Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.03.2012, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 03.03.2012, Qupperneq 20
20 3. mars 2012 LAUGARDAGUR Hugkvæmni þeirra er vissu-lega mikil, sem háværastar kröfur gera um að aðrir borgi skuldir en þeir, sem til þeirra stofnuðu (og tala margir þar undir rós um skuldamál sjálfra sín). Lengi vel voru einkum sungin þar þrjú stef: 1. Látum útlendingana borga brúsann með góðu – eða illu (ekki vantar nú rembinginn!). 2. Látum hina borgarana í bænum axla byrðarnar – þ.e. skattborgarana. 3. Sendum afa og ömmu reikn- inginn. Látum þau borga með lífeyrinum. Mörg tilbrigði hafa verið samin við þessi stef – enda skortir fólkið ekki hugkvæmnina! Eitt nýjasta tilbrigðið er samið af doktor í hagfræðum sem jafnframt hefur kennt við háskólann. Henni, því þetta er kona, datt í hug að búa til nýja útgáfu af rússneskri rúllettu. Hún er þannig að prenta á massa af seðlum, senda þá úr prent- smiðju gegnum Seðla bankann í sjóð, þaðan inn til skuldaranna, frá þeim í bankana og þaðan aftur í Seðlabankann. Með þessari útgáfu af rússneskri rúllettu segir doktorinn að hægt sé að gera allt fyrir alla án þess að það kosti nokkurn nokkuð. Ef svona rúllettur eru kenndar í viðskipta- og hagfræðideild HÍ er ekki undarlegt að fólk út skrifað þaðan hafi sett landið á höfuðið á aðeins fjórum árum. Þetta er nefnilega bara tilbrigði við stef nr. 2. Það eina, sem er alveg öruggt sé þessi rússneska rúlletta spiluð er að byssukúlan lendir í hausnum á skatt borgaranum. Í augum doktorsins kostar það svo sem ekki neitt. Í augum hans er skatt- borgarinn séríslensk auðlind, sem er þar að auki ókeypis. Í þessari hljómkviðu heyrðist þó á dögunum nýtt stef. Þá var gerð tillaga um að skattstofn, sem á að nýtast kynslóð barna skulduga fólksins, yrði skattlagður fyrir- fram og peningarnir notaðir til þess að greiða skuldir foreldr- anna. Niðurstaðan er nákvæm- lega sú hin sama og ef tillagan hefði verið gerð um að tekið yrði lán fyrir foreldrana sem börnin síðan ættu að borga. Það er næsta eðlilegt þegar nálgast kosningar, að pólitíkusar beri kvíðboga fyrir kjósendum. En að láta sér detta í hug, að þeir sem ekki hafa atkvæðisrétt greiði fyrir atkvæð- in – er það nú ekki svolítið lang- sótt. Getur það verið að menn vinni pólitíska sigra á slagorðinu: LÁTUM BÖRNIN BORGA! Auðmaður úr Hafnarfirði, Helgi Vilhjálmsson, oft kenndur við eitt af fyrirtækjum sínum, sælgætis- og páskaeggja- gerðina Góu, birti í vikunni opnuaug lýsingar í dagblöðum. Þar ræðst hann á lágkúrulegan hátt að lífeyris sjóðum landsmanna, einkum þó Lífeyrissjóði verslunar- manna og framkvæmdastjóra hans. Hann hefur oft áður gert atlögur að lífeyrissjóðunum – og gjarnan í aðdraganda páskanna. Þessi vor- boði segir okkur að nú sé stutt í páska og sala á páskaeggjum í aðsigi. Það er ekki annað hægt en að gruna þennan athafnamann um þá græsku að ætla með einkenni- legum málflutningi sínum um líf- eyrissjóði að vekja athygli á sér og páskaeggjaframleiðslu sinni í enn eitt skiptið. Þessi aðferð Góuforstjórans er óttalegur dónaskapur við fólkið í landinu og fjölmiðla. Með þessari háttsemi sinni er hann að ætla okkur það að við séum svo grunn- hyggin að við sjáum ekki í gegnum markaðsbrellur. Það er verið að freista þess að vekja athygli á framleiðsluvörum Góu þegar páskaeggjakauptíðin fer í hönd. Sem betur fer erum við neytendur ekki svo einfaldir að við látum plata okkur með slíkum hætti. Áralangar útistöður Helgi Vilhjálmsson hefur um ára- bil átt í útistöðum við lífeyris- sjóðina og m.a. haldið því fram að sjóðirnir ættu að standa fyrir fram kvæmdum sem þeim er engan veginn heimilt að sinna og væru lögbrot. Þar er m.a. átt við ára- langt tal hans um að sjóðirnir ættu að reisa hjúkrunar- eða dvalar- heimili fyrir aldraða. Honum hefur ítrekað verið bent á að slíkar fram- kvæmdir eru ekki í verkahring lífeyrissjóðanna, samkvæmt nú- gildandi lögum, enda hafa þeir engar heimildir til þess. Helgi skilur þetta alveg en hann velur að halda áfram einkennilegum mál- flutningi sínum til að vekja athygli á sér og fyrirtækjum sínum. Líf- eyrissjóðir hafa hins vegar tekið þátt í fjármögnun slíkra verkefna með kaupum á skuldabréfum sem hafa gert réttum aðilum kleift að koma verkefnunum í höfn. Lífeyris- sjóður verslunarmanna hefur m.a. komið