Fréttablaðið - 03.03.2012, Síða 37
SJÁVARÚTVEGUR
LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Kynningarblað Námið, sjómennskan og þjónusta við sjávarútvegsfyrirtæki
Olíuverzlun Íslands, eða Olís, rekur eins og kunn-ugt er fjölda þjónustu-
stöðva undir vörumerki Olís
ásamt sjál fsafgreiðslustöðv-
um undir vörumerki ÓB – ódýrt
bensín um allt land. Fyrirtækið
sérhæfir sig í sölu og þjónustu á
eldsneyti auk þess sem það býður
upp á ýmsa nauðsynjavöru fyrir
bíleigendur. Það býður líka upp á
fjölþætta þjónustu fyrir verktaka-
og flutningafyrirtæki en stærsti
liðurinn í starfseminni er þjónusta
við sjávarútvegsfyrirtæki.
Áhersla á gerð hreinlætisáætl-
ana og eftirlit með þeim
„Fyrir tæki í sjávarútvegi eru
okkar stærstu viðskiptavinir og
teljum við okkur veita þeim betri
þjónustu en samkeppnisaðilar
Olís ,“ segir sölufulltrúinn og
hreinlætisráðgjafinn Bjarni
Valdimar Eggertsson og nefnir
hreinlætismálin sérstaklega.
„Við sjáum um öll gæðakerfi og
útbúum hreinlætisáætlanir auk
þess að bjóða upp á kennslu og
ráðgjöf á því sviði. Þá förum við
í reglulegar heimsóknir þar sem
við tökum sýni, förum yfir þrifin
og gefum ráðleggingar varðandi
það sem betur má fara.“
Bjarni Valdimar hefur séð um
hreinlætisáætlanir fyrirtækis-
ins í sjö ár en hefur starfað sam-
tals sautján ár í greininni ef fyrri
störf eru talin með. Hann segir
sífellt gerðar meiri kröfur um að
þær séu vel úr garði gerðar og
uppfylltar. „Öll sjávarútvegsfyrir-
tæki, fiskvinnslur og skip þurfa
að hafa hreinlætisáætlun til að fá
vinnsluleyfi og flestir leggja mik-
inn metnað í þessi mál. Kröfur er-
lendra kaupenda eru miklar og
þurfa þessir hlutir að vera í lagi til
að framleiðsluvaran fái samþykki
þeirra,“ segir Bjarni Valdimar.
Vörur og þjónusta um allt land
Olís þjónustar sjávarútvegsfyr-
irtæki með ýmsum hætti og fyrir
utan að selja allt eldsneyti þá
býður fyrirtækið upp á vörur eins
og hreinsiefni, pappír, rafgeyma,
fatnað og einnota vörur til skipa og
tengdra fyrirtækja. „Þá erum við
með útgerðarvörudeild þar sem er
hægt að nálgast nánast allar vörur
til útgerðar. Má þar nefna allar
gerðir af trollum, netum, lásum,
vírum og trollhemlum. Við erum
sömuleiðis með gott víraverkstæði
og sjáum meðal annars um allar
splæsingar. Þá seljum við smurolíu
og annað sem flotinn þarf að nota.“
Bjarni Valdimar segir fyrirtækið
vera með sérfræðinga á hverju
sviði. „Við erum svo lánsamir að
vera með reynda starfsmenn með
langan starfsaldur og hér liggur
mikil þekking. Við erum með um-
boðsmenn í nánast hverjum firði
enda mikið af okkar viðskiptavin-
um á landsbyggðinni. Þar erum
við með lagera og útibú og sjáum
til þess að vara og þjónusta séu til
staðar þegar skipin koma í land.“
Þjónusta við sjávarútvegsfyrirtæki
stór liður í starfsemi Olís
Þó að sala og þjónusta á eldsneyti sé veigamesti liðurinn í starfsemi Olís þá vegur önnur þjónusta við sjávarútvegsfyrirtæki einnig þungt.
Bjarni hefur séð um hreinlætisáætlanir Olís í sautján ár. „Öll sjávarútvegsfyrirtæki, fiskvinnslur og skip þurfa að hafa hreinlætisáætlun til að fá vinnsluleyfi og flestir leggja mikinn metnað í þessi mál.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HREINLÆTIÐ Í FYRIRRÚMI
Olís er með umboð fyrir alls
kyns vörur, þar á meðal Arrow-
hreinsiefnin sem margir þekkja,
og hafa verið á markaði á Íslandi
frá árinu 1972.