Fréttablaðið - 03.03.2012, Side 37

Fréttablaðið - 03.03.2012, Side 37
SJÁVARÚTVEGUR LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Kynningarblað Námið, sjómennskan og þjónusta við sjávarútvegsfyrirtæki Olíuverzlun Íslands, eða Olís, rekur eins og kunn-ugt er fjölda þjónustu- stöðva undir vörumerki Olís ásamt sjál fsafgreiðslustöðv- um undir vörumerki ÓB – ódýrt bensín um allt land. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og þjónustu á eldsneyti auk þess sem það býður upp á ýmsa nauðsynjavöru fyrir bíleigendur. Það býður líka upp á fjölþætta þjónustu fyrir verktaka- og flutningafyrirtæki en stærsti liðurinn í starfseminni er þjónusta við sjávarútvegsfyrirtæki. Áhersla á gerð hreinlætisáætl- ana og eftirlit með þeim „Fyrir tæki í sjávarútvegi eru okkar stærstu viðskiptavinir og teljum við okkur veita þeim betri þjónustu en samkeppnisaðilar Olís ,“ segir sölufulltrúinn og hreinlætisráðgjafinn Bjarni Valdimar Eggertsson og nefnir hreinlætismálin sérstaklega. „Við sjáum um öll gæðakerfi og útbúum hreinlætisáætlanir auk þess að bjóða upp á kennslu og ráðgjöf á því sviði. Þá förum við í reglulegar heimsóknir þar sem við tökum sýni, förum yfir þrifin og gefum ráðleggingar varðandi það sem betur má fara.“ Bjarni Valdimar hefur séð um hreinlætisáætlanir fyrirtækis- ins í sjö ár en hefur starfað sam- tals sautján ár í greininni ef fyrri störf eru talin með. Hann segir sífellt gerðar meiri kröfur um að þær séu vel úr garði gerðar og uppfylltar. „Öll sjávarútvegsfyrir- tæki, fiskvinnslur og skip þurfa að hafa hreinlætisáætlun til að fá vinnsluleyfi og flestir leggja mik- inn metnað í þessi mál. Kröfur er- lendra kaupenda eru miklar og þurfa þessir hlutir að vera í lagi til að framleiðsluvaran fái samþykki þeirra,“ segir Bjarni Valdimar. Vörur og þjónusta um allt land Olís þjónustar sjávarútvegsfyr- irtæki með ýmsum hætti og fyrir utan að selja allt eldsneyti þá býður fyrirtækið upp á vörur eins og hreinsiefni, pappír, rafgeyma, fatnað og einnota vörur til skipa og tengdra fyrirtækja. „Þá erum við með útgerðarvörudeild þar sem er hægt að nálgast nánast allar vörur til útgerðar. Má þar nefna allar gerðir af trollum, netum, lásum, vírum og trollhemlum. Við erum sömuleiðis með gott víraverkstæði og sjáum meðal annars um allar splæsingar. Þá seljum við smurolíu og annað sem flotinn þarf að nota.“ Bjarni Valdimar segir fyrirtækið vera með sérfræðinga á hverju sviði. „Við erum svo lánsamir að vera með reynda starfsmenn með langan starfsaldur og hér liggur mikil þekking. Við erum með um- boðsmenn í nánast hverjum firði enda mikið af okkar viðskiptavin- um á landsbyggðinni. Þar erum við með lagera og útibú og sjáum til þess að vara og þjónusta séu til staðar þegar skipin koma í land.“ Þjónusta við sjávarútvegsfyrirtæki stór liður í starfsemi Olís Þó að sala og þjónusta á eldsneyti sé veigamesti liðurinn í starfsemi Olís þá vegur önnur þjónusta við sjávarútvegsfyrirtæki einnig þungt. Bjarni hefur séð um hreinlætisáætlanir Olís í sautján ár. „Öll sjávarútvegsfyrirtæki, fiskvinnslur og skip þurfa að hafa hreinlætisáætlun til að fá vinnsluleyfi og flestir leggja mikinn metnað í þessi mál.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HREINLÆTIÐ Í FYRIRRÚMI Olís er með umboð fyrir alls kyns vörur, þar á meðal Arrow- hreinsiefnin sem margir þekkja, og hafa verið á markaði á Íslandi frá árinu 1972.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.