Fréttablaðið - 03.03.2012, Síða 43
LAUGARDAGUR 3. mars 2012 3
„Það er gott að byrja undirbúning
fyrir garðinn í mars, sérstaklega
huga að þeim plöntum sem tíma-
frekt er að forrækta. Kryddjurtir
þurfa til dæmis langan tíma. Það er
þó ekki tímabært að sá fyrir kál- og
salatplöntum nema fólk hafi gróður-
hús,“ segir Guðríður sem hefur
verið með fróðlega garðyrkjuþætti
á sjónvarps stöðinni ÍNN.
„Það tekur nokkrar vikur fyrir
kryddplöntur að vaxa upp úr
pottinum. Basilika er seinvaxin og
þarf góðar aðstæður. Það má ekki
hafa hana í suðurglugga og moldin
þarf alltaf að vera rök,“ segir
Guðríður og bætir við að basil sé
afar vinsæl planta en kóríander
fylgi henni fast á eftir. „Nú eru
allar vin sælustu uppskriftirnar
með kóríander og þess vegna eru
margir að rækta það. Það er hægt
að rækta kóríander utandyra en
ekki basiliku.“
Guðríður segir að um miðjan
apríl þurfi að huga að mat jurtunum
og sá fyrir þeim. Um mánaða mótin
maí/júní eru plönturnar síðan
settar út í garð. „Kálplöntur þurfa
fimm til sex vikur í uppeldi áður
en þær eru settar út. Salatplöntur
taka mun minni tíma eða þrjár
vikur.“
Ræktað á svölunum
Þegar Guðríður er spurð um
þennan aukna ræktunaráhuga
hér á landi svarar hún. „Fólk er
að missa sig í ræktuninni sem er
frábært. Það er svo gaman að upp-
lifa þennan áhuga, sérstaklega
fyrir okkur sem höfum verið að
predika garðyrkju í mörg ár og þá
helst fyrir einhverja sér vitringa.
Ég hef komið á litlar svalir sem
voru eins og flottasta gróðurhús.
Fólk ræktar alls kyns mat- og
kryddjurtir í pottum. Garðyrkja
er gefandi og skemmtileg. Sumir
eru óhræddir að gera tilraunir með
pottaræktun með góðum árangri.
Þeir sem rækta í pottum þurfa að
sinna plöntunum daglega og gæta
að vökvun. Kálplöntur og sumar
salatplöntur blómstra eða njóla
ef þær þorna. Þegar fólk fer í frí
þarf því að fá einhvern til að vökva
eða koma sér upp sjálfvirkum
vökvunar búnaði,“ segir Guðríður.
Á undanförnum árum hefur
þeim tegundum sem fólk ræktar
fjölgað til muna hér á landi. Kletta-
salat er til dæmis auðvelt að rækta.
„Garðar hér á höfuðborgarsvæðinu
eru orðnir svo skjólgóðir að auðvelt
er að prófa sig áfram með nýjar
salattegundir,“ segir Guðríður.
Vandasamt að fella tré
Víða þarf að fella tré sem hafa
vaxið hratt og eru farin að skyggja
á sól eða útsýni. Guðríður segir
vandasamt að fella tré og best sé
að fá garðyrkjufræðinga til þess.
„Þegar tréð er fellt er rótin eftir
og keppist við að lifa áfram. Aspir
og reynitré eru sérstaklega slæm
hvað þetta varðar. Best er að
fella þessi tré á vorin
þegar þau eru að
laufgast. Sígræn
tré er hægt að
fella hvenær
sem er.“
Guðríður býr á
elleftu hæð í fjöl-
býlishúsi og hefur
því ekki að stæður til
að rækta mikið heima
nema helst kryddjurtir.
„Ég nota flúorljós-
in undir eldhús-
inn réttingunni fyrir
kryddjurtirnar. Annars
er ég með sumarbústaða-
land og þar fæ ég útrás í
garð yrkjunni. Þar er ég
bæði að setja niður tré og
rækta matjurtir,“ segir
Guðríður. elin@frettabladid.is
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur býr á elleftu hæð og hefur því ekki tök á að rækta mikið heima nema
kryddjurtir. Í sumarbústaðnum fær hún útrás í garðinum. FRETTABLADID/STEFÁN
„Fólk er að missa sig í ræktuninni sem er frábært. Það er svo gaman að
upplifa þennan áhuga, sérstaklega fyrir okkur sem höfum verið að predika
garðyrkju í mörg ár.
Vorverkin í gang fyrir græna fingur
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur segir að nú sé rétti tíminn til að sá fyrir kryddjurtum, klippa tré og snyrta runna.