fjarlægt eftir dóm Hæstaréttar en hafa nú sett upp aftur í kjölfar breytinga á deiliskipulagi í Húsa-hverfi í Grafarvogi.Eigendur Suðurhúsa 4 komu fyrir viðbyggingu á þaki húss síns í ágúst 2006. Borgin hafði gefið út byggingarleyfi án þess að sinna því að setja fram kvæmdina í grenndarkynningu. Því gafst nágrönnum ekki tækifæri til að gera athugasemdir við þakhýsið. Í ljós kom að viðbyggingin var í andstöðu við þágildandi deili-skipulag. Eigendur Suðurhúsa 4 létu því hífa bygginguna af húsi sínu í desember 2008.„Það gengu aldrei frá þakinu að fullu – eins og þau gerðu ráð fyrir að viðbyggingin kæmi aftur á sama stað. Síðan fór borgin í að breyta deiliskipulaginu í hverfinu. Í því fólst að þau gætu sett þak-hýsið upp aftur,“ segir Arngunnur og undirstrikar að við deiliskipu-lagsbreytinguna hafi eingöngu verið horft til aukins fermetra-fjölda en ekki til þess hvort byggt væri upp eða til hliðar eða hvernig götumyndin yfirleitt ætti að vera.Um miðjan ágúst í fyrra var þakhýsið komið upp að nýju. Arn-gunnur og maður hennar kærðu til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála sem ekki varð við kröfu þeirra um að ógilda nýja deiliskipulagið. Nefndin sagði gamla skipulagið aldrei hafa verið virt sem skyldi. Áhrifin gagnvart Suðurhúsum 2 væru ekki slík að leitt gæti til ógildingar.
Arngunnur segir lögfræðing sinn á annarri skoðun. Í l ögunum sé skýrt að ekki megi breyta skipulagi til samræmis við þegar gerðar framkvæmdir sem ekki hafi uppfyllt lagaskilyrði. Málið er nú aftur komið til dómstóla.
„Þessi bygging er einfaldlega að eyðileggja fyrir okkur,“ segir Arngunnur. „Hún tekur af okkur sól og útsýni og það eru gluggar á þessum turni sem snúa beint út að stofunni hjá okkur svo þaðan er útsýni inn til okkar.“Ekki hvað síst segist Arngunnur ósátt við hlut Reykjavíkurborgar sem í engu hafi tekið tillit til hags-muna þeirra hjóna. Málavextina rekur hún nánar í grein sem bíður birtingar í Fréttablaðinu. „Það þarf að varpa ljósi á það gegndar-lausa ofríki sem viðgengist hefur í borginni af hálfu skipulagsyfir-valda,“ segir meðal annars í grein-inni.
gar@frettabladid.is
Þakhýsi dæmt niður en komið upp afturHjón í Grafarvogi höfða nýtt dómsmál vegna þakhýsis sen nágrannar fjarlægðu 2008 eftir dóm Hæstaréttar í kjölfar málareksturs hjónanna. Deiliskipulagi var síðar breytt. Þakhýsið er nú aftur komið á sama stað – ofan á húsi nágrannana.
Í SUÐURHÚSUM 2 Hjónin í Suðurhúsum 2 fengu því áorkað með atbeina Hæstaréttar
að þakhýsi nágranna þeirra var tekið niður. Nú er það komið upp aftur og blasir við
þeim út um borðstofugluggann.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÆMD OFAN AF HÚSINU Viðbyggingin í Suðurhúsum 4 var fjarlægð í desember 2012.
MYND/STÖÐ 2
aráð
kipa
ig
g
l
g
ar-
r og
á
du-
og
n
ur
g
is-
- þj
s-
rvöld
og
Ð/VILHELM
Mjög jákvæð viðb ö ð ið
ækist r endurkjöri.
- sv
SÍÐASTA ÁR ÓLAFS forseta í næstu kosn
t
e
j
lö
k
m
hú
æ
tæ
kr
ÍRAN
sölu
fyri
mál
á he
ir æ
selja
Að
ins h
innfl
og m
ákvör
á Íran
með k
stofnu
telur s
Íranir
því ha
Íra
Ír
B
Farfug
Fyrstu fa
landsins
10. febrú
sást einn
Hornafjö
fyrir fugla
er fram k
NÁTT
Prófkvíðanámskeið
Flestir finna fyrir einhverjum kvíða í kringum próf. Hæfilegur kvíði
getur verið hvetjandi og gagnlegur þegar mikið liggur við en
þegar kvíði er orðinn þrálátur, veldur vanlíðan eða hefur áhrif á
frammistöðu er ástæða til að grípa inn í.
Kvíðameðferðarstöðin stendur nú fyrir 7 skipta (14 klst) námskeiði
við prófkvíða.
Námskeiðið byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og er
miðað við þá sem að finna fyrir miklum og hamlandi kvíða í prófum
eða í prófaundirbúningi.
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 20. mars kl. 15 og munu Ólafía
Sigurjónsdóttir og Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir sálfræðingar stýra
námskeiðinu.
Skráning og fyrirspurnir í síma 534-0110 eða kms@kms.is
Nánari upplýsingar: www.kms.is
Við bjóðum Örnu Friðriksdóttur velkomna í
raðir sjúkraþjálfara hjá Sjúkraþjálfun Kópavogs.
Við fögnum því líka að Eva Sigurjónsdóttir og
Svava Sigurðardóttir eru mættar til starfa á nýjan leik.
Nú leggjast fjórtán starfsmenn okkar á eitt um að
veita þér stuðning til bættrar heilsu og aukins atgervis.