að fjármögnun af því tagi með öðrum lífeyrissjóðum. Umhyggja? Á Helga Vilhjálmssyni hefur mátt skilja að hann bæri sérstaka umhyggju fyrir sjóðfélögum og talið sig vera að ráða þeim heilt með því að hvetja þá til að greiða ekki í sjóðina þrátt fyrir skýrar lagaskyldur þar um. Ég verð því miður að efast um heilindi hans í þessum efnum. Sá grunur læðist að manni að umhyggja hans beinist einkum að eigin rekstri og tekjuöflun þar sem einskis er svifist til að vekja á sér athygli. Nú gerir hann að sérstöku umtalsefni að framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna skuli hafa bifreið til afnota samkvæmt starfssamningi eins og algengt er hjá helstu yfirmönnum víða í fyr- irtækjum og stofnunum. Það eru fleiri en ráðherrar sem hafa afnot af bifreiðum. Ég er viss um að Helgi Vilhjálmsson er svo reyndur í íslensku viðskiptalífi að honum sé fullkunnugt um það. En vonandi gleður það súkkulaðiforstjórann og alla aðra löghlýðna borgara að framkvæmdastjóri sjóðsins greiðir fulla skatta af þessum hlunnindum eins og mælt er fyrir um í skatta- lögum. Mér leiðist að þurfa að svara Helga Vilhjálmssyni vegna þessa máls því ég ber virðingu fyrir mörgu sem hann hefur gert vel í á löngum ferli. Hann er einn af þeim duglegu Íslendingum sem brotist hafa áfram af eljusemi og krafti og komið sér vel fyrir í veraldleg- um efnum. En það er hins vegar leitt þegar auðlegð fyllir menn hroka og rang- hugmyndum sem leiða til þess að þeir telji sig þess umkomna að ráðast gegn öðrum með raka- lausum áróðri og svívirðingum – ár eftir ár – og jafnan undir yfirskini umhyggju fyrir fólki. Páskabrella súkkulaðiforstjórans Látum börnin borga Lífeyrissjóðir Helgi Magnússon formaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna Þessi aðferð Góuforstjórans er óttalegur dónaskapur við fólkið í landinu og fjöl- miðla. Með þessari háttsemi sinni er hann að ætla okkur það að við séum svo grunnhyggin að við sjáum ekki í gegnum markaðsbrellur. Fjármál Sighvatur Björgvinsson fv. ráðherra AF NETINU Afskriftaþorsti ágerist Afskriftaþorsti hefur hlaupið í þingmenn í tilefni fyrirsjáan- legra kosninga á næsta ári. Þeir sjá, hvernig fylgið hrannaðist að Lilju Mósesdóttur, sem leggur til, að Seðlabankinn gefi skuldurum peninga. Íslenzkir kjósendur eru nógu heimskir til að elska sjónhverfingar. Þess vegna er Helga Hjörvar mikið í mun að stjórnarflokkarnir taki þátt í yfirboðum í afslætti skulda. Krafan um geigvænlegar eignatilfærslur verður höfuðmál næstu alþingiskosninga. Þá munu mestu sölumenn snákaolíu fá mest fylgi. Afskriftaþorsti er útbreiddur í samfélaginu um þessar mundir og mun seiða til sín skelfingu lostna þingmenn. http://www.jonas.is/ Jónas Kristjánsson AF NETINU Útlending í FME! „Þegar núverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins var ráðinn árið 2005 lagði ég til að útlendingur yrði ráðinn forstjóri og færði fyrir því skýr rök. Stjórnvöld hefðu betur farið að mínum tillögum þá. Nú verður nýr forstjóri Fjármálaeftirlitsins ráðinn. Það á að vera útlendingur.“ Þetta bloggaði ég 25. janúar 2009. Enn einu sinni kemur í ljós að afar oft hef ég rétt fyrir mér þótt það falli í grýttan jarðveg þegar ég kem því á framfæri … … afsakið hrokann, en svona er það bara! http://blog.eyjan.is/hallurm/ Hallur Magnússon FYRIR HEIMILIÐ! HÚSGÖGN OG SMÁVARA HÚSGAGNAHÖLLIN Bíldshöfða 20 Reykjavík sími 585 7200 OPIÐ Virka daga 10-18 laugardaga 12-18 sunnudaga lokað ANNE Borðlampi. margir litir. BODUM CHAMBORD 4 eða 8 bolla kanna. BE ON FIRE Kerti. Margir litir og stærðir. Verð frá 99 kr. ZONE DOLOMIT Sápupumpa. Margir litir. FULLT VERÐ: 219.990 164.990 3 SÆTA SÓFI FULLT VERÐ: 159.990 119.990 2 SÆTA SÓFI Fullt verð: 2.990 1.990 LAMPI Fullt verð: 7.990 4.990 4 BOLLA Fullt verð: 9.990 6.990 8 BOLLA 25% AFSLÁTTUR STYLO 2 sæta sófi. Svart leður. B:158 D:85 H:85 cm. STYLO 3 sæta sófi. Svart leður. B:200 D:85 H:85 cm. Fullt verð: 990 490 Innflutningur – Heildsala Lítið innflutningsfyrirtæki er til sölu eftir 15 ára farsæla starfsemi. Góð viðskiptasambönd við birgja og traustir viðskiptavinir. Gefur góðar tekjur og hentar vel tveimur samhentum starfsmönnum. Nánari upplýsingar veitir Arna Hilmarsdóttir hjá H. Sigurðssyni Mosfellsbæ. Símar: 566-6501, 616-3138 og netfang: arnahilmars@vortex.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.