Fréttablaðið - 03.03.2012, Síða 38
KYNNING − AUGLÝSINGSjávarútvegur LAUGARDAGUR 3. MARS 20122
Hvað prýðir góðan skipstjóra?
„Hann þarf að búa yfir foringja-
hæfileikum, vera ákveðinn, yfir-
vegaður og mjög andlega sterk-
ur. Það geta allir verið skipstjór-
ar þegar veðrið er gott og ekkert
amar að, en þegar gefur á bátinn
og eitthvað bjátar á greinir á milli
hverjir hafa hæfileika og getu til
að vera við skipstjórn, lesa í veður
og haga siglingum eftir því.“
Eru skipstjórn og vélstjórn eina
réttindanámið sem þarf til sjós? „Já,
en vakthafandi hásetar á farskip-
um þurfa að ljúka námskeiðinu
„Aðstoðarmaður í brú“ og allir sjó-
menn verða að ljúka námi í Slysa-
varnaskóla sjómanna.“
Hvaða munur er á skipstjóra og
vélstjóra? „Munurinn er talsverð-
ur; vélstjóri sér um vélarrúmið og
að halda vélum skipsins gangandi,
en skipstjórar sjá um að sigla skip-
inu. Þeir sem ljúka námi í skip-
stjórn byrja til sjós sem stýrimenn
og vinna sig upp í að verða skip-
stjórar.“
Er nám á skipstjórnarsviði vin-
sælt? „Já, og verður æ vinsælla. Vél-
stjórinn hefur ávallt verið vinsælli
því þeim réttindum fylgja einnig
atvinnumöguleikar í landi. Mikil
aukning hefur orðið í dreifinámi
skólans, sem mætir til dæmis þörf-
um sjómanna á miðunum sem sjá
sér ekki fært að taka sér námshlé
en vilja ná sér í réttindin. Þá taka
æ fleiri bæði vélstjórnar- og skip-
stjórnarréttindi, sem getur vissu-
lega komið sér vel á sjó.“
Í hvaða skipaflota stefna nem-
endur að námi loknu? „Flestir vilja
ná sér í réttindi fyrir fiskiskipaflot-
ann og svo fragtskipin. Skipaflot-
inn er fjölbreyttur og flestir sem
ljúka skipstjórnarprófi bæta við
sig farmannaprófi. Þá öðlast þeir
alþjóðleg réttindi sem miðast við
ótakmarkaða stærð skipa og opn-
ast tækifæri til starfa hvar sem er í
veröldinni. Mikil eftirspurn er eftir
skipstjórnarmönnum um allan
heim.“
Sækja konur jafnt í vélstjórn-
ar- eða skipstjórnarnám? „Sjó-
mennska er enn ríkjandi karl-
mannsstarf, en í fyrra útskrifuð-
um við þrjár konur þótt í vetur sitji
engin í skólanum. Fáeinar eru í
dreifnámi. Flestir nemenda okkar
koma hins vegar gagngert hingað
til náms, hafa sótt sjóinn áður og
ákveðið að leggja sjómennskuna
fyrir sig.“
Er sjómannslífið rómantískt?
„Já, sjómennska, og ekki síst stýri-
mannastarfið, hefur yfir sér róm-
antískan sjarma. Starfið hefur þó
breyst á síðustu árum og minna
um löng stopp í erlendum höfnum
með tilheyrandi ævintýraljóma.“
Er kaupið gott í sjómannastétt?
„Já, sjómenn kvarta ekki yfir laun-
um sínum og alltaf er vöntun á
góðum mönnum til starfa á sjó.“
Er sjómennskan hættulegt
starf? „Sjómannastörf eru vissu-
lega hættulegri en mörg önnur,
en slysatíðni meðal sjómanna
hefur lækkað mikið á undanförn-
um árum með aukinni þjálfun í
slysavörnum og betri aðbúnaði
um borð. Nemendur eru því full-
ir tilhlökkunar og bjartsýni yfir að
hefja störf á sjó að námi loknu.“
Rómantískt sjómannslíf
Sjómannslíf er heillandi og rómantískt í hugum margra og víst að ímynds hins sanna
sjómanns er sveipuð hetjudáð og ævintýraljóma. Vilbergur Magni Óskarsson skólastjóri
Skipstjórnarskóla Tækniskólans segir sjóinn enn lokka og laða.
Vilbergur Magni Óskarsson, skólastjóri Skipstjórnarskóla Tækniskólans, með nemendur í skipstjórnarnámi í afar raunverulegum
siglingahermi í gamla Sjómannaskólanum við Háteigsveg. MYND/GVA
ÞJÓNUSTA FYRIR
ÚTGERÐARAÐILA
Uggi, upplýsingagátt Fiskistofu,
inniheldur ýmsa þjónustu fyrir
útgerðaraðila. Þar má meðal
annars sækja rafrænt um ýmis leyfi
og finna innsláttarform til að hafa
áhrif á frádrátt einstakra tegunda
vegna breyttra aðferða við úthlutun
aflamarks fiskveiðiárið 2011/2012.
Bráðlega verður þar að finna upp-
lýsingar varðandi aflaheimildir og
athafnir skipa útgerðarinnar. Sækja
þarf sérstaklega um aðgang á vefsíðu
Ugga. Slóðin á upplýsingagáttina er
https://uggi.fiskistofa.is/pages/.
BREYTT VIÐMIÐUNARVERÐ
Ákveðið var að lækka viðmiðunar-
verð á þorski í viðskiptum milli
skyldra aðila um sjö prósent og
lækka viðmiðunarverð á ýsu í við-
skiptum milli skyldra aðila um fimm
prósent á fundi úrskurðarnefndar
sjómanna og útvegsmanna 29.
febrúar. Á móti var ákveðið að hækka
viðmiðunarverð á ufsa í viðskiptum
milli skyldra aðila um sex prósent.
Breytingin á viðmiðunarverðinu tók
gildi í gær.
Þetta kemur fram á vef Verðlagsstofu
skiptaverðs, verdlagsstofa.is.
Lensidælur
Spúldælur
Brunadælur
Tannhjóladælur
Brunndælur
Kælivatnsdælur
Vatnagörðum 16, 104 Reykjavík,
Sími 568 6625, velar@velarehf.is
Saltkaup hf. • Cuxhavengata 1 • 220 Hafnarfjörður
Sími: 560 4300 • www.saltkaup.is
BEST OG VERST VIÐ SJÓMENNSKU
„Það neikvæðasta við sjómennsku eru langar fjarvistir að heiman, en
á móti koma löng og vel launuð frí á móti,“ segir Vilbergur. „Sjóveiki fer
svo yfirleitt af mönnum fyrstu dagana á sjó og oftast fyrir lífstíð, en hjá
einum og einum örlar alltaf á smávegis sjóveiki eftir langt frí í landi, en
hún hverfur fljótt svo menn láta hana ekki á sig fá.“