Fréttablaðið - 03.03.2012, Qupperneq 32
3. mars 2012 LAUGARDAGUR32
Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barna-
heillum, segir flesta gera
sér grein fyrir því að hvorki
megi beita börn líkamlegu né
kynferðis legu ofbeldi. Það sé hins
vegar líka réttur barna að vera
vernduð fyrir andlegu ofbeldi. Í
því geti falist skeytingarleysi og
vanræksla, en framkoma full-
orðinna við börn geti líka brotið
á réttindum þeirra, eins og þau
séu tryggð í Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna. „Börn eiga rétt
á vernd gegn hvers kyns ofbeldi,
innan og utan heimilis. Við
þekkjum þessi réttindi en eigi að
síður er börnum, og kannski ekki
síst unglingum iðulega sýnd van-
virðandi háttsemi. Því bregður oft
við að við teljum okkur geta komið
öðruvísi fram við börn en full-
orðna. Það er til að mynda mikið
um það að komið sé öðruvísi fram
við unglinga sem vinna úti, til
dæmis í búðum, en fullorðna. Ef
þau ráða ekki við hlutverk sitt af
einhverjum ástæðum þá er ekki
við þau að sakast heldur fullorðna.
Sonur minn sem er 24 ára í dag
sagði mér til að mynda frá því að
það hefði aldrei verið komið jafn
illa fram við hann og þegar hann
var í sinni fyrstu vinnu á kassa
í Hagkaup. Annað atvik sem ég
sjálf upplifði átti sér stað í Bónus.
Þar varð ég vitni að því að kona
hellti sér yfir kerrustrák með
miklum dónaskap. Ég kallaði til
konunnar og spurði hana hvort
hún myndi tala svona við starfs-
manninn ef hann væri fullorðinn.
Hún játaði á sig dónaskapinn og
svo kom í ljós að pilturinn var á
sínum fyrsta degi í vinnunni og
var auðvitað að gera sitt besta
eins og búast mátti við.
Börn eru nefnilega besta fólk
og við ættum að hafa í huga
þegar við ræðum við börn og
unglinga að við eigum að koma
fram við þau eins og við viljum
að sé komið fram við börnin
okkar. Full orðnir gera oft ráð
fyrir að unglingar séu að gera
eitthvað slæmt, og unglingar eru
auðvitað alls konar fólk og oft
mjög fjörugir, en meirihlutinn
er mikið sómafólk og frá góðum
heimilum. Ef þau koma illa fram
þá eru einhverjar skýringar þar
að baki, þau eru kannski með
einhverjar raskanir eða eru van-
rækt, og það er ekki þeirra sök.“
Margrét Júlía segist fullviss um
að andlegt ofbeldi gegn börnum
leynist víðar en fólk geri sér grein
fyrir. „Það flokkast undir andlegt
ofbeldi að vera í sífellu að setja út
á börn, að leggja of mikið á þau og
gera til þeirra óraunhæfar kröfur.
Svo eiga fullorðnir ekki að líta á
börnin sín sem sálufélaga og sjá
börn sem framlengingu á sjálfum
sér. Okkar hlutverk er að koma
börnunum okkar til manns, ekki
að vera vinir þeirra, þó að það sé
auðvitað gott líka,“ segir Margrét
Júlía og bætir við að lokum að
mikilvægt sé að tilkynna það til
viðeigandi yfirvalda vakni grunur
um að barn sé beitt ofbeldi.
UNGLINGUM OFT SÝND VANVIRÐING
Barnasáttmálinn var formlega samþykktur á allsherjarþingi S.Þ. haustið 1989.
Allar aðildarþjóðir S.Þ. hafa staðfest sáttmálann nema Bandaríkin og Sómalía.
Staðfestingin felur í sér að lög og reglur eigi að vera í samræmi við sáttmálann og
aðildarríkin geri það sem í þeirra valdi stendur til að framfylgja lögunum.
Megininntak Barnasáttmálans er að gefa börnum grið, tækifæri og áhrifa-
mátt. Um er að ræða alþjóðlega viðurkenningu á því að börn þarfnist sérstakrar
verndar umfram fullorðna, þeim séu tryggð full mannréttindi og eigi rétt á að
alast upp við öryggi og í friði, burtséð frá búsetu, kynferði, kynþætti, trú eða
félagslegum aðstæðum.
Þess má geta að sáttmálinn hefur ekki verið bundinn í lög hér á landi meðal
annars vegna ákvæða í sáttmálanum um að ekki megi vista unga afbrotamenn
(börn á aldrinum 15-18) með fullorðnum afbrotamönnum. Nánari umfjöllun
um sáttmálann er að finna á vefsíðu umboðsmanns barna www.barn.is.
