Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 42
ég með húmor því maður verður
að geta hlegið að þessu. Í bókinni
eru lýsingar á þessu basli mínu í
heilt ár,“ segir Jónína. „Ég missti
23 kíló fyrsta árið en eftir að dag-
bókinni lauk hef ég losnað við sjö
kíló í viðbót,“ segir hún enn fremur
en meðal þess sem kemur fram í
bókinni er eftirfarandi hugleiðing.
Fitubolluflíkur í skápnum
„Já, ég er vaxin upp úr þeim
stærðum sem fást í venjulegum
verslunum. Enn og aftur orðin of
feit, þrátt fyrir allar fyrri heit-
strengingar. Líklega orðin þyngri
en ég hef nokkru sinni verið, þyngri
en þegar ég var ólétt. ( Annars hef
ég ekki hugmynd um hversu mörg
kíló er um að ræða. Bað vogin og
ég, við erum sko ekki vin konur.)
Þetta er verulega pirrandi og
niður drepandi fyrir sálina og ég er
ákveðin í að fitubolluflíkurnar sem
ég festi kaup á í dag verði aðeins
skamman tíma í fataskápnum. Ég
ætla ekki að halda áfram að kaupa
fötin mín í sérverslunum með yfir-
stærðir.“
Göngutúrar og garnagaul
En hvað var það sem gagnaðist Jón-
ínu best í stríðinu við auka kílóin?
„Ég fór ekki í þekkta megrunar-
kúra heldur kalla ég þetta gg-
kúrinn, það þýðir göngutúrar
og garnagaul. Þetta er nú ekki
flóknara en að hreyfa sig meira
og borða minna. Í bókinni birti
ég nokkrar góðar uppskriftir en
þær eru ekki týpískar megrunar-
uppskriftir. Ég minnkaði matar-
skammtana í stað þess að borða
bara laufblöð. Ég finn mjög
mikinn mun á mér, enda var ég
meintur hjartasjúklingur þegar
þetta byrjaði og stefndi í hjarta-
þræðingu. Ég fékk mikla verki í
brjóstkassa og var send í rann-
sóknir og fékk margvísleg lyf. Ég
hef verið með astma allt mitt líf og
hef því ekki góð lungu en með því
að léttast um öll þessi kíló hefur
heilsa mín og líðan gjörbreyst til
batnaðar. Ég hugsa stundum um
það núna þegar ég fer í gönguferð
hvernig það væri að vera með þrjá-
tíu kílóa bakpoka dinglandi á sér.“
Afhjúpandi bók
Þessi bók er ólík þeim sem þú
hefur skrifað áður.
„Þetta er mjög persónuleg og
afhjúpandi bók. Maður fer varla
nær sér en að tala um fitukeppina
á sjálfum sér. Mér fannst það
virkilega óþægilegt og ekki síst
núna þegar bókin er komin út. Ég
var tilbúin með bókina haustið
2008 en þá kom hrunið og mér
fannst hún ekki eiga erindi á
markaðinn þá. Ég vona að bókin
geti orðið aðhald fyrir lesendur
eins og hún var fyrir mig,“ segir
Jónína sem fékk nýlega þriggja
mánaða listamannalaun í fyrsta
skipti og situr við skriftir alla
daga.
Um helgina ætlar Jónína að fara
í Þjóðleikhúsið og sjá Vesalingana
og segist hlakka mikið til. „Ég fór
í Þjóðleikhúsið um síðustu helgi
en þar á undan hafði ég ekki farið
lengi í leikhús.“
elin@frettabladid.is
„Þetta er mjög persónuleg og afhjúpandi bók. Maður fer varla nær sér en að tala um
fitukeppina á sjálfum sér,“ segir Jónína um nýju bókina Léttir. FRETTABLADID/VALLI
Framhald af forsíðu
Árleg barna- og unglingabókaráðstefna verður
haldin í Gerðubergi í dag frá klukkan 10.30 til 13.30.
Umfjöllunarefnið er bækur fyrir yngstu börnin.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Rúmföt
Púðar
Handklæði
Barnavörur
Rúmteppi
Dúkar
Mörkinni 6 - Sími 588 5518 Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16, www.topphusid.is
Allt á 2000 kr.
Lokum kl. 5 í dag!
Rým ingar sala
Sigurjón M. Egilsson
stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur