Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.03.2012, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 03.03.2012, Qupperneq 18
18 3. mars 2012 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Að baki stjórnmálahug-myndum liggur mis-munandi gildismat. Þá er einnig allur gangur á því hvort menn horfa á viðfangsefni stjórnmálanna af þúfu skamm- tímahagsmuna eða sjónarhæð langtímahagsmuna. Meðan Ísland var bundið af efna- hagsáætlun Alþjóða gjald eyris- sjóðsins voru langtíma sjónar mið sterkari en skammtímasjónar- mið og aðhaldssemi ofar eyðslu- hyggju. Þetta hefur hins vegar verið að breytast býsna hratt á síðustu mánuðum. Ekki er úr vegi að bera þessi umskipti saman við það gildis mat sem lá að baki við- brögðum við efnahagsáföllunum á ofanverðum sjöunda áratugnum. Þá var gripið til margvíslegra ráðstafana sem bæði stjórn- völd og vinnu- markaðurinn áttu aðild að. Ein þeirra var sú að setja á fót verð jöfnunar - sjóð í sjávar- útvegi til þess að draga úr áhrifum verð sveiflna á erlendum mörkuðum og bæta með því stöðug leikann í þjóðarbúskapnum. Önnur var sú að forystumenn launafólks og atvinnurekenda sömdu um stofnun almennra l ífeyris sjóða. Báðar þessar ráð stafanir sýndu að þrátt fyrir kreppu, kjaraskerðingu og atvinnu- leysi töldu menn rétt að leggja á ráðin um einhver mestu sparnaðar- áform í sögu landsins. Horft var til lengri framtíðar og gildi sparnaðar tekið fram yfir eyðsluhyggju. Um leið og vinstri stjórnin kom til valda 1971 var þessum gildum vikið til hliðar. Fyrsta verkið var að ganga hraustlega í verðjöfnunar sjóðinn. Það var ekki gert til að jafna sveiflur heldur til að auka eyðslu. Það átti að bæta kjörin og styrkja ríkissjóð. Þetta varð hins vegar neistinn sem kveikti verðbólgubál næstu tveggja áratuga. Lífeyris- sjóðirnir voru enn of veikburða til að freista. Sparnaðarhyggja í stað eyðsluhyggju Nú eru lífeyrissjóðirnir orðnir öflugir. Þá freista þeir. Í djúpri kreppu fyrir fjórum ára tugum var gildi lífeyrissparnaðarins leiðar- ljós sem smám saman færði menn að því marki að eiga þar traustar undirstöður velferðar kerfis og fjár- málalífs í landinu. Síðustu vikur hefur öll stjórnmálaumræða hins vegar snúist um hverjir treysti sér til að ganga lengst í loforðum um að eyða þessum sparnaði. Áform stjórnarflokkanna hafa komið fram í afar skýrum og ein- örðum yfirlýsingum forystumanna þeirra: Formaður velferðar nefndar Alþingis vill steypa öllum lífeyris- sjóðum í einn. Tilgangurinn er augljóslega sá að láta launafólk á almennum vinnumarkaði borga skuld ríkissjóðs við lífeyrissjóði opinberra starfsmanna. Innanríkisráðherrann vill draga fjármuni út úr lífeyrissjóðunum til þess að lána til verkefna sem ríkis- sjóður getur ekki aflað skatttekna fyrir. Lífeyrissjóðirnir eru lokaðir inni í of þröngu hagkerfi og eiga ekki annarra kosta völ. Í flestum tilvikum á að halda lánum sjóðanna utan við bókhald ríkissjóðs. Þegar ríkissjóður verður orðinn eini skuldari sjóðanna verður auðvelt að breyta kerfinu í gegnumstreymis- kerfi því með öllu er óvíst að ríkis- sjóður geti aflað tekna til að endur- greiða lánin. Loks vill formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis skatt- leggja viðbótarlífeyris sparnað landsmanna nú þegar en ekki jafn- óðum og hann er greiddur út. Gul- rótin er sú að þetta borgi sig að gera strax áður en tekju skatturinn verður hækkaður enn og aftur á næsta kjörtímabili. Svipuð hugmynd kom fyrst fram hjá þingmönnum Sjálfstæðis- flokksins. Réttlætingin var sú að koma í veg fyrir þær almennu skattahækkanir sem ríkis- stjórnin boðaði í upphafi og hefur nú gert að veruleika. Eigi að síður var hugmyndin varasöm og er enn frá leitari nú eftir að skattahækkanirnar eru staðreynd. Nú eru þeir freisting Í aðdraganda hrunsins náði eyðsluhyggjan yfirhöndinni. Þá voru það erlend lán sem uppfylltu drauma manna. Nú standa þau ekki til boða. Þá á að nota lífeyrissparnaðinn. Gildis- matið er það sama: Eyðsluhyggja. Erlendir lánardrottnar töpuðu mest í bankahruninu. Næst verða það lífeyrisþegar. Þessi nýi boðskapur kemur í kjölfar skattabreytinga sem er beinlínis stefnt gegn ráðdeildar- semi og eignamyndun. Á sama tíma má lesa úr reikningum Seðla- bankans að heimilin eru að auka yfirdráttarskuldir sínar og útlán til fyrirtækja dragast saman. Það eru ekki verksummerki endur- reisnar. Menn eru að glíma við að búa til afturvirkt réttlæti. Það er göfug hugsun. Verkurinn er hins vegar sá að leiðirnar sem þeir benda á fela flestar í sér framvirkt ranglæti. Það er nokkur ráðgáta hvers vegna stjórnarandstöðu flokkarnir tefla ekki fram öðrum kosti