GÓÐAR FRÉTTIR
ÚR KÓPAVOGI
Hamraborg 12 . 200 Kópavogi
Sími 564 1766 – 554 5488 . sjk@sjk.is . www.sjk.is
- stendur með þér -
Eva Sigurjónsdóttir
sjúkraþjálfari B.Sc.
Svava Sigurðardóttir
sjúkraþjálfari B.Sc.,MTc.
Arna Friðriksdóttir
sjúkraþjálfari B.Sc.
EFNAHAGSMÁL Már Guðmundsson
seðlabankastjóri kallar eftir því að
verulegar takmarkanir verði settar
við lánveitingum í erlendri mynt til
heimila. Þá telur hann æskilegt að
festa í lög að innstæðutryggingar
verði aðeins greiddar út í íslenskum
krónum.
Þetta var meðal þess sem kom
fram í erindi Más á ráðstefnu sem
Landsbankinn stóð fyrir á fimmtu-
dag undir yfirskriftinni „Staðan á
Íslandi – fjármálastöðugleiki“.
Gerði Már gjaldeyrishöftin að
umtalsefni og sagði það mikilvægt
til lengri tíma litið að afnema höftin
sem séu skaðleg. Már bætti þó við
að áður en til almennrar losunar
kæmi þyrfti að
huga að nýjum
ramma utan um
peningastefnuna
sem og almenna
efnahagsstjórn
á Íslandi. Þá
væri æskilegt að
lögfesta ákveðn-
ar þjóðhags-
varúðar reglur
með það fyrir
augum að auka stöðugleika í hag-
kerfinu.
Talaði Már meðal annars um
að minnka þyrfti áhættu þjóðar-
búsins vegna fjármagns hreyfinga
og bankastarfsemi yfir landa-
mæri. Taldi hann því næst upp sex
varúðar reglur sem skynsamlegt
gæti verið að lögfesta á Íslandi þar
á meðal tvær reglur er varða starf-
semi innlendra banka erlendis.
Annars vegar að takmarkanir yrðu
settar á slíka starfsemi sem gæti
kallað á ábyrgð íslenskra skatt-
borgara og hins vegar að innstæðu-
tryggingar yrðu aðeins greiddar út
í krónum.
Steingrímur J. Sigfússon, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, er sam-
mála Má um að þessi atriði þurfi
að skoða vandlega. Varðandi inn-
stæðutryggingar segist hann taka
undir með Má að æskilegt sé að
lögfesta að innstæðutryggingar
verði aðeins greiddar út í krónum
en bendir á að Íslendingar eru þó
í þessum málaflokki bundnir af
evrópsku lagaverki.
Þá segir hann að fara þurfi vel
yfir hvort ástæða sé til að tak-
marka lánveitingar í erlendri mynt.
Nauðsynlegt sé að læra af reynslu
síðustu ára og vonandi sé hægt að
tryggja að fjármálakerfið verði
heilbrigðara í framtíðinni með lög-
gjöf og í framkvæmd. Loks segir
hann enn mikla vinnu bíða á þessu
sviði. magnusl@frettabladid.is
Innstæðutryggingar
alltaf út í krónum
Már Guðmundsson seðlabankastjóri kallar eftir því að lögfestar verði svokallaðar
þjóðhagsvarúðarreglur til að styðja við hagstjórn og Seðlabanka. Efnahags- og
viðskiptaráðherra tekur undir með Má og segir mikla vinnu fyrir höndum.
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
alla sunnudaga klukkan 16.
Njótið vel
Hemmi Gunn
– og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur
Seðlabankinn gaf í desember árið 2010 út ritið Peningastefnan eftir höft,
þar sem leitast var við að gera grein fyrir helstu sjónarmiðum sem koma til
álita þegar tekin er ákvörðun um fyrirkomulag gengis- og peningamála á
Íslandi eftir að gjaldeyrishöftin hafa verið afnumin. Í ritinu kemur fram að
sú skoðun njóti vaxandi fylgis meðal sérfræðinga að Seðlabankanum nægi
ekki að hafa það eina stjórntæki til að geta breytt stýrivöxtum. Til að tryggja
bæði verð- og fjármálalegan stöðugleika þurfi Seðlabankinn fleiri stjórntæki.
Í því samhengi hefur verið litið til svokallaðra þjóðhagsvarúðarreglna eða
-tækja (macro-prudential tools) sem skilgreina má sem reglur eða önnur
verkfæri sem snúa að stöðugleika fjármálakerfisins í heild fremur en að
einstökum fjármálastofnunum. Nánar tiltekið er með þessum tækjum reynt
að horfa á samspil þjóðarbúsins í heild, tengsl milli fjármálastofnana og
þeirra markaða sem þau starfa á og verðlagningar áhættu í fjármálakerfinu.
Markmið þeirra verður þá annars vegar að draga úr hvata til ósjálfbærrar
skuldsetningar á þenslutíma og hins vegar að gera fjármálakerfið betur í
stakk búið til þess að takast á við fjármálaáföll.
Hvað eru þjóðhagsvarúðarreglur?
MÁR GUÐMUNDSSON Seðlabankastjóri kallar eftir því að lögfestar verði svokallaðar
þjóðhagsvarúðarreglur til að styðja við hagstjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KJÖRKASSINN
Fylgdist þú með leikjum
íslensku landsliðanna í
knattspyrnu í vikunni?
Já 20,6
Nei 79,4
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefur þú farið í bíó á árinu?
Segðu þína skoðun á visir.is