20 ÁR FRÁ STAÐFESTINGU BARNASÁTTMÁLANS
Börnum er tryggð vernd gegn ofbeldi og vanrækslu í Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna
19. grein. Vernd gegn ofbeldi og vanrækslu
Börn eiga rétt á vernd gegn hvers kyns líkamlegu, andlegu og kynferðislegu
ofbeldi, misnotkun, skeytingarleysi og vanrækslu, innan eða utan heimilis.
Stjórnvöld skulu veita börnum sem sætt hafa illri meðferð og fjölskyldum
þeirra viðeigandi stuðning.
34. grein. Kynferðislegt ofbeldi
Börn eiga rétt á vernd gegn hvers kyns misnotkun sem á einhvern hátt getur
stefnt velferð þeirra í hættu.
Í ár eru 20 ár liðin frá því að Ísland
staðfesti Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna. Í tilefni stórafmælis
sáttmálans mun Fréttablaðið fjalla
reglulega í helgarblaði um málefni
sem tengjast Barnasáttmálanum
með einum eða öðrum hætti.
20 ÁRA
Barnasáttmáli
Sameinuðu
þjóðanna
MARGRÉT JÚLÍA Börn eru besta fólk og
unglingar sömuleiðis.
N
orðlingaskóli er einn af
nýrri skólum Reykja-
víkurborgar. Í stóru
opnu rými eru ung-
lingabekkirnir þrír
samankomnir og þar hittir Frétta-
blaðið fyrir fjögur ungmenni, þau
Emilíu Björt Ásgeirsdóttur sem er
í níunda bekk og tíundu bekkingana
Andra Fannar Arnarson, Hjördísi
Evu Ólafsdóttur og Davíð Leví
Ólafsson. Við komum okkur fyrir
í herbergi á annarri hæð skólans
og hefjum samtal um samskipti
fullorðinna og unglinga og förum í
framhaldinu út um víðan völl.
Er hlustað á unglinga?
Andri Fannar: Ég hef hugsað mjög
mikið um þessi mál og mér finnst
vera hlustað á okkur til þess að
hlusta á okkur. Hlustað en samt
ekki hlustað.
Hjördís Eva: Það er oft komið
fram við okkur eins og við séum
bara krakkar og eiginlega verr. Til
dæmis á Olísstöðinni hér í Norð-
lingaholti, það mega eiginlega bara
fullorðnir og krakkar sitja þar, ekki
unglingar.
Davíð Leví: Sem er glatað því þetta
er eini staðurinn fyrir utan félags-
miðstöðina sem hægt er að hanga á
hér í Norðlingaholtinu.
AF: Allt vegna þess að það komu
strákar úr Árbænum og sprautuðu
tómatsósu á bak við bekk.
HE: Þetta voru ekki einu sinni
strákar úr Norðlingaholtinu!
DL: Fólk sem er eldra en fertugt,
það fer að tala við yngra fólk eins
og það sé hálfvitar og segir svo
ungu fólki að tala við eldra fólk eins
og það sé alviturt.
HE:Ég tek eftir því að mamma
hneykslast oft á því þegar af-
greiðslu fólk í búðum segir ekki
góðan dag, en það geta allir átt
slæman dag.
Of róleg eða of æst
DL: Fullorðnir vilja alltaf að við
séum að sinna einhverju „small-
talki“.
HE: Þeim finnst við oft alltof róleg,
eða of æst og þykir sjálfsagt að
allir hafi millistig og séu alltaf full-
komnir.
AF: Ég hef líka tekið eftir því að
fólk hlustar oft ekki á okkur, þrátt
fyrir að við vitum mikið um eitt-
hvað málefni. Taka ekki alveg mark
á okkur því við höfum ekki horft
með þeim á fréttirnar.
Emilía Björt: Ég fæ oft þessa
spurningu, hvernig vissir þú þetta,
þú varst ekki að horfa á fréttirnar?
AF: En það er allt á netinu og við
notum netið mjög mikið.
DL: Allt nema Egill Skallagrímsson,
ég er búinn að leita að upp lýsingum
um hann í tvo daga og það er ekki
neitt um hann, ég er ekki að leita
að ljóðaskrám heldur hvenær hann
gerði hlutina.
Engin tæknihræðsla
HE: Foreldrar okkur halda stundum
að við séum ekki að gera neitt annað
í tölvunni en að finna sjónvarps-
þætti, en við erum að gera alveg
helling.