með nýrri efnahagsáætlun þar sem sparnaðarhyggjan leysir eyðslu- hyggjuna af hólmi. Það skyldi ekki vera að þögli meirihlutinn bíði eftir slíkri leiðsögn. Lífeyrissparnaður í stað erlendra lána F yrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, Árni Páll Árnason, sagði í Fréttablaðinu í gær að ummæli Stein- gríms J. Sigfússonar, þáverandi fjármálaráðherra, um íslenzku krónuna hefðu staðið í vegi fyrir erlendri fjár- festingu á Íslandi. „Forsenda erlendrar fjárfestingar og tiltrúar á íslenska krónu er að menn telji að stjórnvöld muni forðast gengisfellingar í lengstu lög. Ef menn skilgreina kosti íslenskrar krónu einvörðungu þá að hægt sé að fella hana, felast í því skilaboð til útlendinga um að hún sé mjög óviss eign og best sé að eiga ekkert undir henni,“ sagði Árni Páll. Við orðum Árna brást Steingrímur, eftirmaður hans í embætti, með því að segja að hann myndi ekki eftir „að hafa nokkru sinni rætt um mikilvægi þess að geta fellt gengið“ eins og haft var eftir honum hér í blaðinu í gær. Þetta er skrýtið minnisleysi. Steingrímur hefur margoft látið slík orð falla. Til dæmis á landsfundi Vinstri grænna í október: „[Þ]að eru okkar eigin efnahagslegu stýritæki, þar með talið eiginn gjald- miðill, sem eru að duga okkur til að komast út út kreppunni. Og hvers vegna skyldu þau þá ekki geta dugað vel áfram? […] Hin mikla gengislækkun var ekki án fórna en það voru engar inni stæður fyrir hágengi rugltímans og ekki skrýtið og engin ráðgáta að krónan lenti í frjálsu falli eftir hrun og efnahagsóstjórn um árabil.“ Steingrímur hefur talað enn skýrar í viðtölum við erlenda fjöl- miðla, sem erlendir fjárfestar eru líklegir til að fylgjast betur með en ræðum á landsfundum VG (þótt margir þeirra fylgist raunar ágætlega með fréttum á Íslandi). Í Wall Street Journal í maí í fyrra ítrekaði fjármálaráðherrann þáverandi að Ísland væri betur sett með krónuna, vegna þess að hún gerði íslenzkar afurðir ódýrari erlendis og greiddi þannig fyrir efnahagsbata. „Gengisfelling er aldrei án kostnaðar en hún hefur klárlega skapað útflutningi okkar gott samkeppnisforskot og styður raunhagkerfið í gegnum kreppuna,“ sagði Steingrímur þar. Nokkurn veginn sömu ummæli viðhafði hann í viðtali við BBC í október, þar sem hann sagði að fall krónunnar hefði búið til „myndarlegt samkeppnisforskot“. Það er skrýtið að Steingrímur segist ekki muna eftir þessu, því að möguleikinn á gengislækkun er í raun einu rökin fyrir því að halda í krónuna. „Sveigjanlegur“ gjaldmiðill sparar stjórnvöldum aga við hagstjórnina og gerir kleift að færa peninga frá launþegum til útflutningsatvinnuveganna eftir þörfum með því að færa þeim síðarnefndu hærri tekjur en lækka raunlaun og kaupmátt þeirra fyrrnefndu í gegnum hækkun á innfluttum vörum. Veigamikill hluti af fórnunum, sem Steingrímur J. kýs að fara ekki mjög nákvæm- lega út í, felst svo í hækkun skulda fólks og fyrirtækja, hvort sem þær eru í erlendri mynt eða verðtryggðum íslenzkum krónum. Það er gersamlega ómögulegt að sannfæra Íslendinga um að halda eigi í krónuna af því að hún sé svo sveigjanleg og telja um leið útlendum fjárfestum trú um að hún sé stöðugur og trúverðugur gjaldmiðill og fallin til að fjárfesta í. Það væri ljómandi gott að stjórnmálamenn áttuðu sig á þeirri mótsögn í eigin málflutningi. Eina röksemdin fyrir að halda í krónuna: Gleymd orð um gengisfellingar Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Áskorun um kröfulýsingu Ferðaskrifstofuleyfi Vesturheims sf. kt. 660706-0110, Engihjalla 25, 200 Kópavogi hefur verið fellt úr gildi þar sem félaginu hefur nú verið slitið. Starfsemi ferðaskrifstofunnar var tryggingaskyld samkvæmt V. kafla laga nr. 73/2005 um skipan ferðamála. Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laganna er tryggingunni ætlað að endurgreiða fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna alferðar, sem enn er ófarin og til heimflutnings viðskiptavinar úr alferð. Tryggingin nær einnig til þess að gera viðskiptavini kleift að ljúka alferð í samræmi við upphaflega áætlun hennar. Með vísan til 19. gr. laga nr. 73/2005 um skipan ferðamála er hér með skorað á viðskiptavini Vesturheims sf. að leggja fram skriflegar kröfulýs- ingar í tryggingarféð innan 60 daga frá birtingu áskorunar þessarar. Kröfulýsingum skal beint til Ferðamálastofu, Strandgötu 29, 600 Akureyri. Með henni skulu fylgja nauðsynleg sönnunargögn um kröfuna, svo sem farseðlar og kvittanir. Virðingarfyllst, F.h. Ferðamálastofu Helena Þ. Karlsdóttir, lögfræðingur helena@ferdamalastofa.is Sími: 535 5500
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.