EB: Þau kunna heldur ekki endilega
jafn vel og við á tölvur.
AF: Ég held að það fari eftir
menntun, smiðir, læknar og
hjúkrunar fræðingar, þeir kunna á
vinnupakkann og svo ekki meir.
DL: Pabbi hefur reyndar kennt mér
margt, og ég honum.
EB. Ég held að ég kunni meira en
mamma á tölvur.
AF: Ég held að það sé til tækniá-
nægja og tæknihræðsla, síðarnefnda
felst í því að taka fram bæklinginn
og reyna að skilja áður en byrjað er
að prófa. Sem er ekki aðferðin mín.
HE: Við erum reyndar oft að leita
að sjónvarpsþáttum í tölvunni. Samt
líður mér alltaf illa þegar ég hleð
niður uppáhaldsþáttunum mínum,
en ég get ekki annað.
AF: Því þeir koma ekki til Íslands
fyrr en eftir mörg ár.
EB: Við hlustum líka mikið á tónlist
í tölvum.
AF: Margir hlusta á Youtube eða
Pirate Bay fyrst og kaupa svo lögin
á iTunes.
Eru ykkur settar tímaskorður í
tölvunni?
EB: Það var þannig, eiginlega ekki
lengur.
AF: Ég geri það sjálfur, ég fer
stundum út þegar ég finn að ég er
búinn að vera of lengi í tölvunni.
Hvernig eru samskiptin ykkar á
milli?
HE: Við þekkjumst öll svo vel, því
við höfum verið saman í skóla síðan
hann var pínulítill.
AF: Við erum öll vinir og höngum
saman.
EB: Líka á milli árganga, það er
einn bekkur í hverjum árgangi hér.
HE: Okkur þykir mjög vænt um
skólann okkar.
AF: Eitt verður að koma fram að
kennararnir og allt starfsfólkið í
þessum skóla skilur okkur töluvert
betur en allir aðrir.
DL: Þau eru ekki að reyna að
stjórna okkur heldur að hjálpa
okkur.
HE: Þau vilja að við gerum hlutina
sjálf og verðum sjálfstæð.
Leiðir foreldrar verri en reiðir
Er ætlast til þess að þið standið
ykkur vel?
EB: Ég set pressu á sjálfa mig og vil
standa mig vel.
HE: Ég líka, ef ég fæ 8,5 í einkunn
þá fæ ég samviskubit.
DL: Stelpurnar eru meira svona,
það er meira verið í samningavið-
ræðum við okkur.
AF: Það er ekkert leiðinlegra en
þegar foreldrar segjast vera von-
sviknir með mann, það er glatað.
Það er miklu auðveldara að díla
við reiða foreldra heldur en leiða
foreldra.
Hvað með eftirlit, sætið þið
ströngum reglum?
AF: Langflestir vita að það er
ekkert vit að fara að drekka í
grunn skóla og engan langar til að
byrja að reykja.
DL: Ekki eftir að Ragnar [kennari]
kom með gervilunga og sýndi okkur
hvað kom mikil tjara úr einni
sígarettu, það var ógeðslegt.
Krakkarnir eru góðir vinir og hafa
fylgst lengi að í skóla, hvernig fer í
vor þegar 10. bekk lýkur?
AF: Árgangurinn splundrast svo-
lítið, við erum að fara út um allt.
Ég fer til Noregs.
DL: Ég líka, fjölskyldan er að flytja
þangað.
HE: Ég stefni á Versló.
EB: Ég ætla að sækja um alla
skólana og athuga hvort ég komist
inn í þá.
HE: Við værum samt mest til í að
fara í framhaldsskóla hér.
Eitthvað sem þið viljið koma á
framfæri að lokum?
DL: Strætókerfið er ömurlegt, það
er eitthvað sem fullorðnir mættu
laga.
AF: Maður er klukkutíma að fara
allt, ég hef verið fljótari en Strætó
að hjóla niður á Hlemm.
HE: Lélegt strætókerfi bitnar mest
á unglingum.
Segjast hlusta en gera það ekki
Þau Emilía Björt Ásgeirsdóttir, Andri Fannar Arnarson, Hjördís Eva Ólafsdóttir og Davíð Leví Ólafsson eru nemendur í
Norðlingaskóla. Þau sögðu Sigríði Björgu Tómasdóttur frá fordómum í garð unglinga, tæknigleði og áhrifamiklu gervilunga.
SAMRÝMD Hjördís Eva, Andri Fannar, Davíð Leví og Emilía Björt hafa fylgst að um árabil í Norðlingaskóla og þekkjast því vel. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM